Morgunblaðið - 03.08.1967, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1967
*
BÍLALEIGAN
- FERÐ-
Doggjald kr. 350,-
og pr. km kr. 3,20.
S/MI 34406
SEN DU M
MAGIMÚSAR
SKIPHOITI 21 SÍMAR 21190
eftirlokun simi 40381
simi i_44_44
mmíwifí
föógczéei&a,
Hmflsgðto 103.
Simi eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
lngólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjalcL
Bensín innifalið * leigugjaldl
Sími 14970
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
RAUOARARSTÍG 31 SlMI 22022
Flest til raflagna:
Rafmagnsvörur
Heimilstæki
tJtvarps- og sjónvarpstæki
Suðuriandsbraut 12.
Sími 81670 (næg bílastæði)
★ Leiðrétting frá séra
Árelíusi
Séra Árelíus Níelsson
hefur orðið:
„Ég var engu síður undrandi
en sjálfur „Suðurnesjamaður“,
þegar ég las „í Suður-Afríku“
í grein minni, sem hann talar
um í Velvakanda 30/7. sl.
Þar átti raunverulega ekki
að standa í Suður-Afríku, ég
hef efcki heyrt um skrílsupp-
þot þar, heldur „suður í Af-
ríku“, en sennilega gætum við
Suðurnesjamaður orðið sam-
mála um, að þar hafa víða verið
vanhugsuð uppþot og óeirðir á
siðari timum, og eins í borgum
Ameríku, þótt allt eigi sínar
orsakir.
Hins vegar er mér óskiljan-
legt, hvað Luthuli og Robert
Kennedy koma þessu máli við
á minn kostnað. Ég hef alla tíð
verið hrifinn af báðum og tel
þá bæði lífs og liðna meðal
vitrustu og beztu stjórnmála-
manna og leiðtoga samtímans,
þótt slíkt sé auðvitað erfitt um
að dæma.
Sömuleiðis vil ég að gefnu
tilefni taka fram, að mér þyk-
ir sr. Luther King og hans fylgj
endur, sem eru sumir hverjir
píslarvottar nútímans, fara
réttari leið í málamiðlun og
baráttuaðferðum, en þeir, sem
æsa gegn kristnum mönnum
með skrílsuppþotum, en þeir
vilja skirra vandræðum.
Énnfremur vil ég taka það
fram, að það skiptir mig sann-
arlega engu máli, hvort Guð
væri talinn hvítur eða svartur,
en yfir liti er hann líklega haf-
inn, þótt hann geti birzt í báð-
um þessum og öllum litum.
Kynþáttahatur er mér sann-
arlega viðurstyggð. Ég sá mig
neyddan til að taka það fram,
þótt ég skilji naumast, hvern-
ig það hefur dulizt. Suðurnesja
manni, hafi harrn nokkurn tíma
fylgzt með því, sem ég hef
sagt eða skrifað opinberlega á
sama hátt og þessari grein
minni um aksturinn.
Mér finnst t.d. mjög á mis-
skilningi byggt, það sem sagt
hefur verið um Áraba þá, sem
hér dvelja, í dálkum Velvak-
anda. Ég hef oftar en einu
sinni heyrt fólk segja, að þeir
væru betri leigjendur en Is-
lendingar yfirleitt, þar eð þeir
væru bindindismenn, en vin-
neytendur í óhófi væru erfiðir
legjendur.
Annars erum við Suður-
nesjamaður algjörlega sammála
um allt, sem hann minnist á,
eða ég á sama máli og hann,
því að um efnið í minni grein
ræðir hann ekki, utan þessa
einu setjaraskekkju.
Sennilega er hann með
„nýju umferðarlögunum", og
það gerir augu hans svona
skyggn á skekkjuna. Um þau
yrði ég hins vegar aldrei sam-
mála honum. Og mikið má
vera, komizt þau í framkvæmd
ef það á efcki eftir að kosta
okkur enn meiri vandræði og
sorgir tiltölulega en t.d. upp-
þotin í amerísku borgunum
núna kosta þar.
