Morgunblaðið - 09.08.1967, Blaðsíða 3
3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDÁGUR 9. ÁGÚST 1967
í GÆR mátti líta á ytri höfn-
inni í Reykjavík stórt hvítmál
að skip liggja þar fyrir ank-
erum. Hann var í yngra lagi
hópurinn, sem ferjaður var í
Iand úr þessum farkosti, og
sumir all Iágir í loftinu. Hér
var sem sé ekki um að raeða
neinn venjulegan hóp
skemmtiferðafólks heldur
hópur brezkra skólabarna á
ferð um norðlaegar slóðir.
Þegar í land var komið
tvístruðust ungu farþegarnir í
marga smáhópa, skoðuðu borg
ina og notuðu tækifærið að
gera innkaup. Einn slíkan
hóp hitti blaðama'ður Mbl.
þar sem hann hafði sezt
frjálslega til hvíldar við Hót-
el íslands bifreiðastæðið. Far-
ið var fram á að taka mynd af
hópnum og var því svarað
með glymjandi fagnaðarópi.
Voru síðan nokkrar spurning-
ar lagðar fyrir tvær vingjarn-
legar kennslukonur, sem voru
fyrir hópnum.
Þær sögðu, að hér væri um
Hinn hópurinn frá Belfast á írlandi ásamt kennaranum.
1000 brezk skólabörn heimsóttu Reykjavík
Skólanemarnir komu með þessu skipi, sem heitir Bevonia, gamalt Indlandsfar byggt árið
1939.
að ræða hóp um eitt þúsund
skólabarna og kennara. Skip-
fð, sem þau væru á, héti De-
vonia og væri í leigu frá
Brezk indverska skipafélag-
inu.
Brezka kennslumálaráðu-
neytið í samráði við skólana
leigði skipið til fararinnar.
Nemendur víðsvegar að frá
Bretlandseyjum tækju þátt í
ferðinni, er hugsuð væri sem
kynningar- og skemmtiferð
fyrir nemendurna. Tæki hún
tvær vikur og væri Reykja-
vík fyrsti viðkomustaður.
Héðan væri haldið til Fær-
eyja og síðan til Noregs.
Þeirra hópur væri frá Bel-
fast á írlandi, og hefði gengi'ð
þar um borð, en upp hefði
verið lagt frá Liverpool.
Sögðust þær hafa keypt
mmjagripi nér í verzlunum
og sannfærzt um, að ekki
þyrfti Wilson til, að verð
bólgnaði.
Fyrir utan Vesturver stóð
hópur nokkurra stúlkna, sem
skáru sig úi öðrum vegfar-
endunum hvað klæðaburð
snerti. Voru þær klæddar fall-
egum bláum skólaeinkennis-
með viðeigandi
búningum
höfuðföt.
Áðspurðar sögðust þær einn
ig hingað komnar með De-
voniu, og vera nemendur í
Abbotsford kvennaskólanum í
nágrenni London.
Sumarleyfi sitt sögðu þær
stutt, aðeins sex vikur. Væri
ekki amalegt að komast úr
Lundúnaþokunni í þann tíma.
Um morguninn hefðu þær
tekið þátt í hópferð, sem
ferðaskrifstofa Geirs Zoega
hefði skipulagt, til Þingvalla
og hringinn um Hveragerði.
Reykjavík og umhverfi væri
fagurt. Byggingar væru hér
fallegar og hreinar eins og
öll borgin.
1 skóla þeirra væri aðeins
nemendur af hinu veikara
kyni eins og nafnið gæfi til
kynna, væru þeir á aldrinum
12—18 ára. Að námi loknu í
skólanum gætu þær haldið
áfram í menntaskóla ef til-
skyldum árangri væri náð.
Eftir myndatöku hélt þessi
glaðværi hópur áfram göngu-
fer'ð um miðbæinn. Úti á höfn
inni beið Devonia gamla
Indíafarið þeirra. og var áætl-
að að það létti ankerum um
kvöldið.
Nokkrar stúlkur í búningum Abbotsford-kvennaskólans.
(Ljósm. Sv. Þorm.)
^lfSTOM
1
IT-FERÐIR:
f UTANLANDSFERÐA-
BÆKLINGI OKKAR ERU
NÁNARI UPPLÝSINGAR
UM ALLAR IT-FERÐIRNAR
ÁSAMT VERÐUM. EINNIG
ERU f BÆKLINGNUM NÁ-
KVÆMAR UPPLÝSINGAR
UM HINAR ÞEKKTU FERÐ-
IR PRESTSINS í TJÆRE-
BORG, SEM FERÐASKRIF-
STOFA RÍKISINS IIEFUR
EINKAUMBOÐ FYRIR Á
fSLANDI
FERÐAS KRIFSTOFA
RfKISIWS
f IT-FERÐUNUM KAUPIR VIÐSKIPTAVI ^LRINN FLUGFAR, GISTINGU OG
JAFNVEL FLEIRA f EINUM PAKKA HJ Á FERÐASKRIFSTOFUNNI. IT-FERÐ-
IRNAR VERDA MEÐ ÞESSU MUN ÓDÝR \RI IIELDUR EN ÓSKIPULÖGÐ FERÐA-
LÖG. SEM DÆMI VILJUM VIÐ NEFNA NOKKRAR AF HINUM FJÖLBREYTTU
OG HAGKVÆMU IT-FERÐ JM Á LÆKKUÐUM FARG JÖLDUM, SEM VIÐ BJÓÐ-
UM YÐUR í ÁR:
«
Kaupmannchofn:
9 daga ferð, gistingar, morgunv. og kynnisf uð um Kaupmannah. innif., frá kr. 8.940.00.
