Morgunblaðið - 13.10.1967, Síða 10

Morgunblaðið - 13.10.1967, Síða 10
1 10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. OKT. 1967 - ATVINNUVEGIR Frarriihald af bls. 1 ALÞÝÐUFLOKKURINN og Sjálfstæðisflokkurinn hafa nú haft samvinnu í ríkisstjórn síð- an haustið 1959 eða í 8 ár. Hef- ur þetta samstarf staðið leng- ur samfleytt en nokkur önnur samvinna um stjórn landsins. Við upphaf þess mótuðu flokk- arnir nýja stefnu í efnahags- málum. Markmið hennar var að styðja að aukningu þjóðartekna og bættum lífskjörum me'ð því að beina framleiðslu og við- skiptum inn á hagkvæmar braut ir, rétta við greiðslujöfnuð við önnur lönd og endurvekja láns- traust þjóðarinnar erlendis. Stefna sú, sem fylgt hefur ver- ið, hefur ásamt mikilli fram- leiðslu og hagstæðu útflutnings- verðlagi sjávarafurða hin síðari ár, fram á árið 1966, orðið þess valdandi, að þjóðartekjur hafa á undanförnum árum vaxið meira en á nokkru öðru sambærilegu skeiði, þannig að lífskjör þjóð- | arinnar jafnt til sjávar og sveita j hafa að undanförnu verið betri ; og batnað örar, en nokkru sinni . fyrr. Þetta á sinn þátt í því, að þjóðin hefur vottað stjórn- i arflokkunum traust í þeim ‘ tvennum Alþingiskosningum, ’ * sem háðar hafa veri'ð frá því að þeir gengu saman í rikisstjórn. Alþingiskosningarnar nú í sum- ar leiddu í ljós, að stjórnar- flokkarnir hafa meiri hluta kjós enda að baki sér og hlutu meiri hluta í báðum deildum alþingis. j Það er þess vegna ótvíræður vilji kjósenda, að stjórnarflokk- arnir haldi samstarfi sínu áfram enda hafa þeir ákveðið að gera það. jj Verkefni, f sem við blasa Verkefni þau, sem nú blasa við, eru hins vegar mjög ólík þeim, sem. verið hefur við að | etja á undanförnum árum. Verð [ fall á helztu útflutningsvörum, erfitt árfer'ói víða um land og aflatregða hafa á síðustu miss- ; erum gerbreytt viðhorfum í ís- • lenzkum efnahagsmálum. Vegna ‘ þess, að allur almenningur hef- »-ur að undanförnu fengið hlut- fallslega meira en fyrr af stór- auknum þjóðartekjum, verður ekki hjá því komist, að sam- dráttur þeirra um sinn leiði nú til minnkandi tekna launþega jafnt og annarra. En aðalvið- fangsefnið hlýtur að verða að i koma í veg fyrir, a’ð þessir örð- j ugleikar leiði til atvinnuleysis og varanlegrar kjaraskerðingar. j Til þess, að það takist, þarf að i gera ráðstafanir til að ná jafn- i vægi í tekjum og gjöldum rík- • issjóðs, helztu atvinnugreina og i þjóðarbúsins í heild. | Verðfallið, sem hófst fyrir rúmu ári, gerði að verkum, að augljóst var, að útflutningsat- j vinnuvegirnir gætu ekki risið i undir aukningu framleiðslu- kostnaðar. Ákvað ríkisstjórnin því að beita sér fyrir verðstöðv- j un, í trausti þess, að launþegar æsktu þá ekki launahækkunar. í þessu skyni varð ríkisstjórn- in að stórauka niðurgreiðslu vöruverðs samfara öðrum ráð- j stöfunum jafnframt því, sem I aðstoð við sjávarútveginn var i aukin. Var þetta kleift í bili, j én nýrrar tekjuöflunar, vegna ; mikils tekjuafgangs ríkissjóðs á árinu 1966, enda voru þá taldar horfur á, að verðfallið yrði ekki varanlegt.. Nú hefur raunin orð- ið önnur svo bersýnilega er ekki i unnt að minnka fyrirgreiðslu ; við sjávarútveginn og ef halda ætti öllum þeim niðurgreiðsl- um, sem eiga sér stað, auk fjár- öflunar til þess að greiða óhjá- kvæmilegan kostnaðarauka rík- isbúsins vegna fólksfjölgunar og skuldbindinga, sem þegar hvíla á ríkinu, þyrfti á næsta ári að afla um 750 milljón kr. nýrra tekna til þess að ríkisbúskap- urinn yrði hallalaus. Sparnaður og tekjuöflun Þess vegna