Luthuli, Bob Kennedy og
Luther King, það eru einmitt
mínir menn, og þeir verða
aldrei taldir meðal hugsunar-
lausra manna, sem láta teyma
sig gegr. hugsun og vilja.
Hins vegar gæti skríllinn
ráðizt á þá bæði lífs og liðna
og rangfært orð þeirra og skoð
anir.
Árelíus Níelsson."
Mörg mannkyn
Hannes Jónsson, Ásvalla
götu 65, skrifar:
„Velvakandi góður!
Það er ómennska, ef ekki
er tekið svari þess, sem rægð-
ur er og ofsóttur fyrir að hann
sem prestur gerir skyldu sína,
upplýsir þjóðina og vísar henni
veginn. Ég hefi ekki lesið neitt
ósatt, sem séra Árelíus Níels-
son hefir skrifað. Meistari
hans, Jesú Kristur, hefði sagt
það sama.
Allt í heiminum er í þróun,
mennirnir eins og annað, og
það er frá hinu illa, ef þróun-
inni er hamlað. ísland hefir
verið hvítra manna land, og
stofninn er góður. Nú eru hér
á götunum allir litir mann-
fólksins, útsendarar hins al-
þjóðlega kommúnisma, til þess
að kenna ungum íslendingum
skæruhernað. Ég hefi séð þetta
Óvandaðir ævintýramenn, sem
hafa svikið fé út úr bönkum
og þykjast vera atvinnurekend
ur, hafa greitt götu þessara
umrenninga inn í landið. Ekk-
ert eftirlit hefir verið; þeir,
sem ráða, sofa á verðinum.
Það er talað um eitt mann-
kyn, rétt eins og Guð ahnátt-
ugur hafi ekki verið þess um-
kominn að hafa þau fleiri. Við
sjáum þó fjölbreytni sköpun-
arverksins, og enn er verið að
skapa. Frá upphafi hafa mörg
mannkyn verið, sum eru liðin
undir lok, önnur að deyja út.
Og nú eru aðallega þrjú, þeir
gulu, sem eru í hrörnun, þeir
hvítu á hápunkti, og þeir
svörtu, sem eiga eftir árþús-
undir ef ekki tugþúsundir ára
til að verða menn.
Enn er að minnast á Luthuli
blökkumann, sem Norðmenn
gerðu að Nóbelinanni. Þeir eru
margir Nóbelmennirnir, ög
hafa orðið það með misjöfnum
hætti Vafalaust hefir Luthuli
verið góður, en það sannar
aðmrs stökkbreytingarnar í
náttúrunni, bó að umhverfið
star.di í stað. Fyrir 1967 árum
varð sl’kt fyrirbæri austur á
Gyðingalandi. þar sem sonut
smiðs varð aílt í einu dýrlegur
boðberi sannleikans, ljós vott-
ur um almætti Guðs. Við erum
mörg sem trúum á Jesú Krist
og viljum breyta eftir kenning-
um hans. Við trúum, en skilj-
um ekki, þar er götusóparinn
jafn hámenntuðum biskupi.
Ég vil fara þess á leit við
alla góða íslendinga, að þeir
svari fyrir séra Árelíus, þegar
svo ódrengilega er vegið að
honum. Hann varar við áfeng-
isflóðinu, sem eyðileggur unga
og gamla. Hann varar við út-
lendingum, sem efcki eiga hér
heima. Hann hefir ekki sagt
annað en sannleikann, hann
vakir á verðinum, er rödd hróp
andans í eyðimörkinni, eins og
honum ber að vera.
Hannes Jónsson,
Ásvallagötu 65.
Höfuiidur hvorki
húnvetnskur né
snæfellskur, heldur
borgfirzkur
Elín Vigfúsdóttir, Laxa-
mýri í Suður-Þingeyjarsýslu,
Opel Caravan 1964
til sölu vegna brottflutnings af landinu. Bíllinn er
sérstaklega góður, tvílitur á hvítum dekkjum, með
krómaða toppgrind og útvarp. Uppl. á skrifstofu-
tíma í síma 14525 og eftir kl. 6 í 17678.
