Morgunblaðið - 12.08.1967, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 12.08.1967, Qupperneq 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. AGUST 1967 l Vísindamenn í sumarönnum Vísindamenn í sumarönnum Vísindamenn í sumarönnum I á því, að hér er um grundvall- aratriði að ræða fyrir undir- stöðuatvinnuveg landsmanna, landbúnaðinn, með tilliti til beitar og gróðumytja. Þar við bætist svo ni'ð fræðilega gildi vitanlega. — Á þessu flakki mínu er ég búinn að fara um langmest- an hluta landsins, þótt víða sé lauslega kannað. Tvö svæði hefi ég þó ekki komið á, Strsndasýslu og heiðalöndin milli Jökulsár í Axarfirði og Vopnafjarðar. Ég vil taka það fram, að enn er óunnið úr mjög miklu af rannsóknum mínum. — Af þessum hálendisferð- um mínum hefir leitt það, að ég er nú að ganga frá allstóru riti um staðalýsingar óbygg'ða, sem verður framhald af bók- inni Landið þitt eftir Þorstein heitinn Jósefsson og á að koma út á næsta vetri. — Nú, svo hefi ég haft gaman af að athuga íslenzk plöntunöfn og hefi safn- að miklu efni eftir prentuðum heimildum og því, sem ég hefi heyrt. Það er geysimikið safn, hvort sem það kemst nokkum tíma í ritgerðarform eða ekki. — Við hlið grasafræðinnar hafa aðaláhugamál mín verfð íslenzk saga og bókfræði, og má víst rekja þann áhuga til bókasöfnunar minnar. Prentað hefir verið rit um bókfræði ís- lenzkra þjóðsagna, í fjölriti er skrá um Akureyrarprent 1853 —1952, og Prentsmiðjusaga Akureyrar í 100 ár er í hand- riti fullbúin til prentunar. — Gallinn á mér er sá, að ég hef haft gaman og yndi af of mörgum hlutum og því unnið færra til hlítar en skyldi. Og þó er það ekki að öllu leyti galli. Það er náttúrlega löstur á vísindamanni, en ég tel það þó kost á manni. Einskorðunin er alltaf ófrjó og getur orðið hryllilegur einstefnuakstur. Nei, lífi'ð getur verið skemmti- legt, auðugt og litríkt ef menn hafa hug á og kunna að lifa því. Ég gæti að vísu farið að taka undir með Jóni forna, þeg- ar hann kveður: Ég man þá daga æsku í, ég ætlaði að gera margt, en framkvæmt hef ég fæst af því, — hið fáa tæpt og vart. Nú líður á dag og lækkar sól, — hvað lengi er vinnubjart? - HEIMSKORT Framhald af bls. 14 einræði sé talið í einu landi, er ekki þar með sagt að stjórnarfyrir- komulag þess sé nákvæmlega eins og í öðru cinræðislandi. Þau lönd sem eru hvít á kortinu eru lýðræðislönd og er þá ótt við lýðræði í svipuðu formi og er hér á Islandi. Þó eru frávik frá því t. d. i Frakklandi, þar sem forsetinn er mjög valdamikill og getur gefið út lög án samþykkis þingmeirihluta. Samt er ekki með góðu móti hægt að flokka Frakkland undir „takmarkað lýðræði," — þar eru flokkar leyfðir og þar fara fram frjálsar kosningar. Kosningar og flokkar segja ekki alla sögu um stjórnarfar landsins og er t. d. óhjákvæmilegt að flokka sum lönd undir takmarkað lýð- ræði eða takmarkað einræði, þótt stjórnmálaflokkar séu leyfðir þar og kosningar fari fram að nafninu til. Þannig er t. d. Jfarið um sum Afríkuríki. • I einstökum Iöndum fer fram frjáls forsetakosning, og sá fram- bjóðandi er sigur hlýtur í þeim kosningum fær síðan einræðisvald, eða tekur sér það. Þau lönd eru flest flokkuð á kortinu undir „tak- markað einræði" viðkomandi forseta. Gildir þetta t. d. í sumum Mið-Ameríku og Suður-Ameríkuríkjum. Oft