Morgunblaðið - 09.08.1967, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. ACÚST 1967
23
Auðveldur sigur Dan
merkurmeistaranna
ÞAÐ er greinilega stigsmunur á
getu Danmerkurmeistaranna og
tslandsmeistaranna í handknatt-
leik kvenna. Kemur það ekki að
Hafnarfjörður -
Reykjavík 21:19
'HAFNARFJÖRÐUR sigraði
Reykjavík í bæjaikeppni í hand-
knattleik í gærkvöldi með 21:19.
Staðan í hálfleik var 12:8. Leik-
urinn var allan tímann fremur
jafn og skemmtilegur, og á tíð-
nm vel leikinn. í kvöld verður
aftur bæjakeppni sönau aðila,
sem forlieikur að leik FIF og
landsliðisinis.
I KVÖLD keppa Danmerkur-
meistararnir í handknattleik
kvenna, F.I.F., við íslenzka
landsliðið, sem nú hefur verið
valið og verður þannig skip-
að:
Jónina Jónsdóttir, FH,
Regína Magnúsdóttir, Fram,
Sigrún Guðmundsdóttir,
Val,
Sigrún Ingólfsdóttir, Val,
Ragnheiður Lárusdóttir,
Val,
Björg Guðmundsdóttir, Val,
Geirrún Theodórsdóttir,
Þjófor gripnir
TVEIR drukknir innbrotsþjófar
voru gripnir í myndavélavið-
gerðarstofunni við Garðastræti 2
aðfaranótt þriðjudagsins. fbúi í
húsinu varð ferð þeirra var og
gerði lögreglunni aðvart. Þegar
lögregluþjónarnir komu á vett-
vang höfðu þjófamir hlaðið á
sig myndavélum og öðrum ráns-
feng og voru að búast til brott-
ferðar þegar lögreglan tók þá og
ók inn í Síðumúla.
Dregið um
hjólhýsi
SL. laugardag var dregið hjá
borgarfógeta í hjólhýsahapp-
drætti Krabbameinsfélagsins.
Vinningsnúmerið er 10250. Vinn
ingishafi snúi sér til skrifstofu
félagsins í Suðurgötu 22.
ÞAÐ bar til í Þórsmörk í sivo-
nefndium Langadal, s.l. fi'.untu-
dag, að maður nokkur, sem þar
var stadidur mieð fjölskyldu sinni
hleypti af þremur skotum úr
riffli og beindi vopninu, að því
er tallið var, í þá átt er kona
hanis og fleira fólik var. Engum
varð þó meint af þessum skctum.
LögreglUnni á Selfossi var
þegar gert viðvart um þetta fram
ferði mannsins og var hann færð
ur til yfirheyrslu hjá sýslumann-
eins fram í því hve miklu greið-
ara dönsku stúlkunum gekk að
skora í leik þeirra á móti Val í
gærkvöldi, er þær unnu með 15
mörkum gegn 8, heldur bar spil
þeirra og hraði af. Líklega eir
Valsliðið í heldur slakri þjálfun
núna, en það afsakar reyndar
ekki neitt. Spil þeirra var allan
Ieikinn í gærkvöidi fálmkennt og
virtist á tíðum að þær kynnu
hreinlega ekki að grípa, og ef
svo vildi til að markmaður náði
að verja, var eins og liðið vissi
ekki sitt rjúkandi ráð. Aldrei
voru hröð upphlaup reynd, held-
ur þess vandiega gætt að bíða
unz öruggt var að FIF-stúlkum-
ar voru komnar í vöm.
Það var Anne Hjort sem skor
aði fyrsta markið í leiknum 1
Fram,
Díana Óskarsdóttir,
Ármanni,
Hansína Melsted, KR,
Eiin Guðmundsdóttir,
Víking,
Herdís Bjömsdóttir,
Breiðablik.
Forleikur leiks F.I.F. og
landsliðsins verður bæjar-
keppni milii Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur í karlaflokki. —
Munu sömu lið og léku í gær-
kvöidi keppa.
Skólanefnd
IVIosfellshrepps
segir af sér
NÝLEGA óskaði skólanefnd
Mosfellshrepps eftir að verða
leyst frá störfum. Ástæðan var
sú að hún hafði farið fram á
að staða setts skólastjóra við
Varmárskóla yrði auglýst laus
til umisóknar. Mun bréf neifnd-
arinnar hafa borizt menntamála-
ráðherra um hendur fræ'ðslu-
málastjóra, en ráðherra skipaði
settan skólastjóra í stöðuna dag-
inn eftir án þess að skólanefnd
gæfizt áður kostur á að gera
grein fyrir afstöðu sinni' við
ráðherra. Taldi skólanefndin að
hún væri algerlega sniðgengin
með þeim hætti.
inum á Hvolsvelli. Játaði hann
fyrir rétti að hafa hleypt af
þremur skotum, en kvaðst hafa
gert það fyrir þá sölk, að hann
befði tapað af konu sinnd og
kröiklkuim og viljað með þessu
gera þeim viðvart, að hann væri
tilbúinn til brottfarar úr Langa-
daL
Maðurinn var undir áhrifum á
fiengis þegar hann skaut úr rilfil-
inum.
