Morgunblaðið - 09.08.1967, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST lfl«7
75 ara í dag:
Frú Gróa Pétursdóttir
ÞAÐ þykir sjálfsagt fleirum en
mér næsta ótrúlegt, að vinkona
mín, Gróa Pétursdóttir, sé í dag
búin að heiðra veröldina með
nærveru sinni í þrjá aldarfjórð-
unga. Ekki einasta það að mæta
henni á götu, spengilegri, kvikri
í hreyfingum og geislandi af
lxfsorku, heldur öllu frekar hitt,
að kynnast konunni og síunigu
viðhonfi hennar til lífsins, gerir
manni þessa staðreynd torskilda.
En það er einmitt þetta bjarta,
jákvæða lífsviðhorf, sean öðru
fremur laðar að Gróu alla þá,
sem henni kynnast, enda er hún
frábærlega vinsæl og vinmörg.
Gróu lætur ekki að skoða
mennina og lífið úr upphafinni
fjarlægð sem gagnrýninn áhorf-
andi. Henni er það meðfædd
þörf að vera virkur þátttakandi
í mannlífinu, sem iðar allt í
kring um okkur 1 blíðu og striðu,
ávallt boðin og búin að rétta
hjálparhönd og liðsinna góðum
málstað. Og það er lið í Gróu
hvar sem hún leggur hönd að.
Um það geta ekki hvað sízt bor-
ið þær fjölmörgu konur, sem
með henni hafa unnið að félags-
störfum. Góðvild hennar og
lipurð, bjarsýni og starfsgleði
verður hverjum manni ómetan-
leg hvatning. Mér kæmi það á
óvart ef Gróa ætti nokkurn
óvildarmann, það hlyti þá að
vera óverðskuldað.
Ef einhver kynmi nú að spyrja
eftir þennan lestur, hvort konan
hefði þá enga galla, er þvi til
að svara að auðvitað hefur hún
þá einhverja, annars væri hún
varla eins elskulega mannleg og
hún er. En ég er hrædd um að
mér vefðist tunga um tönn ef
ég ætti að tíxmda hverjir þeir
eru, svo mjög falla þeir í skugga
mannkostanna.
Ég kynntist Gróu fyrst að
ráði þegar fundum okkar bar
saman í bæjarstjórn Reykjavík-
ur. Á þá vináttu sem þá þegar
tókst með okkur, hefur - aldrei
borið skugga. Það eina sem ég
hefi yfir að kvarta í því sam-
bandi er það, að hafa ekki fyrr
á lífsleiðinni kynnzt þessari
sómakonu, en hugga mig við þá
von að eiga enn eftir um mörg
ókomin ár að njóta vináttu
hennar og þeirrar birtu og
hressileika, sem af henni stafar.
Að lokum færi ég svo afmæl-
isbdrninu, eiginmanni hennax og
fjölskyldu allri, innilegar árnað-
aróskir.
Auður Auðuns.
EM af okkar ágætustu reyk-
vísku konum, frú Gróa Péturs-
dóttir, er 75 ára í dag. Hún fædd-
ist að Hvassahrauni á Vatns-
leysuströnd 9. ágúst 1892. For-
eldrar hennar voru hjónin Odd-
björg Jónsdóttir og Pétur Örn-
ólfsson og fluttu þau með fjöl-
skyldu sína til Reykjavikur 1897
og ólst hún upp með foreldrum
sínum í glöðum systkinahóp.
5. janúar 1918 giftist Gróa
Nikulási Jónssyni, fyrrverandi
skipstjóra, sem stundað hefir sjó
mennsku frá 16 ára aldri, hinum
ágætasta dugnaðarmanni og hafa
þau eignast 3 syni, Pétur, heild-
saia, Jón, stýrimann og Örnólf,
skrifstofumann og alið upp eina
fósturdóttur, Þóru Ólafsdóttur,
bróðurdóttur Nikulásar, og
gengu henni í foreldrastað.
