Morgunblaðið - 11.06.1967, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR H. JÚNÍ 1967.
- NASSER
Framhald af bls. 2.
var þó hrópað „Við viljum eng-
an leiðtoga annan en Nasser“
og önnur ámóta vígorð.
Þegar svo tilkynningin barst
«m að Nasser myndi gegna em-
bætti áfram breyttist andrúms-
loftið á svipstundu og allir
fögnuðu ákaft og vestrænir
fréttamenn og ljósmyndarar við
þingshúsið voru allt í einu orðn-
ir aufúsugestir.
fsraelsmenn reka Araba af
bökkum Jórdan.
Blöð í Beirút herma frá Amm-
an í Jórdaníu að ísraelsk her-
yfirvöld hafi byrjað brottrekst-
ur Palestínuaraba af vestri
bökkum árinnar Jórdan. Segir
þar að 30.000 fljóttamenn hafi
farið yfir ána inn á jórdanskt
landsvæði og sé nú mikill mat-
vælaskortur í landinu þar sem
margir munnar hafi bætzt við
að mata, en gróður allur ónýtur
þar sem barizt hefur verið.
Harðir bardagar.
í tilkynningu sýrienzka hers-
Ins í. morgun sagði, að hersveitir
ísraelsmanna hefðu hertekið
borgina Kuneitra, 65 km frá
Damaskus.
Áður hafði útvarpið í Damask-
us skýrt frá því, að ísraelsmenn
hefðu fyrir dögun hafið árás að
nýju og beitt skriðdrekum og
stórskotaliði á sýrlenzku land-
svæði. Voru allir meðlimir
„Þjóðarhersins,“, en hann er
Skipaður sjálflxiðaliðum, hvattir
til þess að gefa sig fram við
stöðvar sínar þegar í stað.
Var sagt að harðir bardagar
hefðu geisað á Kuneitrasvæðinu
frá því snemma í morgun. Sýr-
lenzku sveitirnar æUu í ójöfnum
bardaga við her fsraelsmanna,
því að flugvélar fjandmannanna
væru svo margar á lofti í senn,
að ekki gæti verið um annað að
ræða en að þær væru frá stór-
veldi.
ísraelsmenn hefðu beitt mikl-
um fjölda skriðdreka og hertek-
ið Kuneitra þrátt fyrir hina
hetjulegu andspyrnu, sem sýr-
lenzki herinn hefði veitt, sagði
útvarpið. Barizt væri um hvern
sentimeter sýrlenzks lands og
hersveitir, sem til þessa hefðu
ekki tekið þátt í bardögunum,
væri nú verið að flytja til víg-
stöðvanna.
Fundur Öryggisráðsins.
Öryggisráðið kom saman til
fundar að nýju í morgun til
þess að ræða nýjar fullyrðingar
Sýrlendinga um, að hersveitir
ísraelsmanna sæktu fra» í átt-
ina til Damaskus og tækju ekk-
ert tillit til vopnahlésins, sem
samþykkt hefði verið.
Á fundinum skýrði U Thant
framkvæmdastjóri frá því, að
hann hefði fengið tilkynningu frá
flugvellinum í Damaskus, um að
flugvöllurinn hefði orðið fyrir
árás einni og hálfri klukku-
stundu áður. Skýrði fram-
kvæmdastjórinn frá því, að þessi
tilkynning hefði borizt frá Odd
Bull, yfirmanni eftirlitssveita
Sameinuðu þjóðanna fyrir botni
Miðjarðarhafsins, og hefði hún
verið send með fjarritara frá
Jerúsalem. Sagði U Thant, að
hann hefði gefið eftirlitssveit-
unum fyrirmæli um að kanna
fullyrðingar Sýrlendinga frá
því í morgun, að ísraelskar her-
sveitir hefðu tekið Kuneitra.
Þá sagði enn fremur í tilkynn-
kynningu Odds Bulls, að samkv.
frét frá Galileuvatni væri hald-
ið áfram loftárásum á svæði í
grennd við vatnið.
