Morgunblaðið - 12.03.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.03.1967, Blaðsíða 1
32 síður og Lesbók 54. árg. — 59. tbl. SUNNUDAGUR 12. MARZ 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins Attburarnir. Myndin var tekin skömmu eftir íædingu þeirra. (AP-símamynd) Herbúnaður í Djakarta — vegna deilunnar um það hvort svipta eigi Sukarno forsetatitlinum Djakarta, 11. marz NTB-AJP. • ÞÆR fregnir berast frá Djakarta. aS flugvélar Indó- nesiuhers hafi gert loftárásir á þorp í Vestur-íran til þess að reyna að bæla niður uppreisn, sem ýmsir ættflokkahöfðingjar standa að þar um slóðir. Er haft eftir manni' sem í gær kom til Djakarta frá Vestur Iran, að á- stæðan fyrir uppreisninni sé efnahagsástandið þar en varði á engan hátt stjórnmálaátökin í Indónesiu. Eins og frá var skýrt í frétt- uim í gær hefur þingnefnd sam- þykkt áskorun til þingsins um að svipta Súkarno, forseta, öllum völdum og nafnbótum og er tal- ið vist, að þingið staðfesti sam- þykkt þessa. Hinsvegar hermir AP í morgun, að töluverður á- greiningur sé um það hvort svipta eigi Súkarno forsetatitlin- um sjálfuem. Sú'harto hershöfð- ingi, — sem þingnefndin vill að taki við forsetaembaettinu — er algerlega andvígur því að svipta Súkarno titlinum og tel- ur hættu á borgarastyrjöld í landinu verði það gert. Hann nýtur í þessu stuðnings flotans. I dag voru vopnaðir hermenn umhverfis forsetahöllina í Dja- karta til þess að koma í veg fyrir átök, ef deilurnar um for- setatitilinn hörðnuðu eða breidd- ust út til borgarbúa. Ennfremur eru brynvarðar bifreiðar og her- Framh. á bls. 31 Deilan innon Kongress- flokksins leyst Áttburar fæddust í Mexico Litlar vonir á, að þeir fái lifað TUTTUGU og eins árs gömul mexíkönsk kona eignaðist áttbura á föstudagskvöld, fjóra drengi og fjórar telpur. Fæddust öll börnin lifandi og á engan hátt vansköpuð, en þau fæddust tveimur mánuðum fyrir tímann og litl- ar vonir taldar á, að þau myndu geta lifað áfram. Þau vógu um 550 grömm hvert og voru um 15.2 cm að hæð. Tveimur klufkkustundum fyrir miðnætti dóu tvö af börnunum og síðar önnur tvö þrátt fyrir ákafar tilraunir lækna og hjúkrunarkvenna til þess að halda í þeim lífi, Höfðu börnin strax verið sett í súrefniskassa, tvö saman í kassa og starfaði einn lækn- ir og tvær hjúkrunarkonur að aðlhlynningu hvers barnanna um sig. Var beitt gerviöndun og hjartanuddi en allt kom fyrir ekki, því að eins og að framan segir, voru fjögur barnanna dáin, þegar síðast fréttist og lítil lífsvon talin fyrir hin. Móðir áttlburanna, frú Maria Teresa Lopez de Sepul veda var við góða heilsu eftir fæðingu þeirra. Hefur hún verið gift manni sínum í fimm ár og höfðu þau eignazt eitt barn áðui, sem nú er tæp lega þriggja ára gamalt og var allt eðlilegt með fæðingu þess. Faðir áttburanna, Mgenero Sepulveda Bonne er 24 ára gamall og starfsmaður við tryggingastofnun ríkisins í Mexico. Yfirlæknirinn við sjúkra- húsið, þar sem áttburarnir fæddust, skýrði frá því, að ekkert benti til þess að kon- an hefði tekið frjósemismeð- uL Tvisvar sinnuð áður á þess- ari öld, svo vitað er, hafa fæðst áttburar. Hið fyrra sinnið í Mexico 1921 en í hið siðara í Kína 1934. Nýju Del'hi, 11. marz AP-NTB MORARJI Bzsai, fyrrum fjár- málaráðlherra Indlands, sem hef- ur barizt um forsætisráðherraem bættið við frú Indiru Gandhi innan Kongressflokksins, hefur nú dregið sig í hlé, að því er skýrt var