Morgunblaðið - 13.04.1967, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.04.1967, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1967. VETTVANGUR KVENNA UTGEFANDI: LANDSSAMBAND SJÁLFST ÆÐISKVENNA RITSTJÖRAR: ANNA BORG OG ANNA BJARNASON Unga kynslóöin erfir betra Island en nokkur önnur kynslóð hefur gert - sagði Jóhann Hafstcin ráð- herra í ræðu á Hvatarfundi S.L. mánudagskvöld efndi Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt til fundar í Sigtúni. Á fundin- um flutti dóms- og kirkjumála ráðherra, Jóhann Hafstein ræðu er m.a. fjallaði um það „Hvað naestu kosningar snúast um“ og um viðhorfin til kosninganna. Þá voru lesnar upp tillögur til lagabreytinga, kosnir fulltrúar á þing Landssambands Sjálf- stæðiskvenna og loks voru bornar fram kaffiveitingar og þvínæst voru skemmtiatriði en fjórar ung ar systur Þorgerður, Vilborg, Unnur María og Ingibjörg Rós Ingólfsdætur skemmtu fundar- konum með söng og hljóðfæra- leik við feiknalega góðar undir- tektir fundarkvenna. Fundarsókn var mjög góð og var gerður mjög góður rómur að erindi ráðherrans og verður hér eftir reynt að gera les- endum síðunnar nokkra grein fyrir máli ráðherrans. í upphafi máls síns vék ráð- herrann að því nokkrum orðum hve Framsóknarmönnum væri orðið brátt að komast aftur í stjórn eftir 8 ára hlé og hvort einhverjar líkur væru til þess að þeim mætti takast það. Taldi hann að svo væri ekki, þar eð landsmenn ,myndu sporin", of vel eftir hrakstjórnina sem var í stjórnartíð .vinstri stjórnarinn ar.“ — En til er þó fólk, sem e.t.v. man ekki þessar hrakfar- ir nægilega vel, en það er unga fólkið, sem nú gengur til kosn- inga fyrsta sinni, en að þessu Frú Jakobina Mathiesen Tar kjörin formaður í 25. sinn. sinni eru nýir kjósendur sam- tals 20 þúsund. Mætti þó vafa- laust treysta því að þetta unga fólk myndi aðhyllast stefnu framfara og viðreisnar, sem ein kennt hefur stjórnarstefnu Sjálfstæðismanna undanfarin ár. Þá gat ráðherra þess, að er stjórn hefur setið tvö kjörtíma- bil, sem raunar væri algjört eins dæmi, væri hún dæmd eftir verkum sínum og kvað hann rík isstjórnina óhrædda við að vera dæmda eftir verkum sínum. Sl. 8 ár hefur þjóðarauður Is- lendinga aukist meir en nokkru sinni fyrr, eða um 50%, Tæki og mannvirki atvinnuveganna væru nú 60% meiri en árið 1958. Talað hefur verið um skuldaukningu erlendis og er að vísu rétt að skuldaaukning hef- ur verið um 900 milljónir, en það er þó ekki nema 5% af aukningu þjóðareignarinnar á sama tíma. En núna eigum við líka gjald eyrisvarasjóð, í fyrsta sinn síð- an í styrjaldarlok, og nemur sjóðurinn um 2000 millj. kr. Er það mjög nauðsynlegt, til þess að mæta ýmiss konar vanda og erfiðleikum, svo sem aflabresti verðfalli erlendis á útflutnings- vörum okkar o.s.frv. Bæri að minnast þess að er vinstri stjórnin fór frá var eng- inn gjaldeyrir til og þjóðin að fara í greiðsluþrot við útlönd. Þá hefur þjóðarframleiðslan aukist hér meir á undanförnum kjörtímabilum en nokkurs stað ar. Á árunum 1961-’65 var auki- ingin 