Morgunblaðið - 08.04.1967, Page 12

Morgunblaðið - 08.04.1967, Page 12
12 jvlwkuUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRlL 1967. STAÐIÐ í SKILUM MARGHÁTTAÐAN kveðskap getur að líta dag hvem í Morg- unblaðinu, og er stundum vsuit að sjá, hvað er í bundnu og hvað í óbundnu máli af lesefni blaðsins. Þó er það fólki til nokkurrar leiðbeiningar, að bundna málið er oft skilmerki- lega innrammað á síðunum og því prentað með meiri viðhöfn en gengur og gerist um skrif manna. Bréfakörfur virðast eng- ar vera til á ritstjórnarskrifstof- unum, og er þess vegna allt hirt og allt birt og „aldrei hlé á leirburðe“. Sumt af þessu 6 að vera fyndið — eða eins konar saltkorn í grautinn. Svo mun vera um kvæðisstúf þann sem birtist sunnudaginn 2. apríl næstliðinn, innrammaður I dag- bók blaðsins. Yfirskrift: Skulda- skil til Skagfirðinga. Höfundur: Sigrún Sigurjónsdóttir. Hann er kveðja til Skagfirðingafélagsins í Reykjavík í tilefni af 30 ára afmæli þess, sem minnzt var með hófi í Sigtúni ekki alls fyr- ir löngu, en svo sérstæð kveðja, að rétt þykir að skýra hana lítil- Auglýsing um skoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Keflavíkurflugvallar Samkvsemt umferðarlögunum tilkynnist, að aðal- skoðun bifreiða fer fram 12., 13. og 14. apríl n.k. Bifreiðaskoðunin fer fram við lögreglustöðina ofangreinda daga frá kl. 9 — 12 og 13 — 16,30. Við skoðun skal bifreiðaskattur greiddur og sýnd skulu skilríki fyrir lögboðinni vátryggingu og ökuskírteini lögð fram. Ennfremur skulu menn framvísa ljósastillingar- vottorðum. Vanrseki einhver að færa bifreið til skoðunar á áður auglýstum tíma verður hann látinn sæta ábyrgð skv. umferðarlögum og bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst. Geti bifreiðaeigandi eða umráðamaður bifreiðar ekki fært hana til skoðunar á áður auglýstum tíma, ber honum að tilkynna mér það bréflega. Athuga ber, að þeir er hafa útvarpsviðtæki í bif- reiðum sínum skulu hafa greitt afnotagjöld þeirra, er skoðun fer fram. Þetta tilkynnist öllum er-hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli, 4. apríl 1967. BJÖRN INGVARSSON. BRAGÐBEZTA AMERÍSKA SÍGARETTAN lega fyrir þeim sem ekki vita hvaðan á sig stendur veðrið. Sú er saga þessarar kveðju, að höfundur hafði farið þess mjög eindregið á leit að mega lesa upp frumsamin ljóð 1 áð- urnefndu hófL Þeirri bón var ekki synjað, enda ástæðulítið að höfundinum óreyndum. Voru konunni ætiaðar 10 mínútur til að flytja fram kvæði sín. Sat hún hófið sér að kostnaðarlausu og hóf flutníng sinn á tilsettum tíma. En brátt þótti sýnt að hér var ekki heppilegur skemmti- kraftur á ferð, og kýs ég, höf- undar vegna, að skilgreina það ekki nánar. Þegar liðnar voru nær 20 mínútur og enn ekki komið að kvæðunum, var með kurteislegu móti stillt svo til, að höfundur hætti „upplestri“ sín- um að því sinni. Engum, sem að skemmtuninni stóð, lá það í léttu rúmi að þurfa að grípa fram fyrir hendur konunnar, en ekki var undanfæri. Hún mun aftur á móti hafa talið sig brögðum beitta, enda þótt aldrei væri til hennar leitað um að koma fram á skemmtuninni, greip til skrýtilegra athafna þeg- ar daginn eftir, stóð einnig upp á almennum fundi hér í borg stuttu síðar og réðst þar, utan dagskrár, að Skagfirðingum, sýslungum sínum, og forvígis- mönnum Skagfirðingafélagsins í Reykjavi'k, allt af þeirri ástæðu að „upplestur“ hennar hafði ver- ið stöðvaður, sem reynzt hafði óhjákvæmilegt — til að forða hneisu. Og nú síðast yrkir hún kvæði og sendir Morgunblaðinu. Þar er þvi fyrst hafnað af um- sjónarmanni dagbókarinnar, síð- an tekið til birtingar samkvæmt fyrirmælum aðalritstjórnar, að líkindum án þess að hugað væri að málavöxtum, sem er lítil af- sökun og sýnir aðeins kæruleysi. f kvæðinu eru nafngreindir