Morgunblaðið - 20.06.1967, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.06.1967, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1967. 23 Þuríður Sæmundssen Blönduósi - Minning r. 1. 5. 1894. — D. 27. 5. 1967. É G minnist frú Þuríðar Sæ- mundsen æbíð sem hinnar þrótt- miklu skörungskonu, sem hélt hiverju góð>u málefni til streitu unz sigur var unninn. Fyrstu kynni mín af frú Þuríði var veturinn 1943—4 er ég var fengin til að halda sauma niámskeið á vegum Kvenfélags- ins „Vaka“ á Blönóuósi. En for- maður þess félags var þá frú Þuríður. Hún kom þar fram sem mikilhætf kærleiksrík kona, sem vildi að mér liði vel, en jatfn- tframt að námsstúlkur hefðu sem mest not atf tímanum og kennsl- unni. Ég sat á mörgum fundum S.A.H.K. sem fúlltrúi fyrir kven félagið okkar hér, þar hafði frú Þuríður forustu um margra ára bil. í því formannsstarfi reynd- ist hún hinn góði fyrirliði. Með röfcföstum orðum sagði hún fyr- ir verkum en einnig af skilningi og kærleika. Frú Þuríður var gædd miklum hætfileikum sem hún beitti ætíð til góðs fyrir menn og málefni. Hún var mikil trúkona, sem leitandi til alföðursins góða i andstreymi lifsins og þakkaði í gleðinni algæsku Guðs og náð. Frú Þuríður var gift Edvald Sæmundsen, kaupm. á Blöndu- ósi. Eftir örfárra ára sambúð þeirra hjóna var hann burtkall- aður af þessari jörðu, hafði þá liðið mikil veikindi. Þegar útséð var um það að Edvald Sæmund- sen fengi lækningu hér á landi fór hann til Kaupmannahafnar, þar sem hann lagðist á sjúfcra- hús. En hann átti ekki aítur- kværnt þaðan lifandi. Þannig eru oft vegir Drottins óskaplegir. Frú Þuríður sótti mann sinn til Kaupmannahafnar, liðið lík. Margur myndi hafa bugazt í sliíkri raun, en frú Þuríður lét ekki bifast í þessum þunga straumi mótlætis. Hún trúði á bjarg aldanna, Jesús Krist. Hann var hennar leiðarljós. Þegar frú Þuríður varð að sjá á bak Edvald manni sínum hafði þeim orðið þriggja barna auðið, Framhald á bls. 18. Þórhallur Jóhanns- son — Minningarorð F. 19. des. 1888. D. 18. mai 1967. HANN vax fæddur að Orma- stöðum í Fellum á Fljótsdals- héraði. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Björg Eiríksdótt ir og Jóhann Fr. Hallgrímsson, smiður. Þórhallur missti ungur for- eldra sína, en tfór í fóstur að Finnsstöðum 1 Eiðaþingá, til sæmdanhjónanna Árna Jónsson- Sigurveigar Guttormsdóttur og var hjá þeim til fullorðinsára, esa fósturfaðir hans lézt árið 1912. Þórhallur ólst upp á menning- adheimili og mat ætíð mikils fósturforeldra sína og skyld- menni þeirra. Hann hélt órofa- tryggð við fornar slóðir og leit- aði hugur hans ocft þangað, enda fór han þangað margar ferðir hin síðari ár, þegar grös voru 1 fullum blóma, og dvaldi þá á Finnsstöðuim hjá vinum og kunningjum. Þegar Þórihallur var 24 ára fór hann alfarinn frá Finnsstöðum og dvaldi eftir það á ýmsum stöðum meðal annars í Dan- mörku, en hann var þar nokfcur ár sér til lækninga. Um 1930 settist hann að hér i Reyfcjavík og hóf búskap á ’ítt ræktuðu landi, sem hann breytti 1 gróðursæl tún. Við búskap fékkst hann óslitið upp frá því, að vísu í smáum stíl hin síðari ár eftir að allt ræktað land var frá honum tekið undir nýbygg- ingar. Árið 1931 kvæntist Þórhallur etftirlifandi eiginfconu sinni, Að- alheiði Albertsdóttur af merkum borgfirzkum bændaættum, greindri