frá í Nýju Delhi í dag. Er nú fullvíst talið að frú Gandhi verði einróma kjörin í embætti forsætisráðherra. Ákveð ið hefur verið að Bzsai verði að- stoðarforsætisráðherra og einnig er búizt við að hann taki em- bætti fjármálaráðherra, sem hann hélt á árunum 1956—1963 í stjórnartíð Nehrus, föðúr frú Indiru GandlhL ,Það þyrmdi yfir okkur er víð heyrðum fréttina í BBC' — sagði sonur Svetlönu Stalínu, sem hzfur fengið landvistarleyfi í Sviss Genf, 11. marz NTB — AP. SVETLANA Stalina, dóttir Jósefs Stalíns, kom í morg- un snemma til Genf með sér- stakri flugvél frá Rómaborg. Að því er áreiðanlegar heim- ildir í Bem og Genf herma, er liklegt að hún fái hæli þar sem pólitískur flóttamaður. Svissneska ðómsmálaráðu- neytið hefur staðfest, að hún hafi fengið Ieyfi til að dveljast í Sviss fyrst um sinn. Segir í tilkvnningu ráðuneytisins, að svissneska stjórnin hafi aflað sér upplýsinga um Svetlönu og fengið staðfest, að hún hafi ekki stundað neins konar stjórn málastarfsemi og hafi ekki í hyggju að gera það. Landsvistar leyfið var þó veitt með þeim fyrirvara, að það jafngildi ekki, því, að hún fái fast hæli í Sviss sem pólitískur flóttamaður. Upphaflega mun Svetlana hafa óskað hælis í Bandaríkjun- um — hún gaf sig fyrst fram við bandaríska sendiherrann í Nýju Delhi, sem veitti henni ýmiss konar fyrirgreiðslu. Hinsvegar er talið, að Bandaríkjastjórn sé hikandi við að veita henni lands viístarleyfi, vegna tilrauna stjórnarinnar til þess að bæta samskiptin við núverandi stjórn Sovétrík j anna. Upplýst var í Rómaborg í gær kveldi, að Svetlana hefði komið þangað frá Nýju Delhi 7. marz sL Hefði hún haft sam- band við ítölsk yfirvöld og beð- izt landvistar í „stuttan tíma“ og síðan haft samband við sviss- neska sendiráðið í Róm. Frá Rómaborg fór hún með Vis- count flugvél frá ítalska flug- félaginu Alitalia og var mikil leynd yfir brottför hennar. Einn fréttamanna fréttastofunnar „ANSA“ sá flugvélin fara en var sagt, er hann spurðist fyrir um ferðir hennar, að vélin væri að fara með póst. Sonur Svetlönu, Josef, lét svo ummælt í gærkveldi við frétta- menn, að fregnin um, að móðir hans ætlaði ekki að koma heim aftur hefði komið yfir hann og systur hans, Ekaterinu, eins og þruma úr heiðskýru lofti. Þau hefðu farið út á Moskvuflugvöll á miðvikudagsmorguninn sl. til þess að taka á móti henni, ev hún kæmi úr Indlandsförinni, en hún hafði þá ekki komið með vélinni. „Við heyrðum fréttina um, að hún hygðist fara til Bandaríkjanna sem pólitískur flóttamaður, í rússnesku send- ingu brezka útvarpsins og það þyrmdi yfir okkar“, sagði Josef. Hann ihvað móður sína hafa tek- ið mjög nærri sér dauða föður síns árið 1953. „Það er eðlilegt, hún var dóttir hans og elskaði hann alveg eins og öll börn elska feður sína“. Malinovski þungt haldinn — Þjáist af krabbameini á háu stigi og er ekki hugað líf Moskvu, 11. marz NTB — AP RODION Malinovsky, mar- skálkur, landvarnaráftherra Sovétríkjanna liggur nú þungt haldinn á Sjúkrahúsi í Moskvu. Er haft eftir áreið- anlegum heimildum, að hann þjáist af krabbameini og eigi skammt eftir ólifað. í gær, föstudag kom upp sá orð- rómur í Moskvu að hann væri látinn, en þeirri fregn var vísað á bug af sovézkum yfirvöldum, sem staðfestu hinsvegar, að hann væri mjög veikur. Malinovski hefur verið veikur lengi. Þegar sL haust heyrðist Framh. á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.