Morgunblaðið - 08.04.1967, Síða 9

Morgunblaðið - 08.04.1967, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1%7. 9 Athugasemd frá yfirborgarfógetanum í Reykjavík út af blaðaskrifum Kára B. Helgasonar KÁRI B. Helgason hefur ritað í dagblöð borgarlnnar lýsingu á embættisfærslu minni í sambandi við gjaldþrot hans, og fyrir- tækja hans. Ég sé ekki ástæðu til að svara þeim skætingi, sem felst í ritsmið hans um mig, en vil í fáum orðum lýsa afskiptum mínum af gjaldþrotamálum hans. 1) Þann 16. nóvember 1965 barst skiptarétti Reykjavíkur svofelt bréf: „Þar sem Almenna bifreiða- leigan hf., Klapparstíg, Reykja- vík, getur ekki staðið í skilum við lánardrottna sína og þar sem sumir þeirra eru farnir að taka eignir úr vörzlu félagsins, þá leyf um við okkur hér með að óska þess að þér, herra yfirborgar- fógeti tekið bú Almennu bifreiða leigunnar hf til gjaldþrotaskipta. Skrá um eignir og skuldir hluta félagsins verður afhent eins fljótt og unnt er. Stödd í Bandaríkjum Norður- Ameríku. P.h. Almennu bifreiðaleigunnar hf. Kári B. Helgason (sign.) Þórlaúg Hansdóttir (sign.) Máría Helgadóttir (sign.)“. Samkvæmt þessari ebiðni var bú Almennu bifreiðaleigunnar hf. tekið til gjaldþrotaskiptameð- ferðar, með úrskurði uppkveðn- um 26. nóv. 1965. Uppskrift á eignum búsins fór fram 7. og 9. desember 1965 og framkvæmdi uppskrift þessa Jónas Thorodd- sen, borgarfógeti að viðstödd- um framkvæmdastjóra félagsins Kára B. Helgasyni og benti hann á þá bíla, sem hlutafélagið ætti, 36 að tölu, auk annarra eigna. Innköllun var síðan gefin út 27. nóvember 1965. Á skiptafundi sem haldinn var 30. nóvember 1965 voru mættir 9 kröfuhafar eða umboðsmenn þeirra, og var þá ákveðin uppboðssala á 14 bif- reiðum tilheyrándi búinu. Á skiptafundi 10. desember 1965 voru mættir nokkrir umboðs- menn kröfuhafa, sem kröfðust sölu á opinberu uppboði á þeim bifreiðum, sem þá voru enn ó- seldar og hélt bæði þessi uppboð Þórhallur Einarsson, fulltrúL Af hálfu Kára B. Helgasonar komu hvorki fram á skiptafund- um né f uppboðsrétti mótmæli gegn sölu bifreiðanna. Allir skiptafundir voru þó löglega boðaðir og uppboðin auglýst á venjulegan hátt í dagblöðum borgarinnar. Lýstar kröfur í þrotabú þetta námu samtals kr. 4.487.096,18 m.m. 2) Með úrskurði uppkveðnum I skiptarétti Reykjavíkur 26. janúar 1966 var bú Kára B. Helgasonar tekið til skiptameð- ferðar, sem gjaldþrota, skv. kröfu Magnúsar Fr. Árnasonar hrl., dags. 1. des. 1965 og Brands Brynjólfssonar hdl. dags. 18. jan. 1966. Uppskrift á búi þessu fór fram að viðstöddum þrotamanni Kára B. Helgasyni, 3. febrúar 1966 og benti hann á eignir bús- ins. Uppskrift þessa framkvæmdi borgarfógeti Jónas Thoroddsen. Innköllun til skuldheimtumanna búsins var gefin út 10. febrúar 1966. Lýstar kröfur í bú þetta námu samtals kr. 10.775.086,99 og eru þar með ekki taldir ýmsir kostn- aðarliðir í sambandi við skiptin. Skiptafundir voru haldnir í búi þessu af borgarfógeta Unn- steini Beck dagana 3. nóv. og 7. des. 1966 og 28. marz 1967. Á skiptafundi. sem haldinn var 3. nóvember 1966 var ákveðin