Morgunblaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 10
1 10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. OKT. 1967
- ATVINNUVEGIR
Frarriihald af bls. 1
ALÞÝÐUFLOKKURINN og
Sjálfstæðisflokkurinn hafa nú
haft samvinnu í ríkisstjórn síð-
an haustið 1959 eða í 8 ár. Hef-
ur þetta samstarf staðið leng-
ur samfleytt en nokkur önnur
samvinna um stjórn landsins.
Við upphaf þess mótuðu flokk-
arnir nýja stefnu í efnahags-
málum. Markmið hennar var að
styðja að aukningu þjóðartekna
og bættum lífskjörum me'ð því
að beina framleiðslu og við-
skiptum inn á hagkvæmar braut
ir, rétta við greiðslujöfnuð við
önnur lönd og endurvekja láns-
traust þjóðarinnar erlendis.
Stefna sú, sem fylgt hefur ver-
ið, hefur ásamt mikilli fram-
leiðslu og hagstæðu útflutnings-
verðlagi sjávarafurða hin síðari
ár, fram á árið 1966, orðið þess
valdandi, að þjóðartekjur hafa á
undanförnum árum vaxið meira
en á nokkru öðru sambærilegu
skeiði, þannig að lífskjör þjóð-
| arinnar jafnt til sjávar og sveita
j hafa að undanförnu verið betri
; og batnað örar, en nokkru sinni
. fyrr. Þetta á sinn þátt í því,
að þjóðin hefur vottað stjórn-
i arflokkunum traust í þeim
‘ tvennum Alþingiskosningum,
’ * sem háðar hafa veri'ð frá því að
þeir gengu saman í rikisstjórn.
Alþingiskosningarnar nú í sum-
ar leiddu í ljós, að stjórnar-
flokkarnir hafa meiri hluta kjós
enda að baki sér og hlutu meiri
hluta í báðum deildum alþingis.
j Það er þess vegna ótvíræður
vilji kjósenda, að stjórnarflokk-
arnir haldi samstarfi sínu áfram
enda hafa þeir ákveðið að gera
það.
jj Verkefni,
f sem við blasa
Verkefni þau, sem nú blasa
við, eru hins vegar mjög ólík
þeim, sem. verið hefur við að
| etja á undanförnum árum. Verð
[ fall á helztu útflutningsvörum,
erfitt árfer'ói víða um land og
aflatregða hafa á síðustu miss-
; erum gerbreytt viðhorfum í ís-
• lenzkum efnahagsmálum. Vegna
‘ þess, að allur almenningur hef-
»-ur að undanförnu fengið hlut-
fallslega meira en fyrr af stór-
auknum þjóðartekjum, verður
ekki hjá því komist, að sam-
dráttur þeirra um sinn leiði nú
til minnkandi tekna launþega
jafnt og annarra. En aðalvið-
fangsefnið hlýtur að verða að
i koma í veg fyrir, a’ð þessir örð-
j ugleikar leiði til atvinnuleysis
og varanlegrar kjaraskerðingar.
j Til þess, að það takist, þarf að
i gera ráðstafanir til að ná jafn-
i vægi í tekjum og gjöldum rík-
• issjóðs, helztu atvinnugreina og
i þjóðarbúsins í heild.
| Verðfallið, sem hófst fyrir
rúmu ári, gerði að verkum, að
augljóst var, að útflutningsat-
j vinnuvegirnir gætu ekki risið
i undir aukningu framleiðslu-
kostnaðar. Ákvað ríkisstjórnin
því að beita sér fyrir verðstöðv-
j un, í trausti þess, að launþegar
æsktu þá ekki launahækkunar.
í þessu skyni varð ríkisstjórn-
in að stórauka niðurgreiðslu
vöruverðs samfara öðrum ráð-
j stöfunum jafnframt því, sem
I aðstoð við sjávarútveginn var
i aukin. Var þetta kleift í bili,
j én nýrrar tekjuöflunar, vegna
; mikils tekjuafgangs ríkissjóðs á
árinu 1966, enda voru þá taldar
horfur á, að verðfallið yrði ekki
varanlegt.. Nú hefur raunin orð-
ið önnur svo bersýnilega er ekki
i unnt að minnka fyrirgreiðslu
; við sjávarútveginn og ef halda
ætti öllum þeim niðurgreiðsl-
um, sem eiga sér stað, auk fjár-
öflunar til þess að greiða óhjá-
kvæmilegan kostnaðarauka rík-
isbúsins vegna fólksfjölgunar og
skuldbindinga, sem þegar hvíla
á ríkinu, þyrfti á næsta ári að
afla um 750 milljón kr. nýrra
tekna til þess að ríkisbúskap-
urinn yrði hallalaus.
