Morgunblaðið - 08.04.1967, Qupperneq 32
»
Pierpont-úr
v '»s Hermann
Jónsson
.' úrsmiður
^ Lækjargötu 2.
orMtnMaí«i!&
Helmingi útbreiddara
en nokkurf annað
íslenzkt blað
LAUARDAGUR 8. APRÍL 1967
12-25 ára hafi mynd
í nafnskírteini sinu
í FRÉTT frá Hagstofu fslands
segir, að mynd skuli framvegis
vera í nafnskírteini 12-25 ára
einstaklinga. Fá þeir ekki af-
hent skírteini, nema þeir afhendi
mynd af sér til festingar á það.
Er þetta gert til að hamla gegn
vaxandi misnotkun nafnskír-
teina.
Myndskyldan kemur þegar til
framkvæmda í Reykjavík, Kópa
vogi Hafnarfirði, Garðahreppi,
Bessastaðahreppi, Seltjarnarnes-
hreppi og Mosfellshreppi.
Annars staðar á landinu ákveð
ur lögreglustjóri hvenær mynd-
skyldan komi til framkvæmda í
umdæmi hans.
Þetta nýja ákvæði um mynd-
skyldu tekur ekki til áður af-
hentra skírteina 12-26 ára ein-
staklinga, en þeir, sem þurfa að
fiá endurnýjuð skírteini verða að
afhenda mynd af sér.
Þá verða gerðar ýmsar ráð-
stafanir til að tryggja, að mynd-
in sé af þeim, sem skírteinið
hljóðar á.
Mikill afli Maí á Ný-
fundnalandsmiðum
Sýning á verkum Nínu
Sæmundsson, bæði högg-
myndum og málverkum, sem
hún arfleiddi Listasafn ís-
lands að, verður opnuð í dag.
Jafnframt verkum hennar
verða sýnd verk 15 listmál-
ara, sem allir luku námi um
svipað leyti og Nína. Myndin
er af höggmynd eftirNínu,
sem er á sýningunni. Sjá nán
ar frétt annars staðar í blað
inu. (Ljósm. Sv. Þ.) (
Vökvakerfi af
götusópara
stolið
UM helgina var brotizt inn í
bækistöðvar Reykjavíkurborgar
við Meistaravelli. Var þar ráð-
izt með verkfærum á nýlegan
götusópara og sagað af honum
vökvakerfið, sem stjórnar hinum
ýmsu tækjum í honum. Ekki hef-
ur enn tekizt að hafa upp á
skemmdarverkamönnunum, og
eru þeir, sem einhverjar upplýs-
ingar geta gefið um málið, beðn-
ir að snúa sér til rannsóknarlög-
reglunnar.
TOGARINN MAÍ, sem nú er að
veiðum á Nýfundnalandsmiðum,
Framkvæmdir stöövaöar við nýju
dráttarbrautina á Akureyri
Ágreiningur um yíirverkstjórn milli
bæjaryíirvalda og vitamálastjórnar
AKUREYRI 7. apríl. — Fram-
kvæmdir við hina stóru og nýju
dráttarbraut hér hafa nú stöðv-
azt vegna ágreinings milli Vita-
málaskrifstofunnar og hafnar-
nefndar Akureyrar um það, hvor
aðilinn eigi að hafa yfirstjórn
verksins á hendi.
Vegna þessa máls hefur frétta-
maður Mbl. snúið sér til setts
bæjarstjóra á Akureyri, Valgarðs
Baldvinssonar og fengið hjá hon-
um eftirfarandi upplýsingar:
Á sl. ári var samþykkt í bæj-
arstjórn að riðast í byggingu
dráttarbrautar á Oddeyri fyrir
allt að 2000 tonna skip að eigin
þunga og viðlegukant norðan
hennar.
í samvinnu við vitamálastjóra
og Innkaupastofnun ríkisins voru
vorið 1966 gerðir samningar um
kaup á efni til þessarar mann-
virkjagerðar og hafa þegar verið
fest kaup á efni fyrir um 20
milljónir króna, en samkvæmt
áætlun vitamálastjóra mun heild
arkostnaður verða um 42 milljón-
ir króna.
Samkvæmt lögum um hafnar-
gerðir og lendingabætur ber rík-
issjóði að greiða 40% af heildar-
kostnaði við slíka mannvirkja-
gerð enda séu allar áætlanir um
framkvæmdirnar samþykktar af
samgöngumálaráðuneytinu. Enn-
fremur er það skilyrði fyrir
styrkveitingu úr ríkissjóði, að
Magnús Jónsson fjármálaráðherra á Alþingi:
Lýst hugmyndum um
staðgreiðslukerfi skatta
MAGNÚS Jónsson mælti í
gær fyrir þingsályktunartil-
lögu ríkisstjórnarinnar um að
að Alþingi taki afstöðu til á-
framhaldandi undirbúnings
staðgreiðslukerfis opinberra
gjalda.
Rakti Magnús i ræðu sinni
hugmyndir stjórnskipaðrar
nefndar, er kannað hefur
mál þetta um fyrirkomulag
á slíkri skattheimtu, ef
henni verðui komið á hér-
lendis. Samkvæmt þeim,
mun verða um bráðabirgða-
greiðslu að ræða á skattár-
inu, en að loknu skattári
færi fram álagning eftir fram
tali skattþegana. Staðgreiðslu
kerfið mun ná til allra skatt-
skyldra og gjaldskyldra að-
ila, sem eiga að greiða þau
opinberu gjöld, er kerfið nær
til. að mun það hvergi þekkj-
ast nema í Svíþjóð. að félög
séu tekin inn í staðgreiðslu-
kerfið.
