Morgunblaðið - 09.04.1967, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1967.
UNDIR
eftir Maysie I
VERND Greig: j
— Krakkar geta verið svo
þverir, sagði hún, þegltr hann
svaraði ekki neinu. — í>ú held-
ur þó eteki, að neitt, sem ég hef
sagt v$ð hana hafi.....
— Nél, vitanlega ekki. Láttu
ekki eins og bjáni, Mavis. Það
hlýtur að vera þessum skóia
að kenna, sem hún gengur í.
Sumir þessara krakka kunna
enga mannasiði En ég tala um
það við hana seinna, sagði hann
og svipurinn harðnaði.
— Æ, gerðu það ekki, sagði
Mavis biðjandi. — Ég er viss um,
að hún hefur ekki vitað, hvað
hún var að gera og hún er svo
viðkvæm í sér. En svo indælt
barn þegar maðui fer að þekkja
hana. Það er skapferlið hennar.
Svo líkt Louisu, finnst þér ekki?
— Já, 'hún líktist Louisu f
mörgu samþykkti hann. — En
það er engin afsökun. ... Jæja,
gott og vel, ég ætla þá að sleppa
því að tala utan í hans eins og
hún á skiiið. Við skulum gleym-
þessu. Við skulum koma inn.
Sýndu ungfrú Redmond húsið,
Mavis, ef hún kærir sig um, og
svo skulum við fá te.
Davíð tók Michael, sem var
þriggja ára og svo gengu þau
inn í skemmtilega foísalinn, þar
sem sólin skein inn um opnar
dyrnar og á ker með túlípönum
í, sem stóð á stórri eikarkistu.
Lengst burtu vai eikarstigi upp
á loftið.
— Eigum við fyrst að fara
upp? sagði Mavis. — Þér vilj-
ið sjálfsagt þvo yður um hend-
urnar.
— Þakka yður fyrir, svaraði
Paula.
Meðan stúlkurnar voru að
ganga upp stigann, fékk Paula
tækifæri til að atihuga Mavis
betur. Úti fyrir hafði hún verið
of miður sín út af framkomu
Loftpressa —
Traktorsgrafa
Tökum að okkur allt múrbrot, einnig sprengingar,
og alla gröfuvinnu.
Slmon Símonarson
Vélaleiga —- Sími 33544.
telpunnar, til þess að gera nema
rétt líta á hana.
Mavis var ekki lagleg, andlit-
ið var sviplaust, hárið skolbrúnt,
en hún hafði stór, grá augu og
andlitið var með einhverjum
löngunarsvip. Hún var snyrtileg
til fara, en þó ekki smekklega
og hún var næstum grindhoruð.
— Var þetta góð ökuferð hjá
ykkur ihingað? spurði Mavis.
— Já, ágæt, þakka yður fyr-
ir, svaraði Paula.
— Ég býst við, að þið hafið
borðað hádegisverð í „Galtar-
höfðinu“. Svo flýtti hún sér að
bæta við' — Við Davið borðum
þar oft hádegis- eða kvöldverð,
þegar ég get sloppið frá krökk-
unum. En það er nú enginn
hægðarleikur. Þau verða svo óró
leg, ef ég fer eitthvað frá. En
það var enginn söknuður í rödd-
inni, miklu fremur ánægja ef
nokkuð var.
— En ekki eruð þér inni við
allan daginn, þeirra vegna?
sagði Paula.
— Jú, víst er ég það, fullviss-
aði Mavis hana, með alvöru-
svip. — Siðan hún Louise dó,
hefur mér fundizt ég bera
ábyrgð á þeim. Mér finnst að ef
eitthvað kæmi fyrir þau, að mér
fjarverandi, eða ef þau væru
ekki fullkomlega ánægð, þá væri
það mér að kenna Louise ætlaði
mér að sjá um þau. Hún lét þess
getið, áður en hún dó. Og þetca
er meira en skylda ungfrú Red-
mond, mér finnst það heilög
skylda. Þessvegna skiljið þér, að
mér finnst ekki ég verið að fara
út, hversu hart sem Davíð lagg-
ur að mér.
— En Davið er nú faðir
þeirra, og ef hann býður yður út,
þá.......
— Það kemur ekkert máhnu
Vor- og sumastízkan 1967
Nýjar sendingar, vor- og sumardragtir
í nýju tízkulitunum, sumarkjólar úr
crimplene og spinlon, síðdegiskjólar,
kvöldkjólar, terylene-regnkápur, sumar-
kápur, rúskinnskápur, ullarpils, terylene-
pils, unglingaskokkar. Tízkulitir.
Tízkuverziunin Guðrún
Rauðarárstíg 1, sími 15077.
Bílastæði við búðina.
við, tók stúlkan snöggt fram f.
— Vitanlega vill hann, að ég
fari út. Hann er alltaf að bjóða
mér út með sér Það er bara cf
því, að ég get það ekki, að hann
......hún hikaði og sleikti var-
irnar_______ — að hann fer út
með öðrum.
Paula hrökk dálítið við. Það
var ekki um að villast hvað ung
frú Freeman var að fara í þeita
sinn.
— En haldið þér ekki, að hr.
