Morgunblaðið - 05.01.1967, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.01.1967, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1967. BILALEIGAN FERÐ SIMI 34406 Daggjöld kr. 300,00 og kr. 2,50 á ekinn km. SENDUM MAGNUSAR SKIPHOLTI21 SÍMAR21190 eftir lokon simi 40381 Hverfisgötu 103. Simi eftir lokun 31100. LITLA bíloleígRn Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald. Bensín innifalið í leigugjaldi. Sími 14970 BÍUVLEim VAKUR Sundlaugaveg 12. Simi 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. f-J=*BUAir/GAM RAUOARARSTÍG 31 SÍMI 22022 Fjaðrir, fjaðrablöð. hljóðkútar púströr o.fl. varahlutir i margar gerðir bifreiða. Bílavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168. — Simi 24180. 22-1^75 BIRGIR ÍSL. GUNNARSSON Málflutningsskrifstofa Viðtaistimi kl. 1—5 e.h. NÝK0MI9 Hamilton Beach hrærivélar. Armstrong strauvélar. BRÆÐURNIR ORMSSON hf. Lágmúla 9. Simi 38820. um óviðunandi samgangna á sjó og iandi, því við lifum ekki á tómu lofti hér á Ströndum frekar en annars staðar. Virðingarfyllst, I. K.“. Hundapestin Fyrir jól birtum við hér í dálkunum bréf frá Eyrar- bakka varðandi hundapestina og lógun hunda. Samdægurs hringdi dýralæknirinn á Sel- fossi og sagðist hafa sent okk- ur bréf í framhaldi af þessum skrifum, eða öllu heldur svar við umræddu bréfi. Pósturinn var að skila þessu bréfi til okk- ar núna — og fer það hér á eftir: Selfossi 18/12. ’66. Vegna skrifa hundaeiganda í pistil Velvakanda 18/12. 1966 undir fyrirsögninni „Um hunda pest og hundahald" tel ég mig knúinn til að leiðrétta missagn- ir, sem þar koma fram og til að svara fyrirspum sem til mín er beint. í reglugerð um varnir gegn útbreiðslu hundapestar, en hún styðst við lög nr. 124 22. des. 1947 lög 11 23. apr. 1928 og lög nr. 16 31. jan. 1952 stendur eftirfarandi í 2. grein: Hreppstjórar skulu í samráði við dýralækni sjá um að öll- um hundum sem sýkjast af hundapest, verði lógað án tafar og hræin grafin. Sama máli gegnir um hunda, sem vitað er að haft hafa náin samgang við hunda veika af hundapest, svo ástæða er til að ætla að þeir hafi smitazt. Vegna gruns um hundapest I hundum á Eyrarbakka fór ég 22. okL og skoðaði þar alla hundíuia. Skoðunin leiddi í ljós að yfir helmingur hund- anna var sýktur, og þar að auki voru 2 dauðir. Þar sem sýkingin var þetta mikil og þetta voru fyrstu og einu sýktu hundarnir sem þá var vitað um í Árnessýslu tók yfirdýralæknir þá ákvörðun að lóga skyldi öllum hundum á Eyrarbakka. 25. okt. fór ég ásamt lög- regluþjóni frá Selfossi, þaul- vönum skotmanni niður að Eyrarbakka til þess að fram- fylgja fyrirmælum yfirdýra- læknis. Hreppstjóri Eyróirbakka fylgdi okkur til himdaeigend- anna. Hlutaðeigendur voru að vonum leiðir og það vorum við sem þurftum að framkvæma þetta leiðindaverk ekki síður. En fólkið sýndi skilning svo verkið gekk mjög greiðlega. Nokkrir vildu lóga hundum sín um sjálfir og var það leyft með því skilyrði að því yrði lokið strax þá um daginn. Seinna sama dag fór ég svo aftur ásamt lögregluþjóninum niður að Eyrarbakka til þess að ganga úr skugga um hvort meim hefðu efnt loforð sín og svo hafði verið gert alls staðar nema á einum stað. Þegar við komum þar sat maður all drukkinn í eldhús- iru*. Hann hafði verið fenginn til þess að vinna verkið. Hund- inum hafði verið gefið svefnlyf og var verið að bíða eftir því að hann sofnaði. Við hinkruð- um við til að sjá hvernig færi. Ekki vildi hundurinn sofna, en það var greinilegt að hann var undir áhrifum svefnlyfja þar, sem hann gerðist mjög óróleg- ur og slagaði urrandi um. Ekki mátti skotmaðurinn aðfengni koma nálægt honum. Skotmað- urinn dregur nú hlaðna byssu undan frakka sínum og hefur við orð að skjóta hundinn inni í íbúðinni. Ég sá að við mynd- um ekki geta treyst þessum manni til að aflífa hundinn. Ég bað því konuna um að hand- sama hundinn og halda honum og gerði hún það, en á meðan batt ég um trýnið á honum. Síðan fór ég með hundinn út og lögregluþjónninn skaut hann. Um orð þau sem fóru milli mín og húsbóndans er það að segja að þau standast ekki þar sem húsbóndinn var ekki heima. Fré minni hendi tel ég þetta svo útrætt. Jón Guðbrandsson, dýralæknir, Selfossi. 