Morgunblaðið - 13.04.1967, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1967.
23
Bréf um togaraútgerðina
í ÞÆTTESTUM „Úr verinu"
eftir Einar SigurSsson sunnudag-
inn 2. apríl er kafli með yfir-
skriftinni: Aflahæsta skip Breta.
Þar segir að aflahæsta skip
Breta 1966 sé skuttogarinn
Sommerset Maugham. Þarna
langar mig til að leiðrétta og
um leið að upplýsa að Somm-
erset Maugham er síðutogari en
ekki skuttogari. (Hefur áður kom
ið fram hér í Mbl í aths. FÍB —
ritstj.).
Brezkir síðutogarar (úthafs-
togarar), sem fiska ísvarinn fisk,
hafa á undanförnum árum keppt
um verðlaunagrip, sem nefnist
Silfur-þorskurinn og hefur áður
nefnt skip hlotið þennan grip
fyrir siðastliðið ár. Við afhend-
ingu er opinberlega getið um
afKamagn og verðmæti hæstu
síðutogaranna, er veiða í ís yfir
árið. Undanskildir þessari keppni
eru allir brezkir skuttogarar um
20 talsins, en það byggist ein-
göngu á því hve yfirburðir þeirra
eru algerir framyfir síðutogar-
ana, þar kemur samanburður eða
samkeppni ekki til greina .011
stóru brezku útgerðarfélögin eru
nú sem óðast að endurnýja og
endurbyggja togaraflota sinn og
fiskiðnað í samræmi við kröf-
ur tímans og spara ekkert til að
ná sem beztum árangri í þeim
greinum, Aðaluppistaðan er heil
frystinghráefnisins um borð í
skuttogurum á fiskimiðunum.
Síðan er það flutt til heimahafn
ar til fullrar vinnslu í nýtízku
frystihúsum. Allar fiskveiðiþjóð-
ir aðrar en við fslendingar eru
búnar að taka ákveðna stefnu í
þessum málum, en uppistaðan
hjá þeim flestum eru skuttogarax
af mörgum stærðum og gerðum
en hjá öllum sameiginlegt að
frysta aflann um borð hvort held
ur hann er flakaður, pakkaður
og fullfrágenginn eða heilfryst-
ur. Þær þjóðir, er eingöngu hafa
stundað saltfiskveiðar um ára-
raðir, en þar á ég við þjóðir
eins og Frakka, Spánverja og
Fortugala, eru nú sem óðast að
endurbyggja sína gömlu togara
og byggja nýja stóra úthafs skut-
togara með öllum nýjustu tækj-
um og vélum, og fara inná að
flaka heilfrysta og salta aflann
uin borð. Af þessu má sjá að
allar þessar þjóðir eru búnar að
taka ákveðna stefnu í þessum
miálum á meðan aðhefjumst við
ekkert nema tala um hve alvar-
lega horfi fyrir okkur í þessum
málum, og fremstir í flokki eru
hinir gömlu framtaksmenn í
sjávarútvegsmálum um áraraðir.
Enginn af þessum mönnum fylg
ist lengur með hvað er að ske
hjá nágrannaþjóðum okkar eða
vilja ekki sjá það, heldur að
halda í það gamla og úrelta, sem
enga framtíð á fyrir sér lengur.
Hér þurfa að koma til yngri
menn og taka að sér það hlut-
verk að byggja upp. Að öðrum
kosti skulum við ekkert vera að
hafa neinar áhyggjur af togara-
útgerð og frystihúsaiðnaði í ná-
inni framtíð.
Með þökk fyrir birtinguna.
Loftur Júliusson.
BÍLAR
Höfum til sölu notaða bíla.
Hagstæð kjör. Skipti möguleg.
Þar á meðal:
Rambler American
'65
Rambler Classic
‘63 ‘64 ‘65
Skoda Station '65
Taunus 17M '65
Willys jeppi '64
Opel Rekord ‘64
Opel Caravan ‘64
Simca Ariane '64
Rambler-umboðið
Jón Loftsson hf.
Chrysler-umboðið
Vökull hf.
Hringbraut 121.
Sími 10600 og 10606.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
H. BENEDIKTSSON, H F.
Suöurlandsbraut 4
Sumarnámskeið
Áreiðanleg manneskja óskast til starfa fyrir okkur
í skólum í Exter, Southampton, og Romsey. Góð
laun.
International Hospitality Romsey, Hampshire,
England.
Enskunám í Englandi
Nú eru að verða síðustu forvöð að sækja um sum-
arskóla í Englandi næsta sumar á vegum Scanbrit.
Góðir skólar, úrvals heimili, leiðsögumaður báðar
leiðir, hagstætt verð. Upplýsingar gefur Sölvi Ey~
steinsson, Kvisthaga 3, Reykjavík, sími 14029.
Endurbætur á
Ólafsvalla-
kirkju
AÐ undanförnu hefur staðið
yfir gagngerð viðgerð og endur-
bætur á Ólafsvallakirkju, og er
endurvígsla hennar áformuð í
vor.
