Morgunblaðið - 08.04.1967, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1967.
BÍ LALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
Bensín innifalið í leig-ugjaldi.
SENDU M
MAGIMÚSAR
SKIPHOITI21 SIMAR 21190
eftir lokun simi 40381
\í£& S,M'1-44-44
\mm
Z&éZ&é&ögeZ'
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
biloleigon
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensin innifalið í leigugjaldi.
Sími 14970
BÍLALEIGAIM
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
4 /...-
RAUOARARSTÍG 31 SÍMI 22022
Fjaðrir. fjaðrablöð. hljóðkútar
púströr o.fL varahlutir
i margar gerðir bifreiða.
Bilavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Simi 24180.
SAMKOMUR
Samkomuhúsið Zion
öðinsgötu 6 A
A morgun sunnudagaskól-
inn kl. 10,30.
Almenn samkoma kl. 20,30.
Allir velkomnir
Heimatrúboðið
Á morgun:
Kl. 10,30. Sunnudagaskóli
K.F.U.M. og K. Amtmnns-
stíg. — Drengjadeildín Langa-
gerði 1. — Barnasamkoma
Auðbrekku 50 Kópavogi.
KL 10,45. Drengjadeildin
Kirkjuteigi 33.
Kl. 1,30 e.h. Drengjadeildirn
ar (Y.D. og V.D.) Amtmanns-
stíg og Holtavegi.
Kl. 8,30 e.h. Almenn sam-
koma í húsi félagsins við Amt
mannsstíg. Astráður Sigur-
steinsson, skólastjóri, talar.
Allir velkomnir
-jír Hættunni boðið
heim
Fimmtugur skrifar:
„Velvakandi góður, út af
greininni í gær „Betur má ef
duga skal“, datt mér í hug,_ að
það mál er enginn hégómi, þvi
langar mig til að leggja orð i
beJg. Þegar ég fór að hugleiða
greinina, rann upp fyrir mér
sannleikur, sem er ægilegur.
Fyrir um það bil 50 árum,
þegar ég var að alast upp,
heyrði ég stundum fullorðna
fólkið taia um, að þessi eða
hinn karlmaður hefði tælt þessa
eða hina stúlkuna, og síðan
farist skammarlega við hana á
eftir.
Ég man, hvað ég vorkenndi
þessum stúlkum, og ég ímynd-
aði mér, að þessir fullorðnu
karlmenn hlytu að vera mjög
slæmir. En nú sé ég, að stúlk-
urnar bara pukruðust í þá daga
með það, sem þær gera blygð-
unarlaust í dag. Ég sé nefni-
lega ekki betur en stúlkur nú
á dögum vinni að því baki
brotnu að tæla karlmennina.
T. d. þegar stúlkur klæðast
síðum buxum, þá er eins og
þær séu að rifna utan af þeim.
Þar leynast hvorki hæðir né
lægðir. Nú og ef þær klæðast
pilsi, þá ná þau rétt niður fyrir
nafla. Þá er það baðfatatízkan.
Það er auðvitað Bikini og allra
helzt eiga þau að vera, það
sem kallað er topplus þ.ea.s.
brjóstin ber. Ef þetta er ekki
að tæla veikara kynið, sem ég
kalla, en aðrir karlmenn, þá
veit ég ekki hvað.
Nýlega var ég staddur I sam
kvæmi, var þar margt karla
og kvenna, allt mjög myndar-
legt fólk. En þegar stú’kurnar
voru setztar, þá gat nú á að
lítai Það var í raun og veru
eins og þær væru berar að
neðan blessaðar hnáturnar,
enda urðu ungu mennirnir að
fara út af og til ti) að hvíla sig
frá allri dýrðinni. En sleppum
öllu gamni, það er karlmanni
hreinasta raun að sitja á móti
ungri og fallegri stúlku, sem
er meira og minna ber að neð-
an, jafnvel þótt fleiri séu við-
staddir og samkvæmið í alla
staði siðsamt. Og hvað er þá
til varnar, ég get aðeins ráð-
lagt karlmönnum að kynna
sér leikritið: Menn og ofur-
menni. Shaw var nefnilega
karl, sem vissi, hvað hann
söng. Að lokum vildi ég beina
því til útvarpsins, að þáð flytti
þetta leikrit a.m.k. tvisvar enn,
svo að það fari ekki fram hjá
neinum karlmanni í landinu.
Einn 50 ára.
Nýtt sjónarmið
Annað bréf hefur borizt
um stuttu pilsin — og er þessi
bréfritari ekki sammála þeim,
sem áður hafa látið álit sitt
í ljós:
„Kæri Velvakandi,
Hverníg stendur á því að þér
birtið annan eins þvætting og
þetta bréf frá stráklingunum
um stuttu pilsin? Hvers vegna
skyldum við, kvenfólkið á ís-
landi, ekki sníða okkar föt á
sama hátt og kvenfólk erlend-
is- Er eitthvað athugavert við
það að klæði fólks breytist frá
ári til árs? Ekki vilduð þið
hafa oltkur í sömu fötunum ár
eftir árl
Ég vil biðja þig, góði Vel-
vakandi, að segja þinum ágætu
lesendum það, að við íslenzk-
ar stúikur teljum það okkar
einkamál hvort við höfum pils-
in síð eða stutt. Það vill nú svo
til, að þessa stundina eiga þau
að vera 1 stytzta lagi. Ef við
fylgdum ekki tízkunni segðu
karlmennirnir áreiðanlega að
við værum púkalega klæddar.