og góðri konu, sem var honum ómetanleg stoð og stytta í lífinu. Sambúð þeirra var eins og bezt verður á kosið. Þau eign uðust tvær dætur: Ragnheiði, sem búsett er í Bandaríkjunum, gifit Earle Moss, umsjónarmanni í bandaríska flughernum, og Hjördísi, sem er gift Guðmundi Magnússyni frá Vestmannaeyj- um, blikksmið í Reykjavík. Eins og áður er að vikið var Þórhallur bóndi alla ævi og hefði sjálfur kosið að búa á góðri jörð í sveit, þar sem land- rými væri nóg. Hann hafði alltaf yndi af gróðri jarðar o.g hafði gaman af skepnum og vildi láta þeim líða vel, enda var fénaður hans ævinlega vel fóðraður. Allt fram á síðustu ár hafði hann fullan hug á því að flytja burt af þverrandi landrými hér í Reykja vík á gott sveitabýli. Hans síðasta verk var að huga að nokkrum kindum, sem hann átti á túni suður í Foss- vogi, er hann var skyndilega buntkallaður úr þessum heimi. Þórhallur var fátækur mestan hluta ævi sinnar, en reyndi æv- inlega að sjá fótum sínum for- ráð, enda aðgætinn í fjármálum að eðlisfari og vildi alltaf standa á eigin fótum eins og flestir þeir, sem ól'ust upp í fátækt og alsleysi um og eftir síðust.u alda mót. Hin síðari ár var fjárhag- ur hans mun betri. Sá, sem þessar línur ritar, kynntist Þórhalli ekki fyrr en fyrir 10 árum síðan, en þau kynni eru mér minnisstæð. Þór- hallur var ágætur heim að sækja kátur og fjörugur í samræðum og hafði ævinlega frá mörgu að segja og gat þá stundum verið glettinn í tilsvörum. Bæði voru þau hjónin sérstaklega gestris- in og veitingar ekki sparaðar, ef gest bar að garði. Sjálfur var Þórhallur hrókur alls fagnaðar í samkvæmum. Ég votta eftirlifandi eigin- konu hans, dætrum og öðru sfcylduliði samúð mína. Blessuð sé minning hans. Magnús Sveinsson. S. Helgason hf. SÍMI 36177 Súðarvogi 20 CUDO SUMARLEYFI Verksmiðja vor verður lokuð vegna sumarleyfa frá 31. júlí til 14. ágúst n.k. Athygli viðskiptavina vorra skal vakin á því, að engin afgreiðsla getur farið fram á þeim tíma. Skrifstofan mun þó verða opin, og veitir hún pönt- unum móttöku. CUDOGLER HF. Skúlagötu 26, símar 12056—20456. H AMPPLOTUR-HljSG AG NASPÚNN Höfum nú fyrirliggjandi: hampplötur, húsgagnaspón margar tegundir, TRYSIL veggþiljur, einangrunarplast. Harðvið teak, birki, beyki, eik o g yang. Olíusoðið harðtex. Væntanlegt: Viropan þiljukrossviður á aðeins kr. 160.00 pr. ferm. Ásbjörn Ólafsson hf. Vöruafgreiðsla: Skeifunni 8. E VINRUDE UTANBORÐS HREYFLAR SPORTVEIDIMENN VEIDIBÆNDUR LIGHTWIN 3 hö. 3ja ha. hreyfili, mjögiétturog þægilegur. Tilvalinn á grunn- um vötnum. HÖfum einnig fyrir sport- veiðimanninn ANGLER 5, sem er 5 hö., léttur en kraft- mikill. SPORTWIN 914 hö. KraftmikiII, hljóðlítill og léttur miðað við orku. Sérstaklega spameytinn og þægilegur í meðförum. ITGERDARMENN FASTWIN rétta tegundin fyrir báta með þungan farm og fyrir vatriaskíðaíþrótt. Kjörinn á hjálparbáta á síldveiðum. Höfum einnig BIG TWIN 40, sem er afar þægilegur á ýmis konar sjóferðum. ALDREIBETRIEN NU Evinrude utanborðshreyflarnir hafa verið framleiddir samfleytt í 59 ár — einkunnarorðin eru og hafa verið NÁKVÆMNI og KRAFTUR. Þér fáið það bezta út úr bátnum, því að það bezta hefur verið lagt í hreyfilinn. ALLAR UPPLtSINGAR I SÍMA 38000, EÐA I VERZLUN VORRI LAUGAVEGI 178

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.