Morgunblaðið - 08.04.1967, Síða 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1967.^
ATHUGASEMDIR
Á AFMÆLI
PÓLÝFÓNKÓRINN hélt mynd-
arlega upp á 10 ára afmaeli sitt
nnið þvi að flytja Jóíhannesar-
passíu Bach tvisvar í dymbil-
vikunni, fyrst í Kristkirkju og
síðan í íþróttahöllinni. Undir-
ritaður heyrði flutninginn í kirkj
unni, og það var vissulega há-
tiðleg stund. Kórinn hafði feng-
ið til samstarfs hina ágaetustu
einsöngvara, safnað var saman
í litla hljómsveit, sem þó reynd-
ist of stór, með of mörgum strok
hljóðfaerum í hlutfalli við radd-
styrk kórsins. Stjórnandi var
Ingólfur Guðbrandsson, sem hef
ur alið upp kór sinn á einsta'k-
an hátt í áratug, og væntanlega
mun halda áfram í nokkra ára-
tugi enn.
Ekki er ástæða til að fara að
narta í einstök atriði flutnings-
„VINYL44
gólfflísar
Amersíkar „Nairn“
og „Kentile".
Þýzkar D.L.W. Vinyl
gólfflísar í miklu úr-
vali ásamt tilheyr-
andi lími.
J. Þorláksson & Mmann hf.
Bankastræti 11 — Skúlagötu 30
ins, eins og í sambandi við
venjulega opinbera tónleika, því
að flutningur kirkjuverks, (svo
sem þessarar passíu) í tilefni
ákveðinnar hátíðar kirkjuársins
seilist svo nálægt almennri guðs
þjónustugjörð. Hinar fyrstu pass
íur voru ekki nema tón guð-
spjallsins, þar sem einn klerk-
urinn var guðspjallamaðurinn,
annar tónaði orð Krists, sá
þriðji orð Péturs, Pflatusar eða
annarra persóna píslarsögunnar
og kórinn tók að sér hróp eða
orðaskipti hermanna, presta eða
múgs. í passíum er hlutverk
guðspjallamannsins yfirleitt sá
burðarás, sem langmest hvílir á.
Þessu hlutverki gegndi Sigurður
Björnsson af mikilli prýði. Hlu<t-
verk annarra einsöngvara eru
minni í Jóhannesarpassíunni, en
þau voru líka í traustum hönd-
um þeirra Guðrúnar Tómasdótt-
ur, Kathleen Joyce, Halldórs
Vilhelmssonar og Kristins Halls-
sonar.
Kórinn hefur ýmis hlutveTk.
Hann hugleiðir atburðina, hann
orðar hugsanir hins hljóða áheyr
anda, jafnframt þvi, sem hann
er þátttakandi í píslarsögunni og
mælir fyrir munn fjöldans.
Hann hæðir, biður, heimtar og
vegsamar. Söngur pólýfónkórs-
ins bar þess vott, að sérhver
hending hafði verið fáguð af
fyllstu nærfærni. í Jóhannesar-
passíunni var það bæði styrkur
_ I.O.G.T. -
Svava no. 23.
Munið fundinn á morgun.
Gæzlumenn
Þingstúka Reykjavíknr.
Aðalfundi Þingstúku
Reykjavíkur em vera átti í
dag laugardaginn 8. apríl verð
ur frestað til laugardagsins
15. apríl og hefst kl. 2 í Góð-
templarahúsinu.
Þingtemplar
• Asparagus
• Oxtail
• Mushroom
• Tomato
• Pea with Smolccd Ham
• Chicken Noodle
• Cream of Chicken
• Veal
• Egg Macaroni Shells
• HVegetables
• 4 Seasons
• SpringYegetable
Bragðið leynir sér ekki
MAGGI súpurnar frá Svlss
eru hreint afbragð
MAGGI súpurnar £rá Sviss eru búnar til eftir upp-
skriftum frægra matreiðslumanna á meglnlandinu,
og tílreiddar af beztu svissneskum kokkum. Það er
einfalt að búa þær til, og þær eru dásamaðar af
allri fjölskyldunni. Reynið strax í dag eina af hinum
átján fáanlegu tegundum.
MAGGIS
flutningsins og veikleiki, styrkur
í S-álmunum eða hugleiðingun-,
um, en veikleikt" í tjáningu of-
stopans og grimmdarinnar.
Skömmu fyrir flutning Jó-
hannesarpassíunnar gaus upp í
blöðunum fréttin um árekstur
milli sjónarmiða áhugamennsk-
unnar og atvinnumennsku hljóð-
færaleikaranna. Þetta var kaup-
árekstur, sem leystist svo ein-
hvern veginn, væntanlega báð-
um aðilum til blessunar í þetta
sinn. En slíkir árekstrar verða
óhjákvæmilegir 1 framtíðinni,
nema hér myndist áhugamanna-
hljómsveitir samkvæmt fyrir-
mynd kóra áhugafólks. Það er
ekki til frambúðar, að amatör-
ar og prófessjónalar rugli reit-
um saman.
Pólýfónkórinn lagði með
flutningi Jóhannesarpassíu
Bachs út í stórt og verðugt fyrir-
tækL Allix, sem að flutningnum
stóðu, munu hafa lagt sig fram
af beztu getu, og hátíðlegar get-
ur vart nokkur kór haldið upp
á afmæli sitt en þarna var gert
í dymbilvikunnL Ég efast ekki
um, að allir áheyrendur kórsins,
bæði nú og frá fyrri árum, sam-
fagni honum. Eitt fannst mér
óþarft og fremur leitt, og það
var, að Jóhannesarpassían skyldi
ekki vera flutt á okkar móður-
máli. 1 eyrum allt otf margra
áheyrenda nær þýzkan alls ekki
þeim hljómgrunn, sem Bach
vissulega ætlast til að píslar-
sagan nái í þessum búningi
hans.
