Morgunblaðið - 11.06.1967, Síða 25
MORGUNESsAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚNf 1967.
■7.1sas
-
^ 25
— Konumar
Frambald af bls. 12
ina „móðuharðindi manna-
völdurn" og allur áróðurinn hef-
ur síðan verið á þann veg að
aetla mætti, að hér væri allt að
fara á bólakiaf. Br þetta óskilj-
anlegt, þegar hver og einn getur
litið í eigin barm og í kringum
sig, og sannfærzt um, að íslend-
ingair bafa aldrei búið við betri
lífskjör en í dag. Stjómarand-
stæðingarnir treysta sér illa til
l>ess að mótmæla þessu með öllu,
en segja þá gjarna að góðu ár-
ferði, aflabrögðum og hagstæðu
verði á útflutningsvöru okkar
Sé fyrir að þakka, þrátt fyrir
alranga stjórnarstefnu. Mætti
þá e. t. v. minna á, að á árum
vinstri stjómarinnar voru afla-
brögð góð, en þó hrökklaðisst sú
stjórn frá við lítinn orðstír eftir
2% árn stjórnarsetu. fslenzka
þjóðin hefur nú í nær 1100 ár
búið í þessu landi en þrátt fyrir
fengsæl fiskimið og gróðurmagn
moldar bjó hún við sára fátækt
öldum saman og svalt oft heilu
og hálfu hungri. Var það vegna
þess að hana skorti tæki og
kunnáttu til þess að hagnýta sér
gæði lands og sjávar, sem ávallt
hafa verið harðsótt á landi okk-
ar. Þá miklu framleiðsluaukn-
ingu og þar með velmegun, sem
einkennt hefur viðreisnartíma-
bilið má einmitt að verulegu
leyti þakka réttri stjórnarstefnu
í efnahagsmálum, sem hefur
gert það mögulegt að afla tækja
og skapa aðstöðu til að hagnýta
gæði landsins og fiskimiðanna
langt umfram það, sem nokkurn
tíman áður hefur þekkzt hér.
Nægir að minna á þá miklu vél-
væðingu landbúnaðarins, sem
orðið hefur á þessu tímabili og
tilkomu glæsilegs fiskiskipaflota
sem búinn er fullkomnum nú-
tímatækjum og hefur m.a. valdið
gerbyltingu í síldveiðunum. Verð
mætasköpunin á viðreisnartíma-
bilinu hefur orðið stórbostlegri
en nokkru sinni fyrr í sögu
þjóðarinnar.
Viðreisnin eins og vorblær.
Ég tel ekki ofmælt þótt sagt
sé, að viðreisnin hafi farið líkt
og vorblær um íslenzkt athafna-
líf, vorþeyr, sem smám saman
bræddi klakabönd hafta og ó-
stefnuyfirlýsingu hennar voru
frelsis og leysti úr læðingi at-
hafnaþrá og atorku einstakling-
anna í þjóðfélaginu, en það hef-
ur sýnt sig nú sem fyrr að með
auknu frelsi fylgja auknar fmm-
farir á öllum sviðum, en frelsi
einstaklingsins til þess að fá að
njóta sín og neyta krafta sinna,
sjálfum sér og öðrum til bless-
unar er einmitt uppistaðan í
stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Réttindum fylgja skyldur.
Fjölmargar ungar konur ganga
nú að kjörborðinu í fyrsta sinn.
Við þær vildi ég segja: Þið lifið
nú í þjóðfélagi, sem hefur tek-
ið þvílíkum stökkbreytingum, að
það er um margt gjörólíkt því
sem var þegar ég og mínar jafn-
öldrur, hvað þá þær okbar sem
eldri eru, vorum að vaxa úr
grasi. Tækifærin voru þá fá og
fábreytt fyrir ungar stúlkur til
þess að brjóta sér braut í líf-
inu. Ég minnist þess t. d., að
fyrsta árið mitt í Menntaskól-
anum voru engar stúlkur í 6.
bekk, en það mun raunar hafa
verið seinasti stúlkulausi bekk-
urinn í skólanum.
Einmitt á þessu sviði, mennta-
sviðinu hefur breytingin orðið
mikil og ekki sízt að því leyti,
að nú er það talið eins sjálf-
sagt að mennta ungu stúlkumar
og piltana. Þið bafið þannig hlot-
ið á margan hátt betri aðstöðu
til að mynda ykkur grundvaliaða
skoðun á málefnum þess þjóðfé-
lags sem þið lifið í, sem verður
margbrotnara með hverju ári sem
líður. En réttindum og menntun
fylgja einnig skyldur og ábyrgð
gagnvart sjálfum sér og öðr-
um þegar velja á fúlltrúa
til forystu í þjóðmálum. —
Engum er eins erfitt og
unga fólkinu, sem ólgar af at-
hafnaþrá og bjartsýni að búa við
höft og ofstjórn ríkisvaldsins.