Málið er í rannsókn.
gærkvöld úr vítakasti, en Sigxíð-
ur Sigurðardóttir, sem nú lék
aftur með Val jafnaði úr víta-
kasti. Þá skoraði Birte Hansen,
en Sigrún Guðmundsdóttir jafn-
aði, og skömmu síðar náðu Vals
stúlkurnar í eina skiptið for-
ystu í leiknum með marki Sig-
ríðar Sigurðardóttur. Um miðj-
an hálfleikinn fóru dönsku stúlk
urnar að sigla frammúr og stað-
an £ hálfleik var 10:4.
Síðari hálfleikur var jafnari,
en þá voru dönsku stúlkurnar
feimnari við að skjóta. Lauk
hiállfleiknum með sigri þeirra
dönsku 5 mörk gegn 4 og úr-
slit leiksins urðu því 15:8 fyrir
F.I.F.
Dómara leiksins, Hannesi Þ.
Sigurðssyni, voru nokkuð mis-
lagðar hendur við störf sín og
sleppti t.d. einu sinni augljósu
víti á F.I.F. og dæmdi eitt sinn
mjög hæpið víti á Val.
Beztar í liði FIF voru þær
Toni Rösler, er skoraði 3 mörk
og sýndi skemmtilega leik-
tækni, Frida Jensen og Ditte
Poulsen. Annars var liðið í heild
fremur jafnt og skemmtilega
leikandi og ennfremur greini-
lega í góðri æfingu.
I liði Vals bar einna mest á
Sigríði Sigurðardóttur, þótt hún
sé í mjög lítilli æfingu, og Sig-
rúnu Guðmundsdóttur og Björgu
Guðmundsdóttur. Yngri stúlkurn
ar í liðinu reyna helzt ekki að
skjóta og eru heldur svifasein-
ar í leik sínum. Kemur það bezt
í ljós þegar þær leika við lið sem
er jafngott og FIF. Mörk Vals
skoruðu Sigríður 4, Sigrún 2 og
B jörg 2.
í kvöld leika Danmerkurmeist
ararnir við íslenzka landsliífiS
og má búast við að sá leikur
verði jaifnari og skemmtilegri.
- KÍNA
Framhaild af bls. 1
Kína, sætti harðri gagnrýni
Rauðra varðliða á fjöldafundi
sem efnt var til í Peking á mánu
dag. Var þess krafizt þar, að
hann bæði Mao formann afsök-
unar opinberlega fyrir að hafa
framfylgt menningarbyltingunni
slælega í stjórnardieMd sinni. Þá
voru og gagnrýndir Liu Shao dhi
íorseti, Teng Hsiao ping, aðalrit-
ari kommúnistaflokks Kína, og
Tao cfhu, fyrrum yfirmaður
áróðursdeildar flokksins, en þeir
báru á móti því að þeir væru
andsnúnir flokknum, sósíalistum
og Mao sjálfum eins og á þá
'hafði verið borið. Játuðu þeir á
sig nokkur mistök en kváðust
saklausir af öllum alvarlegum
ásökunum, sem bornar hefiðu ver
ið fram á bendur þeim. Komu
þremenningarnir fram á smærri
gaignrýnissamkomum í embættis
mannahverfinu Chung Nan Hai
í Peking og héldu þar uppi vörn
um fyrir sig, en Rauðir varðlið-
ar létu ekki segjast og slógu upp
tjöldum fyrir framan bústað Liu
Shao dhis og bjuggust um til
nætursetu.
Eins og skýrsla Krúsjeffs
um Stalin.
í hinu opinbera málgagni byit-
ingarnefndarinnar í Peking seg-
ir frá því að Liu Shao dhi, for-
seti Kína, hafi lagt drög að samn
ingu leyniliegrar skýrslu um
Mao Tse tung í llikingu við
skýrslu þá er Nikita Krúsjeff,
forsætisráðherra Sovétrikjanna,
lagði fram um Jósef Stalín á sín-
um tírna. Að sögn blaðsins var
það ætlun Liuis að leggja skýrsl-
una fyrir kínvenska kommúnista
flokkinn þegar er hann heifiði
hrifisað til sin öll völd í landánu.