uppboðssala á eignum þessa bús, þ. á m. á hluta þess í Njálsgötu 49, en á þeim fundi voru mættir flestir kröfuhafar í búinu. Gjald- þroti Kári B. elgason mætti þar einnig sjálfur til að leiðrétta upplýsingar, sem hann hafði gef- ið borgarfógeta við upphaflegu uppskrift búsins. Hann óskaði þó ekki að sitja fundinn til enda, þótt hann vissi, að ákvörðun yrði cekin um ráðstöfun eignanna. Samkvæmt þessari ákvörðun skiptafundarins I búinu, var ákveðin uppboðssala á hluta bús- ins í Njálsgötu 49, og var það uppboð auglýst í 11., 14. og 16. tbl. Lögbirtingarblaðsins 1967 og auk þess f 5 dagblöðum borgar- innar nokkru fyrir uppboðsdag. Rétt áður en uppboðið skyldi hefjast kom i ljós, að vafi lék á því. hvort tiltekin veðsetning á húsinu Njálsgötu 49 næði að- eins til eignarhluta Kára eða til alls hússins og þótti þvi nauð- synlegt að fresta uppboðssölunni þar til öruggar upplýsingar kæmu fram um þetta atriði og stóð þvi ekki til að eignin yrði seld í þetta skipti. Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að áður en bú Kára B. Helgasonar var tekið til gjald- þrotaskiptameðferðar, hafði far- ið fram fjárnám í inneign hans hjá skrifstofu Biskups, eftir kröfu Jóns Arasonar hdl., vegna FORD-umboðsins, Kr. Kristjáns- sonar hr', en áður mun hann hafa ávísað hluta af innstæð- unni Ásbirni Ólafssyni hf. Gildi þessara ráðstafana eru nú til at- hugunar hjá öðrum lánardrottn- um í búinu. 3) Að lokum skal þess getið, að Fasteignaviðskipti hf, sem þrotamaður Kári B. Helgason var einnig framkvæmdastjóri fyrir, var með úrskurði uppkveðnum 5. október 1966 tekið til skipta- meðferðar, sem gjaldþrota og fór uppskrift fram sama dag. Inn- köllun til skuldheitmumanna var gefin út 1. nóv. 1966 og námu lýstar kröfur 1 því búi kr. 273.207,70. Eignir búsins Voru við uppskrift metnar á kr. 9.400,00. Þessar athugasemdir tel ég nægja að svo stöddu til að hreinsa mig og embættið af þeim óhróðri, sem fram kemur í rit- smíð Kára B. elgasonar og dag- blöðin hafa tekið til birtingar athugasemdalaust. Reykjavík. 6. apríl 1967. Kr. Kristjánsson Yfirborgarfógetinn f Reykjavík. París, 4. apríl — NTB-AP f DAG komu saman undir for- ystu Alþjóðabankans ýmis ríki, er áhuga hafa á því að veita Ind- verjum ríflega efnahagsaðstoð til þess að þeir geti hrundið í fram- kvæmd nýrri fimm ára áætlun. Lönd þessi eru Austurrííki, Belgía, Kanada, Frakkland, V- Þýzkaland, Ítalía, Japan, Hol- land, Bretland og Bandaríkin auk Alþjóðabankans. nsnniTfc (Rft KIMSINV Ms. Esja fer vestur um land til Akur- eyrar 13. þ.m. Vörumóttaka ár degis á laugardag og mánu- dag til Patreksfjarðar, Tálkna fj arðar, Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar, Suðureyrar, fsa- fjarðar, Siglufjarðar og Akur- eyrar. Farseðlar seldir á miðviku- dag. Ms. Blikur fer austur um land í hringferð 13. þ.m. Vörumóttaka árdegis á laugradag og mánudag til Hornafjarðar, Djúpavogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarð- ar, Fáskrúðsfjarðar, Reyðar- fjarðar, Eskifjarðar, Norð- fjarðar, Seyðisfjarðar