Morgunblaðið - 12.08.1967, Síða 26

Morgunblaðið - 12.08.1967, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. AgOST 1967 Norðurlandamótið í sundi: Guðmundur setti giæsilegt íslandsmet í fjdrsundi Finnar báru glœsilegan sigur af hólmi SUNDMEISTARAMÓTI Norður- landa lauk í Kaupmannahöfn í kvöld, en þá var lokið keppni í 19 greinum. Á siðari degi móts ins vann Guðmundur Gíslason bezta afrek fslendinganna, er hann varð annar í 4 m. fjór- sundi á glæsilegu íslandsmeti 5:10,7. Gamla metið átti hann sjálfur og var það 5:15,2 mín. Guðmundur hafði forustuna í sundinu á fyrsta sprettinum, flugsundinu, og lengst af í öðr- um sprettinum, baksundi, en varð að láta af forustunni á síð- ustu metrunum. Er bringusunds spretturinn hófst náði Guðmund ur þegar forustunni og jók hana þar til hann var kominn tvo metara á undan er síðasti sprett- urinn, skriðsundið, hófst. Þá komLTst Finnarnir báðir að hlið hans og þéir voru allir mjög I. B. A. sigraði Færeyingana Akureyri, 11. ágúst. MEISTARAFLOKKUR færeyska knattspyrnufélagsins H.B. í Þórs 'höfn, hefur nú leikið tvo leiki við ÍBA, sem er gestgjafi Fær- eyinganna. Fyrri leikurinn fór fram í gærkvöldi og þá léku HB við A-lið ÍBA sem sigraði með 7 mörkum gegn 1. í kvöld kepptu Færeyingarnir svo við B-lið ÍBA sem sigraði með 10 mörkum gegn 0. Skæðasti sókn- armaður Akureyringa í síðari leiknum var Steingrímur Björns son og bezti varnarmaður Gunn ar Austfjörð, miðframvörður. Beztu menn Færeyinga voru Heri Nolsöe, Torur Holm og Jog van Jensen. Héðan halda Færeyingarnir á morgun til Hafnarfjarðar og keppa þar við Hauka, en fljúga heim á sunnudaginn. — Sv.P. jatfnir er 50 metrar voru eftir. Á endasprettínum var svo Finn- inn Kasvio sterkastur og sigr- aði á 5:08,9 mín. Keppnin í þessu sundi var sérlega skemmti leg og ánægjulegt að sjá frammi stöðu Guðmundar. Hlutur Finnlands á þessu móti var mjög stór þeir hlutu í kvöld 6 gullverðlaun af níu möguleg- um. Þeir hafa alls á mótinu unn ið 12 gull, 2 silfur og 3 bronz. Svíar hafa unnið 3 gull, 11 silf- ur og fimm toronz. Norðmenn hafa unnið 1 gull, 4 silfur og 7 bronz. Danir hafa unnið 2 gull og 3 bronz. íslendingaT 1 silf- ur og 1 bronz. í kvöld keppti allur íslenzki flokkurinn að Ólafi Einarssyni undanskyldum. Guðmunda Guð- mundsdóttir og Hrafnhildur Kristjánsdóttir, blönduðu sér ekki í baráttuna um efstu sætin en voru alla leið í 5. og 6. sæti og tímarnir 5:24,0 hjá Guð- mundu og 5:37,0 hjá Hrafnhildi. Guðmundur Gíslason tók þátt í 100 m. skriðsundi og varð 6. á 59,7 sek — á sama tíma og fimmti maður hafði. í 200 m. bringusundi var Matt'hildur Guð mundsdóttir 7. og síðust á 3.11.6 mín. í 4x100 m fjórsundi kvenna varð íslenzka sveitin fimmta og síðust á 5:27,8 mín. ____ A St Uppskera æfinganna — sagði Cuðmundur Císlason í gœr Kaupmannahöfn 11. ágúst. ÉG er afskaplega ánægður með þetta sund og finn nú að uppskera æfinganna í 50 m. lauginni eru að koma í ljós, sagði Guðmundur Gíslason eftir fjórsundið hér í Kaup- mannaihöfn í dag. Mér finnst gleðilegt hve tíminn er góður því Bellahöj laugin er af öllum tali.n vera mjög þung eins og sjá má ai því m.a. að hér hefur ekk- ert landsmet verið sett hjá neinni þjóð nema þetta ísl. Sundlaugin er einnig mjög sterkblönduð klóri og það hefur gert okkur íslending- unum mjög erfitt fyrir. Guð munda t.d. er með mjög bólg in augu og til þess höfum við öll fundið. Slík augnabólga er engan veginn hættuleg og jafnar sig að nokkrum klst. liðnum. Eftir atvikum erum við ánægð með árangurinn miðað við allar aðstæður og héldum héðan til Svíþjóðar í morgun, laugardag. A. St. IBK náöi bikarnum úr höndum Akurnesinga á síðustu stundu AKURNESINGAR og Keflvíking ar léku til úrslita í Litlu hikar- keppninni í fyrrakvöld, og skildu liðin jöfn 3:3. Leikurinn var all fjörlega leikinn og bauð upp á mörg skemmtileg marktækifæri. Fyrsta mark leiksins skoraði Guðjón Guðmundsson fyrir Akra nes úr vítaspyrnu, strax á fyrstu mínútum leiksins, en Högni jafn aði um 15 mínútum siðar, einnig úr vítaspyrnu. Á 30. mínútu náði Akurnesingar skemmtilegu upp- hlaupi vinstra megin upp vallar- helming