5,4% og var þá Japan eitt landa í heiminum sem hafði meiri aukningu. Þegar athuguð er þjóðarfram leiðsla á hvern einstakling, skv. upplýsingum Efnahags- og fram farastofnunarinnar, er ísland 3ja í röðinni, næst á eftir Banda ríkjunum og Svíþjóð, sem eru með auðugustu ríkjum heims. Heildarþjóðarframleiðslan hef- ur aukizt um 33%, en tekju- aukningin á einstaklinginn í launastéttunum hefur verið 54%. Leitast hefur verið við að rétta hlut hinna lægst launuðu og voru 1961 sett lög um launa- jöfnuð karla og kvenna. Árið 1966-’67 hækka laun kvenna til jafns við karla, en áður var um Aðalfunour Vorboðans Fyrir nokkru var haldinn aðal fundur Sjálfstæðiskvennafélags- ins Vorboðans í Hafnarfirði. Auk annarra aðalfundarstarfa fór fram stjórnarkosning, og var frú Jakobína Mathiesen endurkosin formaður í 25. skipti. Aðrar með Ihenni í stjórninni eru: Laufey Jakobsdottir, vaiaformaður, Sig- rún Mathiesen ritari, María Ólafsdóttir, gjaldkeri. Meðstjórn endur eru Helga Guðmundsdótt- ir, Elín Jósefsdóttir og Frið- rika Eyjólfsdóttir. í varastjórn eru þessar konur: Herdís Guð- mundsdóttir, Sólveig Eyjólfsdótt ir, Ásthildur Magnúsdóttir, Anna Elíasdóttir. Félagið á 30 ára afmæli I næsta mánuði og hyggst minnast þess á veglegan hátt. Verður síð- ar nánar getið um afmælið hér á síðunni. Starfsemi Vorboðans hefur verið með miklum blóma í vet- ur eins og undanfarin ár og héldu þær Vorboðakonur nýlega glæsilegan fund, þar sem tveir efstu menn á lista Sjálfstæðis- flokksins í Reykjaneskjördæmi Matthías Mathiesen og Pét.ur Benediktsson héldu ræður. Þá héldu frú Jóhanna Sigurðardótt- ir, sem einnig á sæti á listanum og Jóhann Petersen, formaður skipulagsnefndar kjördæmisins, ræður. Síðan tóku margar félags konur til máls á fundinum. 21% iágmarksmunur á launum karla og kvenna. Atvinna hefur verið næg hjá okkur undanfarið, m.a.s. svo að skortur hefur verið á vinnuafli á viðreisnartímabilinu. Hér hef ur verið mikið vöruúrval og framkvæmdir í stað vöruskorts, svartamarkaðsbraks og stöðnun ar. landsins 5530 bifreiðir og voru þá 31 þúsund einkabílar í notk- un. Aðeins 5 ríki hafa hlutfalls- lega fleiri símatæki en íslend- ingar, og eru þau nú 57% fleiri en í árslok 1959. Um 14 þús. sjónvarpstæki eru nú í notkun í landinu, þó hér sé enn tilrauna sjónvarp og eru það einnig hlut fallsiega fleiri tæki en í mörg- arflokksins hélt Eysteinn Jóns- son ræðu, þar sem hann m.a. varpaði fram þessari spurningU: „Hvert hefur þjóðarauðurinn farið?" Svarið er: hann hefur m.a. annars farið til þess að bæta lífskjör fólksins í landinu og fyrst og fremst til þess að hyggja upp atvinnuvegina. Stór iðja hefur haldið innreið sína í landið, þar sem virkjuð verða 210 þúsund kilowött í einni lotu, álbræðsla, sem er ný iðngrein, er að rísa af grunni, og geta má þess, að samningur við ál- bræðoluna um rafmagnskaup borgar alla vexti og afborgan- ir af lánum Búrfellsvirkjunar- innar. Við Mývatn er að rísa lítið iðnaðarþorp í sambandi við kís- ilgúrvinnslu úr vatninu, og á Stórvirkjunin