Morgunblaðið - 07.02.1967, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.02.1967, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRUAR 1%7. 21 Sævar Einarsson (tv.) og Kári Valgarðsson, annar úr stjórn Sjóbjörgunarsveitarinnar. - BÁT Framhald af bls. 32. en hinn hafði farið í land nokkru áður. Síðan var ákveðið að reyna að ná Frosta út klukkan sex um morguninn og var þá farið á Tý. Ágætlega gekk að ná bátnum af skerinu og veitti Karl Hólm mikla aðstoð með því að fara með dráttartaugina milli bátanna. Báturinn virðist lítið skemmd ur og kom aldrei neinn leki að honum, en hann er nú farinn í slipp til Akureyrar. Frosti hefur verið gerður út frá Hofsósi í vetur og eini bátur- inn sem gerður hefur verið út við Skagafjörð. Aflinn hefur ver ið dágóður, sérstaklega frá ára- mótum. Eigandi er Þorgrímur Hermannsson, Hofsósi. Skipstjóri á Tý er Jón Jósafatsson sem er £ stjórn Sjóbjörgunarsveitar Slysa varnafélagsins á Sauðárkróki. Ramagnsbilun RAFMAGNSLAUST varð í aust- urhverfum borgarinnar á tólfta timanum í gær. Kópavogur var einnig almyrkvaður. Þetta mun hafa verið vegna bilunar í raf- stöðinni við Elliðaár, og þegar haft var samband við stöðina um miðnætti var sagt að leitað væri að biluninni en ómögulegt að segja hvenær hún fyndist og raf- magnið kæmi aftur á. - KÍNA Framhald af bls. 1. ir sovézku sendiráðsstarÆsimönn- unum sem kcxmu á flugvöllinn að kveðja fjölskyldur sínar að kioma nálægt þeim og sömuleiðis ölluim öðrum er það reyndu, en hrópuðu vígorð og fúkyrði, steyttu hnefa og hrintu fólikinu. Stóð þetta í rúman klukkutíma og þótti flestum nóg en á sunnu- dag, er annar hópur fjölskyldna sendiráðsstarfsmanna við sov- ézka sendiráðið, alls 90 manns, hélt brott gekk á svipuðu í sam- fleytt sex stundir áður en flug- vólin kæmist brott með farlþeg- ana. Sjónarvottar segja að báða dagana hafi aðfarir Rauðu varð- liðanna verið mjög vel skipu- lagðar þannig að ekki hlytust af nein alvarleg meiðsl en enginn slyppi óhrakinn frá garði. Há- talarar vöruðu alla útlendinga við að skipta sér af brottför fólksins eða taka myndir, ella myndu þeir hljóta verra af. Siðustu fregnir herma að fjórði og síðasti hópur fjölskyldna sovézkra sendiráðsstarfsmanna I Peking, 71 manns, hafi komið til Moskvu í dag og hafi >á meira en 200 manns verið flutt brott frá Peking, en eftir séu 60 sendi- ráðsstarfsmenn og ekki áformað að þeir fari brott að sinni. Mótmælaorðsending Kínverja Málgagn kínverska kommún- istaflokksins, Dagblað þjóðarinn ar, réðist í dag harðlega á Sovét- ríkin fyrir atvik það er varð í Moskvu sl. föstudag er sovézk lög regla og „slagsmálahundar“ alls um sjö tugir manna, hefðu, að sögn Dagblaðs þjóðarinnar, ráð ist að kínverskum sendiráðs- starfsmönnum og leikið þá grátt. Sagði blaðið að kínverska sendi- ráðið hlyti að teljast helgur stað ur og ljóst væri að öryggi kín- verskra borgara í Sovétríkjunum væri ekkert orðið og spurði loks hversu væri um stjórnmálasam- band Sovétríkjanna við önnur lönd, hvernig það gæti haldið því uppi, ef það gæti ekki tryggt ör- yggi sendiráðsstarfsmanna 1 Moskvu? Fréttastofan Nýja Kína birti í dag mótmælaorðsendingu kínversku stjórnarinnar vegna atburðar þessa, (sem vestrænir fréttamenn í Moskvu og Tass- fréttastofan greina frá á nokkuð annan veg) sem er harðorð mjög og segir þar að sovézka lögregl- an hafi gert sig seka um fasistiskt ofbeldi og dragi í því dám af leið togum sínum, klíku