Morgunblaðið - 09.04.1967, Síða 1
32 síðnr og Lesbók
0gmntiMfktkift>
54. árg. — 80. tbl.
STJNNUDAGUR 9. APRÍL 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stjórn Saigon og bandamenn bjóða vopnahlé
— Reiðubúin að rœða framlengingu
þess — Hanoi hefur ekki svarað
Washington, Hanoi, 8. april — (AP-NTB) —
STJÓRN S-Víetnam hefur, með stuðningi Bandaríkjastjórn-
ar og bandamanna hennar í Víetnam, lýst sig reiðubúna að
gera hlé á styrjöldinni í Víetnam á fæðingardegi Buddha,
23. maí n.k. Er hér komið á móts við beiðni leiðtoga hinn-
ar klofnu hreyfingar Buddha-munka í Víetnam, sem í síð-
asta mánuði fóru fram á vopnahlé í tilefni fæðingar Buddha.
Jafnhliða því, sem Saigon-stjórnin fellst á beiðni Buddha-
munkanna fyrir sitt leyti, hefur hún lýst því yfir, að hún
sé reiðubúin að ræða framlengingu vopnahlésins við stjórn
N-Víetnam. Hefur Saigon stungið upp á, að aðilar beggja
ríkisstjórnanna hittist til viðræðna innan hlutlausa beltisins,
eða á hverjum þeim stað, sem Haoi helzt kýs. Ekkert svar
hefur borizt frá Hanoi-stjórninni varðandi beiðni Buddha-
munkanna né fyrri tillögum Saigon þess efnis, að fulltrúar
stjórnanna beggja hittist til viðræðna í hlutlausa beltinu eða
annars staðar.
í yfirlýsingu Saigon-stjórnar,
sem lögð var fram í dag, segir
xn.a.:
„Með tilliti til hinna þýðing-
armiklu hátíðar á fæðingardegi
Buddha, lýsir stjórn lýðveldisins
Víetnam því yfir, að hún er
reiðubúin að gera 24 stunda
vopnahlé 23. maí 1967.
Stjórn S-Víetnam fer þess al-
varlega á leit við stjórn N-Víet-
nam, að hún virði umrædda
beiðni og leyfi öllum áhangend-
um Buddha að taka þátt í há-
tíðarhöldunum.
Allar varúðarráðstafanir munu
samt sem áður verða gerðar af
hálfu hers S-Víetnam og banda-
manna hans til að tryggja, að
andstæðingarnir notfæri sér ekki
vopnahléð til að birgja liðssveit-
ir sínar með hergögnum og
auknu liði. Er það í samræmi
við fyrri aðgerðir, er Víet Cong
hreyfingin hefur verið hindruð
í að færa sér í nyt fyrirhugað
vopnahlé.“
Sérstaka athygli vekur, að
Saigon-stjórnin og bandamenn
hennar leggja fram tillögur um
þetta vopnahlé í sama mund og
hættan hefur aukizt á miklum
vopnaátökum í hlutlausa belt-
inu, þar sem kommúnistar hafa
hreiðrað um sig í þeim hluta belt
isins, sem snýr að S-Víetnam.
Tillögur Saigon-stjórnarinnar
hafa verið sendar öllum ríkjun-
um, sem þátt tóku í Manilla-
ráðstefnunni í október í fyrra.
Afstaða S-Víetnam er því sú
sama, sem gerð var grein fyrir
í svarbréfi stjórnarinnar við
þriggja-liða tillögum U Thants,
aðalritara SÞ, sem barst honum
í hendur 19. marz sl. Eins og
kunnugt var tók Hanoi-stjórnin
neikvæða afstöðu við þessum
tillögum aðalritarans.
Ekkert vopnahlé var gert á
fæðingardegi Buddha á síðasta
Höggormar
gera innrás
Dar es Salaam, 8. apríl AP.
HINN síðbúni regntími í Tanz-
aníu hefur fært milljónum íbúa
Tanzaníu daga hryllings og of-
boðs. Hundruðum saman hafa
eitraðir höggormar og slöngur
borizt með flóðum inn í þorp og
bæi og síðustu tvo daga átta
dáið af biti þeirra. Mest ber á
grænum mömbum og kóbra-
slöngum, en bit þeirra leiðir til
skjóts dauða.