Fólýfónkórinn hefur á undan-
förnum árum uppfyllt stórt
skarð eða vöntun í íslenzku tón-
listarlífi. Hann hefur sérhæft
sig í flutningi fjölraddaðrar
sönglistar, aðallega frá gullöld
fjölraddaðs kepellusöngs, 16.
öld, eða þá frá allra seinustu ár-
um. Hin pólýfónísku viðtfangs-
efni, eldri eða yngrL hafa yfir-
leitt verið án undirleiks eða satn
lei'ks. Þarna hefur kórinn mynd-
að algera sérstöðu. Nú í vetur
hefur Pólýfónkórinn tvisvar
komið fram með hljómsveit. Ég
vona, að þetta tákni ekki það,
að hann sé að snúa frá sinni
„sérgrein“, kórinn, sem getur
svo vel staðið á eigin fótum —
að ég ekki segi „eigin röddum“.
Til hamingju með afmælið!
Þorkell Sigurbjörnsson.
Vinna hafin að nýju
við Borgarsjúkrahúsið
Heildarkosnaður um s.L áramót 225 millj.
GEtR Hallgrímsson, borgar-
stjóri, gerði á borgarstjórnar-
fundi sl. fimmtudag ítarlega
grein fyrir kostnaðartölum vegna
Borgarsjúkrahússins pr. 31. des.
sL Kom þar fram að heildar-
kostnaður um sl. áramót nam
225.5 millj. króna. Þar af nem-
ur hlutur ríkissjóðs 112 millj.
króna.
Á síðastliðnu ári námu út-
gjöld vegna sjúkrahússins 81
millj. króna, þar af er hlutur
ríkissjóðs 40 millj. króna. Skuld
r,kissjóðs við borgarsjóð vegna
byggingarinnar námu um sl.
áramót 41 millj.
Samkvæmt lögum ber ríkis-
sjóði að greiða 60% alls kostn-
aðir við sjúkrahúsabyggingar
annars en kostnaðar vegna lausa
muna.
Borgarstjóri sagði að hann og
heilbrigðismálaráðherra ynnu
að 30-40 millj. króna lánsútveg-
un vegna sjúkrahússins.
Þ-á upplýsti borgarstjóri, að
samningar hefðu nú verið gerðir
við iðnmeistara um áframhald-
andi framkvæmdir við sjúkra-
húsið, og hafa múrarar og tré-
smiðir hafið störf. En fullur
gangur verður ekki á fram-
kvæmdum fyrr en fjármagn
fæst. Fáist lán má ætla að fullur
kraftur geti orðið á framtkvæmd
um í næsta mánuði.
Guðmundur Vigfússon (Ah.)’
tók til máls og deildi á ríkis-
stjórnina fyrir að greiða ekki
gjaldfallið framlag vegna Borg-
arsjúkrahússins.
- RÍJM 50 ÁR
Framhald af bls. 5
inn. En nú er vöruúrvalið sem
sagt orðið mun meira og ég er
í rauninni kominn langt út fyr
ir mitt svið, ég sel til dæmis alls
konar rafmagnstæki, t.d. segul-
bönd og býst við að færa út
kvíarnar á því sviði bráðlega.
Það er ólíkt fljótlegra og fyrir-
hafnarminna að selja einn ís-
skáp fyrir 19000 krónur heldur
en að selja t.d. karamellur fyrir
sömu upphæð, og gengur fljót-
ar fyrir sig.
— Ég hefi haldið gamla verzl
unarhættinum vegna viðskipta-
vinanna. Ég myndi kannske
selja meira ef ég setti upp kjör
búð, en þá er maður um leið
búinn að missa samband við
viðskiptavinina og það vil ég
alls ekki. Það er töluverður
hópur af fólki, sem hefur verzl
að hjá mér alveg frá upphafi,
fyrst í númer þrettán og svo
hér. Og ég vil alls ekki missa
af því að tala við þetta fólk
um leið og það er afgreitt,
margt af því eru góðir vinir
mínir.
— Já, stríðsárin voru erfið,
mjög vont að ná í nokkrar vör-
ur. Og ef eitthvað fékkst hvarf
það strax og svo var óánægja
hjá þeim sem ekkert fengu. En
nú leikur allt í lyndi. Eftir að
yiðreisnarstjórnin tók við völd
um hefur blaðið snúizt við og
komist meira lif í öll viðskipti
og framkvæmdir.
— Nei, mér hefur aldre! dott
ið í hug að flytja aftur til
Reykjavíkur, Hafnarfjörður er
góður bær.
— Já það hafa skiptst á skin
og skúrir hjá mér eins og öðr-
um, en ég er fullkomlega á-
nægður með mitt hlutskipti. Eg
á yndislega konu, mikið af vin-
um og góðum samstarfsmönn-
um, gott fyrirtæki og bý í ynd-
islegum bæ. Meira þarf ég ekki.
Jón Mathiesen hefur haft
mjög mikil afskipti af félags-
málum og þau eru ekki mörg
félögin í Hafnarfirði sem hann
hefur ekki einhverntíma ýtt
undir eða orðið að liði. Þau
hjónin verða við á heimili sínu
milli klukkan þrjú og fimm f
dag og er ekki að efa að þar
mun verða gestkvæmt.
Mæður athugið
Ný sending leikgrindur, göngustólar, burðarrúm,
barnabeizli, rólur tvær gerðir. Baðker með borði.
Klæðaborð, þurrkgrindur, matarborð og stólar.
Úrval af tækifæriskjólum tekið upp um helgina.
Mæðrabúðin
Domus Medica.