Morgunblaðið - 20.06.1967, Blaðsíða 12
r
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JIJNÍ 1967,
7. júní í Reykjnvík
ÞJÓÐHÁTÍÐIN í Reykjavik var
nú í fyrsta sinn haldin í Laugar-
dal. Skki verður sagt með vissu,
hve margt fólk sótti hátíðarhöld-
in, en það var færra en síðustu
ár vegna illviðris. Vindur var
hvass á sunnan, skýjað og rign-
ing annað slagið.
Samkvæmt frásögn lögregl-
unnar í Reykjavík var hegðun
fólks ágæt. Um 5 þúsund ungl-
ingar voru á dansleik í Laugar-
dalshöllinni, en þar var engin
ölvun þótt vin sæist á fáeinum
mönnum. Um 40 strætisvagnar
biðu fyrir utan er dansleiknum
lauk og tæmdist liúsið á 7 minút-
um. Ekkert bar á ölvun um dag
inn, en um nóttina voru um 30
manns fluttir til geymslu í Síðu-
múla, og telst það ekki mikið
þegar þess er gætt, að f jölmennt
var í öllum samkomuhúsum borg
arinnar. Umferð var gífurleg, en
engin slys eða óhöpp urðu sem
vitað er um.
Hátíðarhöldin hófust kl. 10
Fánaborg skáta á Laugadalsvelli.
fyrir hádegi með samhljómi
kirkjuklukkna. Skömmu síðar
lagði Þórir Kr. Þórðarson, vara-
forseti borgarstjórnar, blóm-
sveig frú Reykvíkingum á leiði
Jóns Sigurðssonar og Karlakór
Reykjavíkur söng undir stjórn
Páls P. Pálssonar. Síðan hófst
guðsþjónusta í Dómkirkjunni.
Séra Guðmundur Guðmundsson
predikaði og Guðmundur Jóns-
son, óperusöngvari söng einsöng.
Organleikari var Ragnar Björns-
son. Að lokinni guðsþjónustu
lagði forseti íslands, herra Ás-
geir Ásgeirsson, blómsveig frá
íslenzku þjóðinni að minnisvarða
Jóns Sigurðssonar á Austurvelli
og Karlakór Reykjavíkur söng.
Skömmu eftir kl. 13 lögðu
skrúðgöngur af stað frá Sunnu-
torgi, Álftamýrarskóla, Hlemmi
og Hnafnistu og héldu til Laug-
ardalsvallar með skáta og lúðra-
sveitir í fylkingarbrjósti. Þegar
þangað var komið flutti formað-
ur þjóðhátíðarnefndar, Valgarð
Briem, stu'tt ávarp og setti há-
tíðina. Eftirfarandi niðurlagsorð
illa, þar eð mikill gnýr var 1
magnarakerfinu sökum veðurs-
ins.
Því næst sýndi fólk úr Þjóð-
dansafélagi Reykjavíkur ís-
lenzka dansa, en lúðrasveitirnar
léku milli atriða og fyrir göngu
skáta af vellinum til íþrótta-
hallarinnar, þar sem barna-
skemmtun fór fram.
Klukkan fjögur hófst svo
íþróttahátið á Laugardalsvellin-
um. Fyrst lék lúðrasveitin Svan-
ur undir stjóm Jóns Sigurðsson-
ar, en síðan flutti Úlfar Þórð-
arson, formaður ÍBR, ávarp.
Veður spillti mjög fyrir fram-
gangi íþróttahátiðarinnar og varð
að fella sum atriði hennar niður.
í Laugardalnum var hátíðar-
gestum boðið til margvíslegra
sýninga. Mesta athygli vakti efa-
laust bílasýningingin vestan leik-
vangsins. Þar voru sýndar marg-
ar tegundir bifreiða á ýmsum
aldri. Sú elzta er fimmtug.
Einnig voru dýrasýningar vin-
sælar en þeim lauk snemma
vegna þess hvað veðrið var
slæmt.
Við Hrafnistu og Elliheimilið
Grund léku lúðrasveitir barna
og unglinga undir stjórn þeirra
Karls O. Runólfssonar og Páls S.
Pálssonar, en fella varð niður
leik Lúðrasveitar Reykjavíkur 1
Laugardagsgarðinum vegna veð-
urofsans.
Margir hátíðargesta leituðu skjóls í íþróttahöllinni og drukku þar kaffi.
■ .
Fólk úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur sýndi gamla dansa.
' ! : !
'
V;.íV '
Húsdýrasýningin var vinsæl meðal yngri Kynsioo annnar.
Boðhlaup drengja og stúlkna f rá íþróttanámskeiðum Reykja
víkurborgar þóttu takast vel. Hér eru drengirnir að leggja
hans hljóðuðu á þessa leið:
„Ég lýk máli mínu með þeirri
ósk, að þessi þjóðhátíð verði upp
haf meiri og betri nýtingar þessa
fagra dals og mannvirkjanna
hér, til almennrar útiveru og
íþrótta, að hingað megi ungir
sem aldnir sækja þrótt og þrek,
andlegt sem líkamlegt, íslenzkri
þjóð til farsœldar á komandi ár-
um“.
Síðan hélt forsætisréðherra,
Bjarni Benediktsson, ræðu, en að
henni lokinni flutti Sigríður Þor-
valdsdóttir ávarp fjallkonunnar,
sem var eftir Matthías Johann-
essen að þessu sinni.
Ávörpin nýttust áheyrendum
Lúðrasveit verkalýðsins lék við
Laugardalslaugina undir stjórn
Ólafs L. Kristjánssonar, en að
lei'k hennar loknum hófst sund-
mót og tókst það ágætlega. Við
laugrna fór einnig fram kynning
á íslenzkum þjóðbúningum.
Útidansleik fyrir börn og ungl-
inga, sem ætlunin var að halda,
varð að fella niður, en hljóm-
sveitin Toxic lék í íþróttahöll-
inni í staðinn. Almennur dans-
leiikur, einkum sniðinn fyrir
unglinga hófst svo í Höllinni kL
9. Þar léku þrjár hljómsveitir
fyrir dansi.
Hátíðinni lauk klukkan eitt
eftir miðnætti.
RITSTJORIM • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA»SKRIFSTOFA
5ÍMI 1Q«1QO