Morgunblaðið - 05.01.1967, Síða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ, I’IlSIMTUpAGUR 5, JANÚAR 1967.
þess og enn verður framhald á
framkvæmdum ' undir þessum
lið, þar sem gert er ráð fyrir því
í fjárhagsáætlun þeirri, sem hér
er til umr., að nýr starfsmaður
verði ráðinn til þess starfs eða
til þessarar deildar á komandi
ári. Einnig hefur fuiltrúi þessi
unnið að þvi að stuðla að starfi
frjálsra félagssamtaka, einkum
þó safnaða að margvíslegum þjón
ustustörfum við aldraða. I>á var
í till. samþykkt um íbúðir, að
&00 íbúðir skyldi byggja á 20 ár-
•um eða 25 íbúðir á ári hverju.
SÞagar hafa verið teknar í not-
kun á árinu 1966 29 íbúðir fyrir
aldraða eða fyllilega kvóti þesS
árs, og framhald verður á. Þá
var í tiU. samþykkt um hjúkr-
unarheimili fyrir aldrað fólk.
Skyldi samkv. till. byggja um
12-13 sjúkrarými á hjúkrunar-
heimilum á ári hverju. Það var
ljóst í upphafi, að bygging
bjúkrunarheimilis, undirbún-
ingur þess, teikning og annað
slíkt er mjög vandasamt, þar
sem aldrei fyrr hefur hér á landi
verið ráðizt í það að byggja
hj úkrunarheimili og þar sem enn
fremur reynsla af þessum hlut-
um er mjög ný hjá nágranna-
þjóðunum og kanna þyrfti ræki-
lega, hvaða línu skyldi velja,
þvi að menn hafa farið ýmsar
leiðir í þeim efnum meðal ná-
grannaþjóða. hó ber þess að
geta, að það kemur í þarfir fyr
ir aldrað fólk almennt, að á dval
arheimili aldraðra sjómanna
hefur verið í notkun ný álma
og önnur ný álma er í byggingu,
ennfremur, að unnið hefur verið
að því að fá samþykkt sjúkra-
húsnefndar fyrir því, að þegar
húsnæði losnar í núverandi borg
arspítala við byggingu Borgar-
sjúkrahússins, verði hluti þess
tekinn fyrir hjúkrunarheimili
fyrir aldrað fólk og fyrir lang-
legusjúklinga almennt. Þá skip-
aði borgarstjórinn nefnd þriggja
manna til þess að gera undir-
búningstill. og ræða um málin
við velferðarnefnd aldraðra og
heimilaði einnig ráðningu arki-
tekts. Þessir 3 mann ásamt arki-
tekt, en hann er einn þeirra
þriggja, hafa á þessu ári irnnið
dyggilega að því að undirbúa
málið, og raunar verður að segja,
að undirbúningi er lokið. Teikn-
ingar eru hafnar. Arkitektinn
taldi sér nauðsyn þess að fara
til útlanda og skoða þar heim-
ili, sem þar eru, sem hann gerði
á þessu hausti og strax, er hann
Piltar - Stúlkur
Liljukórinn óskar að bæta við sig söngfólki. Allar
upplýsingar gefnar í símum 15275 og 30807 kk
7—8 næstu kvöld.
rafgeymarnir komnir aftur í mörgum
stærðum og gerðum.
DAGENITE
Garðar Gislason hf.
bifreiðaverzlun
kom til landsins, var haldinn
fundur í velferðarnefnd aldraðra
sem tók málið upp á nýjan leik
og samþykkt að ljúka umr. 10.
janúar og taka þá lokaákvörðun
í málinu. Úthlutað hefur verið
lóð undir hjúkrunarheimili á
bezta stað í bænum, á horni Bú-
staðavegar og Grensásvegar, en
velferðarnefndin er ekki ein-
huga um það, hvort sú stærð af
hjúkrunarheimili, sem við höf-
um hingað til ætlað á þessa lóð
sé nægjanleg, og komið hefur
fram sú skoðun mjög eindregið
innan nefndarinnar, að hjúkr-
unarheimilið beri að hafa stærra
til þess að reksturinn verði nógu
hagkvæmur og yrði þess vegna
að hverfa frá því að nýta þessa
lóð. Það eru ekki fultrúar borg-
arinnar í þessari nefnd, sem hafa
rætt málið á þessum girund-
velli. Hér er ekki um einhverjar
sparnaðartill. að ræða, heldur er
hér tekið á málinu út frá þeim
lögmálum, sem hljóta að ríkja
um velferðarmál aldraðra, þegar
um hjúkrunarheimili er rætt.
Málið liggur þá þannig fyrir, að
húsið verður teiknað og boðið
út á árinu 1967, og þess vegna
er ekki álitið nauðsynlegt að
áætla fé í fjárhagsáætlun til
byggingarframkvæmda á þessu
byggingarframkvæmdir geti haf-
izt þegar í ársbyrj-un 1966.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Þá. má geta þess, að 2. Ijður nefnilega sá, að komið hefur
ályktunarinnar frá 3. júlí 1965
hefur líka verið framkvæmdur,
verið á heimilisaðstoð fyrir aldr-
að fólk og ér hún i gangi.
Vélstjóri
Vantar vélstjóra á góðan vertíðarbát, sem rær
frá Akranesi. Há trygging. Uppl. í síma 24850
og 92-1951.
Innritun 5-8 e.h.
Lœrið talmól erlendra þjóða í fémennum flokkum
Enska-danska-þýzka-franska-spanska-rússneska
Mólakunnótta er öllum nauðsynleg
fVIALASKOLI
halldórs
sími 3-7908
SKYNDISALA SKYNDISALA
Þar sem verzlunin verður að hætta á Vesturgötu 2, 7. janúar
nk. verður SKYNDISALA þessa daga og afsláttur gefinn af
ljósatækjum 10—50%.
Uppeldisleikföng
„Mekkanó“ og „Plastic-
ant“ eru seld með 25%
afslætti.
íslenzkur leir, vasar,
skálar o. fl. er selt með
50% afslaetti.
VERDLÆKKUN A FOÐURBLONOU
Fáum til landsins í dag
„MILB€FLOW## kúcsfó^urblöndu
Frá Co-Operative Vfholesale Sociefy Ltd. Bretlandi
Hér er um mjög góða KÚAFÓÐURBLÖNDU að ræða, sem framleidd er undir ströngu eftirliti
og inniheldur 15% PROTEIN.
x
Verð mjög hagstœtt
í næstu viku fáum við til landsins
KÖGGLAÐ K ÚAFÖÐUR
frá hinu þekkta fyrirtæki
Korn- og Foderstof Kompagniet A'S Danmörku
Verb á þessu kögglada K ÚAFÓÐRI verður einnig mjög hagstætt
MJÖLKURFÉLAG REYKJAVÍKUR
Síminn er 1-11-25.