Morgunblaðið - 25.02.1967, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
54. árg. — 46. tbl.
LAUGARDAGUR 25. FEBRUAR 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stjórnarkreppa
vofir yfir í Indlandi
7 ráðherrar og leiðtogar Kongress-
flokksins falla í kosningunum
Mynd þessi var tekin i Scoresbysundi fyrir nokkrum dögum af flugmanni og flugstjóra Gló-
faxa, sem hlekktist á í Danmarkahavn í fyrradag. Daginn eftir að ferðin til Scoresbysunds var
farin lögðu þeir þremenningar Jón Ragnar Steindórsson, flugstjóri; Gunnar Guðjónsson, flugmað-
ur og Jóhann Erlendsson, flugvirki upp í ferðina, sem flugvélinni hlekktist á í. Eru þeir nú teppt-
ir í Danmarkshavn. Á myndinni með þeim Gunnari og Jóni Ragnari eru tvaer grænlenzkar ungl-
ingsstúlkur.
Sérfræðingar fara til Dan-
markshavn á briðjudag
Þeir munu ðthuga skemmdir á
Glófaxa og hvort vélinni verði
bjargað
EINS og sagt var frá í M!bl. í
gær hlekktist Glófaxa, skíðaflug
vél Flugfélags íslands á í Dan-
markshavn á Grænlandi-í fyrra-
dag. Rakst annað skíði flugvelar
innar á ísjaka, sem leyndist und-
ir fönn og mun skíðaúbbúnaður-
inn og annar vængur flugvélar-
innar hafa skemmzt.
SamJrv. upplýsingum Sveins
Sæmundssonar, blaðafulltrúa
Kortið sýnir afstöðuna.
Flugifélagsins, mun Gljáfaxi fara
til Grænlands næstkoonandi
þriðjudag, en á mánudagskvöld
mun koma til landsins skíði, sem
setf verður undii flugvélina.
Með þeirri vél verður sérfræð-
ingar bæði frá Flugfélaginu og
tryggingarfélaginu Trygging h.f.
og munu þeir kanna skemmdir
og abhuga, hvort unnt sé að
bjarga vélinni. Einnig mun það
ætlunin að Gljáfaxi ljúki skíða-
fluginu, sem Glóifaxa haiði verið
ætlað.
Framhald á bls. 31
Nýju Delíhi, 24. efbrúar,
AP, NTB.
INDIRA Gandihi, forsætis
ráðherra Indlands, stendur
nú andspænis yfirvofandi
stjórnarkreppu enda þótt
fibkkur hennar, Kongress-
fiokkurinn, haldi meirihluta
sínum á þingi, því alfls hafa
7 ráðherrar úr stjórninni og
leiðtogar Kongressflokksins
beðið ósigur í kosningunum.
Sjálf vann frú Gandhi mik-
inn sigur í sínu kjördæmi, en
fáir treystast þó til að spá
neinu um stjórnmálaframtíð
hennar eftir ófarir margra
helztu manna flo'kksins og
fylgistap víða í landinu.
Kongressflokkurinn hafði 117
sæta meirihluta á þingi, en eftir
því sem kosningatölur drífur að
saxast æ meir á þg tölu. Úrslit
liggja nú fyrir um 182 sæti af
þeim 520 sem um er að ræða
og hefur Kongressflokkurinn
fengið 96, Jan Sangh-flokkur-
inn 22, Swantantra-flokkurinn
14, Peking-kommúnistar 10,
sósíalistar 10, Moskvu-kommún-
istar 4 en 26 sæti féllu í hlut
óháðra og ýmissa smáflokka. t
kosningum til fylkisþinga er
Kongressflokkurinn sagður hafa
fengið rúman helming atkvæða
þeirra sem talin hafa verið til
þessa.
Framhald á bls. 26
r
s
\
s
s
s
s
s
s
s
s
s
V
s
s
s
s
s
s
s
j
J
\
s
s
s
s
lír 8 í 12
Gífurlegt tjón 4
óveðrinu í Evrópu
Kaupmannahöfn og
FÁRVIÐRIÐ, sem geisaði á
FÁRVIÐRIÐ, sem geysaði á
Norðursjó og mörgum lönd-
um V-Evrópu í gær kostaði
að minnsta kosti 38 manns-
líf og olli gífurlegu tjóni á
eignum og mannvirkjum. —
Hætt er við að tala látinna
eigi eftir að hækka mikið. —
Mesti vindhraðinn mældist 12
stig. Auk þess slasaðist fjöldi
Nazistar dæmdir
Múnehen, 24. febr. NTB-AP.