í frétt frá AFP segir, að full
trúi Sýrlands hjá Sameinuðu
þjóðunum, George Tomeh, hafi
farið þess á leit við Öryggisráð-
ið, að það fyrirskipaði ísreaeis-
mönnum að hörfa með hersveitir
sínar til vopnahléslínunnar. Fór
hann fram á, að ráðið léti fram-
kvæma refsiaðgerðir __ gegn
ísrael, og fullyrti að fsraels-
menn nytu stuðnings „heims-
valdasinna" í árás sinni.
Federenko, fulltrúi Sovétríkj-
anna, lýsti yfiir stuðningi við sýr
lenzka fulltrúann og koan með
persónulegar árásir á fulltrúa
ísraélsmanna, Gideon Rafael,
sem Federenko ásakaði um vís-
vitandi ósannindi. Krafðist hann
þess, að Öryggisráðið gerði þeg-
ar í stað nauðsynlegar náðstaf-
anir til þess að stöðva það sem
hann kallaði „sjóræningjastarf-
semi“ ísraielsmanna gegn Sýr-
landi og að ráðið vítti ísraels-
menn.
Rafael mótmælti harðlega
hinum persónulegu árásum sov-
ézka fulltrúans og hélt því fram,
að sýrlenzkt stórskotalið hefði
skotið á þorp fsraelsmanna án
afláts sl. hálfan annan sólar-
hring. Hann vísaði á bug öllum
fullyrðinigum um, að hersveitir
fsraelsmanna væru á leið í átt-
ina til Damaskus.
í frásögn U Thants sagði, að
í tilkynningu þeirri, sem Odd
Bull hefði sent frá Galileuvatni
til Sameinúðu þjóðanna,. væri
skýrt frá því, að frá eftirlits-
stöð Sameinuðu þjóðanna við
vatnið, hefðu heyrzt miklar
sprengingar úr þeirri átt, sem
Kuneitra lægi.
Giedeon Rafael skýrði frá þvi,
að ísraelsmenn hefðu haft sam-
band við Odd Bull og farið þess
á leit, að eftirlitsmenn Samein-
uðu þjóðanna yrðu þegar í stað
sendir til Kuneitra og annarra
bæjia, sem nefndir voru í ásök-
unum Sýrliendinga. Sagði hann,
að Sýrlending.ar hefðu borið fyr-
ir ráðið takmarkalausar ásakan-
ir úm aðgerðir ísraelsman.na,
sem enginn fótur væri fyrir.
Fulltrúi Bandarikjanna, Arth-
ur Goldberg, sagði, að Öryggis-
ráðið gæti ekki fellt neinn hlut-
lausan dóm, svo lengi sem ekki
hefðu borizt neinar tilkynning-
ar frá eftirlitsmönnum Samein-
uðu þjóðanna á þeim stöðum,
sem verið væri að fjalla um.
Hélt Goldberg því fram, að áeft-
irltsmennirnir skyldu ekki bara
kanna ástandið á þeim stöðum,
sem sýrlenzki fulltrúinn hefði
nefnt, heldur yrði einnig kannað
til hlítar, hvort Sýrlendingar
héldu uppi skotihrið á þorp ísra-
elsmanna við Galileuvatnið. —
Sagði hann, að ráðið gæti ekki
byggt neina samiþykkt á ásök-
unum.
Loftárásir á Damaskus
U Thant skýrði frá því siðaf
á þessum fundi Öryggisráðsins,
að samkvæmt nýrri tilkynningu
frá Odd Bull, hefði formaðurinn
í vopnahlésnefnd ísraelsmanna
og Sýrlendinga tilkynnt, að loft-
árásir hefðu verið gerðar á
Damaskus þá um daginn.
AP-fréttastofan hefur það eftir
starfsmanni ísraelska utanríkis-
ráðuneytisins, að í þessari
skýrslu hafi ekki verið greint
frá neinum loftárásum á Dam-
askusborg né á flu.gvöllinn í
grennd við hana, en það væru
og hefðu verið ísraelskar flug-
vélar á flugi í nágrenni borgar-
innar. Væru þær til þess að
vernda ísraelskar hersveitir á
þessu svæði.
♦ Sovézk stjórnarvöld gáfu
síðar í dag út tilkynningu
um, að þau hefðu ákveðið að
slíta stjórnmálasambandi við
■ k*.
