Morgunblaðið - 08.04.1967, Page 22

Morgunblaðið - 08.04.1967, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1967. Björn Snæbjörnsson forstjóri — Minning F. 12. okt. 1912, d. 4. apríl 1967 í DAG fer fram útför vinar míns, Björns Snæbjörnssonar, Keflavík. Björn vsir fæddur á Isafirði 12. okt. 1912 sonur hjón- anna Snæbjarnar Bjarnasonar trésmiðs þar og konu hans Soffíu Guðmundsdóttur. Skömmu eftir fæðingu var hann tekin til fóst- urs af Jóni Bjarnasyni og konu hans Guðbjörgu Jónsdóttur, merkishjónum búandi á Isafirði. Sex ára gamall flutti hann með föður sínum og síðari konu hans til Vestmannaeyja og ólst þar upp til unglingsára, að hann fór sjálfur að sjá sér farborða. Það gat ekki farið fram hjá því, að piltur, alinn upp í verstöðvar plássi eins og Vestmannaeyjum, mimdi kynnast öllum hliðum sjávarútvegsins. Og þannig varð með Björn Snæbjörnsson. Hann varð brátt frá barnsaldi þaul- kunnugur öllu því, sem varðaði útgerð og fiskverkun, enda varð hann ungur að aldri skipaður síldar- og fiskimatsmaður í Vest- mannaeyjum og síðar í Keflavík. Er það alménn skoðun útgerðar- manna, bæði hér í Keflavík og í Vestmannaeyjum, að Björn hafi verið einn af hæfustu matsmönn um hvað fiskiðnað varðar. Árið 1937-8 flutti Bjöm til Keflavíkur og var þá meðstofn- andi Söltunarstöðvarinnar Reykjanes h.f. ásamt Elíasi Þor- steinssyni, Finnboga Guðmunds- syni, Margeiri Jónssyni, öllum t Eiginmaður minn, Gissur Hans Wium Jónsson fyrrum bóndi í Bárugerði á Miðnesi, andaðist í Landa- kotsspítala 7. april. Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna, systra ög ann- arra aðstandenda. Rannveig Pálsdóttir. t Litli drengurinn okkar, Jóhann, andaðist 4. apríl. Jarðarförin fer fram fré Akureyrarkirkju 12. apríl kl. 1,30 e.h. Rósa Gísladóttir, Gnnnlaugur Jóhannsson, Álfabyggð 14. t Sonur okkar, Jóhannes, andaðist 29. marz síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram. Þökkum innilega öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð og hjálp á einhvem hátt. Soffía Jóhannesdóttir, Guðmundur Ólafsson. t Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, Ásdís Erlendsdóttir frá Teigi í Fljótshlí ð, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju mánudaginn 10. apríl kl. 10,30 áTdegis. Birgir Jóhannsson og böra. þekktum úrvalsmönnum í Kefla- vík og nágrenni. Veitti Björn þessu fyrirtæki forstöðu um ára bil með ágætum. Mér er kunnugt um, að vegna sinnar frábæm þekkingar á fisk- og síldarafurðum, bauðst Birni heitnum opinbert starf sem mats manni á afurðum þessum. Per- sónulega er mér kunnugt, að þetta starf var honum boðið vegna þess, að hann var þá orð- inn landskunnur, sem einn af glöggvustu matsmönnum, á þessu sviði, sem völ var á. Hann hafnaði því. Árið 1942 giftist hann Elisa- betu Ásberg, dóttur merkishjón- anna Guðnýjar og Eyjólfs Asberg sem voru landskunn fyrir gisti- vináttu í Keflavík. Börn Elísabetar og Björns eru Guðný, gift Árna Samúelssyni, og Ásberg, ókvæntur í heima- húsum en í Samvinnuskólanum að Bifröst og les undir stúdents- próf. Björn heitinn var sérstaklega mikið prúðmenni í allri um- gengni, og ekki veit ég til þess, að hann hafi átt nokkurn óvin á sínum æfiferli. Hann var fé- lagslyndur með afbrigðum og tók þátt í margvíslegum félags- t Innilegar þakkir fyrir auð- sýnda samúð við ancllát og jarðarför mannsins míns, Baldurs Jónssonar. Fyrir hönd foreldra, systkina, barna og fósturbama. Sigurást Kristjánsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auð- sýnd>a samúð og vináttu við andlát og jarðarför, Stefaníu Einarsdóttur, Grenivöllum 24, Akureyri. Sérstakar þakkir flytjum við heimilislæikni, læknum, hjúkr unarliði og starfsfólki Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri fyrir frábæra hlýju og um- önnun. Guð blessi ykkur öll. Páll