Morgunblaðið - 08.04.1967, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1967.
3
Stúdentakorinn syngur 1 Sulnasalnum 1 gærkveldi.. — (Ljosm. Mbl. Sv. Þ.)
Stúdentakðrinn á
söngmót til Finnlands
STÚDENTAKÓRINN heldur til
Finnlands 22. þ.m. og tekur þar
þátt í móti norrænna stúdenta-
kóra. I tilefni af förinni efndi
kórinn til skemmtunar í Súlna-
sal Hótel Sögu í gærkveldi.
Skemmtunin hófst með söng
•kórsins, en stjórandi hans var
Jón Þórarinsson, tónskáld. Var
þeim söngfélögum mjög vel
fagnað. Ýmislegt annað var þar
til skemmtunar.
taka allir þátt í konsertum og
syngja bæði sjálfstætt og undir
sameiginlegri stjórn. En áður en
hátíðahöldin hefjast mun íslenzki
kórinn ha’lda konserta í Finn-
landi og syngja í útvarp og sjón-
varp. Þetta er í fyrsta skipti sem
íslenzkur stúdentakór hefur
fengið, eða getað þekkst slíkt
boð, þar sem hingað til hefur
verið ógerningur að starfraökja
hann með svipuðum hætti og á
hinum Norðurlöndunum. Er það
mikið velvilja rektors háskólans
að þakka, að hægt er að þiggja
boðið nú, en Háakólinn hefur
styrkt kórinn rausnarlega. Kór-
inn bað Ármann Snævarr að taka
að sér fararstjórn og kvaðst
hann fús til þess ef hann gæti
vegna anna. Formaður kórsins
er Jón Haraldsson, arkitekt,
söngstjóri Jón Þórarinsson og
undirleikarar í ferðinni verða
Eygló Haraldsdóttir og Kolbrún
Saemundsdóttir.
SIAKSTtlMAR
Skemmtikiaftar
Framsóknar
Framsóknarflokkurinn upp-
skar verðskuldað lof fyrír a*
bjóða flokksmönnum sínum og
öðrum upp á hina ágætustu
skemmtikrafta á lokasamkundu
flokksþings þeirra í Háskólabió
nýverið. Þá þótti hins vegar rétt
að gera greinarmun á framlagt
skemmtikraftanna og ræðum
flokksforingjanna. f tilkynningu
um árshátíð F.U.F. í Reykjavík
í blaði flokksins í fyrradag er
þessi sundurgreining hinsvegar
Iögð á hilluna og segir í staðinn
svo: „Meðal skemmtiatriða á árs
hátíðinni verður ræða Tómasar
Karlssonar ritstjórnarfulltrúa og
eftirhermur og gamanvísnasöng-
ur Jóns Gunnlaugssonar."
Væntanlega þýðir þessi stefnu
breyting, að forvígismenn flokks
ins hafi nú gert sér grein fyrir,
að „hina leiðina" og aðra þætti
Eysteinskunnar beri helzt að
skoða sem brandara. Næsta
skrefið er svo, að þessir sömu
menn geti skilið, hversu lélegur
brandari Eysteinskan er. Eflaust
tekur langan tíma að koma þeim
til þess skilnings — og þó. Ekkl
eru nema um það bil 2 mánuðir
til kosninganna, þegar almenn-
ingur fær sitt tækifæri til að
leiða Framsóknarforkólfana í
þatm sannleika eftirminnilega.
Viðhorf Breta
f þættinum „Fyrirtæki og
þjóðarbúskapur" hér í gær sagði
m.a. svo um afstöðu brezks iðn-
aðar til EBE:
„Sterkasta röksemdin fyrir inn
göngu er, að Stóra-Bretland teng
ist þar með grózkumesta mark-
aði heimsins. Tækifærin innan
þessa markaðar koma vel í ljós
af þeirri aukningu, sem þegar
hefur átt sér stað í viðskiptum
við Efnahagsbandalagið. Árið
1958 flutti stóra Bretland út til
EBE-landanna fyrir um 419
millj. punda, þ.e.a.s. um 13% af
öllum útflutningi landsins. Árið
1965, sjö árum eftir að sameigin-
legi markaðurinn byrjaði að
starfa, hefur verzlunin aukizt
upp í 900 millj. punda, eða 19%
af útflutningi. Þannig hefur tiÞ
vera sameiginlega markaðarins
haft geysimikið að segja íyrir
brezkt efnahagslíf. Á hinu hag-
stæða hagvaxtartímabili á árun
um 1958—64, ó iðnaðarfram-
leiðslan í EBE-löndunum um
49% á móti 41% í Bandaríkjun-
um og einungis 27% í Stóra-Bret
landi. Viðskipti EBE-landanna
við lönd utan þess sýndi ennþá
meiri aukningu, útflutningurinn
87% og innflutningur 96%. Hér
við bætist, að viðsikipti milli
EBE-landanna innbyrðis hafa
tekið stórt stökk upp á við.
