Morgunblaðið - 05.01.1967, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.01.1967, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1967. Frá umrœðum um fjárhagsáœtlun Reykjavíkurborgar: Vaxandi hluti heildarútgjalda til verklegra framkvæmda - Kommúnistar gerðu tillögu um 50 milljón króna skattahækkun - Framsóknarmenn leggja til lækkun framlaga til hagsýslu og vélvæðingar Á F U N D I borgarst jórnar Reykjavíkur hinn 15. des. sl. fór fram 2. umræða um fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborg ar. Verður hér*á eftir getið helztu atriða, sem fram komu í þeim umræðum. Guðmundur Vigfússon, (K): I>að er mikil framför frá því, sem var, að framkvæmdaáætlan ir skuli gerðar til langs tíma. En meðal forsenda áætlunargerðar til langs tíma, er að unnt sé að afla lánsfjár og fjármálastjórn sé sterk. >á er og mikilvægt, að verðbólga setji ekki áætlanir úr skorðum. Áætlanir 'þær, sem Reykjavíkurborg hefur gert hafa ekki staðizt Misræmi vex nú stöðugt milli rekstrargjalda og byggingarframkvæmda. Orsökin er laus og skipulagslítil fjármála stjórn borgarstjóra og borgar- stjórnarmeirihlutans. Rekstur- inn gleymir nær alla tekjuaukn- ingu borgarsjóðs. Brýn þörf er umbóta. Rannsóknir á rekstri borgarsjóðs og borgarfyrirtækja mega ekki dragast lengur. Al- þýðubandalagsmenn treysta sér ekki til að gera stórfelldar breytingartillögur við fjárhags- áætlunina. Til þess hefur alltof lítill tími verið og gögn skort. Sumir útgjaldaliðir hækka ískyggilega frá þessu ári en of langt mál er að rekja það hér. En það er greinilegt, að borg- arstjórnarmeirihlutinn er ekki með sparnaðarráðagerðir á prjón unum hvorki nú né ef til endur- skoðunar fjárhagsáætlunarinnar kæmi á næsta sumri. Það verð- ur að játa, borgarstjóri kemur fram af mikilli hreinskilni, er hann segir, að með þessari fjár- bagsáætlun, sé ef til vill tjaldað til skamms tíma. Kristján Benediktsson (F): Miklar hækkanir hafa orðið á tekjum þjónustufyrirtækja borg- arinnar og er orsökin aðallega hækkun á gjaldskrám þeirra. Magnaukning Rafmagsveitu og Vatnsveitu Reykjavíkur frá 1961 hefur ekki verið nema 5%% á ári, magnaukning Hita- veitunnar nokkuð hærra, en hlýtur að lækka á næsta ári. Borgarbúar greiða 250 millj. kr. meira í borgarsjóð og fyrir rafmagn og vatn en á sl. ári og á sama tíma greiðast 800 millj. kr. meira til ríkisins. Svo eru menn að tala um verðstöðvun. Ef alvara hefði fylgt verðstöðv- un hefði ekki verið lagt fyrir Al- þingi fjárlagafrumvarp með 800 millj. kr. hækkun. í Reykjavík verða teknar 250 millj. kr. af tekjum manna á næsta ári, meir en á yfirstandandi ári og ég spyr, leiðir slík hækkun gjalda ekki af sér aðrar hækkanir? Ríki og Reykjavíkurborg hækka skat+a sína meira en um 1000 millj. kr. Þetta er ekki stöðvunaráætlun í mínum augum. Þessi fjárhagsáætlun er með sama marki brennd og allar áætlanir síðustu 7-8 ára, að und- anteknum eignabreytinga- reikningi, en hann hækkar þó meira nú en framkvæmdir í reynd á þessu ári. Hvaða mun sjá menn á þessu frumvarpi að fjárhagsáætlun og fjárhagsáætl- unum undanfarinna ára? Óskar Hallgrímsson (A): Borgarfulltrúar Alþýðuflokksins flytja engar breytingartillögur við fjárhagsáætlunina. Hún er ekki gallalaus, en hefur þó þau aðaleinkenni, að gjöld hækka miklu minna en oftast áður. Verður ekki á móti því mælt, að hér er að mörgu leyti um hóf- lega fjárhagsáætlun að ræða. Sýna tillögur hinna minnihluta flokkanna og afstaða Alíþýðu- flokksins, að minnihlutaflokkarn ir eru nokkuð ánægðir með áætl unina, miðað við aðstæður. En þeir verða að gera þá kröfu, að hlutlægt mat fari fram á öllum rekstri borgarinnar og