er málum þannig farið. að sá er nýtur náðar fyrir augum hersins eða herforingjaklíku má teljast fyrirfram öruggur sigurvegari í þessum kosningum, en yfir- leitt er áberandi hvað her og herstjórn hefur mikil áhrifavöld í heiminum. Þess ber að geta að nokkrum löndum var sleppt á korti þessu. Var þá um að ræða mjög lítil og frekar fámenn lönd. A kortinu táknar svarti liturinn einræði, og strax við fyrstu sýn er áberandi hvað stór hluti heimsins býr við slikt stjórnarfyrirkomu- lag. Virðist einræðið í stöðugri sókn og ber þá til dæmis að líta á mörg hinna nýstofnuðu Afríkuríkja. Þar hefur lýðræði aðeins verið á, fyrst eftir að landið hlaut sjálfstæði, en síðan hefur oft hallað á ógæfuhliðina, og einstaklingar eða herforingjaklíkur hafa hrifsað til sín völdin. 71 land hefur flokkazt undir einræði, 15 undir takmarkað einræðl og 12 undir takmarkað Iýðræði. Aðeins 37 lönd eru hvít, þar af 16 Vestuí--Evrópulönd. í sumum þessara landa á þó lýðræðið í vök að verjast og er óvíst um hvað þau geta haldið slíkumí stjórnar- háttum lengi. Hinsvegar má það teljast til algjörrar undantekning- ar, ef nokkurt þeirra lahda er nú býr við einræðisfyrirkomulag á von á breyttum stjórnarháttum. Skipting landa eftir hirium fjórum flokkum: I. Evrópa: 16 lýðræðislönd, 12 einræðislönd. II. Asía: 6 lýðræðislönd, 4 takmarkað lýðræði, 2 takmarkað ein- ræði 18 einræði, 1 borgarastyrjöld. III. Afríka: 5 lýðræðislönd, 6 takmarkað lýðræði, 8 takmarkað ein- ræði, 22 einræði, 1 borgarastyrjöld. IV. Amerika (Norður-, Mið- og Suður-): 10 lýðræðislönd, 2 takmark- að lýðræði, 5 takmarkað einræði, 9 einræði. V. Astralía: 2 lýðræðislönd. AUGLYSINGAR SÍMI SS*4<BO Gróðurrannsóknir og fleira Spjallað við Steindór Sfeindórsson trá Hlöðum, sem er 65 ára í dag athugunum flest sumur síðan 1930, er mér óhætt að segja — byrjaði á Flóaáveitusvæðinu og hefi síðan farið um mestan hluta landsins. Árið 1931 fór ég fyrst upp til fjalla, og síð- ustu 10 árin hef ég unnið að gróðurkortagerð. Viðfangsefni mín hafa einkum verið tvenns konar: almenn gróðurfarslýs- ing landsins og skilgreining hinna ýmsu gróðurfélaga. A'ð hinu síðarnefnda hafði lítið verið unnið áður, en ég hefi leitazt við að koma því á fastan fót, sérstaklega á hálendinu. Gróðurkortin, sem nú er verið að gera og gefa út, byggjast - eiginlega alveg á þessari gróð- ursvæðarannsókn minni. Áður var ég búinn að skilgreina og lýsa öllum megingróðurlend- um hálendisins. Um þa'ð hefi ég skrifað tvær höfuðritgerðir. Önnur nefnist Studies on the Vegetation of the Central High- land of Iceland, Kaupmanna- höfn 1945, en hin er að koma út smám saman í tímaritinu Flóru og heitir Hálendisgróður Is- lands. Síðari hlutinn mun koma út á þessu ári. — Áður en ég byrjaði að fara um hálendið, má segja, að gróð ur þess hafi verið ákaflega lítt kannaður og þekktur, það get ég sagt án nokkurrar sjálf- hælni. Auk hálendisrannsókna minna hefi ég farið víða um ^byggðir landsins, og þar hefir höfuðviðfangsefnið verið mýra- gróður. Um hann á ég í smíð- um drög að stórri ritgerð auk ýmissa smærri ,sem hafa komið á prent. — í sambandi við þessar gróðurrannsóknir hefi ég kom- izt að þeirri niðurstöðu eftir útbreiðslu tegunda, að á jökul- tíma hafi verið nokkur íslaus svæ’ði hér á landi. Fram yfir 