Fyrir brezkan iðnað skiptír
það ennfremur mjög miklu máti
að EBE-markaðurinn hefur hing
að til getað tekið ólíkt meira
magn af iðnaðarvörum en áður.
Innfiutningur á iðnaðarvörum
er nú 2% sinnum meiri en 1958".
„Austri“ í valnum?
Svo undarlega bar við í gær,
að hinn fasti hversdagspistill
„Austra", sem ber heitið „Frá
degi til dags“, fannst hvergi i
Þjóðviljanum. Ekki svo að skilja,
að farið hefur fé betra. En hitt
væri leitt, ef þessi góði dáti i
stjórnmálabaráttu blaðsins, er
nú svo grátt leikinn í framboðs-
styrjöldinni innan flokksins, að
þrekið leyfir ekki lengur að slík-
ar frumskyldur sem þessi séu
leystar af höndum. Að vísu hef-
ur það ekki leynt sér i þáttum
„Austra" upp á síðkastið, að eitt
hvað er Bleik (þ.e. Rauð) brugC
ið. En fyrr má nú rota en dauð-
rota. — Það er víðar barizt en
í Vietnam þessa dagana!
Óperutónleikar
Kopavogur
Sjólfstæðiskvennafélagið Edda
heldur fund mánudaginn 10.
apríl í Sjálfstæðishúsinu í
Kópavogi kl. 8.30 stundvíslega.
Fundarefni: Kosning fulltrúa á
17. landsfund Sjálfstæðisflokks-
ins sem hefst 20. apríl.
Á fundinum mætir einn af
frambjóðendum Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi,
frú Jóhanna Sigurðardóttir. Sér
fræðingur í andlitssnyrtingu hef
ur sýnikennslu í snyrtingu og
vortízkan 1967. Fundurinn er
fleiru. Þá verður tízkusýning,
aðeins fyrir félagskonur.
FIMiMTU sunnudagstónleikar
Sinfóníúhljómsveitar íslands
verða haldnir á sunnudaginn
kemur, 9. apríl, í Háskólabíói,
kl. 15,00. Stjórnandi tónleikanna
verður Ragnar Björnsson. í vet-
ur hefur Ragnar, svo sem kunn-
ugt er, stjórnað litlum óperu-
flokki, sem kalla má visi að ís-
lenzkri óperustarfsemi. Á þess-
um sunnudagstónleikum kemur
Ragnar enn fram á því sviði og
þetta verða óperutónleikar. Ekki
er samt hægt að efna ti'l óperu-
tónleika með hljómsveitinni og
stjórnanda einum saman. Þarna
koma því einnig fram einsöngv-
ararnir Guðrún Á. Símonar, Þur-
íður Pálsdóttir, Jón Sigurbjörns-
son og Magnús Jónsson, sem ödl
eru eiríhver hin sviðVönustu
íslenzkra söngvara. Auk ein-
söngvaranna kemur Karlakórinn
Fóstbræður fram á þessum tón-
leikum.
Það er mikið mannval, sem
stendur að óperutónleikunum á
sunnudaginn og ekki ætti verk-
efnavalið að vera síður aðlað-
andi. Flutt verða atriði úr óper-
unni FIDELIO eftix Beethoven,
forleikurinn, kvartett úr 1.
þætti og fangakórinn. Þá verður
einnig leikinn leikhúsforleikur-
inn EGMONT eftir Beethoven.
Hin rómantíska TÖFRA-
SKYTTA Webers á einnig ágæta
fulltrúa á þessum .tónleikum.
Fluttur verða forleikurinn, tvær
aríur og aríetta úr óperunni, en
tónleikunum lýkur með hljóm-
andi öldugangi frá hendi Wagn-
ers í ballöðu Sentu (Jo ho ’hoe,
traft ihr das Stíhiff) og forleikn-
um að óperunni HOLLEND-
INGURINN FLJÚGANDI.
Eins og fyrr segir, hefjast tón-
leikarnir klukkan 15,00 og eru
aðgöngumiðar seldir í bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar,
bókabúðum Lárusar B'löndal, og
í Háskólabíói eftir hádegi á laug
ardag.
(Frá Sinfóníuhljómsveit ís-
lands).
Tilefni norræna mótsins, sem
Stúdentakórinn sækir, er þrjátíu
ára afmæli kórsins í Ábo, sem
heitir „Brahe Djáknar", og var
íslenzka kórnum sérstaklega boð-
ið, en annars sækja stúdenta-
kórar frá öllum Norðurlöndun-
um mótið. Mikill undirbúningur
hefur verið ytra, fyrir hátíða-
höldin, sem standa munu í þrjá
daga og ljúka með sameiginlegri
siglingu kóranna frá Ábo til Sví-
þjóðar á fjórða degi. Kórarnir
Frá æfingu í Háskólabíói í gærmorgun.
— Ljósm. Sv. Þ.)
TRYGGINGAR
11700