Morgunblaðið - 13.04.1967, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.04.1967, Blaðsíða 11
■ V.f: ' r-. í : . n ' i'.:i í <'*■ 'i/'. Qj MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRIL 1967. jj \ ÍEl 0 rvi m Gli IRI KV El NN h ÚTGEFANDI: LANDSSAMBAND SJÁLFST ÆÐISKVENNA 1 H RITSTJÖRAR: ANNA BORG OG ANNA BJARNASON ■ . ' ' „V Konurnar eru helmingur kjósenda Frá fundum Sjáltstœðiskvenna á Selfossi AÐ undanförnu hafa konur á vegum Landssambands Sjálf- stæðiskvenna heimsótt Sjálf- stæðiskvennafélög úti um land og eru hér fréttir af þrem slíkum fundum, tveim á Selfossi og einum á Akra- nesL f síðasta mánuði var haldinn aðalfundur Sjálf- stæðiskvennafélags Árnessýslu á SelfossL Þrátt fyrir ilit veður og þunga færð voru margar kon- ur mættar á fundinum. Auk venjulegra aðalfundarstarfa átti að flytja tvö erindi, en gestir fundarins voru þau frú Ragn- hildur Helgadóttir og Grímur Jósafatsson kaupfélagsstjóri — Er skýrslur um starfsemi s.l. árs höfðu verið fluttar fóru fram umræður og síðan var gengið tii atjórnarkjörs. En stjórn þessa fé- lags er nokkuð fjölmenn, alls eiga 15 konur sæti í stjórninni og er sá háttur hafður, vegna víð áttu félagssvæðisins. Formaður félagsins var kjörin frú Hugborg Benediktsdóttir, Selfossi, en aðrar stjórnarkonur eru: Svava Kjartansdóttir, Sel- fossL ritarL Bergljót Snorradótt- ir, Kjartansstöðum, Flóa, gjald- keri og meðstjórnendur þær: Alma Ásbjörnsdóttir, Hruna, Inga Karlsdóttir, Hveragerði, Pálína Pálsdóttir, Eyrarbakka, Emma Guðnadóttir, Skeiða- hreppL Sigurlaug Guðmunds- dóttir, Hveragerði, Áslaug Jóns- dóttir, StokkseyrL Stefanía Giss- urardóttir, SelfossL Guðríður Gunnlaugsdóttir, HveragerðL Jónína Einarsdóttir, HveragerðL Guðrún Magnúsdóttir, Ölfusi, Ólöf Guðmundsdóttir, Selfossi og Guðrún Lúðvíksdóttir, Kvist- um. Erindi frú Ragnhildar. Frú Ragnhildur hóf mál sitt á því að þakka fyrir boðið á fund- inn. Óskaði hún hinni nýkjörnu stjórn félagsins heilla. Þá þakk- aði hún fráfarandi stjórn og sér- staklega formannL frú Guðrúnu Lúðvíksdóttur starf innan Lands- sambands sjálfstæðiskvenna, en frú Guðrún á sæti í stjórn þess. Ræddi Ragnhildur m.a. um gildi starfs sjálfstæðiskvenna almennt. Sagði hún, að hið öfluga félag þeirra aUstan fjalls væri einmitt sönnun þess, að starfskraftar sjálfstæðiskvenna leystust enn betur úr læðingL er þær hefðu stofnað með sér félög. Minnti hún á, hvílík áhrif konurnar, fullur helmingur kjósenda gætu haft á stjórn lands síns, ef þær vildu. Unga fólkið hefur ekki gleymt. Þá tók til máls Grímur Jósa- fatsson kaupfélagsstjóri á Sel- fossL. sem sæti á á framboðslista flokksins í Suðurlandskjördæmi. Hélt hann greinargott erindi og sagði m.a.: Það má minna á, að síð- an núverandi ríkisstjórn tók við völdum í landinu hefur stöðugt verið unnið að auknu viðskipta- frelsi í landinu. Vöruúrval er nú meira en nokkru sinni fyrr og fólk hefur aldrei haft betra tæki færi til þess að gera innkaup eftir eigin val.“ „Og í vor verður kosið um, hvort hér eigi að ríkja hinn gamli svartsýnisandi, sem nú hefur verið gerður útlægur um Frú Ragnhildur sinn eða hvort áfram megi ríkja sá andi frjálslyndis og víðsýnis, sem við höfum kynnst síðustu ár- in. „Við karlmennirnir mættu gjarnan minnast þess oftar en við gerum að kvenfölkið er nær helmingur allra kjósenda hér á Suðurlandi. Og við viljum að sjálfsögðu trúa því að „betri helmingurinn" vinni af sínum al- kunna dugnaðL hér eftir, sem hingað til. Við viljum trúa þvl að „betri helmingurinn" muni ekki bregðast.