Morgunblaðið - 17.08.1967, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. AGTTST 1967
Óbreytt lið gegn Dönum?
16 menn valdir til Danmerkurfarar
t FRÉTTATILKYNNINGU frá
KSt scgir, að 16 leikmenn hafi
verið valdir til Danmerkurferðar
hinn 21 ágúst, en landsleikur
verður háður við Dani hinn ZZ.
nJt.
Leikmennirnir eru: Sigurður
Dagsson (Val), Guðmundur Pét-
ursson (KR), Jón Stefánsson
(Í.B.A.), Sigurður Albersson
(ÍBK), Jóhannes Atlason (Fram)
Guðni Jónsson (ÍBA), Anton
Bjarnason (Fram), Þórður Jóns-
son (KR), Baldur Scheving
(Fram), Björn Lárusson (ÍA),
Helgi Númason (Fram), Elmar
/Geirsson (Fram), Eyleifur Haf-
steinisson (KR), Hermann Gunn-
arsson (Val), Kári Árnason
(ÍBA) og Guðni Kjartansson
(ÍBK).
Eins og sjá má á þessu vali
er um engar breytingar að ræða
frá landsleiknum við Englend-
inga, nema hvað landsliðsnefnd
hefur samkvæmt þessu ráðizt í
að ná í Elmar Geirsson frá Eng-
landi, þar sem hann er í skóla.
Vekur vaiið að sjálfsögðu nokkra
furðu, því að ekki verður sagt
að síðasti leikur verði skráður á
blöð með miklu stolti. Hafði al-
menningur vænzt þess, að ein-
hverjar breytingar yrðu gerðar
á landsliðinu.
í dagblöðum borgarinnar hef-
ur hvað eftir annað verið bent
á, að skynsamlegt væri að reyna
leikmennina, Skúla Ágústsson
(ÍBA) og Einar Árnason (Fram).
Hinn fyrrnefndi er markhæsti
leikmaður 1. deildar, hefur átt
prýðisleiki í sumar og er mjög
vel leikandi leikmaður. Gæti
hann eflaust hleypt lífi í fremur
sundurlausa framlínu landsliðs-
ins. Einar Árnason er tvímæla-
laust ökkar bezti hægri útherji,
og þekkir sitt hlutverk til hlít-
ar. Er því fráleitt að mínum
dómi, að setja miðherja í þá út-
herjastöðu, þvi að enda þótt
hann geti verið meðal ágætustu
leikmanna í sinni stöðu, er eng-
inn kominn til með að segja að
honum farist útherjahlutverkið
sem skyldi. Enda hefur það kom-
ið á daginn i tveimur undan-
förnum landsleikjum. Nú og
ekki má gleyma Magnúsi Torfa-
syni. Leit er að leikmanni, sem
hefur tekizt hefur betur upp í
stöðu tengiliðs, og heifur mér
ætíð þótt misráðið að setja hann
út úr liðinu. En ef þær fregnir
eru réttar að hann sé hættur að
æfa getur maður fremur fallizt
á sjónarmið landisliðsnefndar
þar.
Hefði þeim, sem þessar línur
ritar, verið faiið að velja lands-
liðið fyrir þennan leik við Dani,
hefði það hljóðað svo: (talið fiá
markmanni) Guðmundur Péturs-
son, Jóhannes Atlason, Guðni
Kjartansson, Magnús Torfason,
Jón Stefánsson, Anton Bjarnason,
Einar Árnason, Eyleifur Haf-
steinsson, Hermann Gunnarsson,
Skúli Ágústsson og Elmar Geirs-
son.
En eflaust er þetta val engu
minna umdeildanlegt en lið lands
liðsnefndar, enda hljóta sjónar-
mið hennar að stjórnast af meiri
þekkingu og kunnáttu en alls al-
mennings. Verðum við því að
vona að þetta lið eigi eftir að
gefast vel, þegar við mætum
Dönunum 23. ágúst n.k. Við
óskum því góðs gengis og farar-
fararheilla. — B. V.