menn sem standa framarlega í Skagfirðingafélaginu nú um þessar mundir og ekkert hafa á hluta þessarar konu gert, en samt er látið að því liggja að hún hafi ekki átt sjö dagana sæla í návist þeirra þarna í hóf- inu. Ég tel víst að þessum mönn- um sé lítil þægð í því að víð- lesnasta biað landsins breiði þannig út um þá kviksögur. Síðast klykkir höfundur út með nokkrum orðum til Skagtfirðinga- félagsins, sjálfri afmæliskveðj- unni ef svo má segja. Er hún i samræmi við það sem á undan fer í kvæðinu. Nú vil ég ekki álasa þessari konu, því henni mun tæplega sjálfrátt, en hart er undir því að búa að setjaravélar stærsta blaðsins í landinu skuli notað- ar eins og bréfakörfur, af því engar fyrirfinnast undir skrif- borðum ritstjóranna, að í setj- aravélarnar skuli fleygt aðsend- um bréfsnuddum í hreinu skeyt- ingarleysi. Annars dettur mér í hug, þar eð nú nálgast óðum al- þingiskosningar, hvort verið geti að Eyjólfur Konráð Jónsson, sem á sæti 1 aðalritstjóm þeirri sem ákvað birtingu „Skuldaskila til Skagfirðinga" eftir að starfs- maður við blaðið hafði vísað kvæðinu frá, sé með þessu ein- kennilega móti að biðla til kjós- enda, nú þegar hann er kominn fram á kosningavöllinn í Skaga- firði, ef ekki hann sjálfur þá meðritstjórarnir fýrir hans hönd. Því ekki það? Aðferðirn- ar eru margar. Hitt læt ég ósagt ÍSLENZK árbók h.f. hefur nú gefið út íslenzka viðskiptask’-á á ensku. Slík viðskiptaskrá var fyrst gefin út 1907 og var Sveinn Björnsson, síðar forseti íslands, ritstjóri þeirrar bókar. Síðan hefur viðskiptaskrá á ensku ver- ið gefin út 36 sinnum og er þetta I annað skiptið, sem íslenzk ár- bók h.f. sér um útgáfuna. Ritstjcrar viðskiptaskrárinnar eru nú þeir Einar Sveinsson og Bjarni Sigtryggsson. Félags- prentsmiðjan sá um setningu og prentun bókarinnar, Nýja bók- bandið h.f. um band hennar, Myndamót h.f. gerði myndamót og myndir í bókinni eru eftjr Mats Wibe Lund jr. Lögð hefur verið mikil áherzla á að gera bókina sem bezt úr garði. Hún er að mestu prentuð á góðan myndapappír og eru 1 henni margar ljósmyndir frá ís- hvað hafast kann upp úr þess- ari aðferð, því namuast þykir Skagfirðingum heima fyrir við- eigandi að frambjóðandinn skuli láta málgagn sitt halda á loft óhróðri um Skagfirðinga 1 Reykjavík og Skagfirðingafélag- ið þar, öldungis að ósekju. Hannes Pétursson. —— Morgunblaðið vill, til glöggv- unar, geta þess að ekki er rétt hjá skáldinu þegar hann segir að kvæði frúarinnar hafi „fyrst verið hafnað af umsjónarmannl dagbókar, síðan tekið til birt- ingar samkvæmt fyrirmælum aðalritstjórnar." Sannleikurinn er sá, að kvæðið var ekki birt hér í blaðinu, það er milli 40 og 50 erindi. Aftur á móti leyfði blaðið frúnni að birta í Dagbóh 3—4 erindi, þar sem hún lagði á það mikla áherzlu, enda vart Skiljanlegt að það geti neinn meitt. Ritstj. landi, sumar i litum. Fyrsti hluti bókarinnar fjallar um ísland og er þar að finna góðar og nákvæmar upplýsing- ar. Síðan tekur við skrá um op inbera aðila og félög. Þá eru nákvæmar upplýsingar um ís- lenzk sendiráð erlendis og um erlenda ræðismenn hérlendis. >á tekur við upptalning á firm- um og símnefnum þeirra og eru þar talin 1131 fyrirtæki og getið jafnframt starfssviðs þeirra. í bókinni er ennfremur skró yfir innflutning landsmanna, svo og tollskrá. Fjölmargar auglýsingar eru í bókinni og eru þær margar hverjar myndskreyttar og vel gerðar. Sem fyrr segir er það fslenzli árbók h.f., Spítalastíg 10, sem gefur bókina út, en hún er 139 bls. í stóru brotL Islenzk viðskipta skrá á ensku ÖLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM: KVIKMYNDIR Stjörnubíó: MAJOR DUNDEE SÁ merki maður Winston Churchill sagði 1 einni af sín- um frægu ræðum, að hann gæti ekki boðið þjóð sinni annað en blóð, svita