Morgunblaðið - 08.04.1967, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 08.04.1967, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1967. Annasamt hjá þyrlu Landhelgisgæzlunnar Frá opnun sýningarinnar í Hamborg. Glæsileg sýning íslenzkra þjóðminja í Hamborg Sýningin var opnuð á miðvikudag og mun standa fram í maí Á MIÐVIKUDAG var oppnuð í Altonasafni í Hamborg sýning á íslenzk- um munum frá þjóðminja- safni íslands, sem ber heit- ið „íslandische Volks- kunst“ og verður opin fram í maímánuð. Sýning þessi er hin vandaðasta og athyglisverðasta og er mun unum á sýningunni mjög haganlega fyrir komið í hinum rúmgóðu og glæsi- legu salarkynnum safnsins. Mikið fjölmenni var við opnun sýningarinnar, en við opnunina fluttu ræður G. Kramer menningar- málaráðherra Hamhorgar, dr. Kristján Eldjárn þjóð- minjavörður og dr. Gylfi Þ. Gíslason menntamála- ráðherra. G. Kramer, menningar- málaráðherra Hamborgar, sagði í ræðu sinni, að það væri stjórn Hamborgar, sem er eitt hinna 11 ríkja vestur- þýzka sambandslýðveldisins, mikil ánægja að fá tækifæri til þess að halda sýningu á íslenzkum þjóðminjum og myndi vafalaust mörgum mik ill fengur 1 að sjá þessa sýn- ingu, því að mikill áhugi á íslandi væri ríkjandi í V- Þýzkalandi og þá ekki hvað sízt í Hamborg. Dr. Kristján Eldjám, þjóð- minjavörður, skýrði síðan frá aðdraganda og fyrirkomulagi sýningarinnar, en síðan opnaði dr. Gylfi Þ. Gíslason mennta málaráðherra sýninguna með ræðu, þar sem hann sagði m.a. að það væri íslendingum fagnaðarefni að fá tækifæri til þess að sýna í hinum fögru salarkynnum safnsins íslenzka alþýðulist frá fyrri öldum. Lét menntamálaráðherra í ljós þakklæti víð yfirvöld Ham- borgar, safnið og forstöðu- mann þess fyrir að hafa boðið til þessara sýningar. Sagðist hann vonast til þess, að þessi sýning yrði tekin sem vinar- kveðja úr fjarlægu norðri til þess að efla og treysta bönd, sem æskilegt væri, að yrðu sem nánust og sterkust. Eftir að gestir höfðu skoðað sýninguna hélt Ernst Dreyer- Eimbckl aðalræðismaður ís- lands i Hamborg móttökuboð fyrir sýningargesti. Ljóst er að þessi sýning hefur vakið mikla athygli og verður vafalaust til þess að auka enn á áhuga fólks á ís- landi og íslenzkum málefnum. Um þessar mundir er hópur íslendinga úr Germaniu, þýzk -íslenzka félaginu í Reykja- vík á heimsóknarferðalagi til Hamborgar og Köln í boði ís- landsvinafélaganna á þessum stöðum og Loftleiða og hafa mótökur verið frábærar. ÞTRLA Landhelgisgæzlunnar j sótti í fyrradag slasaðan mann til Siglufjarðar, svo sem sagt var frá í Mbl. í gær. Flutti hún manninn til Sauðárkróks, þar sem um svipaS leyti lenti flug- vél frá Flugfélagi fslands, en hún tók við sjúklingnum og flutti til Reykjavíkur. Þyrlan var á Sauðárkróki í fyrrinótt. en fór þaðan í gær- morgun samkvæmt beiðni áleið- is til Óláfsvíkur með viðkomu í Stykkishólmi. í ólafsvík var svipað ástand og á Siglufirði, allir vegir ófærir vegna snjóa, svo og sjúkraflugvellir. Tilgang- ur ferðarinnar var að sækja sjúka konu er komast þurfti í sjúkrahús hið bráðasta. Ferðin frá Sauðárkróki til Stykkishólms gekk mjög vel, <»n er þyrlan var komin í Grundar- fjörð skall á svo mikið dimm- viðri, að hún varð að lenda við Skerðingsstaði. Hafði þyrlan þar nokkra viðdvöl, en gat síðan haldið áfram ferð sinni, skömmu eftir hádegi. Kom þyrlan síðan heilu og höldnu til Reykjavíkur um miðjan dag í gær. Pétur Sigurðsson tjáði Mbl. í viðtali