1930 var sú skoðun einráð, að allt ísland hefði verið jökli hulið á ísöld (ördeyðukenning- in), en þá vakti sænski skop< dýrafræðingurinn Carl H. Lind roth fyrstur máls á því að hér hefðu nokkrar skordýra- og plöntutegundir hlotið að lifa jökultímann, óhugsandí væri, að allt dýra- og gróðurríki landsins hefði flutzt inn síðan. I fyrsfu taldi ég þessa sko'ðun afar tortryggilega og jafnvel fráleita, en þegar ég fór að fá yfirsýn yfir athuganir mínar um úíbreiðslu einstakra teg- unda, fann ég enga skýringu á henni nema þá, að hér hefðu verið gróðurvinjar í ísauðninni, íslaus svæði, þar sem hinar svonefndu miðsvæðategundir hefðu getað lifað af fimbulvet- urinn. Þessi miðsvæði eru eink- um fimm: Vestfirðir, Eyjafjar'ð- arsvæðið milli Skagafjarðar og Skjálfanda, Austfirðir, Mýr- dalssvæðið og Hvalfjarðar- svæðið. — Nokkrir jarðfræðingar hafa komizt að sömu eða svip- uðum niðurstö'ðum af sínum rannsóknum, og hafa skoðanir þeirra fallið að kalla alveg sam an við mínar. Sigurður Þórar- insson hafði gert uppdrátt að jökullausum svæðum, eins og hann hugsaði sér þau, áður en ég markaði miðsvæði plöntu- tegundanna á minn uppdrátt. Uppdrátt Sigurðar hafði ég þá ekki séð, en það er dálítið gam- an að því, að minn hefði vel getað verið kópía af honum, samsvörunin er næstum alger. — Ut frá þessum og fleiri rannsóknum hefir verið dregin sú ályktun að allmikið af flóru iandsins eða nær 1/4 af háplöntutegundunum hafi lifað hér af jökultímann. Af því sé flóra landsins með meiri heimskautablæ en svari til loftslags og staðhátta, en teg- undafæ'ðin stafi hins vegar af því, hve náttúrulegur innflutn- ingur hafi verið erfiður sakir einangrunar. í bókinni Gróður á íslandi hefi ég gefið yfirlit yfir gróðurfar landsins, að mestu leyti byggt á eigin rann- sóknum. — Miklar breytingar hafa orðið á ferðalögum og ferða- tækni, frá því ég hóf athugan- arferðir mínar um landið. Fyistu árin fór ég ýmist ríð- andi eða gangandi, en hin síð- ari ár, eftir að ég fór a'ð hafa samvinnu við þá Atvinnudeild- armenn, í bílum og í fjölmenn- um leiðöngrum. Áður var mað- ur einn að rölta, og flestir litu á þær ferðir sem þýðingarlaust skemmtiferðadútl. Þá breyt- ingu á viðhorfum til rannsókna sem þessara, sem orðið hefir á síðari árum, tel ég eitthvað hið skemmtilegasta af minni lífs- reynslu. Það er ánægjulegt, áð nú skuli vera gerðir út stórir leiðangrar til rannsókna, sem byggðar eru á frumrannsókn- um mínum, og að almennur skilningur skuli vera vaknaður Steindór Steindórsson í garðinum við heimili hans á Akureyn. HINN FJÖLFRÓÐI og afkasta- mikli fræði- og vísindamaður, Steindór Steindórsson frá Hlöð- um, settur skólameistari á Altureyri, er 65 ára í dag. I hjáverkum sínum frá kennslu- og skólastarfi við M. A. hefir hann unnið mörg stórvirki á sviði íslenzkrar grasafræði, en þar að auki gefið sér tíma til að sinna ýmsum öðrum hugðar- efnum og rita um þau. Með- fram vegna afmælisins hefir Mbl. beðið Steindór að segja lesendum sínum nokkuð af rannsóknarstörfum sínum og athugunum á íslenzkum gróðri. — Ég hef unnið áð gróður- Steindór Steindórsson við Búrfell í Þjórsárdab.Myndin er tekin á afmælisdegi hans 1961. RITSTJÓRIM • PRENTSMIÐJA AFGREIOSLA*SKRIFSTOFA SÍMI 'IO^'IOO L *

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.