Morgunblaðið - 05.01.1967, Side 20

Morgunblaðið - 05.01.1967, Side 20
20 MORGUNPTAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1967. Frá matsveina- og veitingaþjónaskólaíiiim Kvöldnámskeið fyrir matsveina á fiski- og flutn- ingaskipum hefst þriðjudaginn 10. jan. Innritun fer fram á skrifstofu skólans mánudag- inn 9. jan. kl. 7—8 e.h. Nánari uppl. í síma 19675 og 17489. Skólastjóri. <?■ ~Bi mímir Fjölbreytt eg skemmtilegt tungumála- nám. — Símar 1 000 4 og 2 16 55 (kl. 1—7). malas::olrnim mmm Hafnarstræti 15 og Brautarholti 4. ÍBÚÐ í VESTURBORGINNI Höfum til sölu ca. 160 ferm. 5—6 herb. íbúð í tvíbýlishúsi í Vesturborginni. — íbúðin selst tilbúin undir tréverk og hús- ið fullfrágengið að utan, með hurðum og tvöföldu gleri. — Stór bílskúr og sameign í kjallara fylgir. MÁLFLUTNINGS- og FASTEIGNASTOFA, Agnar Gútsafsson, hrl., Björn Pétursson, F asteignaviðskipiti, Austurstræti 14. — Símar 22870 og 21750. Utan skrifstofutíma: 35455 og 33267. ÞR Dansnámskeið Námskeið í gömlu dönsunum, byrjanda- og fram- haldsflokkar, hefjast mánudaginn 9 .jan. og mið- vikudaginn 11. jan. í Alþýðuhúsinu við Hverfis- götu. Einnig námskeið í þjóðdönsum. Innritun og upplýsingar í síma félagsins 12507. Skírteinaaf- hending fer fram að Fríkirkjuvegi 11, laugardaginn 7. jan. kl. 2—5 e.h. Þjóðdansafélag Reykjavíkur. - MINNING Framhald af bls. 18. voru bernsku og æskustöðvar Skúla og er mikils um vert, þeg- ar saman fer kynstórar og góðar ættir og gott uppeldi. Ekki veit ég með vissu hvernig á því stóð ,að Skúli gekk ekki menntaveginn, svo góðum gáf- um, sem hann var gæddur, elzti sonurinn á efnuðu fyrirmanna- heimili, bar nafn afa síns pró- fastsins á Breiðabólstað og virt- ist hafa öll skilyrði til að ganga þá lifsleið. En þessu mun hann hafa sjálfur ráðið og foreldrarn- ir nógu vitrir til þess að láta unga manninn sjálfráðan um val á lífsstarfi. Að sjálfsögðu var Skúli ákveðinn í að afla sér al- ménnrar menntunar. Hann fór 16 ára gamall í Flensborgarskól- ann, en hann var á þessum tím- um helzta athvarf námfúsra æskumanna og komu frá honum margir framtakssamir menn, sem hafa skilið eftir sig mörg heilla- drjúg spor í íslenzku þjóðlífi. Var Flensborgarskólinn hér sunn anlands hliðstæður Möðruvalla- skólanum norðanlands. Skúli kom í Flensborg sama haust og séra Magnús Helgason kom þang að kennari í fyrsta sinn. Mun þeirn Kiðjabergshjónum hafa þótt gott, að hinn virðulegi vinur þeirra gæfi hinum unga syni þeirra gætur. Það mun hafa verið létt verk. Skúli stundaði nám í tvo vetur í Flensborg, en haustið 1907 fór hann til Hvann- eyrar til eins vetrar náms í bændaskólanum þar,. en það haust byrjaði Halldór Vilhjálms- son skólastjórn. Að Hvanneyrar- dvölinni lokinni fer hann haust- ið 1908 til Danmerkur og stund- ar nám í Dalum búnaðarskóla á Fjóni líklega í tvo vetur, en notaði vor og sumar til verk- legs náms á dönskum Iherra- garði, eins og dönsk stórbýli voru kölluð á þeim árum. Hann kemur svo heim vorið 1910 og réðst þá starfsmaður Búnaðar- sambands Suðurands, aðallega að vorinu til og fram eftir sumri og var aðalstarfið umferða- plægingar, tilraunareitir í gras- rækt og mæling jarðabóta. En nú var í mörgu að snúast. Unga fólkið var upptendrað af leiftr- andi áhuga fyrir ungmennafélags starfinu og eitt af mörgum áhuga málum ungmennafélaganna voru íþróttirnar. Til þess að ná ár- angri þótti sjálfsagt að stofna íþróttasamband. Eftir mikinn undirbúning var íþróttasamband ið Skarphéðinn