Morgunblaðið - 25.02.1967, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.02.1967, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1967. 31 Vietnam: Langdrœgum fallbyssum bzitt Nýju löndunartækin á loðnu — landað úr m.b. Erni í Keflav ik. Sœmilegur afli báta frá Keflav. Ný löndunaraðferð á loðnu tekin upp mjög vel. Er hér um að ræða miklu fljótvirkari aðferð en áð- ur var að losa með krabba eða háfum. — H.s.j. VEIBISKAPUR í Keflavik ! gengur sæmilega, þótt gæftir séu - ÖVEÐUR Framh'ild af hls. 1 ina, en skapaði enga verulega hættu. Óveðrinu fylgdi viða mikil snjókoma og voni miklar sam- göngutruflanir af þessum sökum í dag á landi. Gifurlegur fjöldi trjáa fauk um koll og í Þýzka- landi létust 8 manns af þessum orsökum. I Danmörku er talið að hálf milljón trjáa hafi fokið um koll i veðrinu. Meðal þeirra skipa er fórust var danska skipið Else Friess með 8 manna áhöfn, sem var á leið til Bretlands, þýzkt björgunarskin með þriggja manna áhöfn auk þriggja manna, sem það hafði bjargað af sökkvandi skipi og strandferðaskipið Ruhr með sex manna áhöfn, en skipinu hvolfdi við Wesermynnið er verið var að draga það í var. 1 Hol- landi fannst brak úr fiskibáti, sem á var 5 manna áhöfn. Engin leið er að gera sér Ijóst hve miklu tjóni óveðrið olli en það skiptir hundruðum milljóna. - SERFRÆÐINGAR Framhald af bls. 1 Flugstjóri á Glófaxa er Jón Ragnar Steindórsson og flugmað- ur Gunnar Guðjónsson. Flug- virki í ferðinni er Jc'hann Er- lendsson. Þeir félagar hafa það gott þar nyrðra í góðu yfirlæti danskra veðurathugunarmanna. Sveinn Sæmundsson sagði, að þegar óhappið hafi orðið hafi verið um 30 stiga frost á þessum slóðum og síðan hefur kiuldinn farið vaxandi, svo að illmögu- legt er að hafast að við flugvél- ina. stirðar. Línu- og netabátar hafa aflað frá 6 til 9 lestir í róðri. í gær komu þrír bátar með 37 til 41 lest eftir tvær lagnir undir jökli, og 34 bátar með 900 lestir af loðnu. Aflahæstur þeirra báta, sem landað hafa í Keflavík eru Örn með 1300 lestir, og af öðrum loðnubátum hér eru Kristián Valgeir og Gísli Árni með svip- aðan afla, en þeir hafa ekki ein- göngu landað hér í Keflavík. Ný löndunaraðferð hefur verið tekin upp og er það að dæla loðn unni úr nótunum og hefur gefizt - KINA Framhald af bls. 1 snúa aftur til býla sinna og huga að voruppskerunni sem í vænd- um sé. Á veggspjöldum í Peking voru skráðar fréttir, en menn þóttust mega af ráða að nokkur vafi léki nú á um framtíð Rauðu varð- liðanna (sem taldir eru um 20 milljónir) og einnig að agi væri ekki sem skyldi í Kínaher, sem til þessa hefur verið talinn næsta hollur Mao. Látið var að því liggja að undirmenn í hernum notuðu sér menningarbylting- una til að klekkja á yfirmönnum sínum. Allt er enn á huldu um Lin Piao varnarmálaráðherra, sem ekki hefur sézt opinberlega síðan í nóvember sl. IVfeð menningarbrag Chou En lai forsætisráðherra er sagður hafa atyrt Rauðu varð- liðana í dag og aðra öfgafulla stuðningsmenn Maos og sagt að menningarbyltinguna ætti að framkvæma héðan í frá með menningarbrag. Kvað hann öfga- menn (hafa gengið svo hart að Chang Lin-Chih, kolamálaráð- herra, að hann hefði beðið bana af, og slikt og þvílíkt væri til mestu ófremdar. Gröf Martine Cnrol rænd Cannes 24. febrúar,'NTB, AP. GRÖF