Morgunblaðið - 09.04.1967, Qupperneq 32
/
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
ís/enzkt blað
Sveðjumaður ógnar
stúlkum á Akureyri
Akureyri 8. apríl.
NfTJÁN ára utanbæjarsjómað-
ur er nú í varðhaldi hjá lögregl
unni hér vegna grófra hótanna
í orði og verkum við tvær stúl i
ur í fyrrinótt. Otaði hann að
þeim sveðju mikilli og lét ófríð-
lega, en vann stúlkunum ann-
ars ekkert mein.
Um kl. 1 í fyrrinótt voru tvær
stúlkur á leið heim til sín. Rétt
hjá skrifstofuhúsi bæjarins við
Geislagötu, vatt sér að þeim mað
ur með stóra þunga sveðju á
lofti og hafði í hótunum við þær
að vinna þeim líftjón eða lima.
Ekki gerði hann frekari tilraun
til að beita sveðjunni. Önnur
stúlkan varð ofsahrædd, en hin
var hin rólegasta og talaði stilli-
ega til mannsins, sem sefaðist
brátt og slíðraði vopn sitt. Hann
virtist eitthvað undir áhrifum
víns, en ekki áberandi ölvaður.
Ekki þekktu stúlkurnar mann-
inn neitt og vissu engin deili á
honum.
Héldu þær nú rakleitt á lög-
reglustöðina, sem er örskammt
frá og gátu gefið svo glögga lýs
ingu á manninum, að hún leiddi
til handtöku hans skömmu síð-
ar, en hann var þá kominn inn
á hótelherbergi, sem hann hafði
á leigu. Hefur hann setið í varð
haldi síðan. Hann hefur viður-
kennt að hafa haft sveðjuna á
lofti, en kveðst ekki hafa ætlað
sér að beita henni.
Sveðja sú, sem maðurinn hafði
undir höndum. er mjög stór og
þung, borin 1 leðurslíðrum og
keypt erlendis. Hún mun sérstak
lega ætluð til varnar gegn villi-
dýrum, ti að höggva sig í gegn-
um skógarþykkni og jafnvel til
að grafa með í jörð. Maðurinn
átti vipnið ekki sjálfur, en kveðst
hafa fengið það hjá kunningja
sínum. Rannsókn málsins er ekkj
lokið. . — Sv. P.
Söfnun vegnn
„FREYJU"
slyssins
HAFIN er söfnun vegna að-
standenda þeirra, sem fórust
með m.b. Freyju frá Súðarík
1. marz sl. — Hér er sérstak-
lega um tvær fjölskyldur að
ræða, sem eiga fárra kosla
völ, ung móðir með tvö korna
börn á framfæri sínu og hið
þriðja á leiðinni, og svo önn-
ur kona með tvö börn á fram
færi sínu, en sonur hennar,
sem fórst ásamt eiginmanni
hennar, lætur eftir sig unn-
ustu, barnshafandi.
Blaðið mun veita viðtöku
framlögum til þessa fóiks.
Ferðamálasj. eignast
Hótel Akraness
HÓTEL AKRANESS var hoðið
upp á opinberu uppboði hinn 9.
september siðastliðinn. Var húsið
selt hæstbjóðanda, sem var Trygg
ingamiðstöðin, en hún hefur síð-
an Ieitast við að fá einhvern að-
ila til þess að taka að sér rekst-
ur hótelsins. Þessar tilraunir
Tryggingamiðstöðvarinnar hafa
ekki borið árangur.
t fyrradag afsalaði Trygginga-
Samvinna um ræðis-
mannsskrifstofur
f EINKASKEYTI til Mbl. frá Mbl. sneri sér til Agnars Kl.
fréttaritara þess í Kaupmanna-
höfn Gunnari Ryrgaard segir, að
fsland, Danmörk, Finnland, Nor-
egur og Svíþjóð hafi í hyggju að
opna sameiginlega ræðismanns-
skrifstofu í Dubrownik í Júgó-
slaviu. Segir ennfremur í skeyt-
inu, að júgóslavneska ríkisstjórn
in hafi samþykkt málaleitan um
þetta, sem danska utanríkisráðu-
neytið hafi sent fyrir hönd
hinna Norðurlandanna.
Þrír teknir
í lnndhelgi
1 FYRRINÓTT tók varðskipið
Óðinn þrjá báta að meintum ó-
löglegum veiðum grunnt undan
Þorlákshöfn. Tveir bátanna voru
frá Vestmanaeyjum, en einn frá
Þorlákshöfn.
Mál bátanna verða tekin fyrir
frá Vestmannaeyjum, en einn frá
Verkfall
lyfjafræðinga?
VERÐI ekki samkomulag milli
lyfjafræðinga og apótekara í
kjaradeilu þeirra aðila, kemur
til verkfalls hinna fyrrnefndu frá
og með kl. 09 á morgun, mánu-
dag.