hefur ríkisstjórn- ^ in ákveðið, að fella niður þær niðurgreiðslur á íslenzkum land búnaðarafurðum, sem ákveðnar hafa verið vegna verðstöðvun- arinnar. Er hér um að ræða niðurgreiðslur að upphæð 410 millj. kr. á ársgrundvelli. Þá hef ur verð áfengis og tóbaks nú verið hækkað, og er áætlað, að það ‘ auki tekjur ríkissjóðs á næsta ári um 75 millj. kr. Óhjá- kvæmilegt er að fallast á tillögu Tryggingastofnunar ríkisins um hækkun iðgjalda um rúmlega 60 millj. króna því að ella væri fjárhag stofnunarinnar stefnt í voða. Leyfð verður hækkun dag gjalda sjúkrahúsa, sem frestað var í ár með sérstökum greiðsl um úr ríkissjóði. Þá munu af- numdar undanþágur sem í gildi hafa verið um greiðslu sölu- skatts af póst- og símagjöldum og afnotagjaldi af hljóðvarpi og sjónvarpi. Eykur það tekjur ríkisins um 40 millj. kr. Jafnhliða fjárlagafrumvarp- mun ríkisstjórnin leggja fyrir Alþingi frumvarp um sérstaka tekjuöflun og aðrar nauðsynleg- ar ráðstafanir vegna efnahags- örðugleikanna. Ætlunin er að leggja skatt á farmiða til út- landa, 3000 krónur á hvern miða og er gert ráð fyrir að þessi skattur afli ríkissjóði um 60 millj. kr. tekna á ári. Enn- fremur verður lagt til, að við álagningu eignaskatts verði fast eignamat í kaupstöðum og kaup túnum tólf-faldað í stað þess, að það er nú sex-faldað, en sex- faldað í sveitum, þar sem eng- in matshækkun er nú, og verð- ur þessi hækkun þó lægri en hins nýja fasteignamats. Jafnframt verður lágmark skattskyldra nettoeigna tvöfald- að til þess að hækkun fast- eignamatsins komi ekki niður á fólki, sem er tiltölulega eigna- lítið. Auk þess munu gerðar ýmsar ráðstafanir til sparnaðar í opinberum rekstri. Með framangreinum ráðstöf- unum á ríkisbúskapurinn að geta orðið hallalaus á næsta ári, en það er frumskilyrði þess, að hægt sé að ráða við þá efnahagsörðugleika, sem nú steðja að. Ný vísitala Þessar ráðstafanir og þá auð- vitað fyrst og fremst niðurfell- inf þeirra niðurgreiðslna, sem upp hafa verið teknar, síðan verð stöðvunin koimst á, hljóta að auka framfærslukostnað. Kaup- lagsnefnd og Hagstofan hafa reiknað út tvær vísitölur um breytingar á framfærslukostnaði. Samkvæmt gildandi lögum breytist kaupgjald í samræmi við breytingar á eldri vísitölunni. Það verður hins vegar ekki vé- fengt, að nýrri vísitalan er rétt- ari mælikvarði á breytingu raun verulegs framfærslukostnaðar, því að hann er miðaður við neyzluvenjur á árinu 1965, en efcki 1953—1954 eins og hinn fyrri, þegar lífskjör almennings voru miklu lakari en nú. Nýrri vísitalan er talin munu hækka um 4—5% í kjölfar þeirra ráð- stafana, sem nú hefur verið lýs-t. Á hinn bóginn er fullvíst, að atvinnuvegir landsmanna geta ekki eins og nú horfir greitt hækkað kaup. Þess vegna er nauðsynlegt að koma í veg fyrir, að þessi hækkun framfærslu- kostnaðar valdi tilsvarandi kaup hækkun og eru því í frumvarp- inu ákvæði . um það, að kaup skuli ekki hækka vegna þessara ráðstafana. Að frátöldum slíkum óhjákvæmilegum verðhækkun- um eins og þeim sem taldar hafa verið, mun ríkisstjórnin áfram fylgja verðstöðvunarstefnu, og er gert ráð fyrir, að ákvæði nú- gildandi verðstöðvunarlaga séu framlengd með því frumvarpi, sem áður er getið um. Jafnframt er ætlunin, að hin nýja vísitala taki gildi 1. marz nk. og miðist kaupgjald framvegis við hana á sama hátt og verið hefur sam- kvæmt hinni eldri vísitölu. Lágmark þess, sem gera þarf Þær ráðstafanir, sem nú hafa verið taldar eru tvímælalaust lág mark þess, er gera þarf atvinnu- vegunum til styrktar. Á undan- förnum