íeykjarfk, laagardaginn 13. júlf 1935.
t7. tbl.
Svafari GuðmundssyBÍ
^ sagt upp stöðu sinni hjá Sam-
'bándi /s/. samyinnufélaga, a_f
því hann ér í útgáfustjóm
\Framstíknai.
Framsókn hafSi fengið vitn-
«skju um, að sljórn Sambands-
ins hefði sagt Svafari Guð-
muudssyni upp slarfi hans hjá
Sauibamh - isl.. samvinuufélaga.
Isnóri hlnSiA «ór hvi til Il#M
stjórn blaðsin* „Framsókn**
og ekki hcfir á nokkurn liátt
i blaðinu lýst sig andvigan-
ámiustum dylgjum. þess, og
árás á Sigurð Kristinsson,
segi . sig úr útgáfustjórn
Ácfnds blaðs Sjái hann sér
Svaíar Guðmundssoo. *
Hvar verður staðar numið, ef
reka á menn úr störfum og
stöðum eingóngu vegna póll-
tiskrar afslöðu?
Er nokkiw* opinher starfs-
maður öruggur um að hnlda
stnrfi hve hciðarlcga sem Hauu
rækir l>að?
í Alykttm stjómarinnar er
vilnað í grein í Framsókn (4.
töluW.) ' til stuðuiug* hrott-
rckstrinum., p
Grein sú er eingöngu hárrétt
fráaögn um það, sem opinher-
lega kom fram £. nmtöluða máli.
Ekki með einu orði hnjótað i
S.Kr.
t greininni var það beinlínis
Frd útlondum. •
Ítalía og Abessinía.
T>að, sem' undanfama daga,
licfir dregið að sér athyglina i
heimspóhtikinni, eru deilumar
Qiilli itahu ög Abessiniumanna.
Ilær hafa nú staðið siðan um
miðjan vetur og harnað stöðugt
með' viku hyerri Hafa margar
sáttatilraunir verið gerðar, ea
allafr árangurslausar. Þykir alit
benda til þess, að enginn'friðar-
luígur sé i Itölum, heldur. hafl
þeír mikJa Iðnmm’ tfl ttfl fft
Forsíffa „Framsóknar“, málgagns Bændaflokksins, þegar sagt var frá brottrekstri Svavars
Guffmundssonar eftir 18 ára störf fyrir SÍS, af því aff hann „gat ekki átt samleið meff Tíma-
deild Framsóknarflokksins“.
Eðli Framsóknar enn hið sama
H I N pólitíska misnotkun
Framsóknarflokksins á
samvinnuhreyfingunni,
sem atburðirnir á Fá-
skrúðsfirði hafa enn orðið
til þess að draga fram í
dagsljósið, er hvergi nærri
ný af nálinni, fremur en
alþjóð veit. Atvinnukúgun
in á Fáskrúðsfirði sýnir
aðeins, að afstaða Fram-
sóknarforkólfanna hefur
ekkert breytzt frá því sem
áður var. Þeir eru ætíð
reiðubúnir til að beita
samvinnuhreyfingunni fyr
ir flokksplóg sinn, hvenær
sem þeir telja að hagsmun
ir krefjist. Og þeir láta
sig engu skipta, þó að slíkt
hljóti óhjákvæmilega að
rýra álit samvinnuhreyf-
ingarinnar meðal margra
þeirra, sem vilja henni vel.
Þeir hafa því vissulega
haft sinn eigin hátt á að
sýna marglofaða „um-
hyggju“ sína fyrir sam-
vinnuhreyfingunni.
Framsóknarfor'k'ólfarnir
hafa hvorki fyrr né síðar
skirrzt við að hóta starfs-
fólki samvinnuhreyfingar-
innar brottrekstri, ef það
léti ekki að pólitískum
vilja þeirra. OG ÞEIR
HAFA EKKI HIKAÐ VIÐ
AÐ GERA ALVÖRU ÚR
ÞEIM HÓTUNUM SÍN-
UM, EF NAUÐSYN HEF-
UR KRAFIÐ. Þannig var
t.d. Svavar Guðmundsson,
sem á sínum tíma var einn
elzti og reyndasti starfs-
maður SÍS, hafði unnið
þar samfleytt í 18 ár, rek-
inn úr starfi af því að hann
átti sæti í ritstjórn blaðs,
sem ekki fylgdi Framsókn
arflokknum að málum.
