Morgunblaðið - 17.08.1967, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.08.1967, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1967 11 Við Berfþórslhvol. (Ljósm.: Sigurgeir) landi, fyrst í ferðum milli Vestmannaeyja og lands, og skemimtisiglinga í nágrenni eyjanna. Síðar verður svif- skipið reynt á leiðinni Reykjavík—Akranes, og við siglingar í nágrenni þeirra staða. Verð farmiða aðra leið ina milli þessara staða hefur verið ákveðið 150 kr., en vegna veðurs verður að aug- lýsa ferðir þess í útvarpi frá degi til dags. Ekki er að efa að marga Islendinga mun fýsa að kynnast 'þessu nýstárlega farartæki að eigin raun. Reynsla þessara tilrauna- ferða verður svo væntanlega þannig, að hægt verði að taka afstöðu til, hvort þetta farar- tæki henti íslenzkum aðstæð- um. „Andskotinn sjálfur" Þegar skipaskoðunarstjóri hafði lokið máli sínu var hreyflinum gefin full orka og við svifum út úr hafnarmynn inu með um 100 km. hraða á klukkustund og stefndum upp að söndunum á megin- landinu. Svartfuglinn í bajrg inu og aðrir sjófuglar flugu upp felmtri slegnir, er ferlíki þetta geistist framhjá þeim, enda var þetta þeim jafn framandi og okkur, sein um borð vorum. Veður var eins og bezt varð á kosið, logn og rennisléttur sjór, en örlítil undiralda. Það var gaman að svipast um í farþegaklefan- um og virða fyrir sér svip- brigði fólksins. Flestir voru stóreygðir og áttu varla orð yfir þessi ósköp. Margir hlógu um leið og þeir reyndu að lýsa tilfinningum sínum. „Þetta er nú aldeilis stór- furðulegt", „Ég á ekki orð í eigu minni“, „Andskotinn sjálfur", o.s.frv. Eins og veð- urskilyrði voru, myndii ég helzt líkja ferðinni við að sitja í sæmilegum langferða- bíl á dæmigerðum íslenzkum vegi. Þetta gefur þó ef til vill ekki rétta hugmynd, en ég á við að maður varð var við jafnan hristing, eins og þeg- ar bíll fer ofan í holur, og stundum eins og farið sé ofan í vegarhvörf. En það var óneitanlega ný tilfinning að þeytast svona eftir yfirborði sjávax. Selurinn varð hissa Við höfðum varla áttað okk ur á þessum ósköpum, er skip ið sveif upp á sandströndina, og varð engin breyting á hreyfingum þess eftir að á land var komið. Við tókum land þar sem heitir Kross- sandur eftir 11 mínútna sigl- ingu og þar var stanzað til þess að gefa sjónvarpsmönn- um og ljósmyndurum tæki- færi til að athafna sig. Komu flestir sér fyrir í gömlu bfcts- flaki, sem þarna lá, en Strath, svifstjóri, lék listir sínar á landi og út á sjó. Við fylgdumst stóreygð með. í því kom stóreygt selshöfuð up rétt fyrir utan flæðarmál- ið. Víst er að ekki leizt seln- um of vel á farkostinn, því að hann stakk sér hið bráð- asta og hefur áreiðanlega ekki stanzað fyrr en við Fær- eyjar, svo snöggt var viðbragð hans. „Þaaaá varð ég hræddur" Eftir dágóða stund var aft- ur gengið um borð og nú svif ið út á sandinn í átt að Berg- þórshvoli. Eftir 10 mínútna svif var komið að ársprænu og haldið up eftir henni. Ekki voru menn á einu máli um hvaða bær væri Bergþórs- hvoll, en úr varð að beygt var til hægri, þar sem áin skipti sér. EftÍT stutta stund var sýnt, að ekki kæmumst við þann veg, þar eð árfar- vegurinn þrengdist óðum. Á árbakkanum voru fjórir strákar að leik, og var ákveð ið að stanza og spyrja þá til vegar. Strákarnir veifuðu glaðhlakkalegir til okkar, meðan enn var hæfileg fjar- lægð á milli, en eftir því sem við nálguðumst, fór að fara um pilta. Það stóð heima, að þegar lagt var að bakkanum var einn eftir og hann tók til fótanna er hurðin var opn- uð. Einn úr hópnum reyndi að hlaupa á eftir þeim og