Morgunblaðið - 09.04.1967, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.04.1967, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1967, r- r Lm ■1+ t* Þessi mynd var tekin árið 1934, er Svetlana var meo foour sínum og fleiri sovézkum fra mámönnum á skipi á Svartahafi. Maðurinn til hægpi, — sem stendur með hendur fyrir aftan bak, er kommúnistaleiðtogin n Kirov frá Leningrad, sem myrt ur var nokkrum mánuðum eftir að þessi mynd var tekin — að undiriagi Stalíns að talið er. A 20 ára afmæli byltingarinnar, 1937, var hátíð mikil í Sovétríkjunum. Myndin var tekin i heiðursstúku Bolshoi-leikhússins, við hátíðasýningu, sem Svetlana var viðstödd, ásamt föður sínum og helztu leiðtogum kommúnista. Á myndinni eru, frá vinstri: Kominerm-foringinn Dimitrov, Stalín, Molotov, Mikojan og Schwernik — og Svetlana að veifa til viðstaddra. — og hóf för sína út í óvissuna til Vesfurheims Og hér sjáum við vina- og fjölskyldumynd tekna árið 1930. Svetlana er í fremstu röð til vinstri en við hlið hennar situr, Vassilí, bróðir hennar með dóttur Bucharins, eins af meðlim- um framkvæmdastjórnar kom únistaflokksins, á hnjánum. Að baki þeim — í miðröðinni: Barnfóstra, Nadeschda, móðir Svet lönu og Anna móöursystir hennar — og standandi stykini og mágkona fyrri konu Stalíis, Jekaterinu. Þannig skrifaði Svetlana Allilujeva Stalina, er hún dvaldist á heimili fjölskyldu hins látna eiginmanns síns, Brijesih Singhs. Hún hafði komið þangað skömmu fyrir jólin með ösku hans og nú vonaðist hún til að geta dval- izt þar áfram. Eftir að hafa lifað árum saman í skugga Kremlmúra — og föður síns, gat Svetlana nú loks lifað frjáls, dregið andann í frjálsu umhverfi, ó- þekkt og afskiptalaus, utan fjölskyldunnar Singh, sem kom fram við hana sem væri hún dóttir og systir. En fyrr en varði, komst hún að því, að hún mundi ekki geta dval- izt þarna til frambúðar. Hún gat ekki gleymt stjórnmálun- um við hið heilaga fljót Gang es, vegna þess, að stjórnmál- in vildu ekki gleyma henni. Eftir að hafa snúið sér til indverskra, bandarískra, og svissneskra aðila, varð henni ljóst, að hún var orðin alþjóð- legt vandamál. Spurningin var — hvað átti að gera við þennan pólitíska flóttamann, hinn athyglisverðasta frá dög um Leos Trotskis? Svetlana hefur sennilega goldið þess á ýmsan hátt síð- ustu fjórtán árin, að hún var dóttir Jósefs Stalíns — og að hún hefur aldrei fordæmt hann, heldur stöðugt haldið því fram, að hann hafi ekki verið sá miskunnarlausi harð jaxl og morðingi, sem menn vildu vera láta.“ En hann var stórkostlegt samspil ljóss og skugga — sagði hún einhverju sinni við einn hinna indversku vina sinna. „Járnharður og kaldur á opinberum vettvangi, en viðkvæmur og hlýr heim- ilisfaðir. Aðeins einu sinni lagði hann á mig hendur. Það Svetlana við komuna til Sviss á dögunum. Seinasti maður Svetlönu var indverski kommúnistaforing- inn, Brijesh Singh, meðlimur gamallar ættar í Indlandi, ná- skyldur núverandi viðskipta- málaráðherra Indlands. Mynd þessi af Brijesh Singh var tek in árið 1930. var þegar ég vildi giftast fyrsta manni mínum, Gregori Vorosov, sem þá var stúdent og starfaði í varðliðinu í Kreml. Þá sló pabbi mig — Fyrir rúmum fimmtán árum var Svetlana Stalína tíður gest- ur á baðstöðunum við Svartahafið — og þá í hópi þeirra, sem þar vöktu hveð mesta athygli. „Hér í Kalakankar get ég loks byrjað aftur að lifa og anda. Ég gleðst á ný yfir dá- semdum lífsins allt í kring- um mig, skóguim, fuglum, blómum, bláum himninum, tunglinu, stjörnunum. Ég var farin að halda, að ég mundi aldrei framar geta séð þessa hluti og notið þeirra. Augu mín voru blind, hjarta mitt lífvana. Ég fæ ekki séð hvern ig lífið getur verið unaðslegra en hér. Meðan marskálkurinn sat að málsverði laumaðist Svetlana út úr sendiráðinu * - fUR VERINU Framh. af bls. 3. Danmörku og er það mál nú 1 athugun. Það væri enn betra en í Noregi, af því að Danir eiga sem engin síldarskip. Svíar sem eiga nokkur, hafa þar lönd- unarrétt. Hins vegar eiga Danir gaysiatórar síldarverksmiðjur. Faweyingar hafa viðstöðulaust fceypt *ild af íslendingum til bræðslu og fer vaxandi. Vestur- Þýzkaland kemur einnig til greina en þá þyrfti að ísa síldina á miðunum og helzt í kassa. Er þetta í athugun. Allur heimurinn einkennist nú af auknu samstarfi á sviði viðskipta. Leiðtogar þjóðanna sjá, að miklu betri árangur næst í þjóðarbúskapnum með því, að hver framleiði það, sem hann er hæfastur til. Við það batnar lífsafkoma fjöldans. fslendingar hafa löngum verið stórveldi á sviði fiskveiða, og þeir eiga að geta verið það áfram. En allt er orðið breytt hér frá því landsmenn stunduðu sjó á skeljum, sem komust vart út fyrir hina þröngu landhelgi. Nú eiga þeir stór fiskiskip, sem skipta hundruðum og geta kann- að öll heimsins höf, og þá mega stjórnarvöld ékki láta sitt eftir liggja til þess að ryðja úr vegi þeim hindrunum, sem kunna að vera fyrir því að þau verði hag- nýtt til fulls, og að framleiðslu- tadki, sem standa auð og tóm verði nýtt með samvinnu við aðrar þjóðir, ef því er að skipta. Bifreiðastillingin Höfum opnað verkstæði okkar aftur að Síðumúla 13. Kappkostum fljóta og góða þjónustu. Bifreiðastillingin Bragi Stefánsson. — Sími 81330.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.