og tár. Það er ein- mitt þetta þrennt, sem kvik- myndin Major Dundee hefur upp á að bjóða. Myndin gerist á dögum borg- arastyrjaldarinnar í Bandaríkj- unum. Major Dundee hefur ver- ið að fangelsisstjóra, þar sem hann hefur sýnt óeðlilega hörku á vígvöllum. Hann fær þá snjöllu hugmynd, að fara með hóp fang- anna með sér suður til Mexico, til að elta uppi indíánahöfðingja nokkurn, sem rænir og drepur beggja vegna landamæranna. Þetta hefur þann kost, að hann getur haldið áfram að berjast, en það er iðja sem hann elskar. í herflokki hans eru Norður- ríkjahermenn, Suðurríkjaher- menn, negrar, auk almennra þjófa og ræningja. Veldur þetta nokkru ósamkomulagi, sérstak- milli Captain Tyreen foringja Suðurríkjamanna og Major Dundee. Ekkert lag hefur major inn á því, að draga úr þessu ósamlyndi. Ekki verður hjá því komizt í mynd eins og þessari að hafa eitthvað fleira en manndráp og hesta, enda eru þarna tvö lítil- mótleg ástarævintýri. Charlton Heston leikur major- inn og hefur tvö svipbrigði í allri myndinni. Annað sem lýsir dálítilli magapínu og hitt sem lýsir mikilli magapínu. Það er skiljanlegt að menn fái maga- pínu af sumu því, sem hann er látinn segja, svo sem því þegar hann segir að Tyreen sé spilltur maður, væntanlega af því að hann kann mannasiði og heldur sér sæmilega hreinum. Ljósasti blettur myndarinnar er frammistaða Richard Harris, sem Captain TyTeen. Gerir hann hlutverkinu sérlega góð skil. Leikur hann almennilegan, kurteisan og siðaðan mann, svo vel, að allt annað í myndinni versnar stórlega í samanburði. Það er ósköp leiðinlegt, þegar svona illa tekst til, þegar miklu hefur verið til kostað og lagt 1 mikinn kostnað. En það er meira en leiðinlegt. Það er í rauninni ófyTÍrgefanlegt, því án efa hefur verið hægt að fá ein- hverja betri menn, sérstaklega til að skrifa handritið. Kópavogsbíó. O. S. S. 117 MÉR er tjáð, að þessi mynd sé önnur í röðinni sama eðlis og hét sú fyrri Banko í Bankok. Það er beinlínis ótrúlegt að nokkrum mönnum skuli verða þessi mistök á einu sinni, hvað þá tvisvar. Myndin er frönák-ítölsk og hefur kvikmyndaiðnaður þessara tveggja landa varla náð lægra. Myndin fjallar um starfsemi leyniþjónustu Bandaríkjanna og Frakka, sem er að fást við glæpa flokk frá Korsíku, sem hefur komizt yfir tæki til að fylgjasl með kjarnorkukafbátum hvert sem þeir fara. Þetta er eðlilega æði hættulegur útbúnaður. Einn af mönnum leyniþjónust- unnar er drepinn á Korsíku og annar sendur í hans stað. Það er ungur maður með sikakkt bros, Kevin Mathews að nafni, sem verður fyrir því óhappi, að þurfa að leika þetta hræðilega hlutverk. Maður þessi er aldeil- is ómótstæðilegur fyrir kven- fólk, enda ræðst hann á það og kyssir það, við ólíklegustu tæki- færi. Kvenhylli mannsins myndl koma manni á óvart, þvi að hann er ekki sérlega hugguleg- ur, ef ekki væri svo tilkomulítið kvenfólk, sem um er að ræða, að maður neyðist til að álykta, að þær eigi ekki úr miklu að velja. Maður skyldi halda að það ætti að vera tiltölulega einfalt að fá þokkalegur stúlkur til að leika í kvikmynd, þó léleg sé. í þessari kvikmynd eru stúlkurn- ar hvorki laglegair né glæsileg- ar og hafa áberandi litla hæfi- leika til að fást við leikilst. Söguþráðurinn er hvorki betrl né verri en gerist og gengur I kvikmyndum, sem fjalla um njósnir. Munurinn er aðteins sá, að sumar þeirra eru vel skrifað- ar, en þessi mjög losaralega. Það dettur kannske einhverj- um í hug, að ég sé að skrifa þetta í geðvonzkulkasti, og þetta hefur hvarflað að mér lika. Ég hef því skoðað hug minn vand- lega, I leit að einhverju því, sem gæti verið hrósvert og dregið úr þessari hræðilegu fordæmingu. Sú leit befur verið árangura- laus, því er nú ver. <

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.