Morgunblaðið - 12.08.1967, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 12.08.1967, Qupperneq 28
fttwipuMaMSr NEIMILIS ;m—| 1 IILIITI1 LIU ITRYGGING Púy-I (®) ALMENNAR TRYGGINGARJí POSTHUSSTRÆTI 9 SlMI 17700 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1967 RITSTJÓRN • PREIMTSMIÐJA AFGREIÐSLA'SKRIFSTOFA SÍMI 10*100 „Árni Friðriksson" i reynslusiglingu Síldarrannsóknarskipið Árni Friðriksson kemur væntanlega til fslands í byrjun september næstkomandi og er Jón Einars- son, sem verður skipstjóri, þeg- ar farinn til Engiands til að vera við reynslusiglingu sem farin verður hinn 20. þessa mánaðar. Skipið, sem er smíðað í Lowe- stoft í Englandi, átti upphaflega að vera tilbúið í júlí, en þar sem dróst að vélarnar yrðu tilbún- ar, seinkaði byggingu þess. 22000 kúbikm. mokað úr Sigluf jarðarhöfn Siglufirði, 11. ágúst. DÝPKUNARSKIPIÐ Grettir hef ur nýlokið dýpkunarfram- kvæmdum í Siglufjarðarhöfn. Dýpkað var meðfram söltunar- stöðvum vestur og suður af nýju. hafnarbryggjunni. Mokað var upp tæplega 22.000 kúbikmetr- um frá 12. júlí til 5. ágúst. Dýpk unarskipið Björninn heldur fram kvæmdum áfram þar sem Grett- Frnkkornir klutu úminningu EINS og sagt hefur verið frá hér í blaðinu voru fjórir Frakkar að myndatöku fugla norður í Grímsey fyrir I nokkru og var þeim borið á | brýn að hafa farið með ófriði á hendur haftyrðlum, sem þar búa. Málið var síðan sent I saksóknara ríkisins. Tveir | Frakkanna viðurkenndu að, hafa tekið myndir af haftyrð ilsunga og heimilaði saksókn- ari að ljúka málinu með á- minningu í garð þeirra. Þotan til Akureyrar ir hætti. Framkvæmdir þessar voru orðnar mjög nauðsynlegar vegna grynninga, sem myndast af framburði og örri stækkun síldveiðiskipanna. Á Siglufirði er nú verið að vinna við að steinsteypa nyrsta hluta Hvanneyrarbrautar, sem verður aðalinnkeyrslan inn í bæ inn, er Strákagöng verða tekin í notkun á komandi hausti. Lionsklúbbur Siglufjarðar hef ur nýlega afhent Sigluifjarðar- bæ til eignar og afnota barna- leikvöll og leiktæki á svonefndu Gostúni við Suöurgötu. Enn- fremur gaf klúbburinn leiktæki á tvo aðra barnaleikvelli. MIKLAR malbikunarfram- kvæmdir standa nú yfir á Akur eyrarflugvelli og á að reyna að ljúka þeim fyrir 20. ágúst. Verð ur malbikaða brautin þá orðin um 1300 metra löng. 23. ágúst rennur svo upp stór dagur í flug sögu Akureyrar, þegar Gullfaxi, Boeing þota Flugfélags íslands lendir þar í fyrsta skipti. Sigurður IU. Helgason skipaður borgarfógeti FORSETI fslands hefur hin.n 9. þ.m., veitt Sigurði M. Helgasyni, aðalfulltrúa, Akureyri, embætti borgarfógeta við borgarfógeta- embættið í Reykjavík, frá 1. október n.k. að telja, en um em bættið sóttu auk hans Gísli Sím onarson, Sigurður Sveinsson og Þórhallur Einarsson, fullrúar yf irborgarfógeta. (Dóms- og kirkjumálaráðu- neytið, 11. ágúst). ■ UM verzlunarmannahelgina var vetrarlegt um að litast í Dyngjufjöllum. Nokkru áður hafði kingt þar niður snjó og efri hluti Öskjuvegarins var ófær bílum, en ferðahópur frá Ferðafél- agi Akureyrar lét það ekki á sig fá, heldur lagði land undir fót og gekk það sem eftir var leið- arinnar að Öskjuvatni. Myndina tók Bjöm Bergmann. H-DAGURINN VALINN — eftir gaumgæfilega athugun FR AMK V ÆMD ANEFND hægrl umferðar boðaði fréttamenn á sinn fund í gær í tilefni af þeirri ákvörðun dómsmálaráðherra að H-dagur skuli vera sunnudaginn 26. maí. 1 lögum um hægri um- ferð var mælt svo fyrir að hægri umferð á íslandi tæki gildi á þeim degi í apríl-maí eða júní 1968, sem dómsmálaráðherra ákveður að fenginni tillögu fram kvæmdanefndar. Gerðu forráða- menn nefndarinnar á þessum fundi grein fyrir því, hvers vegna 26. maí hefði orðið fyrir valinu öðrum dögum fremur. Benedikt Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri nefndarinnar, sagði að við athugun á heppi- legum H-degi, hefði fljótlega verið hallazt að því að sá dagur yrði að vera sunnudagur eða ann ar frídagur. Væru tvær megin ástæður fyrir því: í fyrsta lagi Góð laxveiði víðast hvar — Góður árangur af laxarækt — Veiðiþjófar á ferðinni Lýsið lækkar enn VERÐ á síldarlýsi og mjöli fer enn lækkandi á heims- markaðinum. Fyrir smálest af lýsi fást nú ekki nema 41 sterlingspund, sem er sjö pundum minna en gert var ráð fyrir í vor. Síldarmjöl er komið niður í 14,6 shillinga fyrir eggjahvítueininguna í tonni. 