Skattgreiðslur launþega
myndu fara eftir skattkort-
um og skatttöflum og er hug-
myndin sú, að útsvarsstig?
verði ekki sá sami um allt
land. heldur verði sveitarfél-
ögum gefinn kostur á að
velja milli nokkurra útsvars-
stiga, sem yrðu stighækk-
andi.
Hér á eftir verða birtir
þeir kaflar úr ræðu Magn-
úsar Jónssonar, er fjallar um
þessar hugmyndir um fyrir-
komulag staðgreiðslukerfis-
ins hér á landi:
„Staðgreiðsla opinberra gjalda
á skattárinu yrði bráðabirgða-
greiðsla, en að skattári liðnu
færi fram álagning eftir fram-
tali skattþegna. Mismunur, sem
fram kynni að koma milli skatt-
greiðslna ársins og endanlegs
skatts, yrði krafinn eða endur-
greiddur eftir því sem við á sam
kvæmt föstum reglum. Inn-
heimta á skattárinu að því er
varðar launþega yrði byggð á
einföldu skattheimtureglunni,
sem svo er kölluð og skýrð er
í skýrslu nefndarinnar. Þeir ein-
staklingar, sem hafa með hönd-
Framhald á blaðsíðu 14.
framkvæmdirnar séu unnar und-
ir yfirumsjón vitamálastjóra eða
annars manns, sem , samgöngu-
málatáðuneytið samþykkir.
Undanfarið hafa farið fram
viðræður milli hafnarnefndar og
vitamálastjóra um framkvæmd
verksins. í janúarmánuði sl. kom
vitamálastjóri til Akureyrar og
ræddi við hafnarnefnd og í för
hafnarnefndar til Reykjavíkur í
febrúar náðist samkvæmt bókun-
um hafnarnefndar fullt sam-
komulag um, að Hafnarsjóður
Framhald á bls. 31
Cúmbáturinn
var austur-
þýzkur
GÚMBÁTURINN, sem Bolvík-
ingar fundu undan Kóp hinn 21.
marz síðastliðinn, barst skipa-
skoðunarstjóra til athugunar nú
nýlega. Við athugun á bátnum
kom í Ijós, að hann er austur-
þýzkur og var ekki að sjá, að
hann væri skemmdur.
Samkvæmt upplýsingum Páls
Ragnarssonar, skrifstofustjóra,
fundust þess engin merki, að
menn hefðu verið í bátnum.
Sendi embættið skeyti til Seef-
artsamt í Rostock, þar sem sagt
var frá skrásetningarnúmeri
bátsins, en svarskeyti hafði ekki
borizt í gær. Er því ekki unnt
að segja meö vissu frá hvaða
skipi báturinn sé.
Ekki mun kunnugt um, að
austur-þýzkt skip hafi farizt ný-
lega á þessum slóðum.
hafði í fyrradag fengið um 400
tonn af karfa, en frá Hafnar-
firði hélt hann fyrir 12 dögum.
Má búast við að hann leggi af
stað heimleiðis þegar hann hef-
ur fengið 50 til 80 tonn í við-
bót, en þá verður Maí kominn
með fullfermi. Siglingin heim,
sem er um 1200 sjóm., tekux þrjá
og hálfan sólarhring til fjóra eft-
ir veðri.
Torgarinn Narfi er nú í Hafn-
arfirði, og er hann með um 320
tonn af frystum fiski.
Seyðisf j arðarinnbrot
Dæmdur í 6
mún. iungelsi
Á FIMMTUDAG sl. var kveðinn
upp dómur í máli Jóhanns Þor-
geirssonar. vélvirkja, sem brauzt
inn í Síldarverksmiðjur ríkisins
á Seyðisfirði á öndverðu þessu
ári, og hafði þaðan á brott með
sér um 107 þúsund. kr. í pening-
um, orlofs- og sparimerkjum. Af
þessari upphæð hefur lögreglan
síðar lagt hald á 71.891 kr.
Jóhann var dæmdur í 6 mán-
aða fangelsi óskilorðsbundið, en
gæzluvarðhald kemur þessu til
frádráttar Þá var hann og dæmd
ur til að greiðs S.R. krónur
123 636 í skaðabætur, og einnig
til að greiða sakarkostnað. Jó-
hann hefur aldrei áður komizt 1
kast við lögin og var refsing
hans ákvörðuð með hliðsjón af
því
Gunnlaugur Briem, sakadóm-
ari, kvað upp dóminn.
Slvs á Akranesi
í FYRRADAG varð það slys við
fisktrönur, skammt fyrir inntn
Akraneskaupstað, að maður datt
af vörubifreiðarpalli og slasaðist.
Maðurinn. sem heitir Hallgrím-
ur Hallgrímsson. var fluttur í
sjúkrahúsið á Akranesi, en ekki
var lögreglunni á Akranesi
kunnugt um meiðsli hans í gær.
Aðalfundur Verzlunar-
bankans í dag
AÐALFUNDUR Verzlunarbank-
ans verður haldinn í dag í sam-
komuhúsinu Sigtúni og hefst kl.
14.30. Á fundinum fara fram
venjuleg aðalfundarstörf og enn-
fremur leggur stjórn bankans
fram tillögur um hlutafjáraukn-
ingu bankans og að reglugerð
fyrir stofnlánadeild við hann.
Hluthafar, sem hafa eigi vitjað
aðgöngumiða að fundinum, geta
ferrgið þá afgreidda í skrifstofu
bankans í Bankastræti 5 fyrir
hádegi í dag.