Sparnaður
og tekjuöflun
Þess vegna hefur ríkisstjórn-
^ in ákveðið, að fella niður þær
niðurgreiðslur á íslenzkum land
búnaðarafurðum, sem ákveðnar
hafa verið vegna verðstöðvun-
arinnar. Er hér um að ræða
niðurgreiðslur að upphæð 410
millj. kr. á ársgrundvelli. Þá hef
ur verð áfengis og tóbaks nú
verið hækkað, og er áætlað, að
það ‘ auki tekjur ríkissjóðs á
næsta ári um 75 millj. kr. Óhjá-
kvæmilegt er að fallast á tillögu
Tryggingastofnunar ríkisins um
hækkun iðgjalda um rúmlega
60 millj. króna því að ella væri
fjárhag stofnunarinnar stefnt í
voða. Leyfð verður hækkun dag
gjalda sjúkrahúsa, sem frestað
var í ár með sérstökum greiðsl
um úr ríkissjóði. Þá munu af-
numdar undanþágur sem í gildi
hafa verið um greiðslu sölu-
skatts af póst- og símagjöldum
og afnotagjaldi af hljóðvarpi
og sjónvarpi. Eykur það tekjur
ríkisins um 40 millj. kr.
Jafnhliða fjárlagafrumvarp-
mun ríkisstjórnin leggja fyrir
Alþingi frumvarp um sérstaka
tekjuöflun og aðrar nauðsynleg-
ar ráðstafanir vegna efnahags-
örðugleikanna. Ætlunin er að
leggja skatt á farmiða til út-
landa, 3000 krónur á hvern
miða og er gert ráð fyrir að
þessi skattur afli ríkissjóði um
60 millj. kr. tekna á ári. Enn-
fremur verður lagt til, að við
álagningu eignaskatts verði fast
eignamat í kaupstöðum og kaup
túnum tólf-faldað í stað þess, að
það er nú sex-faldað, en sex-
faldað í sveitum, þar sem eng-
in matshækkun er nú, og verð-
ur þessi hækkun þó lægri en
hins nýja fasteignamats.
Jafnframt verður lágmark
skattskyldra nettoeigna tvöfald-
að til þess að hækkun fast-
eignamatsins komi ekki niður á
fólki, sem er tiltölulega eigna-
lítið. Auk þess munu
gerðar ýmsar ráðstafanir til
sparnaðar í opinberum rekstri.
Með framangreinum ráðstöf-
unum á ríkisbúskapurinn að
geta orðið hallalaus á næsta
ári, en það er frumskilyrði
þess, að hægt sé að ráða við þá
efnahagsörðugleika, sem nú
steðja að.
Ný vísitala
Þessar ráðstafanir og þá auð-
vitað fyrst og fremst niðurfell-
inf þeirra niðurgreiðslna, sem
upp hafa verið teknar, síðan verð
stöðvunin koimst á, hljóta að
auka framfærslukostnað. Kaup-
lagsnefnd og Hagstofan hafa
reiknað út tvær vísitölur um
breytingar á framfærslukostnaði.
Samkvæmt gildandi lögum
breytist kaupgjald í samræmi við
breytingar á eldri vísitölunni.
Það verður hins vegar ekki vé-
fengt, að nýrri vísitalan er rétt-
ari mælikvarði á breytingu raun
verulegs framfærslukostnaðar,
því að hann er miðaður við
neyzluvenjur á árinu 1965, en
efcki 1953—1954 eins og hinn
fyrri, þegar lífskjör almennings
voru miklu lakari en nú. Nýrri
vísitalan er talin munu hækka
um 4—5% í kjölfar þeirra ráð-
stafana, sem nú hefur verið
lýs-t. Á hinn bóginn er fullvíst,
að atvinnuvegir landsmanna
geta ekki eins og nú horfir greitt
hækkað kaup. Þess vegna er
nauðsynlegt að koma í veg fyrir,
að þessi hækkun framfærslu-
kostnaðar valdi tilsvarandi kaup
hækkun og eru því í frumvarp-
inu ákvæði . um það, að kaup
skuli ekki hækka vegna þessara
ráðstafana. Að frátöldum slíkum
óhjákvæmilegum verðhækkun-
um eins og þeim sem taldar hafa
verið, mun ríkisstjórnin áfram
fylgja verðstöðvunarstefnu, og
er gert ráð fyrir, að ákvæði nú-
gildandi verðstöðvunarlaga séu
framlengd með því frumvarpi,
sem áður er getið um. Jafnframt
er ætlunin, að hin nýja vísitala
taki gildi 1. marz nk. og miðist
kaupgjald framvegis við hana á
sama hátt og verið hefur sam-
kvæmt hinni eldri vísitölu.