Hnefar á lofti
í leik FH og KR
— er lauk með naumum sigri FH 14-13
KR-ingar veittu FH harða og
óvænta keppni í úrslitaleik
B-riðli íslandsmeistaramótsins í
handknattleik er fram fór í Hafn
arfirði í fyrrakvöld. Leikurinn
var frá upphafi til enda fjör
lega leikinn og jafn. Þó áttu KR
ingar heldur meira í leiknum og
hefðu vissulega verðskuldað
jafntefli, ef ekki sigur. Á köfl-
um hljóp mikil harka í leikinn
Hörð og jöf n keppni á meist-
aramóti fslands í golfi
MEISTARAMÓT tslands í golfi
hófst í gær, og var keppt á þrem-
ur völlum samtímis, Hvaleyri,
Grafarholti og Hólmsvelli í
Leiru. A Hvalf.jarðarholti var
keppt í kvennaflokki og leiknar
12 holur.
Þrjár efstu, eftir fyrsta dag,
eru Guðfinna Sigurþórsdóttir,
Golfklúbbi Suðurnesja, 62 högg,
2. Elísabet Miiller Rvk. 69 högg
og Hrafnhiidur Gunnarsdóttir
Golfk. Suð. 72 högg.
Á Grafarholdsvelli voru leikn-
ar 18 holur í unglingaflokki. Nr.
1 Björgvin Þorsteinsson Akur-
eyri 78 högg, 2. Hans Isebarn
Rvk 79 högg, 3. Eyjólfur Jó-
hannsson Rvk. 83 högg.
Hólmsvöllur: Meistaraflokkur
18 holur.
1. Gunnar Sólnes, Akureyri 73 h.
2. Óttar Yngvason Rvk. 74 högg
3. -4. Hallgrímur Júlíusson Vest-
manneyj. og Gunnar Kon-
ráðsson Akur. 76 högg.
Guðmunda bætti met-
ið um 26 sekúndur
Agœt frammistaða ísl. unglinganna
UNGLINGARNIR, sem keppa í Svíþjóð hafa staðið sig með
fyrir hönd ísiands á Evrópu- ágætum. Má segja, að Lslenzkt
5.-7. Þorbjörn Kjærbo, Golfk.
Suð., Haraldur Júlíusson
Vestm. og Sævar Antonsson,
Akureyri með 77 högg.
1. flokkur, Grafarholt, 18 holur:
1. Tómas Árnason, Rvk. 83 högg
2. Svavar Haraldsson, Akur. 84 h
3. -4. Jón Þ. Ólafsson og Eiríkur
Helgason báðir Rvk. 86 högg.
2. flokkur, Hólmsvöllur, 18 holur:
1. Guðmundur Pétursson, Golfk.
Suð. 80 högg.
2. Högni Gunnlaugsson, Golfk.
Suð. 82 högg."
3. Sverrir Guðmundsson, Rvk. 84
högg.
Keppni er mjög hörð og jöfn
og verður haldfð áfram næstu
daga. Keppni hefst í dag kl.
10.00 árdegis á Hólmsvelli og í
Grafarholti, en kl. 14.00 á Hval-
eyri.
Tvö mörk Víkinga á
fyrstu 15 mínútunum
Eyjamenn jafna d síðustu 15 mínútunum
MEÐ tveggja marka forustu á
móti Vestmannaeyingum var allt
útlit fyrir að Víkingur hefði
tryggt sér að leika til úrslita í
annarri deild. En Eyjamenn
gáfu hvergi eftir, og tókst að
jafna, svo að hreinn úrslitaleik-
ur verður að fara fram í riðlin-
Víkingur hafði skorað tvö
mörk áður en 20 mínútur voru
liðnar af leik. Var hið fyrra
skorað strax á fyrstu mínútum
leiksins úr vítaspyrnu, en hið síð
ara á u.þ.b. 15. miínútu með
fallegu gegnumbroti. Síðan var
eins og dofnaði yfir leikmönn-
Framlhald á bls. 27
og voru dæmi þess að leikmenn
væru farnir að sýna hver öðr-
um hnefana. Mikið var líka í
húfi fyrir báða aðila. KR-ingar
þurftu að sigra í þessum leik
til að lenda í úrslitum, en FH
nægði jafntefli til sigurs í riðlin
um.
KR-ingar voru búnir að skora
fjögur mörk áður en FH komst
á blað, með vítakasti er Árni
framkvæmdi. Lögðu KR-ingar
mikla áherzlu á vörnina og höfðu
þeir í fullu tré við FH, þar sem
liðið reyndi sáralítið línuspil.
Þá var Geir þegar í upphafi tek
inn úr umferð og hvarf hann
nokkuð í leiknum. Allan fyrri
hálfleik leiddi KR, oftast með
tveimur mörkum, en undir lok
hálfleiksins tókst FH bvívegis
að jafna 7:7 og 8:8 og þannig
stóð í hálfleik.