í gær, að þyrlan væri mikið þarfaþing við að fram- kvæma verk, sem eru illfram- kvæmanleg á annan hátt. Þyrlan er útbúin til hinna ólíkustu verka, getur lent á sjó og landi — hvar sem er. Landhelgisgæzlan hefur komið sér upp bensínibrgðastöðvum víða um land á afskekktum stöð- um, auk þess sem varðskipin hafa bensín handa henni. Þá sagði Pétur, að Landhelgisgæzl- an hefði gert sér það að reglu, að keppa ekki við aðra þyrlu- eigendur, heldur aðstoða einungis þar sem ástæða þætti til. Gildir þessi regla einnig um skipin. Það háir okkur töluvert, sagði Pétur — sérstaklega að vetrin- um, að við höfum ekki skýli fyrir vélina úti á landi, þar sem unnt yrði að koma henni undir þák um nætur. Er brýn þörf á slíku skýli t. d. á Egilsstöðum, svo og fyrir vestan. Þyrlan er ekki útbúin blind- flugstækjum, sem myndu þyngja hana um of og getur því ekki flogið, hvernig sem viðrar, en hún er þó búin þeim alkunnu kostum, að geta lent hvar sem er og hvenær sem er eins og allir vita. Ekknasjoður íslands leggur fram 100 þús. kr. í fjársöfnun vegna „Freyju“-slyssins þunga áfalli, þegar skip þetta fórst. Biskupsstofa tekur á móti fram lögum til þessarar söfnunar,. (Frá Biskupsstofu). ÞESS var getið í sambandi við hinn árlega fjáröflunardag Ekknasjóðs fslands (2. sunnu- dag í marz), að stjórn sjóðsins hefði ákveðið að mestur hluti þess fjár, sem safnaðist að þessu sinni, skyldi renna til aðstand- enda þeirra manna, sem fórust með „Freyju“ frá Súðavík 1. marz s.l. Jafnframt var sú von látin í Ijós, að víðtækari fjársöfnun yrði hafin þessu fólki til styrktar. Fjársöfnun Ekknasjóðsins nam að þessu sinni rúmlega eitt hundrað þúsund krónum og hefur stjórn sjóðsins ákveðið, að leggja kr. 100,090 fram í fjársöfnun vegna „Freyju“-slyss- ins. Vonar stjórnin, að þetta verði til örvunar þeirri söfnun, sem nú er hafin til styrktar þeim á Súðavík, sem urðu fyrir hinu — Bardagar Framhald af bls. 1 Skömmu seinna kom til nýrrar loftorustu, og var þá þriðja Mig-21 þotan skotin niður. Loks kom svo til loftorustu yfir Tel Kazir svæðinu við suðurenda Genesaretvatns, og þar voru þrjár Mig-21 þotur skotnar nið- ur. Féllu þær til jarðar við bakka Yarmuk árinnar í Jórdan íu, að sögn talsmanns Israels- hers. í fregnum frá Damaskus segir að um klukkan tvö síðdegis, að staðartíma, hafi orðið vart við ísraelskar flugvélar í nánd við höfuðborgina. Útvarpaði þá Dajnaskus-útvarpið aðvörunum til borgarbúa og orustuþotur voru sendar á vettvang til að hrekja árásarvélarnar á flótta. Fréttamenn í Damaskus segja að loftvarnarlið borgarinnar hafi einnig skotið á vélarnar svo undir tók um alla borgina. Svo miklar voru sprengingarnar, að víða brotnuðu gluggarúður, og jafnvel útidyrahurðir fu'ku af hjörunum. í loftbardögum í nánd við höfuðborgina var ein Mirage þota ísraelsmanna skot- in niður. Önnur varð fyrir skot- um frá loftvarnarbyssum og steyptist logandi til jarðar. Er þetta fyrsta loftorusta við Damaskus frá lokum styrjaldar- innar fyrir 19 árum. Ekki er vitað um mannfall í bardögunum í dag, en þeir stóðu enn yfir eftir að myrkt var orð- ið. Hafði þá veríð barizt sam- fellt í sjö klukkustundir. Humphrey hlýtur kaidar kveðjur Vörð fyrir aðkasli kosnmúnista í Paris París, 7. apríl (AP-NTB). HUBERT Humphrey, varafor- seti Bandaríkjanna, kom til Parísar í dag, að lokinni heim- sókn til Vestur Berlínar. Þegar riugvél hans lenti á Orly-flug- velli, voru um 200 manns saman komnir