Var tilefnið, sem aðallega
var notað, ein tiltekin
grein í blaðinu, sem ekki
var að skapi þeim for-
sprökkum Framsóknar,
sem þá höfðu tögl og
hagldir hjá SÍS. Voru
Svavari settir þeir úrslita-
kostir að segja sig úr rit-
stjórn blaðsins — en þeg-
ar hann gat ekki á það
fallizt, var hann rekinn úr
starfi, ENDA ÞÓTT BLAÐ
IÐ HEFÐI LÝST ÞVÍ YF-
IR AÐ GREININ HEFÐI
EKKI VERIÐ SKRIFUÐ
AF HONUM.
Um þennan atburð sagði
Svavar Guðmundsson m.
a. á þessum tóma:
„Ástæðan til þessara of-
sókna er sú, að ÉG GAT
EKKI ÁTT SAMLEIÐ
MEÐ TÍMADEILD FRAM
SÓKN ARFLOKKSIN S,
þegar leiðir skyldu og
Bændaflokikurinn var stofn
aður“.
Ekki var Iátið við það eitt
sitja að víkja Svavari úr
starfi, heldur var í samþykkt
þeirri, sem stjórn SÍS var lát-
in gera um málið, jafnframt
lýst yfir, að „hún telur
starfsmönnum SÍS óheimilt
að bjóða sig fram til þings,
eða takast á hendur önnur
opinber störf nema með sam-
þykki sambandsstjórnarinn-
ar“.
Á ÞENNAN HÁTT
HUGÐUST FRAMSÓKN-
ARFORKÓLFARNIR
SETJA TRYGGILEGA
UNDIR ÞANN LEKA, AÐ
STARFSMENN SAM-
BANDSINS GÆTU TEK-
IÐ VIRKAN ÞÁTT í
ANNARRI STARFSEMI
EN ÞEIM VAR AÐ
SKAPI.
Þetta dæmi er eitt af
mörgum, sem sýnir og sann-
ar, að atvinnukúgun Fram-
sóknar er síður en svo ný af
nálinni. Staðreyndin er sú, að
með misbeitingu sinni á sam-
vinnuhreyfingunni hefur
Framsóknarmönnum tekizt
að fótumtroða á íyrirlitleg-
asta hátt þær hugsjónir, sem
upphafsmenn hreyfingarinn-
ar báru fyrir brjósti. Pólitísk
skoðanakúgun og atvinnuof-
sóknir Framsóknar eru smán-
arblettur á samvinnuhreyf-
ingunni, sem veldur fyrir-
litningu fólks á þeim lágkúru
legu útsendurum, sem að
þeim hafa staðið.
Það yrði gæfa samvinnu-
hreyfingarinnar, ef henni
tækist að létta af sér þessu
pólitíska oki, sem nú síðast
hefur birzt á Fáskrúðsfirði og
einnig hefur verið rifjað eftir
minnilega upp af Eiríki
Kristóferssyni, skipherra, sem
sagðist ekki sjá nein merki
þess að eðli Framsóknar-
flokksins hefði breytzt frá
því að Framsóknarmenn
reyndu að beita hann og
starfsfélaga hans í Land-
helgisgæzlunni atvinnukúg-
un og bolabrögðum.
ísrael, vegna bardaganna í
Sýrlandi og vöruðu við því,
að þau myndu grípa til refsi-
aðgerða gegn ísrael, nema
því aðeins að fsraelsmenn
hættu þegar í stað öllum
hernaðaraðgerðum.
t ísrael tilkynnti Öryggis-
KJÓSUM SNEMMA!
ráðinu í dag, að varnarmála-
ráðherra landsins, Moshe Da-
yan, hefði átt fund með Odd
Bull, yfirmanni eftirlits-
sveita Sameinuðu þjóðanna,
í dag, sem haldinn væri í því
skyni að gera nauðsynlegar
ráðstafanir til þess að vopna-
viðskiptum ísraelsmanna og
Sýrlendinga yrði hætt.