kalla í þá, en þeir sýndu und ir iljarnar og hlupu eins og þeir ættu lífið að leysa upp að bænum, sem var þar á að grzka 1 km. i burtu og stönz- uðu ekki fyrr en á hlaðinu. Vakti þessi atburður að von- um mikinn hlátur í okkar hópi og varð einhverjum að orði, að líklega héldu strák- arnir að við værum frá Mars. Það reyndist rétt til getið, því að strákarnir komu skömmu síðar í bíl með heim ilisfólkinu og sagði sá er síð- astur tók til fótanna, Guð- mundur Karlsson frá Reykja- vík, að hann hefði nú eigin- lega ekki verið hræddur. Hvers vegna hljópstu þá þeg- ar hurðin var opnuð? „Þaaaá varð ég hræddur". Bergþórshvoll Bærinn reyndist vera Hail geirsey oð benti Guðjón bóndi okkur á Bergþórshvol. Rétt þegar við vorum að leggja af stað aftur kom Eggert Haukdal, sonur sr. Sigurðar Haukdal á Bergþórs hvoli, og fengum við þa,r kjör inn leiðsögumann. Aftur var haldið af stað og nú farið upp rétta á, yfir sanda og mela og staðnæmzt við brúna sunnan við Bergþórshvol, þar sem séra Sigurður bauð okkur vel komin að Bergþórshvoli. Þarna dreif brátt að margt fólk til að skoða farkostinn, sem sérstaklega vakti aðdáun barnanna. Við spurðum sr. Sigurð hvernig honum litizt á. „Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið þegar ég sá ykkur korna svífandi hér upp eftir. Þetta er sannarlega hvalreki á fjörur okkar hér“. Klukkan var nú að verða 12 á hádegi og við urðum að tygja okkur til heimferðar, því að í Vestmannaeyjum átt- um við matarboð bæjarstjórn arinnar. Við kvöddum þetta ágæta fólk og svifum nú aft- ur inn sanda og út á haf og komum til Vestmannaeyja eftir 20 mínútna ferð. -Síðan var snæddur hádegisverður og haldið til Reykjavíkur með Blikfaxa kl. hálf þrjú, allir reynslunni ríkari. — ihj. Á morgun koma í heimsókn til Reykjavíkur tvö þýzk herskip. Eru þau væntanleg kl. 10 fyrir hádegi og munu dvelja hér til jafnlengdar hinn 22. ágúst. Almenningi mun leyft að skoða skipin á laugardag milli kl. 15,30 til 17.00 og einnig á sunnudag á sama tima. Skipin koma frá Björgvin, en fara síðan til Belfas. Hér er um 35. æfingarferð skipanna að ræða, sem heita Ruhr og Donau. Hefur göngu sína á ný: „Frjáls verzlun" í glæstum búningi EFTIR stutt hlé er tímaritið FrjáLs verzlun komin út í breyttu formi Er ritið allt einstaklega vandað að efni og útliti. Nýtt út- gáfuifélag, skipað ungum og áhugasömum mönnuim, hefur tekið við rekstri tímaritsins. Rit- stjóri er Jóhann Briem og frétta- stjóri Ólafur Thorodidsen. Stefnt er að því að gera Frjálsa verzlun að alhliða vettvangi viðskipta- lífsins með greinum um efnahags, atvinnu- og þjóðmál. í blaðinu verða að auki fréttir, sem efstar eru á baugi, innlendar og erlend- ar. I brófi frá útgefanda er blað- inu fylgt úr hlaði, þar segix: „Við getum ekki neitað því, að þegar ákveðið var að breyta forrni Maðsins vöktu ríkt fyrir Vörusýning * í Alasundi Álasundi, 16. áigúst, NTB. VÖRUSÝNINGIN í Álasundi var opnuð í dag aff viffstöddum sendi herra Sovétríkjanna í Noregi og verzlunarráffi sovézka sendiráffs- ins. Vörusýningin er mjög yfir- gripsnnikil og eru á henni sýnd- ar vörur frá löndum við Norðtur- sjóinn. Stór hluti vörusýningar- innar er tengdiur sjávarútvegin- •um, m.a. eru sýndar þar flökun- arvélar, hausunarvélar og raf- magnstæki fyrir fiskiibátafiotann. Sýningin gefur góðia hugmynd um hina öru þróun fiskiflotans og fiskiðnaðarins á síðari áirum. Litprentuff forsíffa skreytir for- síffu hins nýja veglega tölu- blaffs Frjálsrar verzlunar Myndin er af Ólafi Ó Johnson, forstjóra. Um hann og fyrir- tæki hans er fjallað í