Deiluaðilar sátu fund með
sáttasemjara í fyrradag, án ár-
angurs og annar fundur verður
í dag. Lyfjafræðingar munu hins
vegar standa vakt aðfaranótt
mánudags, svo sem venja er.
Jónssonar, ráðuneytisstjóra í
utanríkisráðuneytinu og sagði
hann, að utanríkisráðuneytinu
væri ekki kunnugt um umsókn,
né samkomulag á þessum grund-
velli. Hins vegar sagði Agnar,
að ákveðið hafi verið á fundi
Norðurlandaráðs fyrir skömmu,
Framh. á bls. 31.
miðstöðin hótelinu til Ferðamála
sjóðs íslands og tjáði MagrA.
Fr. Arnason, lögfræðilegur ráðu
nautur sjóðsins Mbl., að sjóður-
in hyggðist selja hótelið.
Nú standa yfir samningaum-
leitanir um sölu hótelsins milli
einstaklings, sem áhuga hefur
sýnt á hótelinu, og Ferðamála-
sjóðs, en ekki kvaðst Magnús
geta sagt á hvaða stigi þær um
ræður væru.
Kristín Waage, fulltrúi u ngu kynslóðarinnar 1967.
(Mynd Sv. Þormóðsson).
Kristín Waage varð „Fulltrúi
ungu kynslóðarinnar 1967“
KRISTÍN Waage har sigur úr být
um í fegurðarsamkeppninni sem
haldin var í Austurbæjarhíói síð
astliðið miðvikudagskvöld og
hlaut þvi titilinn „Fulltrúi ungu
kynslóðarinnar 1967". Númer tvö
og þrjú voru Ásta Sigurðardótt-
ir og Kolbrún Sveinsdóttir. Krist
ín hlýtur í verðlaun þriggja mán
aða skólavist í Englandi. Ásta
plötuspilara og Kolbrún gullúr.
Auk þess eru allar sex leystar
út með tízkuklæðnaði frá Karna
bæ.
Valgerður Dan, leikkona,
krýndi Kristínu, sem hágrét. Það
verða að teljast ósköp eðlileg við
brögð því taugaspenna hjá stúlk
unum hefur verið geysimikil síð-
ustu daga.
Hljómar og Toxic kepptu til úr-
slita og var sú kepni bæði hörð
og hávær. Og svo voru úrslit
fegurðarsamkeppninnar tilkynnt.
Áður flutti Sigurður Heiðar, rit-
stjóri Vikunnar stutt ávarp og
Framh. á bls. 8.
5 bílar fyrir 1,1 millj. kr.
Sjálfstœðisflokkurinn efnir til glœsilegasta landshappdrœttisins til þessa
SJÁLFSTÆ»ISFLOKKUR-
INN fer nú af stað með lands
happdrætti. Er þetta glæsileg-
asta happdrætti, sem flokk-
urinn hefur nokkru sinni efnt
til, en vinningarnir eru fimm
nýir, evrópskir fólksbílar, og
er samanlagt verðmæti þeirra
um 1.1 milljón krónur. Bif-
reiðarnar eru allar af árgerð
1967, og eru Fiat 1500, Hill-
man Hunter Renault 16,
Volksvagec 1600 og Volvo
Amazon.
Eins og sjá má af þessari
upptalningu, er hér um að
ræða glæsilegasta bílahapp-
drætti, sem efnt hefur verið
til hérlendis. Verð happdrætt
ismiðans er aðeins 100 krón-
ur, eða óbreytt frá fyrri lands
happdrættum, enda þótt
flokkurinn hafi aldrei gengizt
fyrir jafn viðamiklu happ-
drætti og nú. Dregið verður
í happdrættinu hinn 23. maí.
Útscnding miða til stuðn-
ingsmanna og velunnara Sjálf-
stæðisflokksins er þegar hafin.
Auk þess munu miðar verða
seldir í happdrættisbílnum í
Miðbænum, svo og í skrifstofu
flokksins við Austurvöll. Hér
er um landshappdrætti að
ræða, eins og fyrr segir, og
verða miðar seldir um allt
Iand.
Mikið ríður á, að happ-
drættið fái góðar móttökur
hjá stuðningsmönnum flokks-
ins, því að fé það, sem aflað
verður með landshappdrætti
þessu, mun renna til þess að
Sjálfstæðisflokkurinn geti
áfram barizt fyrir þeirri
stefnu, sem þegar hefur ver-
ið mörkuð, og fylgt hefur
meiri farsæld og framfarir en
dæmi er áður til í sögu lands-
ins.
Landshappdrætti Sjálfstæð
isflokksins er fylgt úr hlaði
með svohljóðandi bréfi frá
miðstjórn flokksins:
„Framundan eru alþingis-
kosningar. Ríkisstjórnin hefir
nú setið að völdum samfleytt
Framh. á bls. 8.