minni- hlutaflokkarnir geta fengið betri upplýsingar um borgarrekstur- inn. Ég hef flutt hér í borgarstjórn tillögur um, að borgarstjórn full- nýtti álagningarheimild aðstöðu- gjalda. En nú tel ég ekki unnt, að styðja tillögur Alþýðubanda- lagsins um þetta sama efni vegna verðstöðvunarfrumvarps ríkis- stjórnarinnar. Lagði Óskar áherzlu á, að auka þyrfti fasteignaskatta og gagnrýndi Kristján Benediktsson fyrir „vörn hans fyrir stóreigna- menn“ borgarinnar. Taka verður stærri hluta tekna borgarinnar með fasteignasköttum, en minni hluta með launasköttum. Nú nema fasteignaskattar aðeins um 3,7% af tekjum borgarinnar. Jón Baldvin Hannibalsson (K) gerði grein fyrir tillögum borg- arfulltrúa Alþýðubandalagsins um skólaibyggingar og dagheim- ili og vistheimili. Borgarfulltrú- inn sagði, að ekki væri gert ráð fyrir að sjá fyrir skólaþörf nýrra hverfa í Framkvæmda- og fjár- öflunaráætlun borgarinnar, ekk- ert framlag væri ætlað til skóla í Fossvogi 1967, en annað hvort þyrfti að byggja skóla í Fossvogi eða hefjast handa um annan áfanga Hvassaleitisskóla og hefðu borgarfulltrúar Aiþýðu- bandalagsins valið síðari kost- inn, og gerðu tillogu um þá fram kvæmd og ennfremur um aukið framlag til Breiðholtsskóla. Þá ræddi^ borgarfulltrúinn dag heimili í Árbæjarhverfi. Sagði, að upphaflega hefði verið gert ráð fyrir 5 millj. kr. framlagi á árinu 1967, en því hefði verið slegið á frest til 1968. Þó hefði mátt ætla að borgarstjórn hefði fullan hug á að bæta fyrir ‘van- efndir á þjónustu við þetta hverfi, en dagheimili væri brýnt í þessu hverfi, vegna fjarlægðar, barnamergðar og að íbúar þess, flest ungt fólk væri skuldum vafið og þyrftu því að vinna úti. Þá gerði borgarfulltrúi að um talsefni reksturskostnað barna- heimila á vegum borgarinnar og sagði að hann væri svo hár að með ólíkindum væri. Hér væri um ótrúlega háar upphæð- ir að ræða og óhjákvæmilegt annað, en að rannsókn færi fram á þessum málum, en hæstu kostn aðarliðir væru matur og viðhald fasteigna. Jón Snorri Þorleifsson (K): Borgarfulltrúar Alþýðubanda- lagsins vilja ýta á eftir því, að lokið verði við borgarsjúkra- húsið eftir hálfs annars áratugs göngu. Þrátt fyrir fimm millj. króna aukaframlag til sjúkra hússins, tel ég að sjúkrahús- byggingunni verði ekki lokið næsta haust. Vegna B-álmu vil ég segja, að hefja verður nú þegar undir- búning að byggingu hennar. Mistök mega ekki eiga sér stað eins og við byggingu þess hluta, sem nú er reistur. Samstarf verð ur að takast við ríkið um röð spítalabygginga. Þá fylgdi ræðumaður úr hlaði ályktunartillögu Alþb. um hita- veitumál. Ræddi hann fram- kvæmdaáætlun hitaveitunnar og lánamál hennar. Fjárhagsáætl unin, sagði ræðumaður, gerir ekki ráð fyrir, að þjónustu- möguleikar hitaveitunar aukizt eftir því, sem borgin þenzt út. Síðari ályktunartillaga Alþýðu bandalagsins er þess efnis, að borgarstjórn ákveði að byggja tvö sambýlishús í Breiðholts- hverfi, sem í verði um 150 litlar íbúðir, miðaðar við þarfir aldr- aðs fólks, einstæðra mæðra og fólks með skerta starfsgetu. Gerði ræðumaður grein fyrir henni. og ræddi húsnæðisvanda- mál á breiðum grundvelli og taldi það vera mikið félags- legt vandamál. Birgir ísl. Gunnarsson (S) sagði, að megineinkenni þess- ara umræðna væri sem hér seg- ir: f fyrsta lagi væru allir flokk- ar greinilega sammála um, að skattaálögur á borgartoúa gætu ekki minni verið en gert væri ráð fyrir í þessari fjárhagsáætl- un. Alþýðubandalagið vildi þvert á móti hækka álögurnar um 50 millj. kr., en Framsóknarflokk- ur og Alþýðuflokkur bæru ekki fram neinar tillögur til lækkun- ar á heildarupphæð fjárhagsáætl unarinnar. í