Morgunblaðið - 05.01.1967, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1967.
11
mál, hefði það
alltaf verið skoð
un fræðsluyfir-
valda borgarinn
ar, að hér væri
um mál að
ræða, sem
heyrði undir
ríkið alveg eins
og fræðsla í
skólum. Haust-
ið 1964 var Stefáni Ólafi Jóns-
syni kennara falið að annast
starfsfræðsluna, 1965 var hann
settur til þess starfs að fullu
og gegnir því nú með embættis-
heiti námsstjóra Auður lagði
áherzlu á, að fræðsluyfirvöld
borgarinnar ættu að standa fast
á því, að ríkið stæði undir kostn
aði við starfsfræðsluna
í>á gerði hún að umtalsefni þá
gagnrýni sem fram kom á fund
inum á skrifstofukostnað Iðn-
skólans, og benti á að nemenda
fjöldi Iðnskólans væri um 3000
á ári og kennsla færi fram í nám
skeiðum. Segja mætti, að hér
væri um marga skóla að ræða, og
því ekki óeðlilegt þótt stjórnun-
arkostnaður slíkrar stofnunar
væri hærri en annarra skóla.
Þá vakti Auður Auðuns at-
hygli á því, að það sem fyrst og
fremst hleypti upp rekstrar-
kostnaði vistheimila á vegum
'borgarinnar væri launagreiðslur
og nefndi sem dæmi vöggustof-
una að Hlíðarenda en heildar-
kostnaður hennar var árið 1966
3% millj. kr. en af þeirri upp-
hæð voru 2 '/2 millj. launa-
greiðslur.
Úlfar Þórðarson (S). Úlfar vék
í upphafi máls síns að afstöðu
kommúnista til Borgarsjúkra-
hússins og málflutningi þeirra
við fyrri umræðu um fjárhags-
áætlunina. Sagði hann, að þeir
hefðu greinilega endurskoðað að
nokkru afstöðu sína og nálgast
staðreyndir. Rakti Úlfar síðan
byggingarsögu sjúkrahússins í
stórum dráttum, af því tilefni,
að minnihlutaflokkarnir væru
ætíð að narta í það mál og af
vanþekkingu.
Vorið 1954 hófust framkvæmd
Ir við sjúkrahúsið. Það var á
tímum fj árféstingarleyfa. Borg-
arstjórn samþykkt þá nokkru
áður einróma að hefja byggingar
framkvæmdir og er því fyrir-
hyggjuleysi, ef eitthvað hefur
verið, á ábyrgð allra borgar-
st j órnarf lokkanna. Fyrstu sex
árin fær borgarstjórn fjárfest-
ingarleyfi fyrir 3.7 millj. á ári.
Á árunum 1961-
1964 voru veitt
ar um 196 millj.
króna til sjúkra
hússins, árið
1965 um 50
millj. og 1966
um 60 millj.
Ekki er hægt
að álasa bygging
arnefnd, sem
starfaði á skömmtunartímum
fyrir það, að fjárfestingarleyfin
væru lág. Allar fjárfestingar-
heimildir voru nýttar til fulln-
ustu, en tölur sýna, að sjúkra-
húsið var laust við að vera óska
barn vinstri stjórnarinnar.. Að
mínu mati hefur sjúkrahússmál-
um ætíð verið heldur lítill
skilningur sýndui, en þó hefur
rofað til á síðustu árum þó mik-
ið vanti enn.
Þá kom fram í ræðu Úlfars, að
sjúkrahúsnefndin hefði haft
full samráð við yfirlækna sjúkra
hússins eftir að þeir komu til
sögunnar.
Röntgendeildin, sem tekin var
í notkun í vor, er þannig úr garði
gerð, að leita má víða, ef finna
á röntgendeild, sem stendur
henni á sporði.
Það er auðvelt að finna að,
kasta steini að þeim aðilum, er
byggja sjúkrahús, eins og Borg-
arsjúkrahúsið. En menn skyldu
hafa í huga, að það er byggt á
tímamótum í læknisfræði. Þess
vegna er allt er það varðar
meira og minna háð breytingum.
Venjuleg verkfæri til sjúkra-
húsa hafa t.d. hækkað um 12%
á ári hverju á erlendum mörkuð
um.
Ekki verður hjá því komizt, að
finna grundvöll samstarfs ríkis
og borgara um spítalamál. Þá
verður ríkið að standa skil á
sínum hluta byggingarkostnaðar
Borgarsj úkrahússins.