ári. Um þær mundir stóðu heift-
ug átök róttækra Buddhista í
því augnamiði að steypa stjórn-
inni.
Geysihörð átök hafa átt sér stað alla sl. viku milli brezkra hermanna og arahískra hermdar-
verkamanna í Aden. Launvig og götuóeirðir eru þar daglegur viðburður og hermdarverka-
mennirnir hafa varpað sprengjum inn í veitingahús. Á myndinni sjást nokkrir hermdar-
verkamannanna leggja vegahindranir til að brezku hermennirnir komist ekki að óeirðasvæð-
unum. (AP-mynd).
Christrup leggur fram vörn sína
— í staðfestingarmáli dönsku ríkisstjórnarinnar
Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Kaupmanna-
höfn, 8. apríl.
GUNNAR Christrup, hæstarétt-
armálaflutningsmaður, hefur lagt
fram í Eystri landsrétti varnar-
ræðu Árna Magnússonar-stofn-
unarinnar í staðfestingarmáli
ríkisstjórnarinnar. Jafnframt hef
ur Poul Smith, hæstaréttarmála-
flutningsmaður, krafizt þess
fyrir hönd fræðslumálaráðuneyt
isins danska, að stofnunin við-
urkenni, að hún eigi ekki kröfu
á skaðabótum.
Christrup gengur út frá þeirri
afstöðu, að stofnunin eigi kröfu
á fullum bótum fyrir þær eignir,
sem henni sé gert að láta af
hendi nauðugri — bæði handrit
og fjármuni. Jafnframt kemur
fram hjá honum, að Árna Magn-
47 förust
í flugslysi
Seoul, S-Kóreu 8. apríl.
NTB-AP.
S-KÓRESK herflutningavél af
gerðinni C-46, Curtiss Commando
hrapaði niður í fátækrahverfi í
Seoul, höfuðborg S-Kóreu í
morgun og fórust allir, sem með
vélinni voru 11 menn og 36 íbú-
ar fátækrahverfisins. Mikill eld-
ur gaus upp er flugvélin hrap-
aði, en húsin í hverfinu eru
flest úr bamhus og brunnu 30
þeirra til ösku. Um 20 manns
voru flutt í sjúkrahús með al-
varleg brunasár og er búist við
að tala látinna eigi eftir að
hækka.
Mjög slæmt skyggni var, rign-
ing og lágskýjað, en vélin hrap-
aði fimm mínútum eftir að hún
hóf sig til flugs af Yoido-her-
flugvellinum í Seoul. Sjónarvott-
ar segja að vélin hafi nær ekk-
ert hækkað flugið eftir að hún
sleppti flugvellinum og virtist
þeim, sem um vélarbilun væri að
ræða.
ússonar stofnunin hafi einnig á-
huga á því að fá gert endanlegt
út um skaðabótadeiluna. Því
hafi stofnunin látið hjá líða að
leggja á það áherzlu að eins og
nú standi, eða meðan ekki hafi
kiomið til framkvæmida krafa
um afhendingu neinna handrita,
hafi fræðslumálaráðuneytið ekki
neinn réttarfarslegan hag af því
að fá úr því skorið, hvort greidd
ar skuli skaðabætur eða ekki.
Christrup leggur á það á-
herzlu, að staðfest hafi verið
með hæstaréttardómi ^ í nóvem-
ber s.l., að dánargjöf Árna Magn
ússonar sé sjálfseignarstofnun;
að lögin um breytingar á skipu-
lagsskrá hennar leiði til skaða-
bótakröfu og að beita megi á-
kvæðum í grein nr. 73 í stjórn-
arskránni, þar sem fjallað sé um
eignarnám.
„Þetta hefur í för með sér,
segir Christrup, að greiða skal
fullar bætur, þegar nauðungar-
afsals er krafizt.
„Samkvæmt venjulegum skiln
ingi á stjórnarskránni er gert
ráð fyrir því, að bætur nemi
jafnvirði þess, sem láta skal af
hendi samkvæmt eignarnáminu
— og er auðvelt að meta þetta,
þegar vitað er, hvers er krafizt,
segir Christrup.
