Morgunblaðið - 16.02.1967, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 16.02.1967, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1967. Guðni Einarsson fyrrv. kolakaupm. Minning AÐFARANÓTT hins 5. þ.m. lézt á Lándakotsspítala Guðni Ein- arssön, fyrrum kolakaupmaður að Öldugötu 28 hér í borg. Þessa vinar míns og þekikta borgara Vesturbæjarins vildi ég gjarnan minnast með nokkrum orðum. Eiginmaður minn og faðir, Ingimar Magnús Björnsson Meðalholti 9, andaðist 14. febrúar. María Hannesdóttir, Jóhanna Þ. Ingimarsdóttir, Herdís Jónsdóttir, Hannes Jónsson. Hjartkær litli sonur okkar, Bragi andaðist 9. þessa mán. Jarðar- förin hefur farið fram. Guðrún Þórarinsdóttir, Bragi Pálsson. Bróðir minn, Hjörtur Þorsteinsson verkfræðingur, andaðist í Næstved-sjúkrahúsi Danmörk, þann 9. febrúar sl. Jarðarförin hefur farið fram. Þorsteinn Þorsteinsson. Eiginmaður minn, faðir og bróðir Jóhann Búason úrsmíðameistari, Vífilsgötu 14, er lézt að Vífilsstöðum 11. þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. þun. kL 3 e.h. Else Ellen Búason, Búi Steinn Jóhansson, Eyjólfur Búason. Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, Geirþrúðu Þórðardóttur Hringbraut 51, Hafnarfirði, fer fram frá Þjóðkirkjunni laugardaginn 18. þ.m. kl. 2. Þóra Þorvarðardóttir, Elín Þorvarðardóttir, Kristín Þorvarðardóttir, Þorgerður Þorvarðardóttir, Þórður Þorvarðarson, Þorvarður Þorvarðarson, tengdabörn og barnabörn. Guðni Einarsson var fæddur að Hömrum í Gnúpverjaihreppi 30. júní árið 1891. Átti hann því full 75 ár sér að baki að leiðar- lokum. Foreldrar hans voru Einar Jónsson, bóndi að Hömr- um, og Guðrún Bjarnadóttir, bú- stýra hans. Hvarf Guðni ungur með foreldrum sínum til Eyrar- bakka og átti þar dvöl um nokkurra ára skeið. Síðar flutt- ist hann aftur á bernskustöðvarn ar, til vinafólks síns, og fermdist frá Minnahofi vorið 1905. Tveim árum síðar, aðeins 16 ára gamall, hleypti hann svo heimadragan- um og hélt til Reykjavílkur. Munu þá ýmsar þrár hafa bærzt í brjósti hans, m.a. vonir um menntun og frama, vonir, sem samtíminn gaf enginn skilyrði til að rætast. Ungur gekk hann í þjónustu H. P. Duus, sem rak verzlun og fiskveiðar og var lengi mikið fyrirtæki hér í borg. Reyndist hann frá byrjun far- sæll og samvizkusamur starfs- maður, og eignaðist því fljótt viðurkenningu og tiltrú yfirboð- ara sinna og samstarfsmanna. Vann hann sig á fáum árum í það, að verða verkstjóri fyrir- Útför föður okkar, Gísla Gíslasonar Sætúni, Stokkseyri, sem lézt 9. þ.m. fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardag- inn 18. þ.m. og hefst með hús- kveðju að heimili hins látna kl. 1.30. Sigríður Gísladóttir, Auður Gísladóttir. Eiginkona mín, móðir og stjúpmóðir, Elín Einarsdóttir verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju föstudaginn 17. þ.m. kl. 10.30 f.h. Gottskálk Guðmundsson, Aðalsteinn Gottskálksson, Ingigerður Gottskálksdóttir. Jarðarför Jónasar Bjarnasonar frá Bíldudal, sem andaðist nýlega í Reykja vík, fer fram frá Bíldudal n.k. föstudag. Börnin. Hugheilar þakkir til allra, fjær og nær, sem auðsýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og jarðarför sonar okk ar og bróður Guðbjarts Ólafssonar. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Borg- arsj úkrahússins. Dóra Guðbjartsdóttir, Ólafur Jóhannesson, Kristrún Ólafsdóttir, Dóra Ólafsdóttir. tækisins og hélt því starfi fullan áratug. En árið 1926 hætti H. P. Duus, fremur óvænt, rekstri sín- um hérlendis. Féllu þá niður störf þeirra, er við fyrirtæikið höfðu unnið. Þessi skyndibreyt- ing varð þó Guðna Einarssyni hvorki áfall né verulegur farar- tálmi. Hagnýt reynsla og með- fædd starfshæfni beindu brátt huga hans inn á nýjar leiðir. Árið 1927'hóf hann kolaverzlun við Kalkofnsveg ásamt vini sín- um og starfsbróður, Einari Tóm- assyni. Ráku þeir hana saman um tæpra 30 ára skeið. Stóð hún af sér allar lægðir kreppuáranna og naut almennra vinsælda þeirra, er við hana skiptu. Mun Ijúfmennska Guðna í allri fram- koma og traustleiki í orði og verki hafa átt sinn þátt í við- gangi þessa fyrirtækis. Síðari árin var svo Guðni hluthafi í fyrirtæiki Ólafs sonar síns og vann við það meðan kraftar entust. Árið 1915, ^ 15. maí, kvæntist Guðni Jónu Ásu Eiríksdóttur frá Eiríksbæ við Brekkustíg. Lifir hún mann sinn ásamt þremur börnum þeirra. Er Ása 6. ættlið- ur frá þeim merka manni, Jóni Steingrímssyni eldmessuklerki. Ber hún enn ósvikin ættar- merki, einurð, hreinleik, dreng- Hjartans þakklæti fyrir auð sýnda samúð við andlát og jarðarför Þórunnar Sæmundsdóttur frá Nikulásarhúsum. Vandamenn. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför Jakobínu Kristínar Ólafsd. Hafnarstræti 88, Akureyri. Fyrir hönd vandamanna, Guðni V. Þorsteinsson. Innilegt þakklæti til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför Jóns S. Magnússonar Hjarðarhaga 62. Helga Einarsdóttir, Kristín Björg Jónsdóttir. lund og trúartraust. Stóð hún örug og traust við hlið manns síns tæp 52 ár og bjó honum ■heimili birtu, þrifnaðar og hvers konar þokka. Bjuggu þau hjón fyrst að Ránargötu 32, en lengi og síðast að Öldugötu 28. Varð margur til þess að sækja þau heim og njóta þeirrar velvildar, gestrisni og hlýju, sem þar var jafnan að finna. Síðari árin herjuðu líkamleg áföll og vanheilsa mjög á iíf .þeirra hjóna. En þau voru menn til að bera sínar þungu raunir. Komum við hjónin oft til þeirra á þessum reynslu árum. Áttum við ávallt hjá þeim léttar og glaðar stundir. Og bæði fylgdu okkur að skilnaði brosandi til dyra., Vinátta okkar var orðin löng og óbrostin frá fyrstu kynn um. Enginn reyndist mér og mín- um meiri vinir í raun en þau hjón, Ása og Guðni. Og fyrir það eiga þau hjartans þakkir fjölskyldu minnar, bæði lífs og liðin. Guðni Einarsson var einn þeirra manna, sem auðveldara er að muna en gleyma. Méi finnst Vesturbærinn sýnu fátæk- ari við fráfall hans. Hann var lengi einn af traustari borgur- um þessa bæjarfélags, sem gjörði sín skil öðrum til fyrirmyndar Trygglyndi hans og vinfesta var öllum kunn, sem til þekktu. Það var jafnan eittlhvað róandi við návist hans. Hann var hinn hógværi og prúði maður í allri framkomu, en léttur og hlýr I nánari viðkynningu. Það duttu engix um orðin hans í annarra garð. Trú hans var einlæg og heið, án allra ytri hafta eða viðja. Hann var vel látinn af félagsbræðrum, hvar í flokki sem hann var bundinn. Hann var hinn umhyggjusami heim- ilisfaðir, sem vildi veg og vfel- gengni konu og barna í einu og öllu, átti líka lengst af efni tii að fylg.ia þeim vilja eftir. Fyrir allt þetta geymist nú mynd hans í þakklátum hugum þeirra, er með honum áttu leið, störf eða stundir. Börn þeirra Ásu og Guðna sverja sig vel í ætt sína um mann kosti og manndóm. En þau eru talih eftir aldri: 1. Sigurásta, gift Sigurði Bene- diktssyni, bifr.stj., Reynimel 56. 