Morgunblaðið - 18.02.1967, Síða 1
28 SÍÐIJR OG HEIMDALLUR
54. árg. — 42. tbl._________________________________LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1967_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mikið mannfall
í Vietnam
Li&hlaupum Viet Cong ier fjölgandi
Saigon, 17. febrúar (AP-NTB)
MIKIÐ Mannfall hefur orðiff í
liði Viet Cong skæruliffa og her-
eevitum Norður Vietnam að und
anförnu. Hafa hersveitir Suffur
Vietnam, Suður-Kóreu og Banda
ríkjanna hafið mikla sókn á
austurströndinni og á ósasvæð-
inu, og segja fréttir frá Saigon
aff um 800 menn hafi falliff úr
liffi andstæðinganna.
Talsmaður bandarisku her-
stjórnarinnar í Saigon skýrffi frá
Krafizt
úrskurðar
i handritamálinu
Kaupmannaíhöfn, 17. febr.
Einkaskeyti frá G. Rytgaard.
POUL Sohmith, hse&taréttar
lögmaður, lagði í dag fram
stefnu í Eysti landsrétti fyrir
ríkisstjórnarinnar hönd í
máli hennar gegn Árna Magn
ússonar stofnuninni. í stefn-
unni er þess krafizt að stofn-
unin viðurkenni að henni
beri að afhenda þau handrit,
sem senda á til íslands sam-
kvæmt lögum um breytingar
á skipulagsskrá stofnunarinn
ar frá 26. maí 1965, án skaða-
bóta. Einnig á stofnunin að
viðurkenna að henni beri
ekki skaðabætur fyrir að af-
henda Háskóla íslands hluta
af höfuðstól sínum samkv.
ákvörðun forsætisráðherrans.
Mál þetta er höfðað sam-
kvæmt ákvörðun Jens Otto
Krags, forsætisráðlherra, til að
fá úr því skorið strax hvort um
nokkrar skaðabætur getur verið
að ræða.
Eftir að hæstiréttur Danmerk-
ur kvað upp dóm sinn í nóvem-
Framhald á bls. 27
því í dag aff liðhlaupum úr sveit
um Viet Gong hefði á þessu ári
fjölgaff um helming miðað við
sama tíma í fyrra.
Á tímabilinu frá 1. janúar til
11. febrúar sl. gerðust alls 3.465
Viet Cong skæruliðar liðhlaupar,
en á sama tíma í fyrra voru þeir
1.822.
William Westmoreland hers-
höfðingi, yfirmaður bandarísku
hersveitanna í Suður Vietnam,
hefur þakkað hersveitum Suð-
ur Vietnam og Suður Kóreu fyr
ir vasklega framgöngu í bardög-
unum að undanförnu. Kóreuher-
mennirnir rákust á fjölmenna
sveit úr her Norður Vietnam fyr
ir tveimur dögum, og þótt fálið-
aðri væru og verr vopnum bún-
ir, réðust þeir strax til atlögu.
Felldu Kóreumennirnir 243
menn úr liði andstæðinganna, en
urðu sjálfir fyrir litlu tjóni. Á
þessum sömu slóðum hafa her-
menn stjórnarinnar í Saigon fellt
um 100 Viet Cong skæruliða.
Hersveitir Suður Vietnam
hafa einnig átt í bardögum und-
anfarna þrjá daga við skæruliða
á ósasvæði Mekong fljótsins, og
fellt 331 þeirra.
Meðan harðir bardagar geisa á
landi, halda bandaríksar
sprengjuflugvélar áfram árás-
um á stöðvar Viet Cong í Suður
Vietnam. Hafa sprengjuþotur af
gerðinni B 52 gert níu meirihátt-
ar loftárásir á stöðvar Viet
Cong á 30 klukkustundum, og
hafa árásirnar aldrei verið meiri.
Fimm árásanna voru gerðar á
svæði nálægt landamærum
Kambodíu, þar sem bandarísk
herdeild felldi í gær 92 hermenn
úr liði Norður Vietnam.
Frá afhendingu gjafabréfsins í Kaupmannahöfn í gær. Á myndinni eru talið frá vinstri,
sendiherrafrú Vala Thoroddsen, Gunnar Thoroddsen sendiherra, Schiöler biskup, Hjermind
lögmaffur, Bent A. Koch aðal.itstjori og Haugstrup Jenssen rektor.
Danir gefa hálfa aðra milljón kr.
til Lýðháskólans að Skálholti
Kaupmannahöfn 17. febr.
Einkaskeyti frá Gunnari
Rytgaard.
í DAG var Gunnari ThOrodd-
sen, sendiherra Islands í
Kaupmannahöfn, afhent gjafa
bréf aff upphæð nærri 225
þúsund danskar krónur. Er
þetta framlag Dana til Lýff-
háskólans aff Skálholti, sem
sérstök nefnd hefur safnað í
Danmörku.
Margir þekktir Danir eiga
sæti í nefnd þessari, þeirra á
meffal stjórnmálaleiðtogarnir
Erik Eriksen, Jörgen Jörgen-
sen, K.B. Andersen, Poul
Möller, Knud Thestrup og
Hanne Budtz, prófessorarnir
Poul Engberg og Uffe Gross-
en, þekktir forustumenn
bankamála, O. I. Kaarsberg
fyrrum forseti hæstaréttar, og
fleiri.
Framkvæmdanefnd söfnun-
arinnar skipa: Gudmund
Schiöler, Haugstrup Jensen
rektor, Poul Hjermind hæsta-
réttarlögmaður og Bent A.