“ FYRIR skömmu var annar fund- ur haldinn á Selfossi í Sjálf- stæðiskvennafélagi Arnessýslu. Var hann mjög vel sóttur. Gest- ir fundarins voru frú Geirþrúð- ur Bernhöft og Steinþór Gests- son á Hæli, frambjóðandi Sjálf- stæðisflokksins í Suðurlands- kjördæmi. I ræðu sinni komst frú Geir- þrúður m.a. svo að orði: „Engin húsmóðir • myndi láfa sér detta í hug, að sama væri, hver stjórn aði heimili hennar. Hún veit, að hagsæld heimilisins byggist ekki sízt á því, að allur heimilisrekst- urinn sé hagkvæmur, — og þar ríki réttiæti og hagsýni undir öryggrL einhuga og samhentri stjórn. — Hún veit, að fjölskyld- an þarf að standa saman, — það er höfuðnauðsyn. — Það er ekk- ert heimili, sem hýsa vill sundr- ung og ósamlyndi. En konan veit einnig, að hag- ur heimilisins er háður afkomu þjóðarinnar í heild. — Hagur heimilisins er háður því, hvort næg vinna er í landinu, — háð- ur því, — að starfskilyrði séu sem bezt, — háður því að sér- hver þjóðfélagsþegn beri sem mest úr býtum fyrir vinnu sína. Það þarf að taka fullt tillit til allra sfétta þjóðfélagsins, — til þess að skapa öllum almenningi örugga afkomu. En til þess að það fáist þarf að velja þá full- Frú Geirþrúður trúa til forystu, — sem gera sér fuila grein fyrir höfuðnauðsyn þess, að gerðar séu sömu kröfur til landsstjórnarinnar og heimilis ins —■ við viljum ekki hýsa sundrung og ósamlyndi". I lok ræðu sinraar sagði frú Geirþrúður: „Við göngum nú mót hækkandi sól, það ætti að vera markmið okkar að gera það í fleiri en einum skilningi. Við eigum að miða að því og vinna að því að Sjálfstæðisflokkurinn fái meirihluta allra greiddra at- kvæða í væntanlegum kosning- um. Þá tryggjum við landi okkar á næsta kjörtímabili einhuga, sterka og samhenta stjórn, sem vinnur að málefnum þjóðarinn- ar með hagsmuni allra stétta fyr ir augum".' Steinþór Gestsson á Hæli flutti síðan snjalla hvatningar- ræðu til kvennanna, þar sem hann hvatti til einhuga baráttu fyrir sigri flokksins við alþingis kosningarnar I vor. Landssambandsþing Sjálfstæöiskvenna HeilbrigðismáB aðalmál þingsins Landssambandsþing sjálfstæbiskvenna verður halaið i Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll miðvikudaginn 19. april, (siðasta vetrardag) og hefst klukkan 10 árdegis Að þessu sinni verður auk venjulegra þingstarfa tekið til umræðu eitt aðal- málefni, sem konur láta sig miklu varða, heilbrigðismálin. Munu sérfróðir aðilar á því sviði flytja erindi á þinginu, læknarnir frú Alma Þórarinsson og frú Ragnheiður Guðmundsdóttir, auk heilbrigðismálaráðherra, Jóhanns Hafstein. Umræðunum stjórnar frú Auður Auðuns alþingismaður. Vakin er athygli þeirra sjálfstæðiskvenna, sem verða fulltrúar á þinginu, að sækja þyrfti skilríki á skrifstofu f iokksins í Sjálfstæðishúsinu uppi fyrir kl. 6 hinn 18. apríl. Ragnheiður Guðmundsdóttir Jóhann Hafstein Alma Þórarinsson Dagskrá þingsins irerður sem hér segir: Kl. 10.00 Þingsetning. Ragnhildur Helgadóttir, formaður Landssambahdsins. Ávarp formanns Sjálfstæðisflokksins Bjama Benediktssonar, forsætisráðh. Kosning uppstillingamefndar. Skýrsla stjómar Landssambandsins. Skýrslur einstakra sambandsfélaga. Umræður. Kl. 12.15 Fundarhlé. Hádegisverður framreidd- ur í Sjálfstæðishúsinu fyrir þær, sem þess óska. KL 1.30 Heilbrigðismál. Erindi flytja: Jóhann Hafstein, heilbrigðismálaráð- herra. Alma Þórarinsson, læknir. Ragnheiður Guðmundsdóttir, læknir. Umræður. KL 4.00 Síðdegiskaffi í boði varaformanns Sjálfstæðisflokksins, Jóhanns Haf- steins, heilbrigðismálaráðherra. Kl. 5.30 Framhald fundarstarfa. St j ómarkosning. Þingslit.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.