Morgunblaðið - 13.04.1967, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1967.
'N
BILALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
Bensín innifalið í leigugjaldi.
SENDUM
MAGNÚSAR
SKIPHOITI 21 SÍMAR 21190
eftir lokun sími 40381
Hverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
LITLA
bílaleigon
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið í ieigugjaldi
Sími 14970
BÍLALEIGAIM
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36211.
SPftllll TÍMA
IG FYRiBflOFN
f-f==>BnAl£IGAri
ipÆ&mspy
BAUOARARSTÍG 31 SÍIVII 22022
Fjaðrir, fjaðrablöð. hljóðkútar
púströr o.fl varahintir
i margar gerðir bifreiða
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Suni 24188.
PILTAR,
er B!D E'CT L'MÍUSTCHA f
ÞA A É5 HflPNffANfl / f//~ / i
d— ........-t----/// / V
fá&r/a/?fom//WPÍo/}k {y
, /fiji&rraer/ S \ ■ -ta V"~~
K R. Knattspyrnudeild
Hópterbab'ilar
allar stærðlr
^örr
siM/,a
Símai 37400 og 34301.
CÓLFTBPPI
WILTOH
TEPPADRBCLAK
TBPPALACNIR
BFTIR MÁLI
Laugavegi 31 - Simi 11822.
Til Þingvalla
Bíleigandi skrifar:
„Um helgina ók ég í góða
veðrinu suður með sjó, því að
Keflavíkurvegurinn er eini
ökufæri vegurinn í nágrenni
höfuðstaðarins. Mér varð ljóst,
að ég var ekki sá eini, sem var
þessarar skoðunar, því mikil
umferð var .á veginum — og
allt sýndist mér þetta vera'
fólk, sem farið hafði út í sunnu
dagsökuferð til þess að athuga
hvort vorið væri í rauninni
komið.
Ef álíka vegir lægju austur
fyrir fjall hefðu þeir sjálfsagt
verið fjölfarnir þessa helgi. En
þeir fáu sem þar voru á ferð,
óku í svaðinu, eins og allir
vita.
Mikið eru Þingvellir oft fall-
egir í vorin og á haustin. Per-
sónulega finnst mér fegurðin
meiri þá en um mitt sumar. Þar
getur líka venð mjög tilkomu-
mikið og fágurt Um að litast að
vetrinum. En þangað er ekki
hægt að komast nema yfir blá-
sumarið Vegurmn er ófær fyr-
ir litla bíla.
Ef uppbyggður og sæmilega
sléttur vegur lægi til Þinig-
valla væri sennilega hægt að
reka þar veitingahús allan árs-
ins hring. Bílarnir eru orðnir
það margir héi í borg — og
löngun manna það mikil til
þess aO fara » ökuferð með
fjölskylduna, einkum um helg-
ar, að tii Þingvalia væri stöðug
ur straumur allan ársins hring,
ef þangað væri hægt að komast
með góðu móti“.
Heimilisbíllinn
Kona skrifar:
,,Það hryggir mig Velvakandi
hve bitrar konur eru út í karl-
mennina þegar um blessaðan
heimilisbílinn er að ræða. Svo
eru konur og karlmenn alltaf
að jagast um hvort kynið sé
verra í umferðinni eða betra.
Svona til tilbreytingar þá ætla
ég að iofa þéi að fá bréf frá
einni (undirritaðri) sem er
ánægð bæði með karlmennina
og allt sem viðvíkur heimils-
bílnum. Bílinn hef ég alla
daga, þar sem eiginmaðurinn
fer með öðrum bíl til vinnu.
Um helgar og á kvöldin eru
heldur engin vandamál. Hann
segir: viltu keyra (elskan), ég
svara: nei, keyr þú vinur, ég
keyrði í dag. Ekki finnst mér
nú heldur amalegt að vera
kvenmaður í umferðinni, oft
kemur fyrir að menn gefa bíln-
um mínum svokallaðan chance,
og hef ég þá ímyndað mér, að
það vær- af því að ég er kona.
Þess vegna brosi ég alltaf
breitt ) þakklætisskyni þá.
Það hljóta að vera margir sem
hafa sömu góðu reynsluna af
karlkyninu og ég, það heyrist
bara allt of lítið í þeim. Að lok
um legg ég til, að þeir karl-
menn sem eiga konur, sem
eru óánægðar með þá, að þeir
reyni að fara vel að þeim, og
láni þeim bílinn sem oftast.
Hver veit, að lokum berast ef
til vill eintóm lofsbréf um
þennan skemmtilegasta hlut
sem konunni er gefin, karl-
maðurinn.
Ein áhægð",
Ánægjulegt að heyra einu
sinni rödd úr eyðimörkinni.