Þegar Sjálfstæðisfélagið
Hvöt var stofnað fyrir 30 árum
var Gróa ein af stofnendunum
og hefir í mörg ár verið í stjórn
þess félags og unnið þar af sín-
um alkuna dugnaði og velvild
félaginu og Sjálstæðisflokknum
til heilla, því allt sem hún gerir
t
er svo heilbrigt og gott.
Formaður hefir húh verið í
Kvennadeild Slysavarnafélags
íslands í mörg ár og unnið þar
af heilum hug eins og alls stað-
ar annarsstaðar sem hún hefir
komið við sögu. I öllum þeim
félögum sem Gróa hefir unnið
í, hefir hún öðlast mikið vin-
fengi, því henni var igefið í
vöggugjöf þetta glaða góða
sinni. .
Á heimili Gróu og Nikulásar
hefir ætíð ríkt hin mikla xs-
lenzka gestrisni og allir sem þar
hafa komið farið glaðir og end-
urnærðir frá þeim hjónum.
Gróa mín, Sjálfstæðiskvenna-
félagið Hvöt og ég þökkum þér
öll þín störf og óskum þér hjart
anlega til hamingju með þín 75
ár, sem ekki er nú mikill aldur
fyrir þig, eins og þú ert létt í
spori.
Á þessum merku tímamótum
bið ég þér og öllu þínu fólki
blessunar Guðs.
María P. Maack.
Kæra Gróa mán!
í dag, á 75 ára afmælisdaginn
þinn, sendum við í Slysavarna-
deildinni Ingólfi, þér beztu af-
mæliskveðjur — og þakkir fyrir
þín miklu störf í þágu slysavarna
starfseminnar.
Þau 32 þúsund kaæla og
kvenna sem í samtökunum eru,
vita ihversu þú heldur þar á
málum, og hverju þú hefur kom-
ið þar til leiðar, enda slysavarna
starfsemin þitt hjartans mál.
Þar sem annars staðar, vinnur
þú eftir því, hvort þú getur ein-
hverju góðu komið frarn, og það
hefur þér sannarlega tekizt í
slysavarnamálunum, Gróa mín,
Sem formaður stærstu kvenna
deildar landsins hefur þér og þín
um konum sannarlega orðið vel
ágengt, það bera björgunarskýl-
in við eyðistrendur þessa lands
glöggt vitni um — og er það
aðeins það sem mest ber á.
Björgunarsveit Ingólfs hefur
heldur ekki farið varhluta af
stórhug ykkar, en í dag sendum
við Ingólfsmenn þér sérstakar
þakkir fyrir góðan stuðning á
liðnum árum.
Þú og konur þínar hafa sýnt,
að þið kunnið að meta störf
björgunarsveitar Ingólfs, og við
vitum að með engu getum við
glatt þig, Gróa mín, meir, en
að vera menn til að bjarga ef
þörf krefur.
Við biðjum þér blessunar á
þessum tímamótum Gróa mín,
og vonum að mega hafa þig með-
al okkar sem lengst.
Lifðu heil,
f.h. Ingólfsmanna,
Baldur Jónsson.
Afmæliskveðja frá
Kvennadeild Slysavarn-
arfélagsins í Reykjavík
í DAG er 75 ára frú Gróa Pét-
ursdóttir Öldugötu 24. Fxú Gróa
er af mörgum vel kunn, enda
þekkt kona fyrir hin marghátt-
uðu störf sín í þágu hinna ýmsu
félaga, sem hún er starfandi í.
Einnig hefur hún setið í Bæjar-
stjórn Reykjavíkur og unnið þar
mikiið og gott starf. Þó held ég
að einna vinsælust sé hún inn-
an Slysavarnafélags Islands.