Átrti Feng Ghen, fyrrum borgar-
stjóri Peking, að hafa átt mikinn
þátt í þessu áformi Lius og sagði
blaðið frá níu daga leynileguim
fundi Pengs og a.m.k. tíu helztu
samistarfsmanna hans, í Yanig
Kuan Lou dýragarðinum í Pek-
inig í desembermánuði 1961, þar
sem lögð voru drög að samninigu
skýrsiu þeissarar um aifglöp Maos
Æormanns í embætti.
— Friðsamleg helgi
Framhald af bls. 24.
und manns, og fór skemmtunin
vel fram. Urðu engin teljandi ó-
höpp, þrátt fyrir gífurlega um-
ferð, og rómaði lögreglan mjög
hegðun ökumanna í umferð-
inni.
Á bindindismannamótinu í
Galtalækjarskógi voru um 3 þús
und manns þegar flest var, en
samkoman fór mjög vel fram,
og ölvun lítil sem engin. í Vagla
skógi var mikið fjölmenni, eða
um 4 þúsund mans, og fór sam-
koman mjög vel fram. Var ölv-
un þar’ sem víðast annars stað-
pr teljandi lítil, og gekk umferð
in einnig mjög greiðlega fyrir
sig.
í Bjarkarkmdi voru saman
kominn um 2 þúsund manns, en
þar var áfengisneysla og ölvun
hvað mest. Urðu þó ekki nein
meiri háttar óhöpp af þessum
sökum, nema hvað tvennt slas-
aðist lítillega, svo að koma varð
þeim undir læknishendur. Á
Skógarhólamótinu á Þingvöllum
var nokkru færra fólk, en áætl-
að hafði verið fyrirfiram, eða um
800 manms, en þar fór allt mjög
vel fram og ölvun lítil Ennfrem-
ur var talsverður hópur fólks
samankominn á Laugarvatni um
helgina, en allt fór þar vel fram.
Minni óhöpp en um venjulega
helgi
— Framkoma fólks og tillits-
semi ökumanina í þessari gífur-
legu umferð var bil hreinnar fyr-
irmyndar, sagði 6skar Ólason,
yfirlögregluþjónn, þegar Mbl.
ræddi við hann í gær. — Er
með sanni hægt að segja, sagði
hann ennfremur, að minni ó-
höpp hafi verið nú £ umferð-
inni en um venjulegar helgar í
sumar.
Óskar kvaðst gizka á að um
13 þúsund bílar ‘hafi lagt leið
sína frá Reykjavík út á þjóð-
vegina um helgina. Lögreglan
og aðrir aðilar, sem að umferð-
armálum starfa, höfðu gert víð-
tækar varúðarráðstafanir, og
sjö löggæzlubílar voru sendir
frá Reykja-vík út á þjóðvegina
til aðstoðar við lögregluhifreið-
ar í hverju héraði. Ennfremur
unnu margir lögreglumenn frá
Reykjavík við löggæzlustörf á
útisamkomustöðum og mun láta
nærri að um 50 reykvískir lög-
regluþjónar hafi verið við störf
út á landi um helgina.
Þa sagði Óskar, að ekki mættl
gleyma hlutdeild FÍB í því, hve
vel til tóflcst, en félagið var með
vegaþjónustubíla sína á ferð eft
ir þjóðvegum um allt land, og
liðsinntu mörgum, og stuðluðu
að auknu öryggi í umferðinni.
Þyrlan reyndist þarfaþing
Lögreglan tók um helgina, upp
þa nýbreytni við umferðar-
gæzlu, að fá þyrlu Landhelgis-
gæzlunnar sér til aðstoðar. Um
hana sagði Óskar: — Þyrlan
reyndist okkur stórkostlega vel
og kom að miklum notum — sér
staklega til leiðbeiningar í um-
ferðinnL Mjög auðvelt var að
- BANKARÆNINGI
Framhaid af bls. 1
metra há og vegur tæp 50
kíló, og segir lögreglan, að
hún hafi lagt út á bankaráns
brautina eftir að eiginmaður
hennar var dæmdur til fang-
elsisvistar fyrir innbrot.