Björgvin Guðmundsson (A)
sagði fulltrúa Alþýðuflokksins
ekki flytja breytingartillögur
við fjárhagsáætlunina, en æski-
legt væri, að hægt yrði að auka
framlög til skólabygginga,
íþróttamannvirkja og íbúðabygg
inga. Slíkt væri þó ekki kleift
nú vegna verðstöðvunarstefn-
unnar.
Björgvin flutti breytingartil-
lögu við tillögu Alþbl. um íbúða-
byggingar, sem fól í sér, að þær
skyldu einnig ætlaðar ungu
fólki.
Bragi Hannesson (S): Borgar-
fulltrúar Alþýbl. bera fram till.
um hækkun aðstöðugjalda og
væntanlega er það þeirra inn-
legg í það að bæta aðstöðu at-
vinnuveganna. Ég lýsi mig and-
vígan þessari till. vegna þess,
að ég álít, að þetta verði át-
vinnuvegunum til byrði eins og
nú er og einmitt
út frá því sjón-
armiði líka, að
ég er hræddur
um, að þessi
till. geti orðið
iðnaðinum til
erfiðleika, en
eins og kunn-
ugt er, veitir
hann flestum
borgarbúum atvinnu, af atvinnu
vegum þeim, sem eru í borg-
inni.
Vegna till. þeirrar, sem hér
liggur fyrir frá borgarfltr. Alþb
um hitaveitumál, má minna á
umr. þær, sem áttu sér stað i
borgarstjórn í byrjun nóvember
um Hitaveituna í tilefni af till.
Guðmundar Vigíússonar borgar-
ftr. Skýrt var frá því, að Reykja
víkurborg hefði gerzt aðili að
samstarfi sveitarfélaganna í ná-
grenninu um að láta bora 8 hol-
ur og þar af 2 í Reykjavík í
rannsóknarskyni. Er nú fengið
loforð frá jarðhitasjóði fyrir
20% af áætluðum heildarkostn-
aði. Jafnframt má á það minna,
að í framkvæmda- og fjáröflun-
aráætlun Reykjavikurborgar
1967-1970, eru áætlaðar 32 millj.
kr. í boranir og virkjun á heitu
vatni. Eins og rætt hefur verið
áður um í borgarstjórn, gekk
ver að afla lánsfjár til Hitaveit-
unnar á þessu ári, en ætlað
hafði verið, en samtals nemur
lánsfjáhhæðm á árinu um 55
millj. kr. Þar af er sænskt lán
20 millj. kr, enskt lán 25 millj.
Framhald á bls. 12
Verzluiiarhúsnæði - Miðhorg
Verzlunarhúsnæði óskast til leigu. Kaup gætu
komið til greina.
Tilboð sendist Morgunbl. merkt: „8332“.
DALE CARNEGIE
NÁMSKEIÐIÐ!
Nýtt námskeið er að hefjast. — Innritun hafin.
Meðal annars fjallar námskeiðið um:
Öðlast öryggi og sjálfstraust.
Beita sannfæringakraftinúm.
>}?- Muna nöfn.
Fljóta og auðvelda aðferð til að halda ræðu.
Halda áhyggjum í skef jum og draga úr kvíða.
-sjý Þjálfa hæfileika sína, að umgangast fólk.
Losna úr viðjum vanafestunnar.
-jk Komast lengra í sínu starfi og afla meiri
tekna.
Dale Carnegie námskeiðið hófst í Bandaríkjunum
1912. Starfar nú um allan heim og hafa yfir
1.000.000 karla og kvenna útskrifazt.
Hringið í síma 3-0216 og leitið frekari upplýsmga.
KONRÁÐ ADOLPHSSON.
P.O. Box 82. — Reykjavík.
TIL LEIGU
verzlunarpláss fyrir kjöt- og ný-
lenduvörur, einnig getur fylgt
sérpláss fyrir brauðsölu, flskbúð
eða kvöldsölubúð. Upplýslngar
í sínia 14501 og 15444
r r
Fimmtudag 5. ]an. kl. 20 í Sjálfstæðishúsinu
VÖRÐUR
HVÖT
SPILUÐ
FÉLAGSVIST
Sœtamiðar afhentir
á skrifstofu
Sjálfstœðisflokksins
á venjulegum
skrifstofutíma
Húsið opnað kl. 20
Lokað kl. 20.30
HEIMDALLUR
ÓÐINN
Clœsileg spilaverðlaun
Happdrœtti
ÁVARP
Dr. Bjarni Benediktsson
fors€L..sráðherra
Skemmtiþáttur
2 þekktir leiku.ur flytja
Dans
Dr. Bjarni Benediktsson Skemmtinefnd