2. Eiríkur, tjollvörður, Hring- braut 43, kvæntur Bryndísi Tómasdóttur úr Hafnarfirði. 3. Ólafur, heildsali, Hjarðar- haga 17,' kvæntur Helgu Einars- dóttur Magnússonar rektors. Fyrir hönd fjölskyldu minnar votta ég Ásu og börnum hennar innilega samúð, um leið og við biðjum látnum bróður og vini allrar blessunar á leiðum nýira heima. Jón Skagan. Þórunn Sæmunds dóttir — Kveð|a Kveðja frá Sveinlangu Sveinsdóttur. F. 15. 2. 1875. — D. 1. 2. 1967. þú hetja varst í stórum lífsins önnum. ág kveð þig nú, og legg að leiði þínu, ljóðasveig, frá klökkvu hjarta mínu. Sem á þér fyrir allt hið liðna að færa, innilegar þakkir, frænka kæra. Liðinn er þinn langi ævidagur Ijómar nú í minning hreinn og fagur. Virt og elskuð varstu, frænka kæra, vildi ávalt blessun öðrum fsera. Þín hönd var traust og hög 1 hverju verki, og hjartansgöfgi var þitt aðalsmerkL Hvar, sem fórstu yl og birtu barstu, í blíðu og stríðu trygg og heilsteypt varstu. Kynnin voru kær, um liðna daga, þótt hverfir héðan býr þín göfga saga. í hjörtum vina, heiðri vafin sönnum, Furðuljós við Blönduós SAMKVÆMT upplýslngum Slysa varnafélagsins sáust í fyrrinótt furðuljós á Blönduósi og bar ljós- in í tána á Vatnsnesi. Sáu þetta fyrirbæri nokkrir menn og var ljósið á lofti í 4 mínútur. Sjónarvottar héldu að hér væri um að ræða neyðarblys og gerði Slysavarnafélagið strax ráðstaf- anir, en ljósfyrirbærið er enn óútskýrt, því að vitað er að engin flugvél var á ferð um þetta leyti þar nyrðra og einskis hefur ver- ið sakná'" — UNGT FOLK Framhald af bls. 19, Thine eyes and on thy each breast But tfhirty thousand to tlhe rest; An age at least to every part, And tlhe last age should slhow your heart For, Lady, you deserve this state Nor would I love at lower rate. But at my back I always hear Time‘s winged ohariot hurrying near; And yonder all before us lie Deserts of vast cerrity The beauty shall no more be found, Nor, in thy marble, shall sound My econing song; then worms Shall try That long preserved virginity, And you quant honor turn ‘.o dust, And into ashes all my lust: The grave's a fine and private place, But none, I think do there embrance. Now therefore, while the youth'ful hue Sits on thy skin like morning dew And while thy willing soul transpires At avery pore witih instant fires, Now let us sport us while we may And now, like amorous birds of prey, Rather at once our time devour Than languish in his slow-chapt power Let us roll all our strengtth and all Our sweetness up inbo one bail, And tear our pleasure with rough strife Througtti tihe iron gates of life, Thus, tlhough we cannot make our sun Stand still, yet we will make him run. (Þýtt og endursagt úr Time). H.G.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.