öðru lagi væru svo- kallaðar sparnaðartillögur Fram sóknar og Alþýðubandalagsins greinilegar sýndartillögur og mjög lítils virði, enda hefðu fulltrúar þessara flokka ekki bent á neinar raunhæfar leiðir til sparnaðar. Þriðja meginein- kenni umræðnanna væri yfirboð minnihlutaflokkanna á ýmsum sviðum framkvæmda og fjár- magn til þeirra ýmist tekið með auknum álögum eða óraunhæf- um „sparnaðartillögum“. Þá gerði BIG að umtalsefni þann áróður, sem uppi væri hafður að fjár- hagsáætlun þessi væri lík- leg til að auka verðbólgu. Hækkanir frum varpsins á milli ára væru eingöngu vegna hækk- ana, sem þegar væru komnar á og í frumvarpinu ekki gert ráð fyrir neinum kauphækkunum á árinu 1967. Frumvarpið væri sett fram í þeirri einlægu von, að verðhækkanir yrðu ekki á ár- inu 1967 og því væri áætlunin miðuð við það, að útsvarsupp- hæð hækkaði ekki meir en um 18% á milli ára, en líklegt væri, að unnt yrði að ná þeirri hækk- un án þeís að breyta þyrfti skatt stigum. Hlutfallslega myndu menn því greiða sama útsvar á næsta ára og nú á þessu ári. Birgir ræddi því næst þá til- lögu Alþýðubandalagsins að hækka gjaldskrá aðstöðugjalda og vilja þannig auka álögur um 50 millj. króna. Vék hann sér- staklega að þeim rökum Alþýðu bandalagsins að með því að neita að hækka gjaldskrá aðstöðu- gjalda nú væri Sjálfstæðisflokk- urinn að halda hlífiskildi yfir fyrirtækjum og „gróðafélögum“, eins og það héti á máli Alþýðu- bandalagsins. Taldi Birgir að með þessum málflutningi sýndu Alþýðbl.menn mikinn tví- skinnung og rifjaði í þvi sam- bandi upp ummæli Þjóðviljans frá því á sl. sumri, er útsvars- skráin kom út, en þá sagði Þjóð- viljinn um aðstöðugjöldin: „En aðstöðugjöldin eru á engan hátt sambærileg við útsvör. Þau eru reiknuð út frá umsvifum fyrir- tækja án tillits til afkomu þeirra, og fyrirtækin láta þau fara beint út í verðlagið — viðskiptavin- irnir borga. Aðstöðugjöldin eru hliðstæð söluskatti, fyrirtækin greiða þau gjöld ekki í raun og veru, heldur innheimta þau að- eins fyrir borgarsjóð. Ef reikna á aðstöðugjöldin m-eð væri miklu rökréttara að bæta þeim við út- svarsupphæð þá, sem almenning- ur greiðir". Þannig hljóðuðu Þessi orð Þjóðviljans. Eitt væri sagt í dag og annað á morgun. í sumar hefði verið sagt að al- menningur borgaði aðstöðu- gjöldin, fyrirtækin ekki — nú væri komið og sagt að fyrirtækin borguðu aðstöðugjöldin, en al- menningur ekki. Allt eftir því hvað hentaði hverju sinni. Þá benti Birgir á þá blekkingu sem Framsóknarmenn hefðu í frammi, þar sem þeir teldu til skatta þau gjöld, sem einstöku þjónustufyrirtæki borgarinnar innheimtu sem endurgjald fyrir þjónustu, sem þau létu almenn- ingi í té. Gjöld þessi hækkuðu eðlilega frá ári til árs í heild, þar sem þjónusta þeirra ykist og neytendahópurinn stækkaði. Þá gerði Birgir að umtalsefni einstakar breytingatillögur, sem Framsóknarmenn og Alþbl.menn flyttu við frumvarpið. Sagði hann, að fulltrúar þessara flokka notuðu stór orð um það að beita þyrfti meiri hag- ræðingu og hagsýslu í borgar- rekstrinum og taka véltæknina meir í þjónustu sína, en heilind- in í þessu tali þeirra kæmi bezt í ljós, þegar breytingatillögur þeirra væru virtar, en sam- kvæmt þeim vildu þeir lækka framlög bæði til hagsýsluskrif- stofu og til skýrsluvéla. Þannig vildu þeir skera niður þá liði fjárhagsáætlunar, sem horfðu til aukinnar hagsýslu og vélvæð- ipgar í borgarrekstrinum. Þá sagði BÍG að í raun og veru bæri ekki mikið á milli um nauðsyn á fjármagni til einstakra reksturs liða, því að breytingatillögur minnihlutans væru samanlagðar hjá hvorum flokki fyrir sig inn- an við 1% af heildarútgjöldum borgarinnar. Síðasti