11 síldarskip á leið
til lands með affla
Því veltur mikið á því, að þeir
tugir þúsunda æskufólks í land-
inu sem hefur öðlazt kosninga-
rétt á viðreiisnartímabilinu geri
sér þess grein, hvaða stjórnar-
stefnu var horfið frá þegar við-
reisnin hófst, geri sér grein fyr-
ir stjómarháttum vinstri stjórn-
arinnar. Sú stjórn var mynduð
sumarið 1956. Aðal loforð í
þau, að varnarliðið yrði látið
fara úr landinu og alls herjarút-
tekt yrði gerð á þjóðarbúinu,
sem birt yrði almenningi og á
grundvelli hennar myndi stjórn-
in beita sér fyrir varanlegum
úrræðum til úrbóta í efnahags-
málum.
Við stóru loforðin var þannig
staðið, að eftir þrjá til fjóra
mánuði var stjórnin búin að
svíkja fyrra loforðið, úttektin
mun að vísu hafa farið fram
en hún kom aldrei fyrir augu
almennings og úrræðin urðu
nýjar álögur og skattar og þeg-
ar stjórnin gaflst upp í des. 1958
var svo komið að gjaldeyrissjóð-
ir voru tæmdir og lánstraustið
út á við gersamlega þorrið svo
að erlend lán voru hvergi fáan-
leg. Haftakerfið var í algleym-
ingi, vöruúrval í verzlunum tak-
markað og svartamarkaðsbrask
með vörur og gjaldeyri stóð með
blóma.
ER RI.AÐIÐ hafði samlband
við loftskeytastöðina í Neskaup-
stað um hádegi í gær, voru ell-
efu síldarbátar á leið til lands
með afla. Var afli einstakra báta
frá 80 til 320 lestir. Skipin héldu
til haifna á Austur- og Norðaust-
urlandi.
Þessi síld veiddist á tveimuar
svæðum, 300 mílur og 380 mílux
austur í hafi.
KLÚBBURINN
í BLÓMASAL
TRÍÓ ELFARS RERG
SÖNGKONA:
MJÖLLIIIÍLM
Borðpantanir í síma 35355. — OPIÐ TIL KL. 1
Matur framreiddur frá kl. 7 e.h.
Gjaldeyrissjóðir í stað
lausaskulda.
Aðalviðfangsefni viðreisnar-
stjórnarinnair voru þegar í upp-
hafi þau að koma efnahagsmál-
unum á heilbrigðan grundvöll og
endurvekja lánstraustið út á við.
Nú í dag á þjóðin gjaldeyris-
varasjóð sem nemur nær 2 þús.
millj. kr. og lánistraustið erlend-
is er endurheimt. Má í því sam-
bandi mirana á stórkostleg er-
lend lán, sem fengizt hafa til
Búrfellsvirkjunarinnar, sem ekki
hefði verið hægt að ráðast í ef
ekki hefðu slík lán fengizt.
Heilbrigð fjármálastefna undir-
staða allra framfara.
Bfnahagsmálin eru eðlilega
stöðugt viðfangsefni hverrar rík-
igstjórnar en traustur efnahag-
ur og heilbrigð fjármálastefna
eru undirstaða allra framfara í
þjóðfélaginu. Smám saman hef-
ur tekizt að létta svo af höftum
og bönnurn, að nú er ólíkt um
að lítast í okkar þjóðfélagi og
jafnframt hefur verið unnið að
margvíslegum framfaramálum
öðrum.
Samstarfið í viðreisnarstjórn-
inni hefur staðið í nærri
tvö kjörtímabil. Það sam-
starf hefur verið snurðuminna
og með meiri heilindum en áður
hefur þekkzt hér. Þó hefur
stjórnarstefnan eðlilega mótazt
af því, að þar er um að ræða
samstarf tveggja flokka, sem í
grundvallaratriðum eru frá-
brugðnir, því að það megum
við hafa í huga, að Alþýðuflokk-
urinn er sósíalískur flokkur.
Því sterkari sem Sjálfstæðis-
flokkurinn kemur úr þessum
kotsningum, þvi betri aðstöðu
hefur hann til að koma fram
stefnu sinni í landsmálum, stefnu
einkaframtaks og frjálsræðis, og
að því skulum við alltaf vinna.
Ég heiti á konur í Reykjavík
— og raunar um land allt að
liggja ekki á liði sínu í dag,
heldur fylkja sér um Sjálfstæð-
iisflokkinn.
Hljómsveit Guðjóns Pálssonar
Söngkona: Didda Sveins.
Kvöldverður framreiddur frá kl. 6.
Sími 19636.
Dansað til kl. 1.
HÓTEL BORG
XXXXXXXXX
SÖNGUR OG STEMNING FYRIR ALLA.
Opið í kvöld til kl. 1.
Fjölbreyttur matseðill allan daginn alla daga.
Haukur Morthens M Rishop
OG HLJÓMSVEIT ★ HINN HEIMSFRÆGI
SKEMMTA SÖNGVARI
GRAV LAX—VÍ Kl NGASV ERÐ--HOLTSV AGN
Þetta og margt fleira eru sérréttir sem
sem einungis Hótel Holt býður upp á.
BWS