Keflvíkinga og Þórður Jónsson gaf skemmtilega fyrir markið og skaut Matthías við- stöðulaust í markið. Stórfallegi mark. Snemma í einni hálfleik skor aði svo Björn Lárusson þriðja mark Akurnesinga mjög laglega. Töldu nú flestir að Akurnesing- ar hefðu tryggt sér bikarinn, en annað átti eftir að koma á dag- inn. Magnús Torfason, sem hafði átt ágætan leik fram að þessu, (enda þótt hann þyki ekki hæí ur í landslið okkar), 'hafði ekki sagt sitt síðasta orð. Hann skor- aði tvívegis fyrir Keflvíkinga og jafnaði, svo að bikarvon Akur- nesinga var úti. Fyrstca golfi í kvennakeppnin 13 i ar N Ú N A í ágústmánuði hefur Golfklúbbur Reykjavikur geng- ist fyrir keppni bæði fyrir kon- ur og unglinga. Sérstaklega er það ánægjulegt að golfkeppni meðal kvenna skuli hafa verið endurvakin, en slíkar keppnir hafa ekki farið fram frá 1954, en samþykkt var að stofna sér- staka kvennadeild í GR árið 1966. Var um sl. helgi haldin 24 hoLu keppni um afmælis'bikar kvenna. Þátttakendur voru að- Utanhússhandknottleikur- inn heist nftur í dag HANDKNATTLEIKSMÓTIÐ ut- an húss, sem haldið er í Hafnar- firði, hefst aftur í dag kl. 17 eftir nokkurt hlé. Verður aðeins leikið í meistaraflokki kvenna og eigast þar við ÍBK og Ármann, Valur og Breiðablik og ÍBV og KR. Á sunnudag heldur mótið áfram og mætast þá Ármann og Valur og Fram og ÍBV í kvenna- flokki, en í meistaraflokki karla Víkingur og KR og Haukar og Fram, og er það úrslitaleikur- inn í þessum riðli. eins þrír, sem einnig er lágmarikis fjöldi. Þær þrjár konur sem til leiks komu eiga.sérstakan heiður skilið fyrir að stuðla að al- mennri þátlitöku félagskvenna í golfkeppnum. Úrslit í keppninni urðu: högg 1. Ólöf Geirsdóttir.........134 2. Hjördáis Sigurjónsdóttir . . 145 3. Guðríður Guðmundsd. . . 148 Nú þeigar stund,a tugir kvenna golf að staðaldiri og er vonandi að allgóð þáttrtaka verði í Kvennameistaramóti Islands, sem hóð verður á velli Golf- klúbbsins Keilis á Hi eyri við 'Haifnarfjörð 16.—18. ágúst nk. Miðvibudaiginn 2. ágúst fór fram ,,opin heppni“ fyrir ung- linga á vegum Unigflingadeildar GR. Þetta var fyrsta keppnin, sem haldin hafur verið af hinni nýstofniuðu d'eild ungra kylfingai. Því miður komu engir ungling- ar úr utanbæjarklúblbunum til leiks, en 10 unglinigar úr GR mæittu. Leikr.ar voru 18 holur með og án forgjafar. Sénstaka athyigli vakti frábær árangur Jónatan.s Ólafssonair, sem bar af öðrum keppendum. Úrsllt urðu sem hér segir: Án forgjafar: 1. Jónatan Ólafss. 38-39 77 högg 2. Hans Isebarn . 44-38 82 — 3. Loftur Ólafss. . 41-43 84 — Með fbngjöf: 1. Loftur Ólafsis. . 84-25 59 höigg 2. Ól. Skúlason . 87-28 59 — 3. Jónatan Ólafss. 77-18 01 — BÚLGARÍA sigraði Dan- mörku í landskeppni í frjáls- um íþróttum er fram fór í Kaupmannahöfn um helgina, með 124 stigum gegn 84. 1 keppninni voru sett þrjú dönsk met. Ivan Hansen hljóp 400 metra grindahlaup á 52,6 sek., Jörgen Jensen stökk 4,62 metra í stangastökki og 4x400 betra boðhlaupsveitin hljóp á 3:15,2. Ennfremur voru sett tvö búlgaríumet, í 5000 metra hlaupi, en þar hljóp Marov Satte á 13:54,2 og í 10.000 metra hlaupi, en þar hljóp Shelev á 29:28,4 mín. Enn setti Guðmundur met í kúluvarpi * — Góður árangur á IR-mófiimi GUÐMUNDUR Hermannsson, KR, setti enn íslenzkt met í kúlu Varpi á 60 ára afmælismótj ÍR, ér fram fór á Melavellinum í gærkvöld. Kastaði Guðmundur nú 17,83 metra, en eldra met Ihans var 17,81 metr. Mun þetta vera 10. kúluvarpsmetið sem Guðmundir setur í ár. Einstætt afrek hjá manni sem cr orðinn rúmlega fertugur. Nokkuð góður árangur náðist í nokkrum fleiri greinum á ÍR- mótinu í gærkvöld. Valbjörn Þor láksson stökk 4,40 metra auð- veldlega í stangastökki og átti eina góða tilraun við 4,51 metr. Þorsteinn sigraði auðveldlega í 400 os- 800 m^tra hlaupinu á j góðum tímum: 49,2 sek. og 1:52,2 ! mín. Jón Þ. Ólafsson stökk 2,05 metra léttilega í hástökkinu, og reynJi síðan v;ð 2.10 eða sömu hæð og met hans er. Var hann nálægt því að fara þá hæð í! einni tilrauna sinna. Nánar verður í sunnudagsblað j Guðríður, Ólöf og Hjördis.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.