1 fyrra var lýsisverðið hæst 80 sterlingspund. LAXVEIÐI hefur yfirleitt verið ágæt í sumar og víðast hvar miklar göngur í árnar. Hefur jafnvel gengið vel í mörgum þeim ám, sem menn höfðu van- trú á í byrjun veiðitímabilsins. Það er nú töluvert liðið á neta- veiðitímann, en stangaveiðimenn eiga eftir allt að sex vikur, mis- munandi eftir því við hvaða ár þeir eru. Þór Guðjónsson, veiði- málastjóri, sagði Morgunblaðinu, að sér fyndist að veiðin hefði getað orðið meiri, miðað við göngur í árnar, en þó væri ekki ástæða til þess að kvarta. — Á- stæðan væri sú, að nokkru leyti, að vegna langvinnra þurrka væri fremur lítið vatn í mörgum ám. Um sjö hundruð laxar voru komnir á land úr Elliðaám, þeg- ar Mbl. talaði við veiðimála- stjóra í gær, en samkvæmt telj- aranum höfðu um 3700 laxar gengið í þær. Er það um það bil helmingi meira en í fyrra, og gera má ráð fyrir meiri göngiu því vitað er um lax við ósa henn ar. Þann 4. þessa mánaðar voru komnir 113 laxar á land úr Leir- vogsá og úr Bugðu 123. Laxá í Kjós hefur sannarlega gefið vel af sér því að 6. ágúst voru komn ir þar á land hvorki meira né minna en 1214 laxar. Þegar síð- ast fréttist frá Laxá í Leirár- sveit voru komnir þar á land 600 laxar og sáust margir í ánni. Illa hefur gengið að fá fréttir frá Norðurá, en 28. júlí var búið að landa þar 675 stykkjum. Um það leyti fengust að jafnaði hundrað laxar á vikiu, þannig að ef því hefur haldið áfram ættu þeir að vera orðnir um 900 núna. Frá Dalaánum berast liitlar fréttir, en þó er vitað að 176 eru komnir á land úr Flekkudalsá, sem verður að teljast ágæt. Úr Húnavatnsisýsluám er það að segja, að fjórða ágúst var 341 kominn á land úr Blöndu og 72 úr Svartá, sem rennur í hana. í Miðfjarðará varð vart við göngu uppúr 20. júní og tölu- verður lax um alla ána, en veið- in ebki mjög mikil. í fyrra var talað um að loka Laxá í Ásum en þar hefur verið ágæt veiði í sumar og þegar bú- ið að veiða meira en allt tíma- bilið í fyrra, hafa fengizt þar allt að 17 laxar á dag. Nýjar tölur liggja ekki fyrir frá Laxá í Þingeyjarsýslu, en 31. júlí voru komnir 150 laxar á land úr Nes- veiðum og 28. júlí voru komnir 448 úr Laxamýraveiðum, en þetta er meira en fékkst allt tíma bilið í fyrra. Fyrir tveim dögum voru komn ir 60 laxar á land úr Hofsá í Vopnafirði, sem talið er heldur lélegt. Frá laxaræktinni hafa borizt ánægjulegar fréttir sagði Framhald á bls. 27. að auðveldara væri að fá fólk til að lesa blöð og hlusta á út- varp á frídegi, þegar almenn- ingur væri ekki bundinn við sin daglegu störf. Væri það raunar forsenda þess a'ð allt gengi að óskum, að hægt væri að ná til fólksins gegnum þessi fjölmiðl- unartæki, meðan breytingin ætti sér stað og strax á eftir. í öðru lagi væri æskilegt að veg- farendur hefðu tíma til þess að kynnast og aðlagast hinum nýju viðhorfum í ró og næði og væru ekki í önnum hversdagsins að þreifa fyrir sér með nýjar öku- leiðir. Hann sagði ennfremur, að fljót lega hefði verið hallazt aðallega að tveimur dögum, þ. e. sunnu- deginum 26. maí og hvítasunnu- degi 2. júní. Kæmi þar fyrst og fremst til, að í kringum þessa daga væru skólar landsins að- gengilegir til umferðarfræðslu, sem væri mjög áríðandi. Enn- fremur væru miklir möguleikar á aðstoðarfólki til aðstoðar bæði við umferðarleiðbeiningar til að- stoðar lögreglu og við aðrar framkvæmdir. Varðandi fyrrnefnda atriðið sagði Benedikt, að fjórði hver íslendingur væri í skóla og þar af tæp 40 þúsund í barnaskólum Framhald á bls. 27. Freysteinn í öðru sæti Á Norðurlandameistaramótiniu í Hangö í Finnlandi er Noregs- meistarinn Paul Svendenborg nú efstur í landsliðsflokki með 5% vinning. Freysteinn Þorbergs- son og Sviinn Jofne hafa 5 v. og eina biðskák hvor. Ekki hef- ur frétzt um stöðu annarra tefl- enda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.