stofnað haustið 1910, og Skúli kosinn í fyrstu stjórn þess, en um sumarið 9. júlí var fyrsta íþróttamót hins vænt- anlega sambands haldið að Þjórs ártúni. Á því íþróttamóti var Skúli Gunlaugsson einn af átján kappglímumönnum. Hann hafði alla ævi lifandi áhuga á íþrótt- um, las alla tíð íþróttafréttir dag blaðanna af gaumgæfni og áhuga á árangri unga fóiksins í íþrótt- um. Skúli starfaði hjá Búnaðarsam- bandi Suðurlands þangað til Nýju jarðræktarlögin gengu í gildi 1923, mældi jarðabætur síðast það ár. Árið 1924 gerast merk þáttaskil í lífi Skúla Gunn- laugssonar, þá gerist hann bóndi í Bræðratungu. Tildrög að því má rekja til konungskomunnar 1907. í þeirri för var Sven Poulsen, lögfræðingur, fréttarit- ari Berlings og fengu þeir Dan- irnir áhuga fyrir stórbúsikap á íslenzku höfuðbóli. Nokkrum ár- um seinna stofnaði Svend Poul- sen hlutafélag og keypti Bræðra tungu ásamt fimm hjáleigum. 1916 kemur Poulsen til íslands til að skoða höfuðbólið og var þá Skúli ráðinn fylgdarmaður hans. í þessari 5 daga ferð varð þeim vel til vina danska ritstjór- anum og Skúla, sem entist með- an báðir lifðu. Árið 1922 bauð Poulsen Skúla til nokkurra mán- aðar dvalar í Danmörku, til að kynnast dönskum landbúnaði, en til þess lágu þau drög, að 1921, er Kristján X kom til íslands, var Poulsen fréttaritari Berlings í annað sinn, en Skúli var einnig í fylgdarliði konungs af íslands hálfu, og samdist þá svo á milli þeirra ,að Skúli tæki Bræðra- tungu og færi að búa þar, sem varð eins og áður er getið 1924. Síðan hefur Skúli búið þar óslit- ið til æviloka í 42 ár með mesta sóma, búið þar á íslenzka vísu, en ekki danska, eins og Poulsen hinn danski, ritstjóri Berlings hefur sennilega hugsað sér. Var Poulsen lítilsháttar með í bú- skapnum fyrstu 7 árin, en hætti þá, þegar stórbúskapardraumar hans voru að engu orðnir, seldi hann íslenzka ríkinu Bræðra- tungutorfuna alla 1936. Þannig endaði þetta islenzk-danska bú- skaparævintýri. Síðustu árin hef ur Sveinn sonur Skúla haft ábúð á hálfri jörðinni og búið að nokkru leyti félagsbúi með föður sínurn. Þegar Skúli kom í Bræðra- tungu, varð hann vitanlega að segja skilið við þau trúnaðar- störf, sem fallið hödðu í hans hlut í æskusveit hans, Gríms- nesi. Þar var hann meðal annars í hreppsnefnd og þótti mjög fá- títt, að ungur búlaus maður væri kosinn í hreppsnefnd. Þá var hann ungur kosinn í stjórn bún- aðarfélags hreppsins, gekkst fyrir stofnun búfjárræktarfélaga bæði í nautgriparækt og hrossa- rækt og var góður liðsmaður í ungmennafélaginu. Má vera, að hann hafi haft fleiri störf með höndum þótt mér sé það ekki kunnugt. Þótt ég telji, að Tungnamenn taki jafnan vel á móti aðkomu- mönnum, fór það svo að fyrstu árin voru Skúla ekki falin trún- aðarstörf. Það myndaðist því eins konar félagsleg eyða í lífi hans og mun honum hafa þótt alltómlegt og var ekiki að undra, slíkur félagshyggjumaður sem hann var. En þetta átti eftir að breytast. Árið 1928 er merkisár í lífi hans, að því leyti, að þá er hann, með nokkurra vikna og mánaða millibili kosinn í hverja trúnaðarstöðuna eftir aðra. Fyrst um vorið er hann kosinn í hreppsnefnd og gegndi því starfi þangað til á síðastliðnu vori, að hann baðst undan endurkosningu og var oddviti í 20 ár. Seinna um vorið var hann kosinn í sýslu- nefnd, kosinn í stjórn Búnaðar- félags Biskupstungna og naut- griparæktarfélagsins, sem hann var lengi formaður fyrir og um haustið kosinn deildarstjóri I Biskupstungnadeild Sláturfélags