Morgunblaðið - 17.08.1967, Blaðsíða 1
28 SIÐUR
Við komuna til Kair'ó: Tító og Nasser.
Takmarkaöur ár-
angur af för Títós
Hörö gagnrýni á Mao
— í málgagni sovézkra kommúnista
PRAVDA, málgagn sovézka
kommúnistaflokksins, ræðst í
dag harkalega á Mao Tse-
tung', formann kínverska
flokksins og fylgismenn hans,
og segir, að kínverska þjóðin
muni „binda enda á skaðlega
stefnu hans“ og taka á ný
upp náið samband við sov-
ézku þjóðina. Kemur þetta
fram í langri grein í blaðinu
í dag í tilefni þess að ár er
liðið frá því „menningarbylt-
ingin“ hófst í Kína. Þetta
fyrsta ár segir Pravda, að hafi
verið ár kúgunar og ofsókna.
Washington, 16. ágúst, AP.
Opinber heimsókn Kurts
Kiesinger, kanzlara V-Þýzka-
Iands, til Bandaríkjanna hófst
í gær, þriðjudag. f fylgd með
kanzlaranum er Willy
Brandt, utanríkisráðherra V-
Þýzkalands. Á tveggja
klukkustunda fundi með
kanzlaranum í Hvíta húsinu
sagði Johnson Bandaríkjafor-
seti, að hann yrði samkvæmt
Höfundur greinarinnar er I.
Alexandrov, og lýsir hann yfir
djúpri samúð með kínversku
þjóðinni á þessum erfiðu tím-
um. Þessi nýja árás Pravda á
Mao formann er talin eiga ræt-
ur að rekja til atburðar frá því
um síðustu helgi, þegar kín-
versk yfirvöld kyrrsettu so-
vézka skipið „Svirsk“ í höfn-
inni í Dairen. Stafaði kyrrsetn-
ingin af því að áhöfn skipsins!
þótti ekki sýna myndum af Mao
tilhlýðilega virðingu, og var
skipið ekki látið laust fyrr en
Alexei Kosygin forsætisráð-
herra hafði persónulega krafizt
þess.
Sovézk blöð hafa áður gagn-
kröfu Bandaríkjaþings að
kalla heim bandaríska her-
menn í Þýzkalandi til við-
bótar við þá 35.000 hermenn,
sem kallaðir verða heim í
lok þessa árs.
Að loknum þessum fundi tjáði
Johnson fréttamönnum, að við-
ræðux þeirra hefðu verið ákaf-
lega gagnlegar og farið fram af
(hreinskilni. Hann sagði, að engar
ákvarðanir hefðu enn verið tekn-
Framhald á bls. 3
rýnt kínversk yfirvöld, en kunn
ugir telja að gagnrýnin hafi
Framhald á bls. 3
Kampmann
aSvarlega veikur
Viggo Kampmann.
Kaupmannahöfn, 16 ágúst
(AP).
VIGGO Kampmann, fyrrum
forsætisráðherra Danmerkur,
liggur nú í sjúkrahúsi alvarlega
veikur, að því er tilkynnt var
opinberlega í Kaupmannahöfn í
dag.
Kampmann er 57 ára og var
efnahagsmálaráðherra Danmerk
ur tvö kjörtímabil áður en hann
tók við forsætisráðherraembætt
inu árið 1960. Hann lét af em-
bætti fyrir tveimur árum vegna
veikinda.
Johnson og Kies-
inger ræðast við
Kairó, 16. ágúst, AP—NTB.
Kairó-blaðið A1 Ahram
skýrir frá því í dag, að Júgó-
slavíu-forseti, Jósef Broz
Tító, muni að lokinni heim-
sókn sinni til landanna fyrir
botni Miðjarðarhafs upplýsa
stjórnir Bandaríkjanna, Sov-
étríkjanna og annarra ein-
stakra landa um afstöðu Ar-
aharíkjanna til deilunnar fyr-
ir botni Miðjarðarhafs. Titó
hélt til Arahalandanna með
það fyrir augum, að reyna að
fá leiðtoga þeirra til að fall-
ast á „raunhæfa“ lausn á
kreppunni fyrir botni Mið-
jarðarhafs, en í Sýrlandi hafa
leiðtogarnir tekið þetta
óstinnt upp. Löndin, sem
Titó hefur heimsótt eru Eg-
yptaland, írak og Sýrland.
Talið er að Tító hafi lagt fram
friðartillögur fyrir Nasser
Egyptalandsforseta, en sá síðar-
nefndi ekki viljað fallast á þær.