'Jí Pósturinn í sveitinni Frá Skarðsströnd er skrifað: „Kæri Velvakandi mig lang- ar til að biðja þig að koma með þessum línum orðsendingu til póst og símamálastjóra: Hvers eigum við eiginlega að gjalda hér fyrir vestan að fá ekki jólapóstinn okkar? Það lítur helst út fyrir að hér búi ekki mennskir menn. Það er nú liðin vika frá því að við áttum að fá póstinn hér á Fellsströnd, Klofningshreppi og Skarðs- hreppi. En í Hvammssveit og Saurbæj arhrepp kom hann á aðfangadagskvöld, eins og vera bar. Það var mikið talað um að okkar duglegi póstur var látinn hætta. Hann fór alltaf í hverju sem var og kom póst- inum á réttum tíma sína leið. Átti ekki að verða lakara að fá póstinn tvisvar í viku með mjólkurbílnum sem daglega á að ganga hér um sýslu á sumr- in. En nú að vetrinum virðist það ganga erfiðlega. Ekki er það mjólkurbílstjóranum að kenna, því ekki virðist vera of vel greidd gata hans. Oft hefur hann orðið að þrælast áfram við hin verstu skilyrði. Ætli mörgum bílstjórum sé boðið upp á að moka sig sjálfur áfram eða öðrum kosti að liggja úti í bíl sínum eins og tvívegis kom fyrir í fyrra vet- ur? Við höfum ekki orðið vör við greiðari póstsamgöngur. Ef við þurfum að koma peninga- bréfi frá okkur, þá þurfum við að kaupa bíl fyrir rúmar hundrað krónur eða alla leið til Búðardals, 75 km ferð. Ef við fáum 30 krónu póstkröfu þá kostar bíllinn á annað hundrað til að sækja hana. Þetta er alveg óviðunandi. Svo eru póstkass- arnir þannig að ef pósturinn liggur í þeim verður hann ónýtur. Sé rigning eða kafald er ástandið þannig að ef maður fær ábyrgðarbréf vérður maður að hýma í kulda og kannski rigningu og byl til að „kvítta“ fyrir því niðri á vegi eða láta bílinn fara með það. Það væri gott fyrir þá sem þessum málum stjóra að prófa nú eihu sinni að biða eftir bréf unum sínum svona hálftíma í 17 stiga gaddi. Ætli þeir gengju þá lengi um Reykjavíkurgötur með harðan hatt og stífan flibba og í vél burstuðum skóm? Það eru nógu margar eyðijarð- ir hér til að leigja þessum herr- um og þá gætu þeir prófað sveitasæluna og góðar póstsam göngur, sem áttu að færast í betra horf. Ég sem þessar lín- ur skrifa skora á þá sem með þessi mál fara að bæta tafar- laust úr þessu vandræðaástandi og er ég vissum að þar mæli ég fyrir munn allra sem við þessar aðstæður búa. Þetta er eitt af því sem fælir menn úr sveitunum. Enda virðist fólks- straumurinn alltaf að aukast úr sveitunum. Við sem í sveitinni búum enn horfum ekki björt- um augum fram í tímann ef allt fer jafnhröðum skrefum niður á við og samgöngur okk- ar hafa sýnt nú upp á siðkastið. Og mega þeir nú taka sig sam- an í andlitinu og útvega okkur leiguhúsnæði í Reykjavík er við flykkjumst öll þangað sök- ^ Knattspyrna og póstur Maður nokkur skrifar og spyr, hvort sjónvarpið geti ekki sýnt aftur hluta af film- unni frá úrslitaleik Bretlands og Þýzkalands í heimsmeistara keppninni. Hann vill fá vafa- markið aftur — og vill gjarna að það verið sýnt hægt og ró- lega svo að betur verði að átta sig á þessu. Annar skrifar okkur og kvartar yfir póstinum. Blað, sem lagt var í póst í Reykjavík hinn 16. desember, var borið til viðtakanda í Kópavogi þann 3. janúar. Vissulega höfum við heyrt um fljótari ferðir milli Reykja- víkur og Kópavogs, en ekki er okkur kunnugt um hvaða sam* göngutæki pósturinn notar yfirieitt. Lagermaður Óskum eftir manni á bezta aldri til af- greiðslustarfa að Ármúla 1. G. Þotsfeinsson & Johnsson hf Vil kaupa Hlutabréf í sendibílastöð. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt „sendibílastöð 8777“. LONDON dömudeild Austurstræti 14. Sími 14260. HEUm siðbuxur H E L AIV C A skibabuxur í úrvali. --★-- — PÓSTSENDUM — LOIMDON, dötnudeild V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.