Bjarni Pálsson, byggingafull-
trúi á Selfossi, teiknaði þæi
breytingar, sem gerðar hafa
verið á kirkjunni, en fram-
kvæmd verksins hefur með
höndum Guðmundur Sveinsson
byggiiigameistári á Selfossi.
Skreytingu kirkjunnar mun
annast Balthasar. Þetta hefur
reynzt mjög mikil vinna, kirkj-
an var farin að láta mjög á sjá,
byggð 1897. Hún stóð á hlöðn-
um grunni, núna var hann tais-
vert genginn úr skorðum og
hafði kirkjan missigið. Byrjað
var á því að lyfta henni upp og
steypa undir hana nýjan grunn.
Byggður var við hana nýr kór
og anddyrið stækkað. Uppgöng-
unni á loftið var breytt.
Þessi viðgerð verður mjög
kostnaðarsöm. Er verkið var
hafið átti kirkjan enga peninga
í sjóði. Til þess að mæta honum
hafa allir í söfnuðinum tvö und-
anfarin ár borgað 500.00 kr. auka
gjald, sýnilegt er að það muni
ekki hrökkva til.
Nú þegar hafa kirkjunni bor-
izt fjölmargar minningargjafir
sem renna skulu til viðgerðar-
innar, og aðrar hafa verið til-
kynntar.
Kvenfélag Skeiðahrepps hefur
ákveðið að gefa nýja bekki til
minningar um Guðbjörgu Kol-
beinsdóttur húsfreyju á Vota-
mýri, sem var formaður félags-
ins um áratugi, litað gler í
gluggana hefur það einnig gefið.
í tilefni af viðgerðinni hafa
kirkjunni borizt margar höfð-
inglegar gjafir frá einstökum
vinum og velunnurum hennar.
Guðbjörg og Guðni Eiríksson
á Votamýri gáfu til minningar
um son sinn Tryggva Karl.
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Bjarnarstíg 6 Reykjavík til minn
ingar um foreldra sína.
Kristín og Guðmundur Magn-
ússon á Blesastöðum til minn-
ingar um foreldra þeirra.
Jóhanna og Jón Eiríksson í
Skeiðháholti til minningar um
fósturforeldra Jóns.
Eyjólfur Gestsson á Húsatóft-
um til minningax um konu.
Fjölskyldurnar á Blesastöðum,
Skeiðháholti og- Krlstófer Ingi-
mundarson og fjötskylda á Graf
arbakka gáfu til minningar um
Bjarna Þorbjörnsson.
Ennfremur hafa kirkjunni
borizt gjafir frá Ingibjörgu
Kristinsdóttur á Hlemmiskeiði.
Rögnu Eiríksdóttur Barma-
hlíð 51 Reykjavík og Ingveldi
Magnúsdóttur Vorsabæ.
Sóknarnefndin hefur ákveðið
að kaupa sérstaka bók sem allar
gjafir til kirkjunnar verði færð-
ar inn í. Skuli skrá í hana nöfn
gefendanna og. nöfn þeirra, sem
gjöfin er tengd. Óski gefendui!
eftir þVí, þá verða helztu ævi-
atriði þeirra sem gjöfin er tengd
skrifuð í bókina.
Fyrir þessar höfðinglegu gjat-<
ir vill sóknarnefndin færa gef-
endum innilegar þakkir og bið-
ur þeim blessunar Guðs.
Sóknarnefnd
Ólafsvallakirkju.
Tókíó, 7. apríl — (AP) —
84 tonna japanskur fiski-
bátur fórst í óveðri við Jap-
ansstrendur í nótt. 15 manna
áhöfn var á bátnum, og hef-
ur aðeins tekizt að bjarga
tveimur þeirra. Átta lik fund
ust á björgunarfleka, ea
fimm er saknað.
GEFIÐ ÞESSA
HUGÞEKKU OG
FALLEGU BÓK
TIL
FERMINGA
GJAFA
ÚTGEFANDI
ÆSKULÝÐSNEFND
KIRKJUNNAR
k&M :«i
IS’l Ifffl
BJ B^ IPS
w f\ m
■J I \ 14
KAUPMANNASAMTÖK
ÍSLANDS
Félag söluturnaeigenda
Munið aðalfund félagsins í kvöld kl. 8,30
að Marargötu 2.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Skrifstofustúlka - gott tækifæri
Fyrirtæki í alþjóðaviðskiptum, vill ráða stúlku með góða vél-
ritunarkunnáttu og einhverja reynslu í almennum skrifstofu-
störfum. Gott kaup og hlunnindi í boði. Tækifæri fyrir þær
sem áhuga hafa á sjálfstæðu og fjölbreyttu starfi. Sendið um-
sóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf til afgr.
Mbl. merkt: „Sjálfstætt starf 2092.“
HEIIMDALLIJR
FES
KLÚBBFUNDUR
Næsti klúbbfundur Heimdallar verður laugardaginn 15. apríl og
hefst kl. 12.30 með borðhaldi í Tjarnarbúð (niðri).
Gestur fundarins verður Jóhann Hafstein, varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins, og talar hann um KOSNINGABARÁTTUNA OG
UNGA FÓLKIÐ.
Stjórnin.