árum hefur ávallt þurft að framkvæma öðru hverju að- gerðir af því taigi, sem nú eru ráðgerðar. Slíkt er auðvitað ó- æskilegt. Til þess að eyða nauð- syn þvílíkra skyndiaðgerða ætíð öðru hverju, þarf að gera at- vinnuvegi þjóðarinnar fjölbreytt ari og síður sveiflum háða, jafn- framt því, sem markvíst verði að því unnið, að auka framleiðni í öllum atvinnugreinum sem og hagkvæmni í rekstri ríkis og sveitarfélaga. Stjórnarflokkarnir eru sammála um, að þetta sé á meðal mikilvægustu verkefna næstu ára, og mun ríkisstjórnin leggja höfuðáiherzlu á, að árang- ur náist í þessum efnum. í þessu skyni mun ríkisstjórn- in beita sér fyrir, að framleiðslu- geta atvinnuveganna verði nýtt sem bezt, enda verði þessa gætt bæði í rekstri og fjárfestingum. í sjávarútvegi verði lögð sér- stök áherzla á endurnýjun þorsk veiðiflotans og þá endurskipu- lagningu fiskvinnslunnar, sem nú þegar er hafin, þannig að betur nýtist þau tæki, sem þegar eru fyrir hendi. 1 landbúnaði verði stefnt að því að auka framleiðni og fjöl- breytni framleiðslunnar, þanniig að hann verði í framtíðinni fær um að fullnægja margbreytileg- um þörfum innlends markaðs og flytja út vörur án uppbóta úr rikissjóði. í iðnaði verði haldið áfram að styrkja viðleitni fyrirtækja til að laga sig að þeim breyttu að- stæðum, sem frjáls innflutning- ur og lækkandi tollar skapa. Sérstaklega verði stefnt að efl- ingu þeirra iðngreina, sem eðli legastur starfsgrundvöllur er fyr ir hér á landi svo sem iðnað í tengslum við framleiðsluat- vinnuvegina þ.á.m. skipasmíðar og skipaviðgerðir, veiðarfæra- iðnað og netagerðir, og stuðlað verði að stofnun iðngreina til hagnýtingar nattúruauðlinda. í viðskiptpm verði lögð áherzla á að efla nýja verzl- uarhætti, er lækki dreifingar- kostnað, jafnframt því, sem sett verði löggjöf um eftirlit með einokunarverðmyndun og samtökum um xerðlagningu. Um opinberan rekstur og framkvæmdir mun ríkisstjórnin leggja áherzlu á, að gerðar séu hliðstæðar ráðstafanir og í at- vinnurekstri til lækkunar til- kostnaðar. Fjárlaga- og hag- sýslustofnur.in mun hafa for- ystu um að beita sér fyrir þessu í samvinnu við einstök ráðu- neyti, stofnanir og sveitarfélög. Hagnýting náttúru- auðœfa landsins Jafnframt því sem unnið verði að framleiðniaukningu hvarvetna sem við verður kom- ið, telur ríkisstjórnin, að halda beri áfram stóriðjuframkvæmd um, svo að öll landgæði, þ.á.m. fossa-afl og jarðhiti nýtist þjóð- inni allri til heilla. í því skyr.i telur ríkisstjórnin að ieita beri samvinnu við erienda aðila eft- ir því, sem þörf er á, jafnframt því, sem úrslitayfirráð íslend- inga séu tryggð á sama veg og gert var um þær framkvæmdir er þegar hefur verið ráðizt í. Sem fyrst vc-rði kannaðir til hlítar möguleikar á vinnslu nyt samra efna úr sjó og undirbúin stækkun áburðarverksmiðju. Markaðsaðstöðu erlendis þarf að bæta, m.a. með tafarlausri fullnaðarkönnun á möguleikum á aðild að Fríverzlunarbandalag inu, jafnframt því, sem leitað verði viðhlítandi samninga við Efnahagsbandalaigið, enda sé það ljóst frá upphafi, að full aðild kemur þar ekki til greina. Stöðugt verði unnið að öflun nýrra markaða í samvinnu við samtök atvinnuveganna. Með þessum og öðrum ráðum verði stuðlað að því, að þjóðar- tekjur geti sem skjótast aukizt á ný, og mun þess effir föng- um gætt, að jaínframt því, sem atvinnurekstur búi við skilyrði, er veiti möguleika til áfrani- haldandi vaxtar, fái almenning- ur svo mikinn hluta aukins arðs sem unnt er. Um þessar og aðrar efnahags- ráðstafanir til trygginga- kjör- um