Hankin vilji fara út með ýmsu
fólki hverju sinni. svona til til-
breytingar? Það var ofurlítil ögr
un í röddinni.
— Nei, alls ekki, sagði Mavw.
—• Davíð er ekkert á fartinni.
Innst inni er hann heimakær.
Hann mundi aldrei þola neina,
sem ekki vildi vera heima og
gæta barnanna........
Þær voru nú komnar f svefn-
herbergi Mavis. Mavis fór með
hana inn og spurði, hvort hún
vildi ekki taka af sér hattinn. —
Og svo skulum við koma í barna
herbergin Ó, þau eru svo indæl.
Við Louise skipulögðum þau áð-
ur en hún dó. Svo hélt hún
áfram:
— Mér þykir svo fyrir því,
hvernig hún Faitih hagaði sér.
Og mér er illa við, að Davíð mis
líki nokkuð eða geri sér áhyggj
ur út af því. En vitanlega þykir
telpunni svo vænt um hann
pabba sinn. Mér kæmi ekki á
óvart þó hún væri dálítið af-
brýðisöm.
Paula horgði fast á hann og
aftur kom ofurlítill roði upp í
kinnarnar.
— Vonandi er hún ekki af-
brýðisöm gagnvart mér? stam-
aði hún.
— O, krak'kar verða oft af-
brýðisamir gagnvart fullorðn-
um, án nokkurs tilefnis, sagði
Mavis. — Og Davíð hefur uppá
síðkastið talað mikið um yður og
fallegu leikföngin, sem þér se'j
ið í búðinni. Hún andvarpaði of
urlítið. — Það hlýtur að vera
gaman að vera óháð, ungfrú
Redmond.
— Já, en það geta bara allir
verið, sagði Paula. — Það er <
rauninni ekkert erfitt að fá at-
vinnu og halda henni, ef mað-
ur leggur sig fram.
— Þér segið petta af því að
þér eruð framgjörn. Það er ekki
sú atvinna til, sem ég gætí stund
að — ég á við önnur en sú að
passa krakkaiia fyrir hann
Davíð. Ég mundi alls ekki kunna
að leita mér- atvinnu og ég er
viss um, að ég héldi henni aldrei
þó að ég næði i hana. Ég er
ekki svo sérlega skynsöm.
— Mér finnst nú ekki ég sjálf
vera neitt fram úr hófi skyn-
söm, sagði Paula og brosti. —
En samt er ég búin að halda
núverand' atvinnu minni tals-
vert lengi .Og ég er alveg viss
um, að þér gætuð gert slíkt hið
sama.
— Nei, nei, sagði Mavis ein-
beitlega. — Ég yrði alveg ringl-
uð og utan við mig. Og hér er
heimili mitt. Ég veit ekki, hvað
ég gæti tekið til bragðs, ef ég
missti það.
Paula vissi það aldrei sjálf,
hversvegna hún svaraði þessu
þannig. — En setjum nú svo, að
hr. Hankin færi að gifta sig aft-
ur?
Mavis hrökk við. Serm snöggv
ast stirðnaði grannur líkami
hennar upp. Og það var eins og
andlitið lokaðist líka, og Paula
tók eftir því, að augnihárin sigu
niður fyrir augu, rétt eins og
til að hylja augnaráðið. En þeg
ar hún svaraði, var röddin blátt
áfram og kæruleysisleg.
— Vitanlega kann hann að
gifta sig aftur. Hann er hvort
sem er, ungur enn. En einhvern
veginn held ég, að hann geri
það ekki Hann er svo um-
hyggjusamur um börnin.
— Það getur nú karlmaður
vel verið og samt fengið sér
aðra konu, sagði Paula.
Mavis hleypti brúnum.
— Það held ég ekki. Það væri
ekki heiðarlegt gagnvart börn-
um fyrri konunnar, eða finnst
yður það? Hún brosti. — Að
minnsta kosti tel ég engar horf-
ur á, að Davíð taki uppá því,
nærri strax, eða haldið þér það.
ungfrú Redmond? Hún var enn
brosandi, en Paula hafði það ó-
þægilega á tilfinningunni, að
þessi orð hennar væru einskon-
ar viðvörun.
Stundarkorni seinna voru þær
komnar i barnaherbergin, sem
voru tvær stofur bakatil í hús-
inu Gluggarnir vissu út að gras
velli með sumarblómum i öllum
regnbogans litum. Milli herbergj
LÍDÓ
DANSMÆRIIM
ZICKI WANG
kemur fram í hlélnu
LlDÓ
BINGÓ! -TS." LlDÓ Glæsilegasta kjörbingó ársins. Vinningar af Jbrem boröum
Aðalvinningur eftir vali: Nilfisk ryksuga og grillofn — Skatthol og armstóll eða vöruúttekt fyrir 10 þús. F. F. 12 m. kaffistell. Gundaofnar. Hárþurrkur. Rafmagnsrakvélar. Brauðristar. Pottasett. o. m. fleira. Borðpantanir á morgun í síma 35936 eftir kl. 4. ;«,# LfDÓ
BINGC 1! ’ MÁNLDAC KL. 8.3