„Við fyrstu bankaránin,
sem hún tók þátt í, var hún
aðeins bílstjóri fyrir ræningj
ana sjátfa“, segir talsmaður
lögreglunnar. „En eftir að
ræningjarnir komust að því
hve lagin hún var við að
• handleika vélbyssu, hækkuðu
þeir hana í tign.“
Stundum er Vél’byssu-
Molly látin aka á eftir ræn-
ingjunum, og hefur hún þá
venjulega börnin sín tvö með
ferðis. Eftir að bankaránið
hefur verið framið, afhenda
ræningjamir henni ránsfeng
inn og vopnin, en flýja í sinni
bifreið. Engum lögreglu-
manni dettur í hug að stöðva
imóður í ökuferð með börnin
sín tvö, og Molly kemst allt-
af undan.
fylgjast með hraða bíla út á veg
um úr henni. Ef okkur þátti ein-
hver aka og greitt flugum við
lágt yfir og drógu ökumenn þá
skjótt úr ferð bílsins, og sömu
sögu var aS sagja, ef okkur
þótti einihver ætla að gera of
djarftækar tilraunir til framúr-
aksturs. En ef okkur fannst ein-
hverjir ökumenn aka tiltölulega
of hægt miðað við aðstæður, lent
um við og bentum ökumönnum
á það. Þegar við sáum bíla, sem
staðnæmzt höfðu vegna bilun-
ar eða annars, lentum við hjá
þeim til að kanna hvort við
gætum aðstoðað, en þess þurfti
Þó yfirleitt ekki. ökumenn, sem
við þurftum að stöðva og á-
minna, sýndu- undantekningar-
laust mikla kurteisi og skilning,
og virtist fólk miklu fremur
hrifið af þessarf nýbreytai í um-
ferðargæzlu, en hitt. Eins og sjá
má af þessari upptalningu reynd
ist þyrlan því hið mesta þarfa-
þing, og er ég þess fullviss að
hún mun eiga eftir að koma okk-
ur að miklum notum, þegar
breyting yfir í hægri umferð
verður.
Óvenjulítið áfengi tekið
Varðandi áfengisleit í bílum
sagði óskar, að talsiverð leit
hefði verið gerð í langferðaibif-
reiðum og einkabifreium, þar
sem mikið var um unglinga. Lög
reglumenn voru við Umferðar-
miðstöðina og fylgdust með því,
er farangri var komið fyrir í
bílunum, og ennfremur var leit-
að í einkabílum, bæði upp við
Lækjarbotna á Austurleið og við
Álafoss á Vesturlandsleið. Sagði
Óskar að óvenjulítið hefði ver-
ið tekið af áfengi hjá ungling-
unum — aðeins um 30 flöskur.
Uppiýsingamiðstöðin mæltist vel
fyrir
Lögreglan og umferðarnefnd
Reykjavíkur ráku upplýsinga-
miðstöð um helgina, þar sem
safnað var upplýsingum um á-
stand vega, fólksfjölda á útisam
komunum o. £1., og var því sið-
an útvarpað í samvinnu við Rík-
isútvarpið. Upplýsingamiðstöð
þessi hefur mælzt mjög vel fyrir
hjá almenningi, að sögn lögregl-
unnar leituðu margir til henn-
ar nú um helgina.
— Þjóðhdtíð
Framhald af bls. 12
og fjórða kynslóðin í Kanada
er ekki aðeins tregari til vinnu
en forfeður hennar heldur geng-
ur henni einnig verr í skólum.
Hún hefur ekki staðið í þeirri
baráttu, sem forfeðurnir þurftu
að heyja fyrir tilveru sinni og
virðist því ekki eins vel búin
undir lífsstarfið, þótt flest sé
la-gt í hendur henni. Þetta er ill
þróun en óvéfengjanleg. Kannski
þ«rf harðari aga“.
Við verðum frúnni samferða
niður fjallið. Við bjóðum henni
að smakka söl, sem hún tyggur
tvíræð á svip, en tekur með sér
poka af sölum til að gæða á kon
um í Ontario. Lundann vill hún
hins vegar ekki.
Sama dag byrja unglingarnir
að tygja sig til heimferðar, ósofn
ir margir hverjir og illa haldn-
ir af eftirstöðvum ölvunar. Brátt
á lundinn einn heimkynni í
Herjólfsdal og bíður virðulegur
í fasi næstu þjóðhátíðar.
Edward Taylor.
— Hestamannamót
Framhald af bls. 18
250 metra skeið:
Hrollur, Sig. Ólafssonar. 23,9
Móri Ingólfs Guðnasonar 24.5
Eyjum í Kjós
Logi Jóns í Varmadal 25.0
800 metra stökk
Blakkur,- Jóh. Kristjánsd. 68.1
Faxi, Páls Egilssonar í Borgar-
nesi . 68.2
Faxi, Bjarna á Laugarvatni 69.9
300 metra stökk.
Leiri, Bjarna á Laugarvatni 23.0
Kommi, Sæmundar Ólafss. 23.0
Gula-Glettá Sig. Ólafssonar 23.2
Naglaboðreið.
Heistamannafélagið Fákur.
Hestamannafélagið Trausti
í Grímsnesi.
Hestamannafélagið Hörður
í Kjós.
Kvennalandsliðið er
keppir við F.I.F. valið
Skaut úr riffli
í Þórsmörk