við Búrfell mun leggja grundvöll að enn betri lífskjörum íslenzku þjóðarinnar. Tollalækkanir hafa verið framkvæmdar á vörum, sem nu eru taldar nauðsyniegar en voru áður I svo liáum tollaflokki, að þær fiokkuðust undir munaðar vöi u. Ef litið er á einkaneyzluna i þjóðfélaginu sézt að hér ríkir mikil veimeg'.m og skv. skýrsl- um Efr.ahags og framfarastofn- unarinnar er aðeins í einu ríki heims meiri einkaneyzla en hér á landi. Á árinu 1966 voru fluttar til um ríkjum, sem hafa haft sjón- varp lengur en við. Árið 1959 ferðuðust 10 þús- und Islendingar til útlanda, en á sl. ári fóru 23 þúsundir, eða sem svarar til þess að 11. eða 12. hver íslendingur hafi farið ut- an. Engin þjóð hegðar sér svona, nema sú þjóð, sem hefur efn- ast vel og hefur það gott. Er þetta góður vitnisburður um það, sem hér hefur verið að ger- ast á sl. átta árum. Á nýafstöðnu þingi Framsókn Húsavík er verið að reisa stór geymsluhús fyrir framleiðsluna. í aiiar þessar framkvæmdir er hægt að ráðast vegna þess, að við höfum endurheimt láns- traust þjóðarinnar út á við. Er sannarlega ástæða til þess að líta björtum augum á fram- tíðina ef íslendingar fá enn að njót.a traustrar stjórnar Sjálf- stæðismanna. Unga kynslóðin á íslandi í dag erfir betra ísland en nokkur önnur kynslóð hefur gert, sagði ráðherrann að Íokum. Skipbrot vinstrj arinnar er ekki Frá fundi Sjálfstœðiskvenna á Akranesi FYRIR nokkru var haldinn fjöl- mennur fundur í Sjálfstæðis- kvennafélagi Akraness. Kosnir voru fulltrúar á þing Landssam- bands Sjálfstæðiskvenna og sömuleiðis á Landsfund Sjálf- stæðisflokksins. Gestur fundarms var frú Auð- ur Auðuns og flutti hún greinar- góða ræðu sem fundarkonur gerðu góðan róm að. í upphaii rœðu sinnar bar frú Auður fund arkonum kveðjur stjórnar Lands sambands Sjálfstæðiskvenna. Skýrði hún frá fjölgun félaga innan vébanda sambandsins og sagði að það bæri gleðilegan vott um vaxandi hlut kvenna í stjórnmálastarfinu. Vék hún m.a. að unga fólkinu, hinum stóra hópi ungra kjósenda sem hefur fengið kosningarrétt síðan viðreisnarstjórnin settist að völdum. Minntist frúin á skip- Frú Auður Auðuns brot vinstri stjórnarinnar og allan hennar feril, sem íull ástæða væri til að gera unga fólkinu g.ein fyrir, þar sem það stjórn- gleymt var of ungt á þ .im tíma til þess að gera sér nægilega grein fyrir hversu slæmt ástandið var. Gat hún nokkuð um stjórnarferil viðreisnarstjórnarinnar, og áróð ur andstæðinga okkar, ályktan’.r, sem gerðar voru á þingi Frarn- sóknarmanna og furðulegar staðhæfingar stjórnarandstæð- inga. Að lokum lét frú Auður i íjós ósk um, að flokkur okkar, mætti vegna góðrar málefnaaðstöðu, líta björtum augum til framtíð- arinnar. Stjórn Sjálfstæðiskvennafélags Akraness skipa þessar konur: frá Ragnheiður Þórðardóttir íor- maður, Fríðá Proppé gjaldkeri, Helena Halldórsdóttir ritari og meðstjórnendur, Sigríður Auð- uns og Valgerður Sigurðardótt- ir. í varastjórn eru Stefanía Sigurðardóttir og Svana Þor- geirsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.