London - París:
14 daga ferð, gistingar og morgunv. innif. frá kr. 10.850.00.
London - Zurich - Kaupmannahöfn:
15 daga ferð, gistingar og morgunv. innif., frá kr. 12.960.00.
Komið, skrifið eða hringið og við inunum senda yður eintak af ut-
anlandsferðabæklingnum.
saman verð og gæði, áður en þér ákveðið ferðalagið!
LÆKJARGÖTU 3, REYKJAVÍK, SÍMI 11540
STAKSTEII\1AR
Eru þeir að vitkast?
Að undanförnu hafa spunnist
verulegar umræður um hag
Sambands islenzkra Samvinnu-
félaga og kaupfélaganna al-
mennt. Á aðalfundi Sambands-
ins upplýstu forráðamenn þess,
að samvinnufélögin ættu nú við
mikla fjárhagsörðugleika að
etja, og nauðsynlegt væri að
koma við endurbótum í rekstri
félaganna og gæta ítrasta sparn-
aðar. Morgunblaðið hefur bent
á, að því aðeins reynist unnt að
endurskipuleggja samvinnufé-
lögin og koma rekstri þeirra á
þann grundvöll, að þau verði
fjárhagslega traust, að viðskipta
sjónarmið og hagsmunir þátt-
takenda verði látnir ráða, en
ekki pólitísk sjónarmið á þann
veg, sem því miður hefur allt-
of mikið borið á, þar sem leið-
togar Framsóknarflokksins hafa
viljað liagnýta samvinnufélögin
í þágu flokksins, en ekki með-
limanna. En nú virðist votta fyr
ir því, að forustumenn Fram-
sóknarflokksins geri sér greín
fyrir vanda samvinnufélaganna.
Heilbrigð
samkeppni
í ritstjórnargrein Tímans sl.
sunnudag er rætt um það að
kaupmenn og kaupfélögin þurfi
að halda uppi samkeppni. Orð-
rétt segir:
„Samkeppni kaupmanna og
kaupfélaga hefur átt meginþátt
í því að tryggja frjálsa verzlun
á íslandi.
Oft hafa staðið harðar deilur
miili kaupfélaga og kaupmanna.
Þó hefur dregið úr þeim deil-.
um í seinni tíð. Báðir aðilar
hafa séð, að þeir eru hvor öðr-
um nauðsynlegir, ef litið er á
málin frá sjónarmiði heildarinn-
ar. Fyrir bæði kaupfélög og
kaupmenn er heppilegt að hafa
visst aðhald. Þetta aðhald verð-
ur bezt tryggt með því að kaup-
menn og kaupfélög starfi á jafn
réltisgrundvelli. Þetta sannar
verzlunin í nágrannalöndum
okkar, þar sem ekki er lengur
treyst á nein opinber höft, held-
ur á samkeppni kaupfélaga og
kaupmanna til að tryggja sem
hagstæðasta verzlun.“
Hér mælir Tíminn vissulega
skynsamlega.
Verður
stefnu1 rey í ~>j?
Því miður hefur það ekki ver-
ið svo í reynd, að Framsóknar-
foringjarnir hafi talið heppileg-
ast, að heilbrigð samkeppni
væri á milli Samvinnufélaga og
kaupmanna. Þeir hafa þvert á
móti krafist þess að stjórnend-
um samvinnufélaganna, að kaup
mannaverzlun og sérhver sam-
keppni yrði lögð að velli, þar
sem unnt væri að koma því við
og oft með ærnum kostnaði, sem
leitt hefur til þess, að samvinnu
félögin eru i miklu erfiðari að-
stöðu fjárliagslega en ella væri.
Þetta veit hvert mannsbarn og
eins hitt, að Framsóknarforingj
arnir hafa ekki talið að kaup-
mannaverzlun og samvinnuverzl
un ætti að starfa „á jafnréttis-
grundvelli". Þeir hafa þvert á
inóti krafist forréttinga fyrir
hönd samvinnufélaganna, ekkl
sízt á haftatímum, þegar þeim
hefur verið ívilnað á kostnað
kaupmannaverzlunar. En vissu-
lega væri það ánægjulegt, ef
Framsóknarforingjarnir hefðu
vitkazt og meintu það sem segir
í ritstjórnargrein Tímans, þegar
fagnað er frídegi Verzlunar-
manna. Þá mundi bæði sam-
vinnufélögunum sem slíkum og
þálttakendum þeirra farnast bet
nr.