Ráðuneytið hefur staðtfest, að
stofnunin geti efcki orðið fyrir
fjárhagslegu tjóni af að láta af
hendi hluti, sem hún hefur ekki
Fá ekki að
r&nnsaka
fange^i
Potchefstroom, S-Afríku,
8. apríl NTB.
RÍKISSTJ ÓRNIN í S-Afríku
vísað á bug tillögu Sameinuðu
Þjóðanna um að fá að senda
sérfræðinganefnd til að rann-
saka ákærurnar um misþyrm-
ingar og pyntingar í fangelsum
S-Afríku. Það var dómsmála-
ráðherra landsins, sem skýrði
frá þessu í ræðu sem hann hélt
við háskólann í Potchefstroom
í gær. Sagði ráðherrann, að
S-Afríka hefði ekkert að fela,
en taldi að mannréttindanefnd
S.Þ. væri ekki í aðstöðu til að
blanda sér þannig í innanríkis-
mál S-Afríku. Hinsvegar gæti
alþjóða Rauði Krossinn fram-
kvæmt slíka rannsókn á vegum
mannréttindanefndarinnar.
heimild til að selja og gefa ekki
af sér neinar tekjur.
Þessu vísar Christrup á bug
og segir: „Stofnunin á þessi
verðmæti og það er ekki hægt
í fljótu bragði að fjalla um
dánargjafir eða stofnanir, sem
þannig eru til komnar og þjóna
tilgangi, sem kemur almenningi
að gagni, eins og um væri að
ræða einkafjármálafyrirtæki.
Venjulega gilda þær reglur um
slíkar dánargjafir eða stofnanir,
að þær þjóna ekki neinum einka
fjármálahagsmunum — og er því
efcki unnt að sýna fram á beint
fjárhagslegt tjón, þó þess sé
krafizt af þeim nauðugum, að
þær láti af hendi eignir sínar
eða verðmæti.
Og hann heldur áfram og seg-
ir: „Það hlýtur að koma manni
undarlega fyrir sjónir, að ann-
arsvegar skuli vera viðurkennt,
að slíkar dánargjafir og stofn-
anir njóti verndar dómstóla, sam
kvæmt 75 gr. stjórnarskrárinn-
ar — en hinsvegar sé staðhæft,
Framh. á bls. 31.
500 manns grunaðir
■ Rinaldi-málinu
Turin, Ítalíu, 8. apríl.
RANNSÓKN á Rinaldi-njósna-
málinu svonefnda hefur leitt í
ljós, að um 500 manns hafa
stundað njósnir gegn NATO á
Ítalíu, Kýpur, Spáni, Austur-
ríki, Grikklandi og víðar. Um
20 manns hafa verið handteknir.
Franska leyniþjónustan vinn-
ur nú að því að rannsaka hvort
njósnahringurinn, sem álitið er
að starfi fyrir Sovétríkin, hafi
njósnara í Frakklandi.
Giorgio Rinaldi, fyrrverandi
fallhlífarhermaður, kona hans
og bílstjóri þeirra voru hand-
tekin í Turin 22. marz sl. og
ákærð fyrir að hafa selt Sovét-
ríkjunum upplýsingar um her-
stöðvar Bandarikjanna og NATO
á svæðum við Miðjarðarhafið.
Heimildir herma, að mikró-
filmur af leynilegum skjölum
hafi verið faldar í fornum stytt-
um, sem frú Rinaldi seldi á
fornminjaverzlun sinni.
Bréi og
teikningcr
Kennedys, Oswalds
og Rubys á uppboði
New York 8. apríl AP
Bréf ritað af Kennedy heitn-
um Bandaríkjaforseta og Lee
Harvey Oswald, sem sakaður
var um morðið á Kennedy og
5 teikningar eftir Jack Ruby
banamanni Oswalds voru seld
á uppboði í New York í dag.
Bréf Kennedys seldust á
22000 og 10000 ísl. kr., en brAf
Oswalds seldist á 51000 krón-
ur Bréf Oswalds var til móð
ur hans, ritað frá Sovétríkj-
unum og þar segir Oswald
m.a. „Þú þarft ekki að óttast
réttinum heima, það get ég að
um að ég tapi ríkisborgara-
eins gert ef ég vil það, en svo
er alls ekki“. Teikningarnar
eftir Ruby fóru á rúmlega
25000krónur.