Borgar- fjarðar, Vopnafjarðar, Bakka- fjarðar, Þórshafnar, Raufar- hafnar, Kópaskers, Húsavíkur, Akureyrar og Skagastrandar. Farseðlar seldir á miðviku- dag. Síminn er 24300 8. Til sölu og sýnis Einbýlishús af ýmsum stærðum og 2ja til 7 herb. íbúðir í borginni, sumar sér og með bílskúr- um. / smíbum. Einbýlishús og 3ja—6 herb. séríbúðir með bílskúrum 1 borginni. Fokheldar hæðir 140 ferm. með bílskúrum, í Kópavogs kaupstað og margt fleira. Komið og skoðið. Sjón er sögu ríkari IVýja fasteignasalan Laugaveg 12 Simi 24300 2/o herbergja íbúð við Baldursgötu er til sölu. íbúðin er í risi 2 herb. eldhús og þaðherb., fremur rúmgóð og súðarlítil. Elhús er með nýrri eldhúsinnréttingu og bað nýlega standsett. Verð 500 þús. kr. íbúðin er að Baldursgötu 21 og er til sýn- is í dag kl. 16—19. Vagn E. Jónsson Gunnar M. Guðmundsson hæstaréttarlögroenn Austurstræti 9. Símar 21410 og 14400. Einbýlishús óskast Höfum kaupanda að góðu ein býlishúsi. Útb. 1,5 millj. kr. Vagn E. Jónsson Gunnar M. Guðmundsson hæstaréttarlögmenn Austurstræti 9. Símar 21410 og 14400. FASTEIGNASALAN GARÐASTRÆTI 17 Símar 24647 og 15221. 7/7 sölu Söluturn, hagstætt verð og greiðsluskilmálar. Nýtt 240 ferm. einbýlishús I Kópavogi. Æskileg skipti á 3ja til 4ra herb. íbúð 1 Reykjavík. Parhús vil Akurgerði 5—6 herb., auk þess stórt rými i kjallara, vönduð eign. 4ra herb. hæð i Vogunum, bíl skúrsréttur, laus strax. 3ja herb. rúmgóð íbúð á hæð við Gnoðavog. 3ja, 4ra og 5 herb. íbúðir í Kópavogi. í Hafnarfirði 2ja herb. rúmgóð nýleg íbúð, bílskúr. Jarðir í Árnesi og Rangárvalla sýslu. Árnl Guðjónsson. hrl. Þorsteinn Geirsson, lögfr Helgi Ólafsson sölustj. Kvöldsími 40647. PILTAR, EF ÞIP EI0® CNMUSnlNA / ÞÁ A to HHINMNA /fy/ W‘ /Jsw/ntátiofik ‘I* • NÝKOMIÐ ÚRVAL AF Höltum Hnakkakollur í öllum litum, alpahúfur 12 litir, verð kr. 100. — Regnhattar, enskir og hollenzkir. HATTABÚÐ REYKJAVÍKUR Laugavegi 10. Skriftvélavirki Skriftvélavirki óskast á verkstæði með ágæta framtíðarmöguleika. Umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri störf, óskast sent Mbl. fyrir þriðjudagskvöld merkt: „Vel launað — 2136“. Stúlka óskast til starfa hjá stóru fyrirtæki í Miðbænum frá 1. maí n.k. Uppl. um aldur, menntun og fyrri störf sendist afgr. Mbl. merkt: „Auglýsing no. 2165.“ Aðalfundur Reykhóla félagsins verður haldinn í Átthagasal Hótel Sögu þriðjudaginn 11. apríl kl. 8.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. STJÓRNIN. SAUMAVÉLAR Loksins getum við auglýst nýju, endur- bættu saumavélina, en hún hefur jafnan selzt upp. Mjög miklar endurbætur: t. d. fleiri útsaumsmöguleikar, ein munsturs- skífa í stað 20 áður. Mikið af aukahlutum t. d. rennilásafótur, tvísaumsfótur og margt fleira. Sjálfvirk hnappagatastilling, sjálfvirkt zig-zag, ný falleg taska, nýtt, fallegra útlit. Einfaldari vél með fleiri möguleikum. Eins árs ábyrgð, örugg varahluta- og við- gerðarþjónusta. Kennsla innifalin í verði. íslenzkur leiðarvísir væntanlegur. Komið og kynnizt nýju saumavélinni. Frábær reynsla. Vcrð aðeins kr. 5.685.— Miklatorgi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.