kaflinn í ræðu Birgis fjallaði um þann áróður, sem nú væri hafður uppi, að rekstrar- útgjöldin gleyptu stöðugt hærri hlut og því væri hlutfallslega minna áætlað til framkvæmda. Létu minnihlutaflokkarnir það i veðri vaka, að hér væri um ára- langa þróun að læða. Þetta væri hinsvegar rangt. Ef kannað væri, hversu mikill hluti af heildar- útgjöldum borgarsjóðs hefði far- ið til verklegra framkvæmda undanfarin ár (gatniagerðarfram kvæmdir meðtaldar) —, þá kæmi eftirfarandi í ljós: Árið 1958 var áætlað til verklegra framkvæmda 27% af heildarút- gjöldum borgarsjóðs, árið 1959 26%, 1960 27%, 1961 27.6%, 1962 2(7%, 1963 30%, 1964 34.7%, 1965 39.5%, 1966 38% og nú fyrir árið 1967 væri áætlað að 32% af heildarútgjöldum borgarsjóðs færu til verklegra framkvæmda. Sú hlutfallstala væri hærri en ár ið 1963 og hærri en nokkurt ár- anna 1959-1963. Hún væri að vísu lægri en undanfarin tvö ár, sem hefðu verið óvenjuleg góðæri, og því hefði verið lýst yfir af borg- arstjóra fyrir kosningar sl. vor, að aukning framkvæmda yrði ekki eins mikil og hún hefði ver- ið hin síðústu ár. Einar Ágústsson (F): Fjár- hagsáætlunin ber sömu ' ein- kenni og hinar fyrri. Höfuð- kennileitin eru hækkun rekstrar gjalda og samdráttur fram- kvæmda. Tölur sýna, að engin stefnubreyting hefur átt sér stað. Fjárlög og fjárhagsáætlun borg- arinnar bera þess merki með þeim hækkunum, sem þar eru, að verðstöðvun er hvergi nærri. Enginn getur tekið mark á verð- stöðvunartalinu. Vék ræðumaður að afstöðu Alþýðuflokksins til verðgæzlu og fjárhagsáætlunar borgar- stjórnar, störfum ráðherra flokks ins í ríkisstjórn og hugleiðing- um um verðlagseftirlit. Vegna þeirrar staðreyndar, að útsvarsstiginn ætti að vera óbreyttur, sagðist ræðumaður draga í efa, að um svo mikla tekjuaukningu gæti verið a3 ræða eins og fjárhagsáætlunin gerði ráð fyrir. Taldi hann, að nýjar álögur yrðu að koma til eftir að verðstöðvunarsjónleikn- um lykL Sagði ræðumaður ,að Fram- sóknarmönnum fyndist mikið dregið úr verklegum framkvæmd um og þeir flyttu sparnaðartil- lögur sínar, til þess að unnt yrði að auka verklegar framkvæmd- ir. Eyðslan heldur áfram. Tekju- liðir eru þandir til hins ítrasta og framkvæmdir skornar niður til að setja peningana í rekstrar- hítina, sagði Einar. Loks mæli ræðumaður með fjórum ályktunartillögum fram- sóknarmanna. Auður Auðuns (S) gerði að umtalsefni tillögu Framsóknar- manna um starfsfræðslu og sagði, að þeir væru nokkuð seint á ferðinni með þessa tillögu, þvf að fyrir 13 árum hefði borgin hafizt handa í þessum málum. Árið 1953 hóf Ólafur Gunnars- son kynningu á starfsfræðslu á vegum borgariiínar og beittí sér fyrir starfsfræðsludegi 1056 og síðan árlega. Ennfremur hefði verið gefinn út bæklingurinn „Hvað viltu verða“. Þótt Reykjavíkurborg hefðl þannig haft forgöngu um þetta Eídhús- innréttingar tizkan i dag SELL — hinar frægu þýzku Sell-eldhúsinnréttingar (úr plasti eða stáli), í íbúðir, félagsheimili, hótel, spítala, báta og flugvélar. Aliir eldhússkápar klæddir þýzkum „Form- ika“-plöt.um, og falla saman með mm nákvæmni, — og fylli stykkjum ef með þarf. — Mjög hagkvæmir vaskar (margar gerðir) — fást með hljóðeinangrun ef óskað er, — Allir hlutir og innréttingar sérsmiðaðir samkv. teikningum, hvort heldur er í hús, báta (skip) o. s. frv. R'afmagnstæki og vélar frá hinum viðurkenndu þýzku Burger-verksmiðjum — (aðrar tegundir fást ef óskað er). Hagstætt verð (sölu- skattur innifalinn). — Hagstæðir greiðsluskilmálar. Hinir vandlátu nota SELL. Þýzk úrvalstækni. MÁLNINGARVÖRUR HF„ Bergstaðastr. 19. - Sími 15166.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.