En — af því að við fylgjumst
með tízkunni — segja þeir að
við eigum ekki að klæða okkur
á þennan hátt. Við getum með
öðrum orðum ekki tekið
minnsta mark á öllum þessum
athugasemdum.
Viltu ekki biðja karlmenn-
ina að skrifa um eigin viðfangs
efni og láta kvenfólkið í friði.
— Ein tvítug".
Velvakandi þakkar bréfið en
getur ekki stillt sig um að gera
örfáar athugasemdir. I fyrsta
lagi; ég held að engin hætta sé
yfirleitt á því að íslenzkt kven-
fólk gangi „í sömu fötunum
ár eftir ár“ nú orðið, jafnvel
þótt tízkan breyttist ekkert. 1
öðru lagi:, ef kvenfólkið telur
sig ekki vera „viðfangsefni“
karlþjóðarinnar, hvar er það
þá statt? Þessi tvítuga stúlka,
sem skrifar okkur þetta bréf,
er áreiðanlega eina tvttuga
stúlkan í landinu, sem krefst
afskiptaleysi karla af kven-
fólki. Þess vegna efast ég um
að hún mæli fyrir munn ákaf-
legra marga.
Brosmild
Og hér er annað bréf
um sama efni:
„Kæri Velvakandi,
Agalegir dónar eru þessir
gæjar í Menntó. Guð, maður
getur ekki tekið þetta alvar-
iega, eða finnst þér það? Biðja
um að maður stytti pilsin enn
meira Ég gæti ekki hugsað
mér að ganga 1 styttri kjólum
og piJsurn en ég geri nú, það
er alveg ómögulegt að stytta
meira. Ég er búin að stytta
þrisvar — og einn kjóllinn er
meira að segja orðinn of stutt-
ur. — Við stúJkurnar erum
ekkert ægilega hrifnar af þess-
ari t'zku. En samt vonum við
að hún breytist ekki alveg
strax. því þá eru öll fötin okk-
ar ónýt.
Sumar eru auðvitað miklu
lekkrari í svona stuttu og ein
vinkona mín, sem er með aga-
lega fallega fætur, fílar sig
auðvitað svakalega vel. Guð,
en sumar eru alveg hræðilegar.
— Brosmild í Verzló“.
Ég gerði undantekningu og
breytti ekki málfari bréfritara,
en ljóst er, að hún „fílar“ sig
vel — léttklædd.
Bakkus
Gömul kona 1 Austur-
bænum skrifar:
„Kæri Velvakandi,
Ég er ekki vön bréfaskrift-
um. En mig langar til að þakka
þér fyrir alla pistlana um skað
semi áfengisins. Það er mikið
böl — og skrifaðu meira um
bölvun Bakkusar."
★ „Draumaland“
bílstjóranna
Kópavogi skrifar:
„Velvakandi,
Viltu ekki vekja athygli &
því hve göturnar í Kópavogi
eru gersamlega ófærar. Þetta
eru vsg'eysur og það sr hörma
legt að þurfa að aka nýjum
bílum um bæinn. Vegheflar eru
yfirleitt ekki notaðir þar i
sveit — og þá sjaldan slíkt ger-
ist — virðast veghefilsstjór-
arnir ekki kunna að fara með
tækin. Að komast út á nesið
er heil krossgáta, því alls stað-
ar eru hindranir í veginum.
Kópavogsbraut hefur verið
upprifin i allan vetur, en samt
var það citt af kosningaloforð-
unum síðast, að þessi gata yrði
lögð thtlagi á síðasta sumrL
Kársnesbraut er líka ófær.
Leitun mun að akvegi í manna
byggðum, sem er jafnholóttur.
Það er hreint og beint furðu-
legt, að jafnstórt bæjarfélag
og Kópavogur er skuli bjóða
íbúum sínum annað eins. Það
væri e.t.v. skiljanlegt, ef engin
útsvör væru lögð á íbúa stað-
arins.
Ástandið eins og það er nú
— er alveg óþolandi.
íbúð óskast
3 til 5 herbergja vönduð íbúð óskast til leigu.
Tvennt í heimili. Upplýsingar í síma 22524.
•— Kópavogsbúi".
Suðurnesjamenn
Annast hvers konar röralagnir og viðgerðir.
Ólafur Erlingsson
pípulagningarmeistari, sími 7600.
Hafnfirðingar
Annast hvers konar röralagnir og viðgerðir.
Ólafur Erlingsson
pípulagningarmeistari, sími 51739.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 11., 14. og 16. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1967 á hluta í Kleppsvegi 42, (4. hæð
t. v.) þingl. eign Háborgar s.f. fer fram eftir kröfu
Hafþórs Guðmundssonar hdl., Gjaldheimtunnar í
Reykjavík, Bergs Bjamasonar hdl., Hafþórs Guð-
mundssonar hdl., Gunnar M. Guðmundssonar hrl.,
og Landsbanka íslands, á eigninni sjálfri, mið-
vikudaginn 12. apríl 1967, kl. 2y2 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 11., 14. og 16. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1967 á hluta f Sörlaskjóli 22, hér 1 borg,
þingl. eign Vilbergs Guðmundssonar, fer fram eftir
kröfu Landsbanka íslands á eigninni sjálfri, mið-
vikudaginn 12. apríl 1967, kl. 3 síðdegis.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 11., 14. og 16. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1967 á hluta í Hverfisgötu 100, hér í borg,
þingl. eign Einars Jónssonar, fer fram eftir kröfu
Skúla J. Pálmasonar hdl., o. fl. á eigninni sjálfri,
miðvikudaginn 12. apríl 1967, kl. 2 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.