frönsku kvikmyndaleik konunnar Martine Carol í Cannes var rænd aðfaranótt föstudags og höfðu grafar- ræningjarnir á brott með sér ýmsa skartgripi sem lagðir höfðu verið í gröfina með henni. Ekki er vitað hversu miklu var stolið úr gröfinni af skart- gripum en lögreglumenn telja að þýfið sé töluvert verðmætt og eru nú að grennslast fyrir um það hjá ættingjum leik- konunnar hversu mikið af skartgripum hafi verið í gröf- inni. Vitað er að þar var m. a. giftingarhringur hennar, sett- ur demöntum, demants-háls- festi, brjóstnál sett rúbínum og sitthvað fleira, sem kvik- myndaleikkonan hafði beðið um að lagt yrði með sér í gröfina. Ljóst var af öllum um- merkjum við gröfina að ekki hafði verið eftir öðru sótzt en skartgripunum. Þrjár vikur eru síðan leikkonan lézt í Cannes af hjartaslagi, 46 ára gömul. s V V < s s i s s 5 s s s s s i_________________________________A Madrid, 23. febr. NTB. • Spánska upplýsingamálaráðu neytið hefur fyrirskipað refsi- ráðstafanir gegn ritsjóra frétta- stofunnar Europa Press, Antonio Herrero að natfni. Er ástæðan sú, að hann birti yfirlýsingu frá spönskum stúdentum í samlbandi við óeirðirnar og átökin, sem urðu við spænska háskóla fyrir nokkru. Saigon, 24. febrúar, AP — NTB. BANDARÍKJAHER í S-Vietnam beitti í dag í fyrsta skipti lang- drægum fallbyssum til stuðnings loftárásunum á N-Vietnam og var skotið sunnan megin landa- mæranna og yfir vopnalausa beltið, sem aðskilur N- og S- Vietnam. Fallbyssur þessar draga rúma 32 km. og hafa 175 mm. hlaupvidd. Sjötíu árásarferðir voru farnar í lofti inn yfir N- Vietnam . Miklar hernaðaraðgerðir standa nú yfir í frumskógunum á her- svæði C, um 112 km. norðvestan Saigon og er beitt miklum liðs- afla og stórvirkum tækjum en fátt hefur fundizt skæruliða og er getum að því leitt að þeir muni hafa sloppið yfir landa- mærin til Kambodsja og ætli sér að hafast þar við meðan hernað- araðgerðirnar standa yfir. Aðeins eitt skilyrði. Þjóðhöfðingi Kambodsja, Noro dom Sihanouk fursti, sem stadd- ur er í París, lét hafa það eftir sér þar í borg í dag, að N-Viet- nam setti aðeins eitt skilyrði fyr- ir því að hefja mæbti sáttaum- leitanir og viðræður við Banda- ríkin, þ.e. algera stöðvun loft- árásanna á N-Vietnam. Ekki kvað furstinn N-Vietnam þó myndu hætta stuðningi sínum við Viet Cong fyrir bragðið. Furstinn sagði Bandaríkjamenn myndu vaxa í áliti en ekki minnka ef þeir hættu loftárásunum og settu ekki nein skilyrði. en áframhald- andi hernaðaraðgerðir yrðu þeim til álitshnekkis. BréMð til Fulbri^hts Tran Van Do, utanrfkisráð- herra S-Vietnam, sagði í bréfi er hann sendi bandariska öld- ungadeildarþingmanninum. J. W. Fulbrigiht og birt var í dag að stæðhæfingar þingmannsins væru óréttmætar og kommúnistar myndu nota þær f eigin þágu. Utanríkisráðherrann vítti Ful- bright fyrir að vilja stöðva loft- árásirnar á N-Vietnam og fynr að leggja til við Bandarfkja- stjórn að hún fengi annan mann í forsætisráðherraembættið í S- Vietnam ef Ky markskálkur neit aði að semja við Viet Cong. Bréf Dos utanríkisráðherra er býsna langt, eða um 1500 orð og kemur hann víða við. M.a. segir hantiL að loftárásirnar hafi valdið norðanmönnum tilfinnanlegu tjóni og lamað barátt.uþrek þeirra. Do ítrekar að S-Vietnam- menn eigi í varnarstyrjöld en