Morgunblaðið - 13.04.1967, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1967.
UNDIR
VERND
eftir Maysie
Greig:
•B—n—»«—U—H—H—
— Halló, þér eruð þá- komin'
aftur, sagði ung karlmannsrödd,
og dró ofurlítið seiminn. — Vit-
ið þér. að þetta er í þriðja sinn
á fimm klukkutímum, sem ég
hef komið hingað?
7. kafli.
— Halló, sagði Paula veiklu-
lega. Sú mannvera. sem hún
hefði sízt viljað hitta á þessari
stundu, var Lancelot Fairgreav-
es.
— Marjorie er ekki heima,
sagði hún og bauð honum inn.
— Ætb maður viti það ekki?
sagði hann. — En hún var hérna
þegar ég kom í fyrsta skiptið og
sagði mér að líklega yrðuð þér
heima seinna. Ætlið þér ekki að
bjóða méi inn, eða finnst yður
ég kannski njóta mín vel, svona
hangandi í dyragættinni?
Hún gat ekki stillt sig um að
brosa.
— Já, hangandi er rétta orð-
ið. >ér eiuð afskaplega langur.
Ég hef oft furðað mig á því, að
þér skulið ekki reka yður i bit-
ana heima hjá henni mömmu
yðar.
— Eins og ég hafi ekki geri
það, stundi hann og bar ho.nd-
ina að enninu, eins og hann
fyndi sársauka. — í fyrsta sinn,
sem ég kom þangað, sagði
mamrna: — Er petta ekki yndis-
leg stofa Lance? Ég opnaði
munninr til að segja eitthvað, en
á næsta augnabhki lá ég flatur
á gólfinu og sá ekki annað en
stjörnur
— Eruð þér búinn að vera
lengi í London? spurði hún og
gekk á undan honum inn í setu-
stofuna.
— Lengi! æpti hann. — Hvað
eruð þér að hugsa, stúlka? Skilj-
ið þér ekki, að ef ég væri búinn
að vera lengi, væri ég búinn að
líta hér inn fyrir löngu. Ég sem
lít alltaf á yður eins og einskon-
ar skjólstæðing minn.
— Hvað? sagði hún.
— Skjólstæðing minn. Hann
stóð og sneri baki í arinhilluna
og kinkaði kolli. — Eruð þér það
kannski ekki? Lítið blóm, sem
ég sleit upp í hundleiðinlegu
sveitaþorpi og gróðursetti aftur
i þessari grimmu og illu borg.
Ef út í það er farið, var það ég,
sem útvegaði yður þessa at-
vinnu. Og þá vil ég auðvitað fá
að vita, hvernig gengur.
—Já, ég hef enn ekki þakkað
yður fyrir að benda henni Marj-
orie á mig, sagði hún, ofurlítið
feimnislega Það var fallega gert
af yður. Og ég kann ágætlega
við vinnuna.
— En þér kunnið ekki eins »el
við borgina. ef dæma má ef‘;r
tárunum á kinnunum á yðar.
sagði hann.
Hún kafroðnaði. Ekki gat
hann stillt sig um að nefna
þetta!
En þá breyttíst málrómurinn
njá honum Hann gekk tvö skref
í áttina til hennar. — Fyrir-
gefið, sagði hann. — Það er eins
og ég þurf; alltaf að tala af mér
þegar þér eruð annars vegar.
Fyrst um hann Wainwright og
svo um þessi tár. sem ég sá.
Ég veit ekki, hvort mig skortir
63ja ára reynsla Olympiaverksmiðjanna
tryggir gæði Olympia-rafritvélanna.
Verðið mjög hagstætt.
Ólafur Gíslason og kompaní
Ingólfsstræti 1A.
Sími 18370.
Vorið er komið
hjá Michelsen
Blómamold
Potta- og blómaker
Pottablóm í úrvali,
Vorlaukar margar gerðir,
Blóma- og matjurtafræ,
Afskorin blóm.
Blómaskreytingar við öll tækifæri unnar
af fagmanni.
Blóma- og gjafavöruverzlun
Michelsen Suburlandsbraut 10
Sími 31099, Reykjavík.
Blómaskáli Michelsen Hveragerð
bara háttvísi, eða hvort það er
einhver ónáttúra í mér, sem
kemur mér til að segja það sem
öðrum fcemur illa Og fjandinn
hafi það að einmitt þegar ég
ætla að fara að njóta þess, sem
ég hef sagt, þá fer ég að skamm-
ast mín fyrir það.
Paula svaraði honum ekki, af
því að hún vissi ekki, hvernig
þessu skyldi svara. Á þeim fáu
mínútum, sem þau höfðu verið
að tala saman var orðið aldimmt.
Hún seildist eftir slökkvaranum,
en mundi þá allt í einu eftir því,
að hún hlaut að líta hræðilega
út. Betra að fara fyrst inn í svefn
herbergið og laga sig ofurlítið
til.
— Ef þér viljið hafa mig afsak
aða nokkrar minútur? sagði hún.
— Verið þér ekki lengi, tók
hann fram í. — Ég er alveg að
drepast úr hungri og þá verð
ég að fá eitthvað í gogginn. Ég
hef ekki bragðað almennilegan
enskan mat, vikum saman. Ef
þjónninn færir mér einhverskon
ar sósu, sver ég, að ég skal
skvetta henni beint framan í
hann.
