Morgunblaðið - 12.03.1967, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MARZ 1967.
21
kirkja að geta risið. Ekki þarf að
fara um það mörgum orðum, hví
líkur munur það verður fyrir allt
starfið að fá þannig eigið iheimili,
svo ekki sé minnzt á, hve ramm-
inn fyrir tilbeiðslu og guðsdýrk-
un verður allt annar í kirkjunni
en í skólasalnum, sem forráða-
menn Réttarholtsskólans hafa af
skilningi léð söfnuðinum undir
guðsþjónustur og margvísleg
félagsstörf.
>ó ekki aetti að þurfa að slá
þann varnagla, er kannski bezt
að benda þeim, sem telja kirk}-
ur byggðar af fé hins opinibera, á
það, engan styrk hefur ríkissjóð-
ur lagt byggingu þessarar kirkju.
Rí'kið byggir ekki kirkjur, held-
ur söfnuðirnir sjálfir. Aftur á
móti ákvað Reykjavíkurborg að
leggja kr. 500.000.00 í byggingar-
sjóð á sl. ári, og er því treyst
að sá styrkur verði veittur
áfram.
Bústaðakirkja
ÞAÐ hefur mikið verið rætt um
kirkjuna liðnar vikur. Sumir
telja það kirkjunni ætið til góðs,
þegar hún er á dagskrá, aðrir
vilja kveða upp slíkan dóm að-
eins eftir að gengið er úr skugga
um, að hverju umtalið miðar.
Ekki er ætlunin að tala um kirkj-
una almennt í þessum línum,
ekki verður heldur leitazt við
að benda á það svið, sem kirkj-
unni hæfi á síðari helmingi tutt-
ugustu aldarinnár, hvað þá að
rætt sé um það, hvernig bezt
fari, að kristnir söfnuðir hagi lof
gjörð sinni og tilbeiðslu. Þó
Skal hér rætt um kirkju, hús,
sem söfnuður er að reisa sér, en
vonandi, að greina megi að baki
þeim orðum hugsunina um aðra
kirkju, sem ekki er með hönd-
um reist.
Húsið, sem hér verður gert að
umtalsefni, rís ekki undir nafni,
þegar það er kallað kirkja, því
enn er langt í land, að það orð
sé réttnefni. Þó segja sóknarbörn
samnefnds safnaðar ætíð, að þau
séu að fara upp í kirkju, þegar
haldið er inn á hornið, þar sem
Tunguvegur og Bústaðavegur
afmarka það landssvæði, sem
söfnuðinum var úthlutað. Og
þar er risin töluverð bygging,
fyrsti áfangi þess, sem síðar
verður Bústaðakirkja með safn-
aðarheimili. Og það hefur tölu-
vert verið talað um þessa kirkju,
ekki síður en þá, sem verið hef-
ur mönnum tungutöm að undan-
förnu. Þeir eru vissulega til, sem
finnst í mikið ráðizt — of mikið
— að ætla sér að reisa svo
mikla byggingu. Enn aðrir telja,
að kannski hefði verið heppi-
legra — fallegra — að hafa hana
einhvern veginn öðruvísi. En
þó eru þeir langflestir, sem
telja, að ekki megi hugsa alltof
smátt, þegar reisa á hús, sem
meira en fimm þúsund einstakl-
ingar eiga aðild að, og engan hef
ég hitt, sem ekki hefur getað
viðurkennt, að í þessari kirkju
og safnaðarheimili, sé tekið til-
lit til félagslegra þarfa og þjón-
ustu við sóknarbörnin, ung sem
gömul, og þannig stuðlað að því
með starfi hinna rúmhelgu daga,
að kirkjan megi verða miðdep-
ill hverfisins á sunnudögum.
í hinum fyrsta áfanga, sem nú
er risinn, er kjallari eða fyrsta
hæð kirkju og safnaðarheimilis,
mikil bygging. Þar er í framtíð-
inni ætlunin að reka umfangs-
mikla æskulýðsstarfsemi. Kostn-
aðurinn við þennan áfanga er
kominn yfir þrjár milljónir.