endurskoð- unarsinna, sem svikið hafi mál- stað Lenins og sovézku þjóðar- innar. Segir kínverska stjórnin Sovétstjórnina hafa skipulagt að för þessa að sendiráðinu og hafi haft um hana samráð við banda ríska heimsvaldasinna, og segir loks að slitið hafi verið símasam bandi sendiráðsins við Peking meðan á stóð aðförinni. . . . og Rússa Sovézk yfirvöld hafa vísað á bug fullyrðingum Kínverja um að ráðist hafi verið á sendiráðs- starfsmennina, en segja að víst hafi sýningargluggar úti fyrir sendiráðinu verið brotnir. Sovét ríkin hafa eins og áður sagði, einn ig sent Kínverjum mótmælaorð sendingu og varað þar alvarlega við frekari ögrunum af hálfu Kínverja og yfirgangi við sovézka sendiráðsstarfsmenn í Peking. — Segir í orðsendingunni að tak- mörk séu fyrir því hvað Kín- verjum verði þolað úr þessu, einkum með tilliti til aðfara þeirra að sovézka sendiráðinu undanfarið og segir hegðan Kín- versku stjórnarinnar nú hálfu verri en stjórnar Chiang Kai- cheks á sínum tíma, og sé þá langt til jafnað. Mótmælafundur i Moskvu í dag söfnuðust um 300 sovézkir verkamenn sarnan í Moskvu úti fyrir dyrurn kín- verska sendiráðsins og höfðu uppi mótmælaspjöld þar sem átalin var lögleysa sú o>g ofbeldi sem sovézkir borgarar hefðu orðið að þola af Kínverjum. Mótmæiafundur þessi fór fram með friði og spekt og er einn úr hópnum hóf að hirópa vígorð kom sovézka lögreglan til skjal- anna og meinaði það. Nokkuð á annan tug manna úr hópnum héldu að aðaldyrum sendiráðsins með mótmælaskjal og vildu af- henda það þar en sendiráðs- starfsmaður sá sem fyrir svörum varð neitaði að taka við því og vísaði á utanríkisráðuneytið. Ekki hefur áður komið ti>l mót- mælaaðgerða úti fyrir sendiráði Kína í Moskvu og eru þó liðin sex ár síðan illindi hófust fyrir alvöru með ríkjunum tveimur. Oskudagurinn Hinn arlegi fjársöfnunar- dagur Rauða krossins hérlendis Á MORGUN er hinn árlegi f jár- söfnunardagur Rauða kross fs- lands um land allt, og munu all- ar deildir hans annast merkja- sölu, hver á sínu svæði, auk margra einstaklinga, þar sem deildir ekki starfandi. Allt sem inn kemur rennur til starfsemi deildanna og R.K.f. Deildir Rauða krossins eru nú 31 talsins. Sjö félagsdeildir ann- aist sjúkraflutniniga, tvær reka suimardvalarheimili fyrir böm, átta annast lán á sjúkragögnum, ein rekur ljósbaðstofu, níu hafa kennt hjálp í viðlögum, o. s. frv. Að sjálfsögðu er stærsta'Rauða kross deildin hér í Reykjavík, og hafa borgarbúar daglega fyrir augum til hvens m. a. fé því er varið sem inn kemur. Þar er átt við sjúkrabifreiðimar. Þær fóru árið 1966 á níunda þúsund ferðir með sjúka og slasaða. Eins og áður er getið er merkjasöludagur Rauða krossins á miorgun, sem er öskudagurinn, og verður merkjasalan með sama sniði og áður. Hundæuð ungra námsmeyja úr Kvennaskólanum í Reykjavík, Húsmæðraskólan- um, o. fl. annast stjórn á sölu meikjanna á útsölustöðum víðs- vegar um borgina. Foreldrar eru vinsamlegast beðniir að hvetja börn sín til merkjasölu, og koma á útsölu- staðina á öskudagsmorgun kl. 9.30. Börnin fó 10% sölulaun. Foreldrar ættu umfram allt að minna börnin á að vera hlýlega klædd. Byrjað verður að af- henda merkin kl. 9.30 — en til þess er ætlazt að börnin hafi skilað af sér fyrir kl. 5. Aðstoðið mannúðarstarf Rauða krossins, kaupið merki dagsins. Yesturbær: Efnalaug Vestur- götu S3, Melaskólinn, Sunnu- búðin Sörlaskjóli 42, Síld og fiskur Hjarðarhaga 47, Austur- ver Fálkagötu 2, KRON Þverveg 36 Skerjafirði, Egill Jacobsen Austurstræti. Austurbær A: Fatabúðin, Skóla vörðustíg, Axelsbúð Barmalhlíð 8 Silli og Valdi Háteigsveg 2, Lídókjör Skaftahlíð, Lyngás, Safamýri. 