á þaki farþegaafgreiðsl- unnar og hrópuðu ýms slagorð að Humphrey, eins og „Frið í Vietnam“ og fleiri áskoranir til Bandaríkjanna um að hætta að- gerðum gegn kommúnistum í Suð-austur Asíu. Málgagn kommúnista í París, L’Humanité, birti í dag ná- kvæma ferðaáætlun Humphreys um borgina, hvar hann yrði staddur á hverjum tíma, og skor aði á flokksmenn að sýna hon- um að „almenningsálitið í Frakk- landi fordæmir árásarstefnu Bandaríkjanna í Vietnam“. Nefndi blaðið Humphrey „farand sala bandarískrar árásarstefnu“. Fjöldi kommúnista fylgdi ráð- um blaðsins og varð varafor- setinn fyrir margskonar árás- um, hvert sem hann fór. Til harðra átaka kom við Sig- urbogann þegar Humphrey kom þangað til að leggja blómsveig að gröf óþekkta hermannsins. Tugir manna höfðu safnazt þar saman til að mótmæla styrjöld- inni í Vietnam, og gerði mann- fjöldinn enn hróp að varafor- setanum. Mátti þar heyra slag- orð eins og „Humphrey morð- ingi“, „Humphrey farðu heim“, „snautaðu burt frá Vietnam“ og „bandarískir launmorðingjar“. Lögreglan réðst gegn mann- fjöldanum og huggðist tvístra hópnum. Urðu af því miklar ryskingar, en ekki er þess getið að neinn hafi meiðst alvarlega. Nokkrir óróaseggir voru hand- teknir, og var þeim ekið á brott í bifreiðum lögreglunnar. Frá Sigurboganum hélt Humphrey að George Washington stytt- unni á Place d’Iena, þar sem hann einnig lagði blómsveig til að minnast þess að 50 ár eru liðin frá Bandaríkin urðu þátt- takendur í fyrri heimsstyrjöld- inni. Þar endurtók sig sama sag- an, og hrópaði mannfjöldinn allskonar ókvæðisorð um Hump- hrey, Johnson forseta og Banda- ríkin. Voru um 50 manns hand- teknir þar. Að lokinni athöfninni við minnisvarðann réðust um 200 ungmenni á tvo hermenn úr land gönguliði bandaríska flotans, sem staðið höfðu heiðursvörð við Washington-styttuna. Voru her mennirnir á göngu frá torginu þegár ungmennin þyrptust aff þem með hrópum og köllum, og köstuðu að þeim eggjum. Tókst hermönnunum með naum- indum að brjóta sér leið gegn- um mannfjöldann útataðir eggja- slettum, og komast undan. Var þeim ekki veitt eftirför . Síðar í dag sat Humphrey boð de Gaulles forseta í Elysée-höll- inni, og lyftu leiðtogarnir glösum til að skála fyrir aldagamalli vin áttu Frakka og Bandaríkjanna. Lagði Humphrey á það áherzlu að tvisvar á þessi öld hefðu Bandaríkin komið Frakklandi til aðstoðar í styrjaldartímum. De Gaulle bað Humphrey hinsveg-at að færa Johnson forseta sérstak- ar kveðjur og þakkir. Spilakvöld á Akureyri SPILAKVÖLD verður í Sjálf* stæðishúsinu á Akureyri næst- komandi sunnudagskvöld, 9. apríl, og hefst kl. 20.30. Spiluð verður félagsvist. Stjórnandl Sigurbjörn Bjarnason, skrif- stofustjóri. Ávarp flytur Ingibjörg Magn- úsdóttir, forstöðukona. Dansað verður til kl. 1. Hljómsveit Ingi mars Eydals, Þorvaldur og Hel ena skemmta. Forsala aðgöngumiða sama dag í skrifstofu Sjálfstæðis- flokksins, Hafnarstræti 101, kL 14—15. Aðgöngumiðasala húss- ins opnuð kl. 19. Pétur Sigurðsson Frambjóðenda- fundir Heimdallar NÆSTKOMANDI mánudag efnir Heimdallur til rabb- fundar með Pétri Sigurðssyni, sjómanni, sem skipar 5. sæti á listá Sjálfstæðisflokksins við Alþingiskosningarnar í vor. Heimdallur hyggst efna til rabbfunda með nokkrum af efstu mönum listans i Reykja- vík og verður fundurinn með Pétrl Sigurðssyni sá fyrsti. Fundurinn hefst í Valhöll kl. 20.30 á mánudagskvöld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.