Lét Tító sér þá nægja að skiptast
á skoðunum við Arabaleiðtog-
ana um leiðir til að koma á
varanlegum friði fyrir Miðjarð-
arhafsbotni.
Að sögn Al Ahram mun Tító,
að lökinni heimsókn sinni, leggja
áherzlu á beina efnahagsaðstoð
við Arabaríkin í viðræðum sín-
um við kommúnistaleiðtoga.
Júgóslavíuforseti heldur heim-
leiðis á morgun, fimmtudag, frá
Alexandríu.
De Gaulle víttur
Afskipti hans at innanríkismálum Kan-
ada sögð brot á frönsku stjórnarskránni
París, 16. ágúst (NTB)
FRANCOIS Mitterand, leið-
togi frönsku stjórnarandstöð-
unnar og formaður flokka-
bandalags sósíalista og rót-
tækra, lýsti því yfir í París
í dag, að afskipti de Gaulles
forseta af málum Kanada
gætu minnkað líkurnar fyrir
því, að frönskumælandi íbú-
ar Kanada fengju fullt jafn-
rétti við enskumælandi menn
í heimalandi sínu. — Sagði
Mitterand á fundi með frétta
mönnum, að yfirlýstur stuðn-
ingur de Gaulles við frönsku-
mælandi Kanadabúa, þegar
forsetinn var í heimsókn í
Montreal, væri einnig brot á
stjórnarskrá Frakklands.
— „De Gaulle hershöfðingi
Framhald á bls. 3
Tékkneskur rithöfundur
sviptur borgararéttindum
— Fordœmdi stefnu stjórnar sinnar
í deilu ísraels og Araba
Tékkneski rithöfundur-
inn Ladislav Mnacko, sem
nú er staddur í ísrael, hef-
ur verið sviptur tékknesk-
um ríkisborgararétti og
rekinn úr kommúnista-
flokknum, að sögn tékkn-
esku fréttastofunnar Ce-
teka. Orsökin er sögð vera
sú, að Mnacko fór í óleyfi
úr landi og hefur auk þess
mótmælt stuðningi tékkn-
esku stjórnarinnar við
Arabaríkin í deilu þeirra
og ísraelsmanna. Tékknesk
yfirvöld segja, að Mnacko
hafi farið úr landi undir
því yfirskini, að hann ætl-
aði til Austurríkis, en þess
í stað haldið til ísraels.
Áður en Mnacko hélt til
ísraels frá Austurríki for-
dæmdi hann harðlega
stefnu stjórnar sinnar í
deilunni fyrir botni Mið-
jarðarhafs.
I yfirlýsingu rithöfunda-
samtakanna í Bratislavíu, sem
gefin var út í gær, segir að
Mnacko hafi sett blett á heið-
ur föðurlands síns. Er hann
í yfirlýsingunni stimplaður
pólitískur ævintýramaðuj og
stjórnleysingi. Mnacko er 48
ára gamall.
Á blaðamannafundi í Tel
Aviv í dag sagði Mnacko, að
hann áliti sviptingu borgara-
réttinda sinna ólöglega og
mundi hann berjast gegn
henni. Varð hann furðu lost-
inn, er honum var skýrt frá
henni og brottrekstrinum úr
kommúnistaflokknum.
Mnacko sagði, að það væri
kaldhæðnislegt, að er hann
yfirgaf Tékkóslóvakiu hefði
fréttaþjónusta landsmanna for
dæmt ákvör’ðun grísku 'ner-
stjómarinnar að svipta leik-
konuna Melina Mercouri rík-
isborgararétti. Varðandi vfir-
lýsingu rithöfundasamtak-
anna sagði hann: „Ég vil
fremur vera pólitískur ævin-
týramaður og stjórnleysingi
heldur en skrumari, sem tek-
ur við skipunum írá yíirvöld-
unum.“
Mnacko sagði einmg, að
hann mundi fara aftur til
Tékkóslóvakíu þótt honum
væri ljóst, að hann yrði
hnepptur í fangelsi við kom-
una þangað. Hann kvaðst enn
vera sannfærður kommúnisti,
en hann myndi þó ekki fara
til Tékkóslóvakíu fyrr en land
ið tæki á ný upp stjórnmála-
samband við ísrael.
Bók Mnackos, sem á ensku
nefnist „The Taste of Po\ver*‘,
olli alþjóðlegum styr fyrr á
þessu ári, en í bókinni deilir
hann mjög á ráðastéttir
kommúnista. Handritinu var
smyglað til útgefenda í Vínar-
borg, sem síðar seldu útgáfu-
réttinn til Vesturlanda. Mnac-
ko er kvæntur konu af Gyð-
ingaættum.