Morgunblaðið - 05.01.1967, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMÍUDAGUR 5. JANÚAR 1967.
5
ELZTA dagblað Danmerkur ut-
an höfuðborgarinnar „Aalborg
Stiftstidende, hélt hátíðlegan 200
ára afmælisdag sinn þann 2. jan-
úar sl. Sama dag var vigt nýtt
hús blaðsins — hið nýtízkuleg-
asta sem er í eigu dansks dag-
blaðs.
Hinn 2. janúar 1767 kom út 1
etærsta kaupstaðnum á Jótlandi,
Álaborg, vikublað, sem bar
nafnið „Nyttige og fornögelige
jydske Efterretninger“. Stofn-
endur blaðsins voru fjórir prest-
ar í Álaborg, sem í tvö ár höfðu
rekið prentsmiðju, sem síðar
varð þekkt um allt land undir
Híð merka blað, Aalborg
Stiftstidende, 200 ára
nafninu „Aalborg Stiftsbog-
trykkeri. En í dag er hún eign
sama hlutafélags, sem gefur Aal-
borg Stiftstidende út.
í 200 ár hafa þrjár fjölskyldur
sett svip sinn á útgáfu og rit-
stjórn Aalborg Stiftstidende.
Fyrst var það presturinn Johan
Wandall, sem var einn af fjórum
stofnendum, og varð harin rit-
stjóri og síðar sonur hans. Um
aldamótin 1900 hófst nýr þáttur
í sögu blaðsins, sem þá var rúm-
lega 130 ára gamalt. Útgefand-
inn, frú Marie Rée réði lyfja-
fræðinginn L. Schiöttz- Ohrist-
ensen til að ritstýra blaðinu.
L. Schiöttz-Christensen var
sonur gullsmiðs frá Sorö. Að
loknu embættisprófi var hann
ráðinn til LÖvapotektet í Odense
og síðar til Svaneapotekt í Ála-
borg, en eftir nokkurra ára starf
þar fluttist hann til Blaagaards-
apoteket í Kaupmannahöfn. Þótt
lyfjafræðin héldi huga hans
föngnum var Schiöttz-Christen-
sen mjög óánægður með þau
kjör, sem lyfjafræðingum voru
búin. Hann varð formaður í
Félagi lyfjafræðinga og ritstjóri
blaðs þess. Það varð baráttublað
og Schiöttz-Ohristensen sigraði
í baráttu sinni. Bætt laun og
aðbúð lyfjafræðinga varð ár-
angurinn.
Er Schiöttz-Christensen dvald
ist í París hitti hann útgefanda
Aalborg Stiftstidende, frú Marie
Rée, sem hreifst af persónutöfr-
um hans, eins og svo margir aðr-
ir. Hún bauð honum ritstjóra-
stöðuna. Þann 1. september árið
1900 tók hann við launaðri
stöðu ritstjóra. Árið 1910 keypti
hann blaðið af dánarbúi Marie
Rée og næstu 40 árin varð hann
útgefandi þess. Geisimiklar
framfarir urðu undir hans vitur
legu stjórn Blaðið varð sífellt
öflugra og öflugra.
Allt til dauða síns árið 1960
var Schiöttz-Christensen útgef-
andi Aalborg Stiftstidende, en
hann lét af stöðu aðalritstjóra 9.
apríl árið 1940, einmitt sama dag
og Þýzkaland hernam Dan-
mörku. Dagleg stjórn hins rmikla
blaðs færðist nú í hendur yngsta
sonar hans, cand. phil. • Alf
Schiöttz-Christensen. Þetta var
erfiður tími fyrir nýjan aðalrit-
stjóra. Mjög fljótlega komst
Aalborg Stiftstidende í ónáð hjá
þýzku hernámsyfirvöldunum
vegna málflutnings síns. Aðfara-
nótt 17. marz 1944 eyðilögðu
Þjóðverjar hús blaðsins með
sprengjuárás, en þrátt fyrir hinn
mikla skaða tókst Þriðja ríkinu
ekki að hindra útgáfu Aalborg
Stiftstidende.
Undir forystu Alf Schiöttz-
Christensen hefur Aalborg
Stiftstidende verið brautryðj-
andi í tæknilegum efnum í
danska blaðaheiminum. En einn
ig utan blaðsins er rúm fyrir
hina fjölbreytilegu hæfileika
Hið nýja stórhýsi Aalborg Stifts tidende, sem vígt var á afmælisdagiim, 2. janúar 1967.
Alf Schiöttz-Cristensen,
aðalritstjóri og framkvæmda
stjóri blaðsins.
aðalritstjórans. Hann hefur ver-
ið formaður og stjórnarmeðlim-
ur í samtökum útgefanda og
prentsmiðja úti á landstoyggð-
inni og gegnt ýmsum öðrum
trúnaðarstörfum.
Útgefendur Aalborgs Stifts,-
tidende eru nú fjögur systkini og
er dóttir aðalritstjórans, frú Eja
Packness, formaður stjórnar-
innar. Blaðið er gefið út í 53.144
eintökum á dag og 82.039 á
sunnudögum.
í hinu nýja stórhýsi blaðsins
starfa'200 manns. Aalborg Stifts
tidende er stærsta dagblað
Norður-Jótlands, þriðja stærstg
blað landsbyggðarinnar og sjö-
unda stærsta í Damnörku.
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
Blaðburðarfólk
vontor í eftirtolin hverfi:
Granaskjól Seltjarnarnes -
Seltj. — Melabraut Skjólbraut
Vesturgata I Skerjafjörður -
Kjartansgata sunnan flugvallar.
Njálsgata Ásvallagata
Lindargata Hávallagata.
Selás Túngata
Bergstaðastræti Stigahlíð I
Rauðarárstígur Hverfisgata II
Hluti af Blesugróf Framnesvegur
Hraunteigur Langagerði
Meðalholt Miklabraut
Miðbær Lambastaðahverfi
Úthlíð Nesvegur
Hátún Flókagata neðri
Rauðagerði Meistaravellir
Fálkagata Sjafnargata
Tolið við oígreiðsluno sími 22480
i ° ;. -C
B. H. WEISTAD &Co.
HUERJIR UERÐH
þeir hepphu i nn ?
(aðeins þeir sem eiga miða.)
Dreg/ð
n.k. þriðjudag
Skúlagötu 63 III. hœð
Sími 19133 • Pósthólf 579
LOFTUR hf.
Ingólfsstræti 6.
Pantið tima í síma 1-47-72.
tl
HHPPDRKITlT