Ekki er samt ætlunin að halda
áfram að sinni með að byggja
ofan á alla þessa fyrstu hæð. Á-
ætlun sú, sem forráðamenn
safnaðarins hafa samþykkt,
kveður svo á, að næst skuli reisa
kirkjuskipið sjálft, sem áætlað
er að kosti 2.3 milljónir auk for-
kirkjunnar (anddyris, fata-
geymslu, snyrtiherbergi), sem
mun kosta 800.000,00 krónur eft-
ir kostnaðaráætlun verkfræð-
ings. Þetta er mikið fé, og ekki
er laust við, að kvíða gæti hjá
þeim. sem láta sig dreyma um
hraðar byggingarframkvæmdir,
en hvorki örvænta þeir hinir
sömu né eru heldur reiðubúnir
til þess að gefast upp fyrr en
fullreynt er með árangur.
Hefur nú öllum heimilum í
söfnuðinum verið skrifað bréf,
þar sem þeim tilmælum er kom-
ið á framfæri, að sem allra flest-
ir leggi sitt fram til þess að
kirkjan megi rísa. Eru þau Mka
orðin mörg heimilin, sem hafa
lagt fram rausnarlegar fjárupp-
hæðir, og fjölmargir hafa ákveð-
ið að gefa ákveðna upphæð mán-
aðarlega — allt upp í 500,00 kr.
á mánuði — í byggingarsjóðinn.
Á sl. ári námu frjálsar gjafir
kr. 550.000,00 en þar með er tal-
ið framlag Kvenfélags Bústaða-
sóknar, 200.000,00 krónur og
Bræðraíélags sóknarinnar, að
upphæð kr. 50.000,00. Þá gaf
kirkjukórinn og organistinn kr.
26.000,00, og aðstandendur Guð-
mundar heitins Jónssonar, fyrr-
verandi símaverkstjóra hafa
stofnað minningarsjóð um h&nn
með kr. 35.000,00 framlagi, er
þeim sjóði ætlað að efla tón-
mennt og tónflutning innan safn
aðarins í framtíðinni, en að sinni
er féð notað til byggingarfram-
kvæmda. Er sjóður þessi opinn
fyrir frekari gjöfum, en stofn-
endum færðar þakkir fyrir vin-
semd í garð safnaðarins.
SL sunnudag, Æskulýðsdag
kirkjunnar, afhentu unglingarn-
ir í Æskulýðsfélagi safnaðarins
kr. 10.000.00 í byggingarsjóðinn,
og vitað er, að gjafirnar á þessu
ári munu verða miklu meiri en
í fyrra, til þess benda umsagnir
þeirra, sem heimsótt hafa heim-
ilin undanfarna daga. Hefur fjár
söfnunarnefndin unnið mdkið
starf að undirbúningi og fram-
kvæmd söfnunarinnar. Og með
sameinuðu átaki sóknarbarna og
annarra velunnara á Bústaða-
Með línum þessum eru þeir,
sem heimsóttir eru nú á veg-
um fjáröflunarnefndar, hvattir
til þess að taka málaléitaninni
vel og athuga, hvort ekki er
hægt að styðja þessar byggingar-
framkvæmdir nú, svo að ekki
þurfi kirkjan að vera alltof mörg
ár í smdðum. Flestir hafa vitan-
lega nóg við peningana að gera,
en ekki er sama, hvernig þeim
er varið eða í hvað. Ríflegra
framlag á þessu ári og hinu
næsta losar líka við árlegar heim
sóknir næsta áratug, sem annars
væri óhjákvæmilegt, ef kirkjan
yrði svo lengi í smíðurn. Minn-
umst þess, að Guð elskar glað-
an gjafara.
Ólafur Skúlason,
sóknarprestur.
VAUXHA
wi/a
Véiadeild
Ármúla 3
Nýja Cortínan er meiri Cortina!
Yfir 500 sigrar í erfiðustu þol- og kappaksturskeppnum um allan heim.
Nýja Cortinan er 6 cm breiðari. Hún er mýkri ( akstri, rúmbetri og stöðugri á vegum.
Hin nýja kraftmikla 5 höfuðlegu vél gefur bifreiðinni mjúkon og öruggan akstur.
Gúmmíhlífar yfir höggdeyfurum varno skemmdurn vegna óhreininda.
Kraftmikil miðstöð og loftræsting með lokaðar rúður. Mikið farangursrými. Ný og betri bólstrun á sætum.
SVEINN EGILSS0N H.F.
UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SÍMI 22466
Verð á
Cortina De Luxe er kr. 182 þús.
Innifalið: Hlífðarpönnur undir vél og benzíngeymi.
Styrktar fjaðrir og höggdeyfar. Stór rafgeymir.
Hjólbarðar 560x13