Lágmark þess,
sem gera þarf
Þær ráðstafanir, sem nú hafa
verið taldar eru tvímælalaust lág
mark þess, er gera þarf atvinnu-
vegunum til styrktar. Á undan-
förnum árum hefur ávallt þurft
að framkvæma öðru hverju að-
gerðir af því taigi, sem nú eru
ráðgerðar. Slíkt er auðvitað ó-
æskilegt. Til þess að eyða nauð-
syn þvílíkra skyndiaðgerða ætíð
öðru hverju, þarf að gera at-
vinnuvegi þjóðarinnar fjölbreytt
ari og síður sveiflum háða, jafn-
framt því, sem markvíst verði
að því unnið, að auka framleiðni
í öllum atvinnugreinum sem og
hagkvæmni í rekstri ríkis og
sveitarfélaga. Stjórnarflokkarnir
eru sammála um, að þetta sé á
meðal mikilvægustu verkefna
næstu ára, og mun ríkisstjórnin
leggja höfuðáiherzlu á, að árang-
ur náist í þessum efnum.
í þessu skyni mun ríkisstjórn-
in beita sér fyrir, að framleiðslu-
geta atvinnuveganna verði nýtt
sem bezt, enda verði þessa gætt
bæði í rekstri og fjárfestingum.
í sjávarútvegi verði lögð sér-
stök áherzla á endurnýjun þorsk
veiðiflotans og þá endurskipu-
lagningu fiskvinnslunnar, sem nú
þegar er hafin, þannig að betur
nýtist þau tæki, sem þegar eru
fyrir hendi.
1 landbúnaði verði stefnt að
því að auka framleiðni og fjöl-
breytni framleiðslunnar, þanniig
að hann verði í framtíðinni fær
um að fullnægja margbreytileg-
um þörfum innlends markaðs og
flytja út vörur án uppbóta úr
rikissjóði.
í iðnaði verði haldið áfram að
styrkja viðleitni fyrirtækja til
að laga sig að þeim breyttu að-
stæðum, sem frjáls innflutning-
ur og lækkandi tollar skapa.
Sérstaklega verði stefnt að efl-
ingu þeirra iðngreina, sem eðli
legastur starfsgrundvöllur er fyr
ir hér á landi svo sem iðnað í
tengslum við framleiðsluat-
vinnuvegina þ.á.m. skipasmíðar
og skipaviðgerðir, veiðarfæra-
iðnað og netagerðir, og stuðlað
verði að stofnun iðngreina til
hagnýtingar nattúruauðlinda.
í viðskiptpm verði lögð
áherzla á að efla nýja verzl-
uarhætti, er lækki dreifingar-
kostnað, jafnframt því, sem
sett verði löggjöf um eftirlit
með einokunarverðmyndun og
samtökum um xerðlagningu.
Um opinberan rekstur og
framkvæmdir mun ríkisstjórnin
leggja áherzlu á, að gerðar séu
hliðstæðar ráðstafanir og í at-
vinnurekstri til lækkunar til-
kostnaðar. Fjárlaga- og hag-
sýslustofnur.in mun hafa for-
ystu um að beita sér fyrir þessu
í samvinnu við einstök ráðu-
neyti, stofnanir og sveitarfélög.
Hagnýting náttúru-
auðœfa landsins
Jafnframt því sem unnið
verði að framleiðniaukningu
hvarvetna sem við verður kom-
ið, telur ríkisstjórnin, að halda
beri áfram stóriðjuframkvæmd
um, svo að öll landgæði, þ.á.m.
fossa-afl og jarðhiti nýtist þjóð-
inni allri til heilla. í því skyr.i
telur ríkisstjórnin að ieita beri
samvinnu við erienda aðila eft-
ir því, sem þörf er á, jafnframt
því, sem úrslitayfirráð íslend-
inga séu tryggð á sama veg og
gert var um þær framkvæmdir
er þegar hefur verið ráðizt í.
Sem fyrst vc-rði kannaðir til
hlítar möguleikar á vinnslu nyt
samra efna úr sjó og undirbúin
stækkun áburðarverksmiðju.
Markaðsaðstöðu erlendis þarf
að bæta, m.a. með tafarlausri
fullnaðarkönnun á möguleikum
á aðild að Fríverzlunarbandalag
inu, jafnframt því, sem leitað
verði viðhlítandi samninga við
Efnahagsbandalaigið, enda sé
það ljóst frá upphafi, að full
aðild kemur þar ekki til greina.
Stöðugt verði unnið að öflun
nýrra markaða í samvinnu við
samtök atvinnuveganna.
Með þessum og öðrum ráðum
verði stuðlað að því, að þjóðar-
tekjur geti sem skjótast aukizt
á ný, og mun þess effir föng-
um gætt, að jaínframt því, sem
atvinnurekstur búi við skilyrði,
er veiti möguleika til áfrani-
haldandi vaxtar, fái almenning-
ur svo mikinn hluta aukins arðs
sem unnt er.