Jónsson, Sveinbjörg Pálsdóttir, Magnús Alberts, Sigurlína Pálsdóttir, Einar Magnússon, Jóhanna G. Pálsdóttir, Bjami J. Gíslason, Valdimar Pálsson, Signrveig Jónsdóttir, Indiana Einarsdóttir. störfum innan síns bæjarfé- lags. Hann gegndi trúnaðar- störfum fyrir bæjarfélag sitt og var á framboðslista Sjádfstæðis- flokksins fyrir bæjarstjórnar- kosningar og gegndi trúnaðar- störfum fyrir þann flokk bæði í fulltrúaráði flokksins £ Keflavík sem og í kj ördæmaráði. Bjöm heitinn varð félagi í Rotaryklúbb Keflavíkur árið 1948 og hefur ætíð síðan verið mikils metinn félagi í okkar hópi og gegnt þar trúnaðarstörfum svo sem annarssstaðar. Ég á að baki að sjá góðum vini og félaga. Ég færi honum þakkir mínar fyrir vináttu og tryggð mér sýnda frá upphafi okkar kunningsskapar. Konu hans og börnum og öðrum skyld- mönnum og vandafólki, færi ég og fjölskylda mín, okkar fyllstu ssamúðarkveðjur. Alfreð Gíslason. EINN af vinum okkar er ihorf- inn bak við tjaldið. Þegar öllu lokið sækja minningarnar að — allt frá fyrstu kynnum í hinu Ijúfa lífi til dagsins amsturs í okkar ágæta bæ. Það er nærri því gott að minnast góðra genginna vifta, og rifja upp allt sem var, vitandi það, að eina fullvissan, sem við höfum á þessu stigi tilverunnar, er að hvertfa héðan fyrr eða síð- ar. Oft kann að finnast að hér- vistin hefði mátt vera lengri, en um það skal ekki sakast, við hittumst öll hinumegin, það er önnur staðreyndin í hverfulu lífi. Björn G. Snaébjörnsson, af ætt um Snæbjarnar kappa frá Herg- ilsey, kom ungur að árum til Keflavíkur, þá sem einn færasti verkstjóri við síld og fisk, og sinnti þeim störfum um árabil svo vel að hvergi voru mistök fundin. Þessum störfum hélt Björn lengi vel bæði fyrir norð- an og sunnan, ásamt því að reka sína eigin fiskverkun i Kefia- ví'k. Þegar árin liðu kölluðu önnur störf að og tók Björn þá við forstjórn og rekstri á kvk- myndahúsinu Nýja Bíó, sem er eign fjölskyldu hans. Við bað starf var Björn hinn sami, árvak ur og iðinn við starf sitt og ávallt hinn sami góði og gliði drengur, sem setiti svip sinn á samlíf Keflavíkur, hverjum störfum sem sinnt var, því allt- aí var tími til félagslegra átaka og margháttaðrar fyrirgreiðslu við samborgarana í okkax unga bæ. Við útför Björns G. Snæbjörns sonar er mér efst í huga þakk- læti fyrir hans persónulegu samfylgd, svo og þakklæti til fjölskyldu hans og frænda allra. Það er sagt svo á stundum að í eftirmælum séu allir góðir. Það kann að vera að nokkuð sé til ’ *>ví. en minningar mínar um Björn eru ekki yfirborðslegar, heidur innilegar, djúpstæðar og sannar. Við áttum margt sam- eiginlegt og vorum vinir góð.r, ekki alltaf sammála — en allar deilur jöfnum við hinumegin, þegar ég kem þangað og tek 1 framrétta hönd. Björn var giftur Elísabetu Ásberg og áttu þau tvö börn, Guðnýju og Ásberg, sem nú sakna vinar í stað. — Ég tflyt svo fjölskyldu Björns innilegar sam- úðarkveðjur — þau hafa misst mikið og ég nokkuð. Ég trúi að ég megi einnig flytja samúðar- kveðjur frá Rótaryfélögum öll- um og biðja um faranheill fyrir félaga Björn á framandi braut- um. — Helgi S. Ágúst Guðmtindsson fra ÁrnesS — MinnSng JÓN Ágúst Guðmundsson hét hann fullu nafnL Fæddur í Grindavík 1. ágúst 1878. And- aðist 18. marz að Hrafnistu í Reykjavík. Jarðsunginn 28. marz frá Fossvogskirkju, að við- stöddu fjölmenni. Æviár hans hér í heimi urðu því liðlega 88 og hálft. Ágústi var sú náð gefin að eiga góða heilsu fram á síðustu ár. Hélt hann og sálarkröftum óskertum. Nú er hann var burt kallaður í námunda við upprisuhátið Drottins Jesú Krists og jarðsett- ur á Hans þriðja upprisudegi, var sem almættið vildi sýna blessun sína yfir síðustu för þessa mæfa manns. Óveðra kafli með snjó og hörku geisaði und- anfarið. Nú á útfarardegi skein sólin í mætti sínum, í kyrrð og blíðu