5, Breiðagerðisskóli, Borgarkjör Borgargerði 6, Bið- skýlið Háaleitisbraut HvassaleitL Austurbær B: Skúlaskeið Skúlag. 54, Elís Jónsson Kirkju- teig 5, Laugarneskjör Laugar- nesv. 116, Laugarárbíó, Búrið Hjallav. 15, Borgarbókasafnið Sólheimum 27, Vogaskóli, Saab Langholtsv. 113, Árbæjarskóli. Samningar í Vietnam á næsta leiti? Waslhington, 5. febr. — AP-NTB — Utanríkisráðgjafi John- sons forseta, Walt W. Rost- oft, gaf í skyn á fundi með bandarískum stúdentum um um helgina, að samningar um frið í Víetnam væru ef til vill á næsta leiti. Ummæli Rostofts voru næsta óljós, en í Washington eru þau túlkuð á þann veg, að Bandaríkja- stjórn eigi í einhverskonar samningaviðræðum, líklega Og Pólland líka Til þessa hefur ekki komið til misklíðar með stjórnum Kína og Póllands og hefur mörgum litizt svo sem Pólverjar myndu ætla sér milligöngu ef í hart færi milli stórveldanna tveggja, Sov- étríkjanna og Kína. í dag varð tvennt til að minnka líkurnar á slíkum sáttatilraunum. Annað var mótmælaorðsending pólsku stjórnarinnar til hinnar kín- versku vegna meðferðar þeirrar er pólski sendiherrann í Pek- ing og fleiri sendiráðsstarfsmenn hefðu sætt á flugvellinum þar í gær, sunnudag er þeim var hald- ið föngnum um stundarsakir og bifreið þeirra illa leikin með svartri málningu og áróðursmið- um (og var að vísu engan veg- inn sú eina sem slíkt var við gert). Hitt var atvik er átti sér stað um svipað leyti og mót- mælaorðsendingin var afhent sendiherra Kína í Varsjá er nokkrir ungir pólskir kommún- istar tóku sig til og máluðu með svartri málningu yfir sýningar- glugga við sendiráðið' þar sem Kínverjar höfðu sett mynd eina mikla af Mao og spjald er á stóð að sovézka þjóðin ætti „blóð- skuld að gjalda“ kínversku þjóð- inni. Hefur nú greinilega versn- að sambúð Póllands og Kína og vandséð að milliganga verði þar nokkur verði viðsjár meiri með Sovétríkjunum og Kína. Snúast gegn Mao. Götuspjöld, sem Rauðu varð- liðarnir hafa hengt upp í Pek- ing í dag greina frá því að nokkrar deildir úr Kínaher hafi ráðizt gegn Maoistum og skotið á þá. Segir á spjöldunum, að yfirstjóm hersins í Honan hafi framið fjöldamorð á byltingar- sinnum, fylgjendum Maos og í Tsinan, helztu borg nágranna- fylkisins Shantung, hafi herinn varið andstæðinga Maos og hafi fimm fallið í þeirri viðureign en 62 særzt. Þetta er í fyrsta skipti, sem veggspjöld í Peking saka yfirmenn í Kínaher um and stöðu gegn Mao síðan hann ákvað í fyrra mánuði að deildir úr hernum skyldu taka þátt í menn ingarbyltingunni og styðja bylt- ingarmenn. Liu og Teng auðmýktir og sviptir embættum. Hinar illvígu deilur Sovétríkj- anna og Kína hafa varpað tölu- verðum skugga á það, sem er að gerast í innanríkismálum Kína, og fáir hafa fylgzt náið með ferli ýmissa þeirra leiðtoga Kínaveldis sem áður stóð um mestur styrinn. Síðustu fregnir að austan herma að enn hafi þeir sett ofan Liu 9hao Chi, fiorseti, Kína og Teng Hsiao-Ping, aðal- ritari kommúnistaflokksins og hafi þeir nú báðir verið sviptir embættum sínum opinberlega og endanlega, en hvorugur hefur gegnt embætti að nokkru síðan í nóvember sL Þá er sagt, að birzt 'hafi árás á Ohiang Ohing, konu Maos á einu hinna ótalmörgu veggspjalda i Peking