grein í blaffinu. okkur hugmyndir um að færa það að nokkru í svipað form og vinsælla erlendra tímarita, sem gefin eru út á svipuðum grund- velli „Efnisskiptingu F. V. er mjög þannig háttað, að blaðið höfði ekki einvörðungu til þeirra manna, er eiga atvinnu sína og afkomu beint til verzlunar og viðskipta að sækja. heldur er þess vænzt. að hverjum ábyrg- um borgara, er fylgist með ef-na- hagsmálum og þjóðarihag, sé blaðið bæði gagn og nauðsyn. Af efni þessa fyrsta tölublaðs, sem er hið fjölbreytilegasta má nefna: Verðfall á útflutnings- vörum, staða og horfur í við- talinu: „í vetur verður það Ice- berg“ segir Rolf Johansen skoðun sína á menningunni og mörgu fleira. í greinarflokknum samtíðar- menn er sagt frá Ólatfi Ó. John- son, forstjóra og fyrirtæki hans. Mynd af Ólatfi prýðir forsíðu blaðsins. Er ætlunin að svo verði í framtíðinni um þá, sem fjal'lað er um ,„samtíðarmenn“. Viðtal er við Hannibal Valdimarsson um væntanlega kjarasamninga. Ýms- ar nýjar og kjarnyrtar yfirlýs- ingar eru í viðtalinu um málefni Alþýðubandalagsins. Viðtal er við Davíð Sch Thor- steinsson er nofnist: „Aðild að EFTA mundi veikja samningsað- stöðu okkar við EBE. Ýmis athyglisverð nýmæli er að finna í könnun um hnupl í verzlunum á íslandi, og grein- inni „Á Bæjarútgerð Reykja- víkur sér tilverurétt? í greininni kemur m. a. fram að heildartap af rekstri hennar er nú tæpar 144 mi'lljónir króna. Um markaðsmál skrifar Guð- mundur H. Garðarsson viðlskipta- fræðingur. 1 greinaflokknum „viðskipta- lönd“ ritar Kjell Östrem sendi- ráðsritari um Noreg. 1 þættinum félagsmál eru greinar og fréttir um startfsemi stéttarsamtaka í iðnaði og verzl- un. En það er markmið blaðsins, að vera sameiginlegur vettvangur þessara samtaka. Erlent efni er og viðamikið 1 blaðinu, bæði stuttar fréttir úr viðskipta og stjórnmálalífi, og smádálkar af léttara taginu Sérsfaka athygli vegja smekk- lega upp>settar auglýsingar, og eru þær í samræmi við annað útlit blaðsins. Verið er að hleypa af stokkun- um nýrri áskriftarsöfnun að Frjálsri Verzlun víða um land, og ætlunin er að næsta tölublað komi út um miðjan september Leitar að örkinni hans Nóa Istanbul, 16. ágúst, NTB. BANDARÍSKI fornfræffingur inn og gufffræffingurinn John Libi gerffi í dag sjöttu til- raun sína tii að finna örkina hans Nóa á hæsta f jalli Tyrk- lands. Libi, sem er frá San Francisco, hefur þrívegis áff- ur klifið fjallið Ararat á landamærum Tyrklands og Sovétríkjanna, í leit að örk- inni. Libi er 71 árs gamall. Libi gerði síðast tilraun til að klífa fjallið árið 1965, en varð brátt frá að hverfa sök- um snjókomu og þrumuveð- urs. Hann. heldur því fram, að hann hafi fundið staðinn, þar sem örkin tók niðri x þriðju heimsókn sinni til þessa sögufræga fjalls árið 1958. Segir Libi, að örkin sé grafin í ís og snjó og líkiega innibyrgð í þykkri íshellu og þar hafi hún varðveitzt vel. Sl. 13 ár hefur Libi eytt 1.3 millj. ísl. kr. til að finna örkina, sem samkvæmt frá- sögnum biblíunnar tók niðri á Ararat-fjalli sjöunda dag hins sjöunda mánaðar. Þrír leiðangrar aðrir hafa verið gerðir út á undantförnum ár- um til að finna örkina, tveir bandarískir og einn fransk- ur. Libi segir, að örkin sé Tyrklandsmegin í suðvestur- hlíðum fjalltindsins, sem Tyrkir nefna Agri. I leið- angri Libis er að þessu sinni hópur tyrkneskra hermanna, sem aðstoða skulu við upp- gröftinn. Klerkurinn væntir þess einnig, að finna vegg- ina af minnismerki því, sem Nói reisti til minningar um sjálfan sig og syni sína þrjá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.