Klæðaburður
skólaæskunnar
Síðasta emtakið af Æsk-
unni liggur hér á borðinu hjá
mér. Ég er búin að flétta þvi
pg Æskap er fjölbreytt og líí-
leg að vanda, enda orðin eitt
stærsta ef ekki stærsta tímarrt
ið á íslandi. Eitt af þvi, sem ég
las í blaðinu var þáttur um
klæðaburð skólaæskunnar.
Hann er eftir Andreu Odd-
steinsdóttur — og þar eru orð
í tíma töluð. Þetta er skynsam-
leg og þörf hugvekja, sem
bæði börn og fullorðnir ættu
að lesa.
Frú Andrea er þekkt fyrir
starf sitt af málefnum, sem
varða útlit og framkomu
kvenna — en ú^ herbúðum
þeirra hef ég ardrei heyrt jafn-
skynsamlegt og raunsætt mat
á tízkuæðinu og fram kemur í
þessari grein. Vona ég að höf-
undur sé því ékki mötfallinn að
ég birti greinina hér, því þetta
mál varðar í rauninni alla, eins
og ég sagði áður. Fyrir nokkr-
um árum skarst svolítið í odda
með okkur hér í dálkunum, en
fyrir þessa grein þakka ég
frúnni og vona að hún skrifi
meira aí slíku. Og hér kemur
greinin:
„í þessum pistli ætla ég að
ræða vlð ykkur um klæðaburð
æskufólks, auraráð þess og
eyðslusemi, sem jaðrar á stund
um við hreina óráðsíu og taum-
laust bruðl.
Engum blandast huigur um,
að meginþorri unglinga sé
heimtufrekur og kröfuharður
við foreldra sína, þegar um
fatakaup er að ræða. Ég þykist
vita að sumir foreldrar sýni
börnum sínum helzti mikla lin-
kind í þessum efnum. Til að
losna við hvimieitt kvabb og
betl í börnum sínum þá kaupa
þeir sér stundarfrið. Sögnin
„kaupa' er notuð hér í sinni
eiginlegustu merkingu, en mér
er spurn hvort þessi friður sé
ekki keyptur of dýru verði.
Það skal fúslega viðurkennt,
að aldrei fyrr hafa jafn margar
freistingar legið á vegi unglinga
eins og á vorum dögum og
þeim fer því miður alltaf sí-
fjölgandi Fyrir nokkrum ár-
um gerðist það í heimi fata-
framleiðslunnar, að gírugir
forkólfar hennar ásamt tízku-
teiknurum sínum gerðu þá
merkilegu uppgötvun, að æsku
fólk væri í rauninni vanrækt
og klæðnaður, sem var á boð-
stólunum handa þvi, værl
hvort tveggja í senn ósmekk-
legur og einhæfur. Úr þessu
ófremdarástandi var nauðsyn-
legt að bæta og það sem fyrst.
Nú var ekki beðið boðanna,
heldur hafizt handa af miklu
kappi, en lítilli forsjiá. Hér var
fundin sú gróðalind, sem seint
mundi þrjóta. Hér var fundina
sá akur sem seint mundi full-
plægður
Fyrirhyggjulitlir unglingar
og áhriiagjarnir voru heldur
ekki lengi að bíta á agnið, sem
er ofur eðlilegt. Öll áróður-
tæki, sem tiltæk voru, voru sett
í fullan gang. Ungiingarnir eru
fyrir löngu orðnir spilltir af
dekri og fagurgala áróðurs-
hananna í tízkublöðunum,
sem gefin eru út í milljónatall
í stórborgum heims. fslenzkir
unglingar hafa því miður ekki
farið varhluta af þessari
óheillavænlegu þróun.
Til marks um það sakar ekki
að geta þess hér, að hópur tán-
inga skrapp til London í haust
til þess að vera vel fataður
fyrir skólagönguna.
Ég veit satt að segja ekki tfl
hvaða ráðs á að grípa til a8
lækna æskuna af þessu tryllta
fataæði hennar. Eina læknis-
ráðið, sem mundi duga væri
að fyrirskipa skólabúning".
VU HINNA VANDLÁTU
1
SÍMl 3-8S-85 I
SuSurfondsbrowt 10 Igegnt Iþfóttohöfl) srmi 38585
SKORRI H.F
Hús við Laugarveg
Til sölu eru 3 hús, á 500 ferm. eignarlóð
við neðanverðan Laugaveg að sunnan-
verðu. í þessum húsum eru m.a. 2 verzl-
anir. Nánari upplýsingar fengnar á skrif-
stofunni (ekki í síma).
Fasteígnabiónustan
Austurstræti 17, 3. hæð.
Ragnar Tómasson hdl., Stefán J. Richter
sölumaður.
KR. 2550.-
Aðeins 2.550.— og þér fáið vand-
aðan harðviðarstól í þeim ht,
sem þér óskið eftir.
Rósótt creton í setn