Koch aðalritstjóri. Voru þaff
þessir fjórir síðastnefndu, sem
afhentu Gunnari Thoroddsen
gjafabréfið.
Sendiherrann þakkaði söfn-
unarnefndinni fyrir íslands
hönd og þeim mörgu einstakl-
ingum, sem lagt höfðu söfnun
inni lið. Einnig flutti hann
kveffjur frá biskupi íslands,
herra Sigurbirni Einarssyni.
Mao-istar ráða þriöjungi Kína
Hersveitir Maos á leið til Tíbet
Peking, Hong Kong,
Darjeeling, 17. febrúar.
— (AP-NTB) —
VEGGSPJÖLD Rauðu varð-
Egyptar beita
eiturgasi í Jemen
Aden, 17. febrúar (AP).
HERMAÐUR úr konungshernum
i Vemen, Mohammed Ali Abdu
al Khaimi að nafni, kom til Aden
fyrir þremur dögum og er nú í
Kjúkrahúsi þar. Segist hann hafa
orðið fyrir eiturgas-árás tveggja
egypzkra sprengjuflugvéla á
þorp í Yemen, sem varff 32
þorpsbúum að bana.
Læknar sjúkrahússins í Aden,
þar sem al Khairni liggur, segja
að sjúkdómseinkennin staðfesti
frásögn hans.
A1 Khaimi sagði fréttamönn-
um f dag að hann hefði verið á
verði skammt fyrir utan þorpið
Bayt as Surayim, sem er milli
höfuðborgarinnar San’a og Ho-
eidah, hinn 6. febrúar sl. Réðust
þá tvær Ilyushin sprengjuflug-
vélar úr egypzka flughernum á
þorpið og vörpuðu niður tveimur
sprengjum. Þegar sprengjurnar
sprungu gaus upp brúnn og
grænn reykur, og var appelsínu-
lykt af honum.
Eftir árásina ætlaði al Khaimi
inn í þorpið. en þorpsbúar köll-
Framhald á bls. 27
liðanna í Peking og „Dagblað
alþýðunnar“, málgagn kín-
verska kommúnistaflokksins,
skýra frá því að stuðnings-
menn Mao Tse-tungs hafi
unnið mikinn sigur yfir and-
stæðingum sínnm í Fukien-
héraði, og hafi héraðsstjórn-
ina í sínum höndum. Jafn-
framt eru andstæðingarnir
varaðir við afleiðingunum ef
þeir reyni að ná aftur völd-
um í héraðinu.
Kína-sérfræðingar í Hong
Kong telja að Mao-istar hafi
tryggt sér völdin í þriðjungi
landsins. Sé dregin lína frá
Yunnan-héraði suður við
landamæri Burma norður til
Heilungkiang-héraðs í norð-
austurhorni Kína, ráði Mao-
istar yfir öllu landsvæðinu
fyrir austan línuna.
Frá Tíbet berast fregnir
um hörð átök milli stuðnings
manna og andstæðinga Maos,
og er höfuðborgin Lhasa í
herkví. Flóttamenn frá Tíbet,
sem nú búa í Darjeeling á
Indlandi, segja að útvarpið
í Lhasa hafi skýrt frá því
að þrjú herfylki úr kínverska
hernum séu nú á leið til
Tíbet til að „brjóta niður
endurskoðunarsinnana“, and
stæðinga Maos.
Um sex þúsund flóttamenn frá
Tíbet eru nú búsettir í Darjeel-
ing. Hafa talsmenn þeirra fylgzt
með abburðunum í heimalandinu
með því að hlusta á Lhasa-út-
varpið. Segja þeir að útvarpið
hafi ekki fyrr en í dag viður-
kennt að þar í landi væri virk
andstaða við stjórn Mao Tse-
tungs. Hingað til hafi útvarpið
aðeins gefið í skyn að ekki væri
allt með felldu með því að senda
út áskoranir um - stuðning við
Mao, kenningar hans og hugsan-
ir. Útvarpið nefnir andstæðinga
Maos „djöfla og drauga*, og seg-
ir að einn kínversku leiðtoganna
í landinu, Tu Tha Chen, hafi
ávarpað herinn á útifundi í
Chamdo, fyrir austan Lhasa, og
skorað á hann að styðja Mao,
kommúnistaflokikinn og kín-
verska alþýðu, og útrýma þeim
öflum, sem eru andvíg leiðum
sósíalismans og „menningarbylt-
ingarinnar".
Erfitt er að greina ástandið I
Kína, því fréttir þaðan berast
aðallega af veggspjöldunum í
Peking. Séu þær tilgátur sér-
fræðinga í Hong Kong réttar, að
Mao-istar ráði nú öllum austur-
héruðum landsins, hefur „menn-
Framhald á bls. 27
Ætlaði að
myrða Tító
Vin, 17. febr. (NTB).
í dag lauk fimm daga opin-
berri heimsókn Tító, forseta
Júgóslavíu, til Austurrikis.
Miklar varúðarráðstafanir
voru gerðar vegna heimsókn-
arinnar, og nokkrir hafa ver-f*
ið handteknir til að koma i
veg fyrir mótmælaaðgerðir.
Meffal þeirra er júgóslavnesk-
ur fióttamaður, sem sakaður
er um að hafa ætlað að
myrða Tító. í fórum hans
var skammbyssa og 18 skot.
Franz Jonas, forseti Austur-
rikis, hefur þegið boð Titús
um að koma í heimsókn tii
Júgóslavíu.