Morgunblaðið - 31.03.1967, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1967.
21
'
Úr „Fæðing þjóðar.“
í*v ■
- KVIKMYNDAÞ.
Framhald af bls. 17
og banna listaverk eftir menn,
*em frægir eru um öll lönd, þeg-
«r hrat eins og „Rauða skikkj-
an,“ sem ekkert listrænt gildi
hefur og er full með blóðsúthell-
ingar og berrassað fólk, er leyfð
ófermdum börnum.
Eða hvort hefur það sitt að
aegja, að Edda film vill fá aur-
ana sína aftur, og þeir eru jafn-
góðir úr vösum barna sem full-
orðinna.
m.
DAVID WARK GRIFFITH
David Wark Griffith fæddist í
Kentucky-fylki í Bandaríkjun-
um 23. janúar 1875. Hann var
sonur blásnauðs höfuðsmanns úr
her Suðurríkjanna, sem átti sæti
á löggjafarþingi Kentucky.
Þegíir D. W. Griffith réðist
sem atvinnuleikari árið 1897,
notaði hann nafnið Lawrence
Griffith, því að á þeim tímum
var kvikmyndafólk ekki hátt
skrifað. Er hann réði sig til þess-
ara starfa, taldi Griffith þetta
aðeins vera spor á þyrnum
stráðri braut til að verða rithöf-
undur og skáld. Hann taldi kvik-
myndir fyrir neðan sína virð-
ingu og 1908, þegar hann undir-
ritaði samning við „Biograph“
um að gerast leikstjóri, sagði
hann við konu sína: „Að vissu
leyti er þetta ágætt, en við get-
um ekki haldið eilíflega áfram
að segja ekki vinum okkar og
ættingjum, hvemig við vinnum
fyrir okkur."
Fyrsta myndin, sem Griffith
stjómaði fyrir „Biograph“ var
„Adventures of Dollie." Þá
kyimtist hann G. W. „Billy“
Bitzer, sem hafði tekið þar til
starfa 1896 sem rafmagnsmaður,
en var nú orðinn aðalkvikmynda
tökumaður félagsins. Hann
kenndi Griffith frumatriði í
kvikmyndastjórn þeirra tíma og
þeir störfuðu saman upp frá
því.
„Biograph" var í afturför,
þegar Griffith hóf störf, en eftir
eitt ár var það tekið að rétta við.
Griffith kom fram með fyrstu
róttæku nýjungar sínar í mynd,
sem nú mun glötuð, „For Love
of Gold,“ 1909, með því að segja
skilið við gömlu regluna „eitt
atriði — ein taka,“ með því að
breyta stöðu myndavélarinnar í
miðju atriði. Hann varð fyrstur
til að uppgötva það grundvallar-
atriði að láta yfirleitt aðeins efri
hluta leikaranna sjást.
Smám saman fór að renna ljós
upp fyrir Griffith. Hann skildi,
að í kvikmyndum er notuð ný
og einstæð aðferð við að segja
sögu. Árið 1911 er hann orðinn
stoltur af starfi sínu og samn-
ingur hans er gerður við David
Wark Griffith, en „Lawrence"
hverfur af sviðinu.
Um þetta leyti fóru að berast
langar stórmyndir frá Evrópu.
Hin helzta þeirra var „Quo
vadis?“ frá Ítalíu. Griffitih fékk
fljótlega áhuga á að gera „stór-
kostlegustu mynd, sem gerð hefði
verið.“ Árið 1913 fer hann frá
„ÍBiograph“ og ræður sig til
JMutual Film Corporation.“
Hjá því félagi gerði hann eina
frægustu mynd sína, Fæðing
þjóðar („The Birth of a
Nation), sem frumsýnd var í
Liberty Theatre í New York, 3.
marz 1915.
Gerð myndarinnar gekk ekki
átakalaust. Kostnaðurinn varð
gífurlegur, og sagt er, að bar-
átta Griffiths hafi minnt á Bem-
ard Palissy, leirkerasmið frá
sextándu öld, sem brenndi hús
sitt til að halda logandi undir
brennsluofninum.
Söguþráðurinn er byggður á
bók eftir síra Thomas E. Dixon,
sem nefndist „The Clansman."
Það er ótrúlegt en satt, að
öll þessi mikla mynd var tekin
af einum kvikmyndatökumanni,
Billy Bitzer, á eina tökuvél.
Hann þurfti að liggja undir
hrossahófum og standa 1
sprengjuregni til að ná tilætluð-
um áhrifum. Bitzer sagði mörg-
um árum síðar, að hann bæri
ennþá bláa púðurflekki á hör-
undi sínu frá orustuvöllunum 1
„Fæðing þjóðar.“
Myndin var umdeild vegna
efnis og efnismeðferðar, en hún
dró að sér slíkan fjölda áhorf-
enda, að um algert miet var að
ræða. Árið 1939 voru heildar-
tekjur eigenda orðnar $ 18.000,-
000, og hún hefur verið sýnd
stöðugt fram á þennan dag.