Um þessar og aðrar efnahags-
ráðstafanir til trygginga- kjör-
um almennings og atvinnu-
rekstri hyggst ríkiss'jórnln hafa
samráð við aimannasamtök, þ.
á.m. stéttarfélög.
Þessi er meginstefnan sem
samkomulag hefur orðið um að
fylgja, og hefur jafnframt ver-
ið samið um framgang nokk-
urra sérstakra mála.
Byggðaáœtlunum
hraðað
Haldið verði áfram að starfa
að áætlunargerð um fram-
kvæmdir og eínahagsþróun, eft
ir því, sem reynsla hefur leitt
í Ijós, að við eigi hér á landi.
Sérstök áherzla sé á næsfcu ár-
um lögð á áætiunargerð til eins
árs í senn til stuðnings við
mörkun stefnu í efnahagsmálum
og fjármálum jafnframt því,
sem unnið sé að áætlunum til
iangs tíma um einstakar grein-
ar opinberra framkvæmda og
opinbers reksturs. Hraðað verði
áætlunum um þróun einstakra
byggðarlaga og landshluta og
reynt eftir föngum, að hagnýta
áætlunargerð um þróun at-
vinnugreina til iangs tíma.
Almannatryggingar verði end
urbættar í samræmi við fengna
reynslu hér og annars staðar og
leitazt við að íslenzkt trygging-
arkerfi haldist i fremstu röð.
Kappsamlega verði haldið áfram
undirbúningi almenns lífeyris-
sjóðs fyrir alla landsmenn.
í húsnæðismálum verði öll
aðstoð af hálfu ríkisins sam-
ræmd, svo að sem flestir mögu
ieikar skapist fyrir nægilegum
byggingum með sem minnstum
tilkostnaði, enda verði, jafn-
framt því sem opinber stuðn-
ingur við byggingar haldist,
stuðlað að eðlilegri samkeppni
i byggingum. Gerð verði áæti-
un til nokkurra ára, hliðstæð
þeirri, sem nú er hafin fram-
kvæmd á í Reykjavík, um fjölda
framleiðslu íbúða fyrir efnalít-
ið fólk annarsstaðar í þéttbýli,
þar sem þörf er fyrir hendi.
Verðtrygging húsnæðislána
verði samræmd reglum um víð
tæka verðtryggingu fjárskuld-
bindinga, sem er í undirbúningL
Allsherjarendur-
skoðun á frœðslu-
kerfinu
Stefnt verði að því að bæta
enn menntunarskiiyrði æskunn
ar í því skyni, að hún öðlist
þá þekkingu og tækni, sem all-
ar framfarir byggjast nú á í vax
andi mæli. Fram fari allsherj-
ar endurskoðun á fræðslukerf-
inu og í því sambandi lögð sér-
stök áherzla á áframihaldandi
undirbúning og framkvæmd
áætlana í menntamálum. Stefnt
verði að því, að vaxandi hlut-
fallstala hvers árgangs stundi
framhaldsnám.
Haldið verði áfram endurbót-
um í löggjöf og framkvæmd í
heilbrigðismálum. Sett verði ný
lög um almennt og samræmt
heilbrigðiseftirlit í öllu landinu.
Lagt verði kapp á að ljúka áætl
unargerð um byggingar heil-
brigðis- og rannsóknarstofnana
í tengslum við Landsspítalann
og framtíðartengsl hans og ann
arra heilbrigðisstofnana við
læknadeild Háskólans. Unnið
verði að aukinni hagkvæmni á
grundvelli nýrrai tækni í
rekstri sjúkrahúsa og á annan
hátt gerðar ráðstafanir til þess
að aukin fjáröflun til heilbrigð
ismála nýtist sem bezt. Endur-
skoðað verði skipulag yfirstjórn
ar heilbrigðismála.
Varanlegar
vegabœtur
Gerð verði áætlun um varan-
legar vegabætur og leitað láns-
fjár til þeirra framkvæmda,
enda verði umferðagjald lagt
á notkun varanlegra vega, jafn
skjótt og fyrirfram ákveðnum
áföngum er náð.
Landgræðsla og gróðurvernd
verði efld og aukin eftir því
sem föng eru á.
Fjármálakerfi ríkisins verði
endurskoðað, þ.á.m. skipting
tekjustofna miiii ríkis og sveit-
arfélaga ásamt verkaskiptingu
þeirra á milli Gerð verði áætl-
un um lækkun innfíutningstolla
með þeim hætti, að ekki valdi
óeðlilegri truflur á atvinnu-
rekstri, sem fyrir er. Haldið
verði áfram athugun á hag-
kvæmni þess að tekin
verði upp staðgreiðslukerfi við
skattgreiðslu, jafnframt þvi,
sem leitazt. verði við að gera
Framh. á bls. 19