Suðurlands og var hann einnig endurskoðandi þess síðan 1950. Hann var deildarstjóri Kaupfé- lags Árnesinga frá stofnun þess, lengi í varastjórn og í stjórn þess síðustu 6 ár ævinnar. Þá átti hann sæti í skólanefnd héraðs- skólans á Laugarvatni um all- margra ára s’keið. Sem oddviti hafði hann yfirum sjón með öllum meiriháttar fram kvæmdum í sveitinni, þótt ýms- ir aðrir menn sæju um dagleg störf við þessar framkvæmdir, svo sem réttabyggingu, barna- skóla, félagsheimili og ýmsar smærri byggingar. Öll hin margháttuðu störf sín leysti Skúli af höndum með hinni mestu prýði og einstakri trúmennsku og alúð. Er vand- fundinn jafningi hans í ósér- hlífni og samvizkusemi. Honum var félagshyggja í blóð borin og hafði hinn fyllsta skining á því, að menningarmál sveitanna og reyndar megin þorra þjóðarinn- ar, verður að leysa á félagsleg- uim grundvelli. Skúli Gunnlaugsson var víð- sýnn hugsjónamaður, þótt hann hefði ekki hávaðasamar orðræð- ur um slíkt. Er enn ógetið eins þáttar í lífi hans frá æskuárun- um. Á þeim árum var Gestur á Hæli mjög umsvifami'kill mað- ur, sem færðist mikið í fang, var umtalaður og umdeildur eins og allir hugsjóna- og athafnamenn, sem sjá gegn um holt og hæðir framtíðarinnar. Þeir Gestur og Skúli voru miklir vinir og fé- lagar o£ var Gestur nokkru eldri, Skúli hreifst af djörfung hans, framsýni og athafnasemi. Hann verzlaði með láð og lög eins og aðrir með smávægilegan varning. — Á þessum árum fór mikil og sterk alda um Suðurland, og sjálfsagt víðar, að kaupa upp vatnsorku. Útlend auðfélög buðu bændum gull fyrir fossa og fúð- ir. Þetta þótti Gesti allillt og vildi koma í veg fyrir, að vatns- aflið íslenzka yrði eign útlendra auðhringa. Þeir félagar Gestur og Skúli brugðu hart við og stofnuðu fossafélag, hlutafélagið Sleipnir. Gerðust margir merkis bændur í Árnesþingi hluthafar í þessu félagi, aðallega þeir, sem. bjuggu meðfram Hvítá, því sú á var aðalkeppikefli félagsins. Heimsstyrjöldin fyrri breytti mörgu og Gestur dó 191®, og langt fjárhasglegt erfiðleikatíma bil með heimskreppu og íslenzka kreppu, sem gekk af mörgum hugsjónum dauðum. Útlendu fossafélögin lögðust fram á lappir sínar og seldu íslenzka ríkinu öll sín vatnsrétt- nidi í Þjórsá fyrir 6—7 herbergja íbúðarverð nú á dögum. Þann kaupsamning gerði Hermann Jónasson í raforkumálaráðherra- tíð hans. Það var þvi ekfki að undra þótt þetta litla íslenzka fossafélag yrði að leggja upp laupana. En gaman var að ævin týrinu, hugsjónunum og kjarkin um. Gestur á Hæli átti frum- kvæði og framkvæmd að stjórn- málasamtökunum „Óháðir bænd- ur“, sem buðu fram lista við landskjörið 1916 og komu manni að. Mér er vel kunnugt, að Skúli var með í ráðum, þegar til þess- ara samtaka var stofnað, þótt hans væri minna getið, enda gat hann alla tíð vel unnt öðrum að standa í sviðsljósinu. Þessi samtök urðu grundvöllurinn sem Framsóknarflokkurinn var stofn aður á. Ljúft er mér að minnast hinna mörgu og margvíslegu starfa, sem við Skúli áttum saman um 46 ára skeið. Fórnfýsi hans í starfi á sviði félagsmála var eiginlega engin takmörk sett. Þegar hann vann að þeim nauð- synjamálum, gleymdi hann með öllu tíma og fjármunum í eigin þágu. Það var andleg heilsubót að vinna með honum að þessum málum. Skúli Gunnlaugsson var frá- bærlega vinsæll maður. Góðvild hans og tillitssemi til alls og allra var einstök. Það var ekki utanað láerð lexía, til að sýnast Framhald á bls. 27.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.