DÓMSTÓL.L í Múndhen kvað í
dag upp dóm yfir þremur naz-
istaforingjum fyrir þátttöku í
fjöldamorðum á hollenzkum
Gyðingum í fangabúðum nazista
í heimsstyrjöldinni síðari. Sak-
borningarnir eru Major Wilhelm
Harster, Major Wilhelm Zoepf og
aðstoðarkona hans Gertrud
Slottke, sem fengu 9 og 5 ára
fangelsi, en Harster var dæmd-
ur í 15 ára fangelsi. Meðal þeirra
Gyðinga, sem Herster er sakað-
ur um að hafa tekið þátt i að
myrða var Anna Frank, en með-
al vitna í málinu var Otto Frank,
faðir Önnu.
Harster hefur áður verið
dæmdur fyrir stríðsgiæpi og sat
8 ár í fangelsi. í dómsorðinu var
kveðið á um að þessi fangelsis-
vist skyldi koma til frádráttar
dómsins, svo og tíminn, sem sak-
borningarnar hafa setið í fang-
elsi meðan á réttarhöldunum
stóð. Er dómurinn var kveðinn
upp, hófust hávæi mótmæli í rétt
arsalnum og kröfðust viðstaddir,
að sakborningarnir yrðu teknir
af lífi
fólks meira eða minna. Margir
bátar og smáskip fórust eða
rak á land og óttazt er um af-
drif annarra. Veðrið í Dan-
mörku var það versta, sem
þar hefur komið í rúm 30 ár
og olli skemmdum fyrir tugi
millióna danskra króna.
í Austurríki komst vindhrað-
inn upp í 128 km á klukkustund
og var slökkviliðið í Vínarborg
kallað 130 sinnum út til að að-
stoða við viðgerðir á skemmd-
um vegna óveðursins. í Ham-
borg hafði verið lýst yfir neyð-
arástandi vegna ótta við flóð-
bylgju, en því var aflétt í morg-
un er veðrið hafði lægt til mik-
illa muna. Sjór flæddi inn í
þorp og bæi víðsvegar við strönd
Framhald á bls. 31
Elst, Hollandi,
24. febrúar, NTB.
ÁTTA barna móðir í Elst í
Hollandi fæddi í dag fjór-
bura, þrjár stúlkur og eitt
sveinbarn og vógu systkinin
um það bil sex merkur hvert.
Fæðingin var eðlileg í alla
staði og ól konan börnin í
heimahúsum, en nú er búið
að koma þeim í sjúkra'hús til
frekari aðhlynningar. Faðir
barnanna er landbúnaðar- \
verkamaður og eiga þau hjón \
átta börn fyrii, sem fyrr seg- J
ir, hið elzta tólf ára. i
Dó eðlilegum
douðdogo
New Orleans, 24. febr. NTB.
DAVID Ferrie, flugmaðurinn
sem fannst látinn í íbúð sinni í
New Orleans á miðvikudag,
skömmu eftir að lýst hafði verið
yfir því að hann yrði höfuðvitni
í rannsókn þeirri er Garrison
sakadómari hugðist hefja á
morði Kennedys forseta, er nú
sagður hafa dáið eðlilegum dauð
daga. Sagði formaður líkskoðun-
arnefndar, Nicholas Chetta, að
ekkert benti til þess að Ferrie
hefði framið sjálfsmorð eða
verið ráðinn af dögum.
Kína:
Sprengjuárásir í Kanton
Bændur i Kweichow sækja til borganna
Tókíó 24. febrúar, AP.
MARGT virðist enn standa í
vegi fyrir því að Mao Tse Tung
verði talinn einvaldur í Kína.
Síðustu fréttir herma að enn
gangi á hreinsunum innan hers-
ins og sagt er að Rauðu varðlið-
unum hafi verið fyrirskipað að
endurskipuleggja liðstyrk sinn.
Þá eru bændur minntir á vor-
uppskeruna, sem ekki megi und-
ir höfuð leggjast að undirbúa og
mjög lagt að mönnum að halda
sig heima í sveit sinni en sækja
ekki til borganna að óþörfu.
Sagt er að andstæðingar Maos
í Kanton hafi gert nokkrar
sprengjuárásir á aðsetursstaði
Rauðra varðliða og stuðnings-
manna Maos í borginni, hina
fyrstu í fyrri viku og nú sé svo
komið að varðliðarnir búi um
sig í e.k. herbúðum og víggirði
þær. Fregnir þessar eru hafðar
eftir ferðamönnum sem komnir
eru til Hong Kong frá megin-
landi Kína.
Peking-útvarpið sagði í dag að
alvarlegt ástand ríkti nú í
Kweichow-héraðinu í Suðvestur-
Kína vegna þess að fólk flýði
þar sveitirnar unnvörpum og
héldi til borganna. Sagði útvarp-
ið afturhaldssinna standa hér að
baki og vilja klekkja á bylting-
armönnum, og hvetur bændur
og landbúnaðarverkamenn til að
Framhald á bls. 31