Síðari hálfleikur var ekki síð
ur jafn, en hinn fyrri. FH-ingar
náðu þó tveggja marka forskoti
um miðjan hálfleikinn, en und-
ir lokin tókst KR að jafna aftur
stöðuna 13:13. Upphófst þá mik-
ill hamagangur. Áttu KR-ingar
tvívegis allgóð færi á að skora,
en hinn ungi FH-markvörður,
Birgir, varði í bæði skiptin
meistaralega. Þegar aðeins voru
örfáar sekúndur eftir af leikn-
um skaut Páll föstu og fallegu
skoti, sem lenti í KR-mark-
inu og færði FH sigur í þessari
jöfnu viðureign. Var marki Páls
innilega fagnað af viðstöddum
áhorfendum, sem virtust flestir
vera á bandi FH.
KR-liðið kom mjög á óvart í
þessum leik. Vörn þeirra var
þétt og markvarzlan með ágæt-
um. Bezti maður liðsins var
Gísli Blöndal, sem skoraði ófá
mörk, auk þess sem hann var
mjög traustur í vörninni. Hilmar
átti einnig prýðilegan leik og
reyndar liðið í heild.
FH-liðið hefur vafalaust kom-
ið nokkuð sigurvisst inn á leik-
völlinn í þetta skipti og var
því lengi að átta sig á styr-k-
leika KR-inga. Vörnin var nokk
uð óþétt, sérstaklega í fyrri háif
leik, en þá skoruðu KR-ingar
Framlhald á bls. 27
meistaramóti unglinga í sundi
Bikarkeppni K.S.Í:
B-lið KR vann
b-lið Akur-
eyrar 3-2
Á SUNNUDAGINN fór fram ei
nn leikur í bikarkeppni KSÍ. —
Keppti þá KR-b og Akureyri b
á Melavellinum oig lauk þekn
leik með sigri KR, 3:2. í hálf-
leik var staðan 2:1 fyrir KR. Á
sunnudaig átti ennfremiur að fara
fram leikur í kieppninni milli
ísafjarðar og Týs í Vestmanna-
eyjum, en fresta va-rð þeim leik
vegna óhagstæðs flugveðurs til
Eyja. Er sá leikur sá eini siem
eftir er í 2. umferð beppninnar.
met eða unglingamet hafi ver-
ið sett í hverju sundi, sem
sundfólkið hefur keppt í. En af
þeim metum, sem enn hafa ver-
ið sett, ber hæst Íslandsmet
Guðmundu Guðmundsdóttur frá
Selfossi i 800 metra skriðsundi
í fyrradag, en þar bætti hún
metið um 26 sekúndur.
Guðmunda varð önnur í sín-
um riðli, en níunda í þessari
grein af 16 keppendum. Rúm-
ensk stúlka sigraði í riðlinum á
Rúmensku meti, 10.49,8, en tími
Guðmundu var 10.59.7. Sigur-
vegari í þessari grein varð
sænsk stúlka og synti á 10.13.4.
Guðmunda er komung og er hér
mikið efni á ferðinni.
Af öðrum árangri íslenzku
unglinganna á þessu móti má
geta drengjamets Ólafs Einars-
sonar í 200 metra bringusundi
2.54.5, og einnig í 200 metra fjór
sundi í 2.44.9 mín. Sigrún Sig-
geirsdóttir synti í 200 metra bak-
sundi á 2.58.0, en hún á betri
árangur í báðum greinunum.
Hinir frægu hlauparar Ryun frá Bandaríkjunum og Keinó frá Kenya kepptu í míluhlaupi á White
City Stadium í London s.I. laugardag. Ryun sigraði örugglega á 3:56,0 mín., sem er töluvert lakari
árangur en heimsmet hans i greininni er. Fyrsta hringinn héldu þeir sig aftarlega í keppenda-
hópnum og hraði á þeím hring var ekki nægile ga mikill til þess að möguleikar væru á heims-
meti. Keinó hljóp á 3:57,4 mín., þriðji varð Bret inn Simpson á 4:00,4 mín. og fjórði varð Bretinn
Wetton á 4:01,2 mín. 8. maður hljóp á 4:09,3 mín. A myndinni sézt Ryun koma í mark, sem sig-
urvegari í hlaupinu.