Morgunblaðið - 25.05.1967, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.05.1967, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1967. +■o—— u-n-M-n—n—u—m-m- UNDIR VERND — Já, hann Lance Fairgrea- ves. Hann er ga-mall kunningi minn. Og svo fékk eitthvað í þessari þögn hana til að bæta við, hvasst: — Er nokkur ástæða til þess, að hann heimsæki mig ekki? — Nei, vitanlega ekki. Þér er frjálst að taka móti heimsókn- um hvers, sem þú vilt. — Þakka þér fyrir. Þessi kaldranatónn hennar nægði til þess að hann sagði: — Ég hefði bara mátt vona, úr því að við erum trúlofuð, að þú vildir ekki hitta unga menn — og sízt í svefnherberginu þínu. — Hvernig dirfistu ...........? Hún eldroðnaði. — Góða mín, sagði hann með þessu andstyggilega kæruleysi, — það er engin ástæða til að gera veður út af þessu. Ef þú vilt hitta kunningja þína, jafn- vel karlmenn, er mér sama. En samt verð ég að segja, að í þessu tilviki var það dálítið ■n— eftir Maysie Greig: ónærgætnislegt af þér. Ef þú tek ur móti ungum manni í svefn- herberginu þínu, hlýtur það að vekja umtal. Þjónustufólkið kjaftar því auðvitað út um allt, og það er ekkert þægilegt fyrir neitt okkar. Reiði hennar leið frá jafn- skjótt og hún hafði blossað upp. En í staðinn greip hana tilfinn- ”36 ~ ing, sem líktist mest örvænt- ingu. — Dettur þér I hug, að ég hefði farið að vísa Lance á dyr, eftir að hann er búinn að ferð- ast alla þessa leið, vegna þess eins að þjónustufólkið kynni að tala um það? Hann svaraði ekki þessu bein- línis, en sagði bara: — Þegar þú ert orðin konan mín, vona ég, að þú látir ekki unga menn vera að hópast kring um þig. Reiðin blossaði upp í henni og enn ákafar en áður. — Ef þú treystir mér ekki bet- ur en svona, er líklega bezt, að ég verði alls ekki konan þín. — Er kannski eitthvað milli þín og þessa unga manns? spurði hann hásum rómi. — Ekki annað en vinátta. Að minnsta kosti er það þannig af minni hálfu. — En þú játar, að hann sé skot inn í þér? — Get ég að því gert? — Nei, tautaði hann. Hann horfði niður á gólfábreiðuna. — En ef svo er, máttu að minnsta kosti ekki hitta hann oftar. — Ég bað hann ekki að koma. — En þú tókst á móti honum, þegar hann kom, og þegar Mav- is kom inn í herbergið ......... En hann þagnaði. Hann var sjálfur orðinn kafrjóður. — Ég ætlaði ekki að segja þetta, stamaði hann. — Það var ekki af neinu, sem Mavis sagði vit- anlega. — Nei, auðvitað ekki, sagði hún, og enn mátti rnerkja háðið í röddinni. — En hvað sem því líður, gaus aftur upp úr honum, — þá er henni umhugað um minn hag, og á allan rétt á að segja mér ....... Aftur varð þögn. — Á Mavis að halda áfram að njósna um mig eftir að við er- um gift? spurði hún snöggt. — Hvað áttu við? Mavis dett- ur ekki í hug að njósna neitt um þig: En henni fannst. það skylda sín að segja mér .... — Mavis hefur fundið það skyldu sína að standa sífellt á milli okkar, síðan við hittumst fyrst, greip hún fram í. Gleymdu því ekki. Og ef ég verð þess vör, að þú standir með henni á nokkurn hátt, þá er trúlofunin okkar búin að vera, fyrir fullt og ailt. Ég hringi til kunningja minna og bið þá að sækja mig hingað á morgun. Þú getur sjálf- ur átt þetta hundleiðinlega hús þitt, slæma og leiðinlega þjón- ustufólkið, og jafnvel þessa dá- samlegu Mavis þína. — Gott og vel, það er þá bezt að svo sé, sagðLhann um leið og hann gekk út og skellti á eftir sér hurðinni. Eftir að hann var farinn, fannst henni hún vera algjör- lega einmana og yfirgefin. Hún lá út af og grét í hljóði. Átti ást hennar á Davíð að enda svona? Og allar vonir hennar og fyrirætlanir? Hún reyndi að ímynda sér, að hún elskaði hann alveg jafnmikið og nokkru sinni áður. Enda gat víst ástin ekki dáið svona snögglega. Allt í einu kom Davíð inn í herbergið aftur. Hann stóð við rúmið hennar með kreppta hnefa, og æðarnar í enninu á honum voru bólgnar. — Fyrirgefðu, Paula, tautaði hann. — Kannski hef ég sagt of- mikið. Ég hef vist verið upp- gefinn eftir erfiðan dag í rétt- inum, og varð órólegur þegar ég Heitur og kaldur SMURT BRAUÐ OGSNITTUR Sent hvert sem óskað er. sími 24447 heyrði um heimsókn þessa unga manns. Fyrirgefðu mér, elskan! — Ó, Davíð! Hún sneri sér við og rétti hendurnar til hans. Henni leið svo illa, að hún varð að fá einhverja huggun. Hann beygði sig niður og kyssti tárvot ar kinnar hennar. — Hafðu engar áhyggjur, Paula. Það getur ekki hjá því farið, að við rífumst einstöku sinnum. En engin breyting hef- ur orðið hjá okkur. hún og þrýsti sér að honum og reyndi að telja sér trú um, að ekkert hefði breytzt, og eftir að hann var farinn út, lá hún lengi áður en hús loksins sofnaði. 23. kafli. Daginn eftir skrifaði hún Agötu frænku sinni. Það lítið hún minntist á það„ sem gerzt hafði þarna í húsinu, þá reyndi hún að gera gaman úr því, eins og það væri þýðingarlaust og ekki nema til að hlæja að. En Spónn í miklu úrvali Eikarspónn — teakspónn — gullálmsspónn — askspónn — palisanderspónn. Eikar- og gullálmsspónn 2,8 mm. þykkur. Teakspónn 2,8 mm. væntanlegur næstu daga. Páll Þorgeirsson & Co. Sími 1-64-12. Skógrœktarfélag Reykjavíkur Trjáplöntur Fjölbreytt úrval af trjám og runnum. Nú er rétti timinn til gróöursetningar i garða og sumarbústaðalönd. Skórœktarstöðin Fossvogsbletti 1 — Nei, líklega ekki, hvíslaði Fúavarnarefnið WOODLIFE í 4ra lítra brúsum og lausu máli. Athugið verðið. Timburverzlun Árna Jónssonar. Hjúkrimarkonur óskast að Hrafnistu bæði í fasta vinnu og afleysingar. Upplýsingar í símum 36380 og eftir kl. 4 37739. Hafnarfjörður Stofnfundur sálarrannsóknarfélags í Hafnarfirði verður haldinn í Góðtemplarahúsinu fimmtudaginn 25. maí kl. 8.30. Undirbiiningsnefndin. EfnaJaugin Pressan Grensásvegi 50, Reykjavík, verður lokuð í dag kl. 13—17 vegna jarðarfarar. Grasfræ, garðáburður. símar 22822 19775. Seljum nokkur gölluð baðker með miklum afslætti. Á. Einarsson & Funk hf. Höfðatúni 2 — Sími 13982.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.