Hún hefur verið formaður
Kvennadeildar SVFÍ. í Reykja-
vi'k í 8 ár og varaformaður var
hún á formannsárum frú Guð-
rúnar Jónasson og hennar hægri
hönd í öllu og mikil hjálpar-
hella. Hún er og varaforseti í
aðalstj. SVFI. Þau 10 ár sem
kór Kvennadeildarinnar starfaði
var hún formaður hans. Við i
Kvennadeildinni erum lánsamar
að hafa slíkan formann sem
Gróu. Hún er mjög vel
fallin til þess að hafa á hendi
forustu, sem hún leysir þannig
af hendi að öllum þykir gaman
af að vinna með henni, og staf-
ar það ekki síst af því hversu
glaðlynd hún er, að allt fyllist
lífi í kring um hana. Verkin þó
erfið séu virðast létt undir henn-
ar stjórn. Hún veit alltaf hvern-
ig á að ráða fram úr hinum
ýmsu málefnum og verkefnum
sem félagið beitir sér fyrir. Gróa
er ákaflega ósérhlífin og dugleg
kona og er ekki á henni að sjá
að hún sé nú orðið 75 ára. Við
sem yngri erum eigum oft fullt
í fangi með að fylgja henni eft-
ir. Hún fer á hverju sumri með
hópa af konum úr deildinni í
ferðalög og hefur um leið heim-
sótt aðrar kvennadeildir út um
allt land, og hvatt Þær tdl þess
að koma og heiimsækja okkur.
Með þessu hefur orðið mikið nán
ara og betra samstarf og kynn-
ing á milli deildanna allra. Hún
er ákaflega hjartgóð kona, sem
ekkert aumt má sjá, og þess
vegna er SVFÍ. henni svo hjart-
fólgið, því þar getur hún lagt
fram krafta sína til hjálpar bág-
stöddum.
Við konurnar í Kvennadeild
SVFÍ í Reykjavík erum henni
mjög þakklátar fyrir hennar
miklu störf og hina öruggu for-
ustu. Við vonum allar af beiLum
hug að við eigum eftir að hafa
hana fyrir formann okkar í mörg
ár enn. Um leið óskum við
henni allar hjartanlega til ham-
ingju á þessum merkisdegi henn-
ar.
Bakari óskast
Óskum eftir að ráða bakara til starfa í brauðgerð
vorri. Góð vinnuskilyrði.
BRAUÐ H.F., Auðbrekku 32, Kópavogi.
Til sölu
vegna brottflutnings af landinu Bill Toyota
Crown de luxe 1967, ennfremur allt innbú, þar
á meðal: Ný sjálfvirk þvottavél, AEG eldavél,
Philips sjónvarpstæki (23”) með loftneti, útvarp,
borðstofusett, bókaskápur, lampar, sófasett með
borði, innskotsborð, hægindastóll, ruggustóll, eld-
húsborð með stólum, barnarúm, kommóður, gúm-
bátur, teppi og margt fleira. Upplýsingar í síma
19133 eftir kl. 5.
EinstaklingsíbúS við Goð-
heima.
2ja herb. íbúðir við Kapla-
skjólsveg, Kleppsveg, Lang
holtsveg, Skaftahlíð og Víði
mel.
3ja herb. íbúðir við Ásvalla-
götu, Kaplaskjólsveg, Lang-
holtsveg, Laugarnesveg,
Ljósheima, Kleppsveg,
Njálsgötu, Seltjarnarnesi
og Tómasarhaga.
4ra herb. íbúðir við Álfta-
mýri, Ásvallagötu, Eikju-
vog, Fálkagötu, Glaðheima,
Háaleitíisbraut, Háteigsveg,
Hátún, Kleppsveg, Lauga-
læk, Njörvasund, Sólheima,
Stóragerði og í Hafnarfirði.
5 herb. íbúðir við Álflheima,
Baxmahlíð, Bogahlíð, Ból-
staðahlíð, Eskihlíð, Goð-
heima, Háaleitisbraut, Hjarð
arhaga, Hraunbæ og Rauða
læk.
6 herb. íbúðir við Kópavogs-
braut, Unnarbraut og Þing
hólsbraut.
Ódýr sumarbústaður á eign-
arlandi, í nágrenni borgar-
innar.
Til sölu
í Reykjavík
Langholtsvegur
2ja herb. íbúð, jarðhæð, um
70 ferm. Sérinng.
Sogavegur
2ja herb. íbúð á 1. hæð. Sér
inng.,útb. kr. 250 þús.
Goðheimar
3ja herb. íbúð á jarðhæð
100 ferm. Sérinng., sérhiti.