eins og fegurst getur orðið á þessum árstíma á íslandL Fyr- ir mér var þetta táknræn stað- festing á lífi heiðvirðs og rétt- láts manns, frá Honum er ræður vindum lotftsins og bylgjum sjávarins. Rétt um fermingaraldur varð Ágúst fyrir þeirri þungu raun, að missa föður sinn í dauðann. t Þökkum innilega alla sam- úð og vinarhug við andlát og jarðarför móður minnar, tengdamóður og ammu, Vilborgar Andrésdóttur. Lydia Edda ThejU, Jóhann E. Óskarsson og dætur. t Þökkum innflega auðsýnda samúð og vinarhug við and- lát og jarðarför móður minn- ar og tengdamóður okkar, Margrétar Sveinsdóttur frá Keflavík. Sérstakar þakkir viljum við flytja læknum og hjúkrunar- liði á Elii- og hjúkrunarhekn- ilinu Grund. María Júlíusdóttir, Guðmundur Ólafsson, Helga Þorsteinsdóttir, Afleiðingarnar fyrir hann m.a. að yfirgefa móður sína og syst- kini og fara í ókunnugt umhverfi langa leið í burtu. I móðurranni hafði hann verið falin forsjá Guðs. Sá Guð himna er vér trú- um á bregst ekki þeim er Hans leita. Sú varð raun Ágústar. Vistastaður hans varð að Núpi undir Eyjafjöllum, hjá Sig- urði Ólatfssyni bónda þar og hans mætu konu og fjölskyldu. Á þau hjón leit Ágúst alltaf sem beztu foreldra. Ekki þarf að orð- lengja það, að Ágúst dvaldizt og átti heimili að Núpi, allt fram undir þrítugs aldur. Leið honum þar vel og var gagnkvæm virð- ing milli hans og heimilisfólks- ins. Ágúst vann öll sumur að slætti frá Eyjafjallasundi og úr Eyjunum. Ný öld var runnin í garð og hilling undir breytta tíma var á næsta leitL Ágúst var áhorf- andi að komu fyrsta vélbátsins til Eyja. Hann skilur köllun sína undir eins. Þá 28 ára og enn bú- settur að Núpi undir Eyjafjöll- um, ólgar sem óstöðvandi bylgja í æðum hans. Vélbát skal hann eignast og róa á. Það verður framtíðin og leið til bjargálna lífs, losun úr fátækt og einokun. Sigurður fósturfaðir Ágústar skilur hann og er tilbúinn að leggja sitt einnig fram. Þeir urðu fimm er sameinuðust um bátskaupin, hinir voru Ólafur t Innflegar þakkir fyrir auð- sýndan vinarhug við andlát og jarðarför, Sólveigar Elínborgar Vigfúsdóttur frá Vopnafirði. Ólafur Svavarsson, Einar Svavarsson, Stefanía Þorsteinsdóttir, Jón G. Halldórsson. t Þökkum innflega augsýnda samúð og vinarbug við fráfall og jarðarför elskulegrar dótt- ur ofekar og systur, ' Emilie Warburg Kristjánsdóttur. Ellen og Kristján Bjarnason, Gnðni Kristjánsson, Sigríður Kristjánsdóttir, Guðmnndur Kristjánsson. Sigurðsson frá Strönid, Árni Gíslason, Stakkagerði og hinn valinkunni sæmdarmaður og formaður Magnús Magnússon frá Felli í Eyjum. Eignarhlutir voru jafnir éða 20% á mann. Árið 1907 er báturinn korninn frá Danmöiku, nýsmíðaður og fagur. Hlaut hann nafnið Krist- björg VE 112. Á honum reri Ágúst til 1915. En Magnús var með bátinn í 10 vertíðir eða til 1917. Árið 1912 var sett í bát- inn ný Skandíavél og mun það hafa verið fyrsta tvígengisvél í fiskibát í Eyjum. Eftir að Magn- ús hætti formennsku með bát- inn, voru kunnir formenn á Kristbjörgu. Þar á meðal Þórar- inn Guðmundsson á Jaðri, hið mikla afla- og snyrtimennL Gamla Kristbjörg var hin mesta happafleyta, segir Þorsteinn i Laufási í bók sinni „Aldahvörf í Eyjum bls. 137. — Skipsnafnið kom undan Eyjaíjöllum og er til enn í dag, á glæsflegum stálfiski- báti. Allir bátar er borið hafa það nafn í Eyjum, hatfa reynzt afla- og happafleytur. Árið 1920 byggir Ágúst nýjan bát með Bjarna Sveinssyni, er verið hafði vélstjóri á Krist- björgu í fleiri vertíðir. En þeir Ágúst og Bjarni voru miklir vinrr. Bjarni var mjög vel fær maður og var um árabfl einn helzti rennismiður í Vélsmiðj- Framhald á bls. 21. t Innflegustu þakkir fyrir auð- sýnda samúð og vinanhug við andlát konu minnar, Huldu Karlsdóttur. Trausti Runólfsson, börn o( aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.