Morgunblaðið - 11.06.1967, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1967.
jtfornu-
ólzipiÉ
EFTIR
KRISTMANN
GUÐMUNDSSON
er fyrir nálega einni öld síðan
hefði gert bráðabirgðar athug-
un á sólkerfi þessu, hafa talið
að þar mundi vera um haettur
nokkrar að ræða. „Vitum við
ekki 1 hverju þær felast, en
munum nú gera gangskör að því
að kanna jarðstjörnuna vel og
vandlega“.
Að þessu sinni fóru einnig
margir diskar niður í gufuhvolf-
ið. Var það samansett á venju-
legan hátt, en þegar komið var
1 fimmtíu þúsund feta hæð, var
það auðugt af súrefni og heil-
næmt mönnum.
Ómar Holt og Miro Kama
voru á diski þeim er Lenai
Dorma stýrði, og sátu þeir við
firrðsjána, ásamt þrem vísinda-
mönnum. Var unaðslegt niður
að líta, því að þetta var hlý og
gróðursæl jörð með stórkost-
legri náttúrufegurð hvarvetna.
Fjöll voru yfirleitt lægri en á
Jörðinni, en klettótt og hring-
mynduð. í hömrunum glóðu
belti og syllur víða eins og þar
væri fullt af gulli og eðalstein-
um. Byggð var furðu strjál, en
þó mikið af fremur litlum borg-
um, er virtust samanstanda af
stráþöktum einbýlishúsum, og
voru stór torg um miðbik. þeirra.
En sumstaðar í fjöllunum voru
kastalar miklir, af grjóti gerðir,
og var oft illt að greina þá frá
klettaborgum og hamrahæðum.
Dýralíf var mikið, og sýndist
það alli lifa í friði hvað við ann-
að. Það sem mesta athygli vakti
voru gríðarstórir fuglar, er
flugu um loftið eftir ákveðnum
leiðum, að því er virtist, og sátu
mannverur á baki þeirra. Vegir
lágu milli þorpanna, og voru
þar farartæki á ferð, klunnaleg
nokkuð, og dregin af stórum
skepnum. Fylgdust alloft með
þeim hópar gangandi fólks.
Flugu þeir nú allvíða yfir
hnöttinn, sem var nokkru stærri
en Jörðin, og hafði landflæmi
miklu meira. Var allsstaðar það
sama að sjá: frumstæðar borgir,
grjótkastala, hringmynduð fjöll
og grunna dali, en þurrlendi
allt vafið í gróðri. Loks var
ákveðið að lenda á torgi einu,
í borg þeirri er þeir fundu víð-
áttumesta, og var hún ekki öllu
stærri en Hafnarfjörður.
Þeir svifu nokkra hringi yfir
borginni, en liðu síðan hægt nið-
ur á torgið. Þar var mannfátt í
fyrstu, en brátt streymdi að
múgur og margmenni. Var þá
settur upp ósýnilegur vamamúr
kringum diskana, en hann var
þeirrar náttúru að engin gat
komizt í gegnum hann að utan,
nema hafa tæki nokkurt, er til
þess var gert. Urðu borgarbúar
forviða mjög er þeir ráku sig á
tálma þennan, er var fastur fyr-
ir sem stál, en varð þó ekki séð-
ur.
Geimfararnir stigu nú út úr
diskunum og tóku að virða fyrir
sér Hnattbúana. Þetta var smá-
vaxið fólk, konur um fimm fet
KORKIDJAIM
HITAfÆKI
Kynnið yður kosti CORIItlTHiAlU stálofna
Fjórar hæðir
Tóll lengdir
Einialdir
Tvöfaldir
Korkiðjan h.f., Skúlagötu 57, Rvík.
Gjörið svo vel og sendið mér upplýsingar
um CORINTHAIAN stálofna.
NAFN: .
HEIMILI:
SÍMI: ...
COPPERAD
HITATÆKI
á hæð, en karlmennirnir minni
og pervisalegri, fæstir hærri en
öðru leyti frábrugðið venjuleg-
öðru leyi frábrugðið venjuleg-
um mönnum; það var svipfall-
egt, andlitsfrítt, og samsvaraði
sér vel, hörundsliturinn nánast
gullinn og hárið gulrautt. Það
*elfur
Laugavegi 3®
Skólavörðust. 13
Rýmingarsala
Seljum svefnbekki með niðursettu verði og divana
mjög þægilega fyrir sumarbústaði. Gott verð.
Verzlunin HÚSMUNIR
Hverfisgötu 82 — Sími 13655.
Sumarhattar
Fallegir 17. júní hattar fyrir telpur.
Margar gerðir. — Margir litir.
Verð kr. 149.-
Miklatorgi, Lækjargötu 4.
Barnafatnaður
í glæsilegu úrvali.
Þýzku drengjahattarnir
komnir. Einnig enskar
sokfcabuxur, þýzkir sport-
sokkar, hollenzkir blazer-
jakkar, kjóiar o. fl.
Framreiðslumenn
Óskum eftir að ráða framreiðslumenn á næstunni.
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofum félagsins,
Vesturgötu 2 og Reykjavíkurflugvelli, svo og hjá
umboðsmönnum félagsins út um land, og skulu um-
sóknir berast ráðningardeild félagsins, Reykja-
víkurflugvelli.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Hollenzkar sumarkápur
stór sending. — Aðeins 1—2 kápur af gerð.
KAPAN HF. Laugavegi 35, sími 14278.
EINFALDIR OG TVÖFALDIR MEÐ
OG ÁN HLIÐARPLÖTU MEÐ BORÐ-
FESTINGUM.
16 GERÐIR OG STÆRÐIR
FYRIRLIGGJANDI.
DÖNSK ÚRVALSFRAMLEIÐSLA ÚR
KROMNIKKEL STÁLI.
J. Þorláksson & Norðmann hf.
Bankastræti 11 — Skúlagötu 30.