almennings og atvinnu- rekstri hyggst ríkiss'jórnln hafa samráð við aimannasamtök, þ. á.m. stéttarfélög. Þessi er meginstefnan sem samkomulag hefur orðið um að fylgja, og hefur jafnframt ver- ið samið um framgang nokk- urra sérstakra mála. Byggðaáœtlunum hraðað Haldið verði áfram að starfa að áætlunargerð um fram- kvæmdir og eínahagsþróun, eft ir því, sem reynsla hefur leitt í Ijós, að við eigi hér á landi. Sérstök áherzla sé á næsfcu ár- um lögð á áætiunargerð til eins árs í senn til stuðnings við mörkun stefnu í efnahagsmálum og fjármálum jafnframt því, sem unnið sé að áætlunum til iangs tíma um einstakar grein- ar opinberra framkvæmda og opinbers reksturs. Hraðað verði áætlunum um þróun einstakra byggðarlaga og landshluta og reynt eftir föngum, að hagnýta áætlunargerð um þróun at- vinnugreina til iangs tíma. Almannatryggingar verði end urbættar í samræmi við fengna reynslu hér og annars staðar og leitazt við að íslenzkt trygging- arkerfi haldist i fremstu röð. Kappsamlega verði haldið áfram undirbúningi almenns lífeyris- sjóðs fyrir alla landsmenn. í húsnæðismálum verði öll aðstoð af hálfu ríkisins sam- ræmd, svo að sem flestir mögu ieikar skapist fyrir nægilegum byggingum með sem minnstum tilkostnaði, enda verði, jafn- framt því sem opinber stuðn- ingur við byggingar haldist, stuðlað að eðlilegri samkeppni i byggingum. Gerð verði áæti- un til nokkurra ára, hliðstæð þeirri, sem nú er hafin fram- kvæmd á í Reykjavík, um fjölda framleiðslu íbúða fyrir efnalít- ið fólk annarsstaðar í þéttbýli, þar sem þörf er fyrir hendi. Verðtrygging húsnæðislána verði samræmd reglum um víð tæka verðtryggingu fjárskuld- bindinga, sem er í undirbúningL Allsherjarendur- skoðun á frœðslu- kerfinu Stefnt verði að því að bæta enn menntunarskiiyrði æskunn ar í því skyni, að hún öðlist þá þekkingu og tækni, sem all- ar framfarir byggjast nú á í vax andi mæli. Fram fari allsherj- ar endurskoðun á fræðslukerf- inu og í því sambandi lögð sér- stök áherzla á áframihaldandi undirbúning og framkvæmd áætlana í menntamálum. Stefnt verði að því, að vaxandi hlut- fallstala hvers árgangs stundi framhaldsnám. Haldið verði áfram endurbót- um í löggjöf og framkvæmd í heilbrigðismálum. Sett verði ný lög um almennt og samræmt heilbrigðiseftirlit í öllu landinu. Lagt verði kapp á að ljúka áætl unargerð um byggingar heil- brigðis- og rannsóknarstofnana í tengslum við Landsspítalann og framtíðartengsl hans og ann arra heilbrigðisstofnana við læknadeild Háskólans. Unnið verði að aukinni hagkvæmni á grundvelli nýrrai tækni í rekstri sjúkrahúsa og á annan hátt gerðar ráðstafanir til þess að aukin fjáröflun til heilbrigð ismála nýtist sem bezt. Endur- skoðað verði skipulag yfirstjórn ar heilbrigðismála. Varanlegar vegabœtur Gerð verði áætlun um varan- legar vegabætur og leitað láns- fjár til þeirra framkvæmda, enda verði umferðagjald lagt á notkun varanlegra vega, jafn skjótt og fyrirfram ákveðnum áföngum er náð. Landgræðsla og gróðurvernd verði efld og aukin eftir því sem föng eru á. Fjármálakerfi ríkisins verði endurskoðað, þ.á.m. skipting tekjustofna miiii ríkis og sveit- arfélaga ásamt verkaskiptingu þeirra á milli Gerð verði áætl- un um lækkun innfíutningstolla með þeim hætti, að ekki valdi óeðlilegri truflur á atvinnu- rekstri, sem fyrir er. Haldið verði áfram athugun á hag- kvæmni þess að tekin verði upp staðgreiðslukerfi við skattgreiðslu, jafnframt þvi, sem leitazt. verði við að gera Framh. á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.