— Hvers vegna farið þér þá
ekki út og borðið?
— Það ætla ég að gera þegar
þér eruð ti’búin. en svo er aðal-
atriðið, hvar við eigum að
borða.
♦*« ♦t**t**5*
Hún stamaði: — Er það mein-
ingin að ég eigi að borða rneð
yður?
Hann sendi henni hálfgert
meðaumkunarbros.
— Þér eruð ekki sérlega gáfuð
í dag. Er það stórborgin, sem
sljóvgar svona skilningarvitin
hjá yður?
Hún var að því komin að af-
þakka boðið en hvaða afsökun
gat hún fundið sér til? Hann
vissi það alveg eins vel og hún
sjáli að hún ætlaði ekkert sér-
stakt að fara þetta kvöld. Og
svo var hún ekki einu sinni viss
um, að hún vildi afþakka boðið.
— Það er víst skárra að borða
með hverjum sem er en vera
ein á laugardagskvöldi, hugsaði
hún með sjálfri sér. gremjulega.
Þau borðuðu hjá Simpson i
Strand. Hann dtrakk bjór með
matnum og heimtaði, að hún
gerði slík1 hið sama.
— Það gefur yður ofurlítinn
lit í kinnarnar og hold á bein-
in, sagði hann. — Þér eruð eitt-
hvað lotleg í kvöld. rétt eins og
þér væruð búin að lifa of lengi
á soðnum eggjum og te.
— Marjorie segir mér, að þér
séuð ágætis aðstoðarstúlka,
hélt hann áfram, eftir litla þögn.
— Þér virðist gera mikla lukku
hjá henni á allan hátt.
Kanter’s
Tegund 3261.
Stærðir 62—86.
Litur hvítt.
I
^tkkabúðiH
Laugavegi 42. Sími 13662.
Allt í KANTER’S
á einum stað.
Paula roðnaði af ánægju.
— Nú, sagði hún það? Fegin
er ég. Ég kann ágætlega við vinn
una, og hún er líka ágæt að
vinna með.
— Já, hún er öndvegis kven-
maður, er það ekki? En alltof
góð í sér. en vitanlega kemur
það niður á henni en ekki okk-
ur. Hún er ein þessara, sem
hefðu átt að giftast og eignast
börn — fimmtán stykki eða
svo. Það er skrítið, en oft eru
það óheppilegustu konurnar,
sem giftast og eignast börn.
— Kannski eru nú ekki allar
eins æstar S að giftast og þér
haldið, sagði hún.
Hann sendi henni glott, sem
átti að vera djöfullegt, yfir borð
ið, með munninn fullan af
brauði. Þegar hann hafði kingt
nógu miklu af því til þess að
geta talað, sagði hann:
— Verið þér nú ekki svona
bjáni. barnið gott. Allar konur
eru æstar t að giftast, að því vit-
anlega tiiskildu, að þær hitti á
rétta manninn. Og sumar, hvort
sem þær hitta þann rétta eða
ekki! Hann skríkti. En jafn-
vel þær vandlátu eru æstar 1
að finna þann rétta og hjálpi
honum hamingjan, ef hann finn-
ur ekki strax, að hann er rétti
maðurinn! Ég veit, að stúlkur
eins og þér viljið ekki viður-
kenna það, en pið gangið meS
þá grillu að með því að viður-
kenna það ekki, getið þið haldið
ósvífnum náungum eins og mér
í skefjum Jæja, við skulum nú
vera kur.ningjar og þér játið
strax, að yður langi til að gift-
ast.
Hún hefði gjarna viljað neita
þessu. Er. hinsvegar vissi hún
innst í huga sínum, að hana lang
aði til að giftast Davíð Hankin,
því hún hafði um lítið annað
hugsað frá því hún hitti hann
fyrst.
— Kannski, viðurkenndi hún.
— Það er ágætt, sagði hann og
barði beinóttum hnefanum 1
borðið. — Nú er ofurlítil hreyf-
ing að komast á þetta. Þér viljiS
giftast og ég vil giftast. Það er
ekki svo bölvuð byrjun, ha?
Til fermingargjafa
RADIONETTE ÚTVÖRP OG ÚTVARPSFÓNAR.
AIWA SEGULBANDSTÆKI, margar gerðir
fyrir 220 volta straum og rafhlöður.
Verð frá 3.129.00.
TRANSISTOR ÚTVÖRP: Norsk, japönsk, frönsk
og ítöslk. Verð frá 1.150.00.
PLÖTUSPILARAR: Monarch, Aiwa og Denon.
Verð frá 1.700.00.
AIWA PLÖTUSPILARAR með útvörpum,
gerðir fyrir 220 volta straum og rafhlöður.
Verð 5.083.00.
RONSON — ISMET — A.D.A.X. og A.B.C.
HÁRÞURRKUR.
PAYER — LUX — REMINGTON — ARVIN og
OXFORD RAFMAGNSRAKVÉLAR.
PÓSTSENDUM.
Ratsjá hf.
Laugavegi 47, Reykjavík — Sími 11575.
Einbýlishús - Silfurtún
Til sölu einbýlishús á góðum stað í Silf-
urtúni, 5 svefnherbergi, stofa, bað, eld-
hús, þvottahús og geymsla. Bílskúr —
ræktuð og girt lóð.
Skip og Fasteignir
Austurstræti 18 — Sími 21735.
Eftir lokun 36329.