H. BE NE DIKTSSON, H F.
Sudurlandsbraut 4 S'imi 38300
skrifar
jakob O. Pétursson, fyrrv.
ritstjóri íslendings, minnist í
Velvakandadálkum á vísuna
alkunnu:
Ætti ég ekki, vífaval,
von á þínum fundum,
leiðin eftir Langadal
löng mér þætti stundum.
í ævisögu séra Árna Þórar-
inssonar, í heftinu ,Að ævi-
lokum“, blaðsíðu 112, hefir
hann vísuna eins og ég hefi
alltaf heyrt hana og að ofan
er rituð.
Hann segir, að séra Magnús
Helgason hafi sagt sér, að vís-
an væri ort af pilti úr Borgar-
firði. Hann hafi átt unnustu á
Vörðufelli á Skógaströnd og
verið að finna hana um vet-
ur.
Þarna segja fróðir menn frá.
— Elín Vigfúsdóttir.
Vísnafræðin.gur Velvakanda
segir honum, að þetta sé lang-
sennilegasta skýringin á ,tU-
urð“ eða „tilorðningu“ visunn
ar.
Prentvilla leiðrétt
f sl. viku var borgari
einn (B). að leiðrétta nafn höf
undar vísunnar „Þúsundkall-
inn þykir mér“ í þessum dálk-
um. í bréfi sínu sagði maður-
inn, að höfundur væri Jónas-
son, en hér prentaðist Jónsson,
sem er rangt og leiðréttist hér
með.
Vísan enn
„Kæri Velvakandi!
Nú nýverið var bréf í dálk-
um þínum frá Jakobi Ó. Pét-
urssyni á Akurejrri, þar sem
hann gerir athugasemdir við
vísu í ferðaspjalli mínu þann
8. júlí, Langadalsvísuna. Hann
ber mér á brýn, að ég hafi
sett 3 villur í vísuna, en það
er á dálitlum misskilningi
byggt hjá honum. Það var ekki
ég, sem fór með vísuna í bíln-
um, heldur einn af farþegun-
um, og af ásettu ráði birti ég
hana orðrétta, eins og farið var
með hana. Ég sagði heldur ekk
ert um það, um hvaða Langa-
dal hún væri eða hver væri
höfundurinn. Sannleikurinn er
sá, að ég hafði heyrt ýmsar út-
gáfur af þessum húsgangi og
einnig mismunandi staðhæf-
ingar um dalinn og höfundinn.
Sem sagt, ég var að stofna til
athugasemda enda stóð ekki á
þeim. Mér hafa borizt 3—4 ut-
gáfur af vísunni og einnig mis
munandi kenningar um dalinn
og höfundinn, og allir, sem ég
hefi heyrt frá, eru jafnvel
sannfærðir um réttmæti sinn-
ar skoðunar.
Ég tel líklegt, að Jakob hafi
á réttu að standa um dal og
höfund, en er ekki ánægður
með hans útgáfu af vísunni. Er
það fyrst og fremst þriðja
hendingin, leiðin yfir Langa-
dal. Orðið yfir er oftast not-
að, þegar fanð er þvert yfir
dali og er sjaldnast löng leið.
En þegar farið er um langan
dal, eru notuð o ðasamböndin
út um .nn um, fram um. Um
þetta \ il ég þó ekkert fullyrða,
enda enginn vísnasérfræðing-
ur. En hver leyfir sér svo að
halda því fram, að áhuginn á
góðum lausavísum sé að dvína
á þvísa landi?
— Gísli Guðmundsson.
—- Eins og þegar er fram
komið af leiðréttingu Jakobs,
hafði hann skrifað „efíii“ (ekki
,,yfir“) í bréfi sínu, en prent-
villupúkinn, sá gamii skunk-
ur breytti réttu í rangt að
venju sinni. — Hir.s vegar stóð
réttilega í fyrirsögninni á sín-
um tíma: „Leiðin eftir Langa-
dal.“