ekki árásarstyrjöld og friðarvilji þeirra sé einlægur. ,,Ef Hanoi- stjórnin hætti yfirgangi sínum og léti landi voru eftir að gera sjálft út um framtíð sína yrði stríðinu samstundis lokið, sagði Do. Bandarikjastjórn einhuga. Robert McNamara, varnarmála ráðlherra Bandarfkjanna, boðaði fréttamenn á sinn fund í dag til þess að lýsa því yfir að enginn ágreiningur væri með ráðherrum í stjórninni vegna Vietnam-máls- ins og allir væru þeir fylgjandi því að haldið yrði áfram loftárás unurn á N-Vietnam. McNamara lagði á það áherzlu, að enginn ágreiningur væri með honum óg Dean Rusk utanríkisráðherra um þetta atriði og kvaðst hafa boðað fréttamennina á sinn fund til þess að taka af allan vafa um það. Auglýst eftir Chevrolet bifreið AÐFARANÓTT sl. miffviku- dags var bifreiffinni R-10418 stol iff af Barónsstíg, þar sem hún stóff viff hús nr. 33. Þetta er Chevrolet-fólksbifreW, árgerð 1955, fjögurra dyra, blá- græn að lit, fremur ljós litur. Ekkert hefur fréttzt af bifreið inni. Þeir, sem upplýsingar geta gefið um þjófnaðinn, eru vin- samlaga beðnir að hafa þegar samband við rannsóknarlögregl- Sviffsmynd úr Marat/Sade tekin a æfingu í Þjoðleikhusinu. MaratSade frumsýnt 2. marz BLAÐBURÐARFÓLK 1 EFTIRTALIN HVERFI: VANTAR Sólheimar I Skipholt II Túngata Tjarnargata Lambastaðahverfi Baldursgata Vesturgata II Gnoðarvogur Sjafnargata Kjartansgata Talið við afgreiðsluna, sími 22480 FIMMTUDAGINN 2. marz verð- ur frumsýnt í Þjóðleikhúsinu leikrit Peter Weiss Marat/Sade. Leikstjóri er Kevin Palmer en með aðalhlutverk fara Gunnar Eyjólfsson, sem leikur Marat, Róbert Arnfinnsson, sem leikur de Sade, Ævar Kvaran, sem leik ur Coulmier, forstöðumann geð- veikrahælisins þar sem leikurinn gerist, og Margrét Guðmundsdótt ir, sem leikur Charlotte Corday, sem myrðir Marat. Gísli Alfreðs- son leikur kallara, Erlingur Gísla son leikur de Peré og Herdís Þorvaldsdóttir leikur konu Mar- at. Önnur hlutverk eru minni, en þó eru allir leikendur, sem eru alls þrjátíu og þrír, á sviðinú i allan tímann. Auk þess koma fram í leiknum fimm hljóm- sveitarmenn. Arni Björnsson cand. mag. þýddi leikritið, en leiktjöld hefur U. Collins gert. Laikurinn gerist á geðveikra- , hæli eins og áður segir og er staðsettur í Frakklandi að lok- inni stjórnarbyltingunni. Sögu- legar forsendur eru þær, að á ár- unum 1787 til 1811 stóð forstöðu- maður geðveikrahælisins í Char- enton, monsieur Coulmier, fyrir 1 reglulegum leiksýningum á hæl- inu, sem voru liður í læknismeð- ferð á sjúklingunum. Varð brátt tízka í París að heimsækja hæl- ir í Charenton til að sjá hegðun sjúklinganna og sjálfar leiksýn- . ingarnar. Um þessi sögulegu at- 1 vik hefur Peter Weiss ofið skáld verk sitt. Á fundi með fréttamönnum 1 gær skýrðu þeir þjóðleikhús- stjóri og leikstjórinn frá verk- inu og aðdraganda að sýningum. Kom fram, að þetta er stærsta og fjölmennasta verkefni, sem Þjóðleikhúsið hefur tekið til með ! ferðar og eins og Klemens Jóns- son komst að orði: „erfiðasta verk, sem við höfum nokkurn I tíma fengizt við.“ Kevin Palm- er tók undir það, að leikritið væri erfitt í uppfærslu, baeði fyrir leikstjóra og leikendur. í Lesbók Morgunblaðsins á morgun er ítarleg grein um Pet- , er Weiss og verk hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.