og þar hafi skólastúlka ein, ónafngreind, gagnrýnt konu Maos og kallað hana lítilmótlega persónu, sem ekki skilji heim öreiganna. Þetta er önnur opin- bera árásin á Chiang Ohing. Fyr- ir trn dögum lýsti Rauður varð- liði yfir því, að hún væri með baktjaldamakk í hreinsununum sem nú standa yfir og v.eitti þar ýmsum. „Kommnna" í Shanghai. Aðrar fregnir frá Peking, hafð ar eftir götuspjöldum þar að vanda, segja að sett hafi verið á stofn „kommúna" sem fara eigi með öll völd í ShanghaL stærstu borg Kínaveldis. Frá þessu skýr- ir japanskur fréttamaður, og segir að þetta sé fyrsta komm- únan, sem sett sé á laggirnar í Kína og þyki mikil tíðindi. Skólar hefjast á ný. Veggspjöld í Peking greina ennfremur frá því að senn muni aftur hefjast skólaihald þar eftir .gagngerar endurbætur á öllu skólakerfinu. Þykir mörgum frétt þessi benda til að yfirvöld vilji með þessu reyna að hafa nokk- urn hemil á Rauðu varðliðunum. - UOSMYNDA Framhald af bls. 1. ari stefnu en nokkurrt awnað tunglfar tiil' (þessa. Ekkert verður ákveðið um að senda mönnuð Apollo-geknför ti'l tunglsine fyrr en rannsóknar- nefndin, sem stoipuð var vegna dauðaslysanna á Kennedyihöfða fyrir skömmu, hefur skilað nið- urstöðum rannsókna sinna. við milliliði, sem ekki taka þátt í Víetnam-stríðinu. Rostofit sagði þetta eftir að 'kommúnistinn og ástnalsiki blaða mðurinn Alfired Burohett hafði sent frétt frá Hanoi þess efnis, að Ha noi-ríkisstjórn in liti svo á, að hún hefði opnað dyrna.r að samningaumleitunium og það væri Bandaríkj astjórnar að taka næsta skref. Burchett vísar í firétt sinni til ræðu utanrikisráð- hierr.a N-Víetnam, Nguyen Duy Trinh, er hann Ihiélt nýlega. —• Þessi ræða leidd'i til umræðna á Vesturlöndum um Ihvont N-Víet- nam hafði mdmnkað skilyi'ðin fyrir samnin.gaviðræðum við Bandaríkin. Mátti helzt mt ræð- unni ráða, að nú vært eina skilyrðið fyrir samningum, rf Bandaríkjamenn hættu sprengiu árásum á N-Víetniam. Burdhett segir að ræða utanrfikisráðherr- ans sé yifirlýsing Iþess efnis, að hætti Bandairíkjamenn spren.gju árásunum sé Hanoi-stjórnin fús til samninga. Rastoft lét S'vo um mælt, að Bandarfkáastjórn hefði ekkert raunverulegt friðartilibóð femgið frá Hanoi. Opiníberlega eir sagt, að Jolhmson vilji fá skillmerkilega yfirlýsingu frá Hanoi um að stjórnin þar muni semija, ef Bandaríkjamenin hætti sprengj.u- áráisunum. iSpánn færir út ifiskveiði- logsöguna Madrid, 6. febr. - NTR; SPÁNSKA stjórnin hefur lagt fram tillögu þess efnis ad færð verði út fiskveiðilögsaga landsins úr sex sjómíium í tólf og verði veiðar innan sex mílna-markanna aðeins heim ilar Spánverjum einum. Fiskveiðar annarra þjóða verða þó leyfðar á svæðinu milli þriggja og sex mílna þeim þjóðum er vanda hafa átt til að veiða á þeim slóðum en gera ber um þær veiðar sérstaka samninga. Á svæðinu milli sex og tólf mílna skulu veiðar heimilar þeim þjóðum er veita spænsk um fiskimönnum sömu ívilan innan sinnar fiskveiðilögsögu.. - ENSKUR Framhald af bls. 32. eldisheimili í Doncaster daginn eftir að hann kom þangað aftur úr jólaleyfi sem hann hafði eytt með foreldrum sínum. Hann komst til Grimsby og það sást til hans þar sem hann var að spyrja um ferðir Drangjökuls. Áður en skipið lagði úr höfn faldi hann sig svo og fannst ekki fyrr en út á sjó var komið. Hartn sagði við lögreglumennina sem fóru með hann, að hann myndi strjúka aftur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.