Morgunblaðið - 20.07.1967, Side 10
10
MORCUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1067
GÆÐINGAKYN
MORGUNBLAÐIÐ sagði nýlegablaðið fengið nokkrar myndir,
frá hinu merka hestakyni í Árnasem sýna betur en orð, hvernig
nesi í Hornafirði í samtali viðþessi hross líta út.
Gunnar Bjarnason. Nú hefur
I. Stjarna frá Árnanesi, þriggja stíðhesta móðir. Þessir synir Stjörnu eru: Hrafn frá Árna-
nesi, nú notaður í Hrossaræktarsambandi Vesturlands, fjörmikill gæðingur; Vörður á Hesti í
Borgarfirði, einnig fjörmikill og geðljúfur reiðhestur, sem stóð fremstur yngri stóðhesta í
Rorgarfirði sumarið 1966. Faxi, fjögurra vetra, geðljúft, viljug; og alhliða gæðingsefni, og er
hér birt af honum mynd.
Á myndinni er Stjarna 18 vetra gömul og nýlega köstuð. Hún hafði ekki haft hnakk eða
knapa á bakinu í 5 ár, er myndin var tekin, en engu hafði hún gleymt af miklum kostum.
Folaldið, sem fylgir með á myndinni er 10 daga gamalt, og er undan Faxa, syni móðurinn-
ar, en hann er undan mæðginum.
III. Glókolla frá Árnanesi, tveggja stóðhesta móðir, alsystir
Stjörnu. Annar sonur hennar er Gulltoppur, undan Hrafni
Stjörnusyni, nú í eigu bænda i Hrafnkeisstöðum og Hæli í
Hreppum, en hinn er tvævetlingurinn Gnýr, sem er undan
Brúnstjarna, sem er sonur Blesu, sem er systir þeirra Stjörnu
og Glókollu. Mynd af Gný er hér með.
IV. Gnýr frá Árnanesí.
V. Hér má sjá saman þrjá merka hestaræktarmenn, þá Árnanes-bændur Pál Jónsson (Palla),
Guðjón Jónsson (Dúa) og Valdemar Stefánsson (Valda), en þeir hafa samhentir fjallað um
'ræktun þessarar merku hestaættar síðan um 1920.
Sjómenn - Sjómenn
Meðeigandi óskast að 15 tonna bát, sem gerður er
út á Vestfjörðum. Eitthvert fjárframlag æskilegt,
ekki skilyrði. Gullið tækifæri fyrir þann, sem vill
skapa sér sjálfstæða atvinnu. Ný veiðarfæri fyrir
hendi. Upplýsingar í síma 37638 í dag og næstu
daga.
Starf
Ungur áreiðanlegur maður
með góða enskukunnáttu, og
hefur stundað nám í erlend-
um verzlunarskóla, óskar eít-
ir starfi nú þegar. Margt kem-
ur til greina. — Tilboð send-
ist blaðinu, merkt: „Reglu-
samur 5523“.
Símavarzla
Stórt fyrirtæki óskar að ráða símastúlku
nú þegar. Aðeins um framtíðaratvinnu
að ræða. Vaktavinna. Tilboð er greini ald-
ur, menntun og fyrri störf sendist afgr.
Mbl. fyrir n.k. föstudagskvöld, merkt:
„Rösk 777.“