Eftir þessa velgengni bannaði
Griffith gestum aðgang að kvik-
myndaverinu og innan skamms
tóku vinnupallar að gnæfa yfir
Sólsetursstræti í Hollywood.
Fólk undraðist hvað var á seyði.
Árið 1916 sendi Griffith frá
sér stórbrotnustu og flóknustu
Mynd sina, „Intolerance", (Um-
burðarleysi). Hún er ofin úr
fjórum sögum frá: Fátækra-
hverfum nútímans, Frakklandi
endurreisnarinnar, Babýlon og
krossfestingunni. Umgerð mynd
arinnar og leikmunir, eru mik-
ilfenglegri en síðan hafa verið
notaðir.
Með eigin orðum lýsir Griffith
myndinni þannig: „Sögumar
byrja eins og fjórir straumar,
séðir af hæðarbrún. í fyrstu
renna straumarnir hver í sínu
lagi hægt og hljóðlega. En sem
þeir renna nálgast þeir og nálg-
ast, hraðara og hraðara, unz að
lokum, i síðasta þætti, samein-
ast þeir I eitt mikilúðlegt fljót
tjáðra tilfinninga".
Þessi mikla og einstæða mynd
féll um sjálfa sig og hlaut enga
aðsókn. Margar ástæður til
þessa hafa verið nefndar. Sú al-
gengasta og sennilegasta er, að
myndin hafi verið of margslung-
in og flókin fyrir almenning.
Einnig var friðarstefnan, sem er
leiðandi stef í „Intolerance", ekki
vinsæl, þegar Ameríka var að
búa sig undir þátttöku I heims-
styrjöldinni fyrri.
Eftir „Intolerance" bjuggust
menn við fleiri meistaraverkum
frá D. W. Griffith. En það var
eins og þessi maður, sem skap-
aði tjáningarform kvikmynd-
anna, gæti ekki fundið sjálfan
sig innan takmarka þess. Ferill
Griffiths sem leikstjóra endaði
1931 með „The Struggle." Þessi
mikli kvikmyndameistari lézt
árið 1948, saddur lífdaga. Sama
ár andaðist einnig annar emist-
ari hinnar sjöundu listgreinar,
Rússinn Sergei Eisenstein, sem
eitt sinn sagði: „Hið bezta í
sovézkum kvikmyndum kemur
frá „Intolerance“.“
(Helztu heimildir eru: The
Film Till Now, Se det er film,
(1), The Movies og The Silent
Cinema).
Innflyljendur, kaupmenn,
framleiðendur
Viljum kaupa gamla vörulagera. Tilboð merkt:
„Hagkvæmt 2011“ sendist Mbl. fyrir þirðjudag.
heimilistækisf.
HAFNARSTRÆTI 3SIMI2Q455
Til fermingargjafa
PHILIPS segulbandstæki í miklu úrvali.
PHILIPS útvarpstæki margar tegundir.
PHILIPS plötuspilarar transistor.
PHILIPS rakvélar í miklu úrvali.
PHILIPS hárþurrkur 3 tegundir.
PHILIPS tæknileikföng.
RONSON hárþurrkur.
LUXO lampar margar gerðir.
HEIMILISTÆKI S.F.
Söluturn
til sölu. Nánari upplýsingar gefur:
Sigurður Reynir Pétursson hrl.
Óðinsgötu 4. — Sími 21255.
Flugfrcyjur
Aðalfundur Flugfreyjufélags fslands verður hald-
inn í Tjarnarbúð í dag kl. 4 e.h.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin. '
Húsbyggjendur
Kaupið miðstöðvarofnana þar sem úr-
valið er mest og bezt. Hjá okkur getið
þér valið um 4 tegundir.
Helluofninn
30 ára reynsla hérlendis.
Eiralofninn
Úr stáli og eir sérstaklega
hentugur fyrir hitaveitur.
JA-ofninn
Nýjasta gerð, mjög hagstæð
hitagjöf.
Panelofninn
Norsk framleiðsla — fáanlegur
með fyrirfram innstilltum krana.
Stuttur afgreiðslufrestur — Leitið tUboða.
h/fOFNASMIÐJAN
EINHOLTI 10 — SfMI 21220
Kirkjan í Vindáshlíð. Gamla Saurbæjarkirkjan.
Fermingarskeyti
sumarstarfsins
Styðjið gott málefni. Litprentuð fermingaskeytt
fást á eftirtöldum stöðum 2. páskadag frá kl. 10—12
og 1—5.
Amtmannsstíg 2b,
Drafnarborg,
Melaskóla,
ísaksskóla,
Hraunteigi 33,
Félagsheimilinu v/Holtaveg,
Langagerði 1,
Sjálfstæðishúsinu Kópavogi.
Upplýsingar í síma 17536.
VATNASKÓGUR VINDÁSHLÍÐ