Grænuhlíð
3ja herb. íbúð á jarðhæð.
Sérinng., sérhiti.
Tómasarhagi
3ja herb. íbúð á jarðhæð,
100 ferm. Sérinng., sérhiti.
Sogablettur
4ra herb. einbýlis'hús. Hæð
og ris.
Álfheimar
4ra herb. íbúð á 3. hæð, 112
ferm. Stórar svalir í suð-
ur.
Eikjuvogur
4ra herb. íbúð í risi um 100
ferm. Tvennar svalir. Sér-
inng.
Háaleitisbraut
5 herb. íbúð á 1. hæð, 117
ferm. Bílskúrsréttur.
Sæviðarsund
Raðhús í smíðum, endahús.
Sikpti á 4ra—5 herb. íbúð
koma til greina.
Málflutnings og
fasteignastofa
l Agnar Gústafsson, hrl.
Bjöm Pétursson
fasteignaviðskipti
Austurstræti 14.
, Símar 22870 — 21750. j
Utan skrifstofutíma;,
35455 — 33267.
Til sölu
í nýja Breið-
holtshverfinu
í smíðum 2ja, 3ja og 4ra
herb. íbúðir sem eru að hefj
ast byggingarframkvæmdir
á. Seljast að mestu leytí
frágengnar að sameign, en
ópússaðar að innan með
hita. Sérþvottahús og
geymsla fyrir hvora íbúð á
hæðinni. Skemmtileg teikn-
ing.
6 herb. fokheld raðhús í
Fossvogi.
6 herb. 135 ferm. endaíbúð
við Fellsmúla, rúmlega tilb.
undir tréverk. Ailir veðrétt
ir lausir.
Mikið úrval af 2ja—6 herb.
hæðum, sumar sér og ein-
býlishúsum og raðhúsum.
[inar Sigurðsson hdl.
Ingólfsstræti 4
Sími 16767.
Kvöldsími milli 7 og 8 35993.
Fjaðrir fjaðrablöð hljóðkútar
púströr o. fl. varahlutir
í margar geCðir bifreiða
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168 Sími 24180
gústaf a. sveinsson
hæstaréttarlögmaður
Laufásvegi 8, sími 11171
Til sölu
í Hafnarfirði
Hringbraut
3ja herb. íbúð á 1. hæð um
80 ferm.
Holtsgata
3ja herb. íbúð á 1. hæð, 90
ferm. Svalir. Bxlskúrsréttur.
Útb. 350 þús.
öldugata
3ja herb. íbúð á 1. hæð, 72
ferm. Útb. 350 þús.
Álfaskeið
4ra herb. íbúð á 2. hæð, 110
ferm. Laus til íbúðar.
Kelduhvammur
5 herb. íbúð á jarðhæð. Til-
búin undir tréverk.
Kvíholt
5—6 herb. íbúð í smíðum,
140 ferm.
Til sölu
1 Kópavogi
HLíðavegur
3ja herb. ibúð í risi. Útb.
um 400 þús.
Reynihvammur
5 herb. íbúð á 2. hæð, 120
ferm. Sérhiti, sérinng.
Digranesvegur
Parhús, 3 svefnherb. og bað
uppi. Stofur, eldhús og
W. C. niðri.
Skip og fasteignir
Austurstræti 18.
Sími 21735. Eftir lokun 36329.
7/7 sölu
2ja, 3ja, og 4ra herb. íbúðir í
Breiðholtshverfi. íbúðirnar
seljast tilb. undir tréverk og
málningu með fullgerðri sam
eign. Vekjum athygli á sér-
lega hagstæðu verði og
skemmtilegri teikningu. Sér-
þvottahús eða þvottavéialagn
ir fylgja hverri íbúð.
fasteignastofan
Kirkjuhvoli 2. hæð
SÍMI 21718
Kvöldsíml 42137
SAMKOMUR
Almenn samkoma
Boðun fagnaðarerindisins að
Hörgshlíð 12 í kvöld, miðviku-
dag kl. 8,10.
Hulda Victorsdóttir ritari.